Morgunblaðið - 20.07.1969, Side 10

Morgunblaðið - 20.07.1969, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚL.Í 1009 Tunglfararnir við æfingu. Þan nnig er gert ráð fyrir að fyrsta jarðvegssýnishornið verði tek ið af tunglinu. 1. dagur mannsins ó iromondi hnetti f dag hefst ævintýralegasti hluti tungiferðar þremenning anna, Neils A. Armstrongs, Ed- wins Aldrins og Michaels Coll- ins. Þeir leysa tunglferjuna, „Öminn“, frá stjórnfari Apoll- os—11 og lenda á tunglinu. Hið sögulega augnablik, þegar mað urinn stígur í fyrsta sinn fæti á framandi hnött, nálgast óð- um. Hér á eftir verður skýrt frá fyrirhugaðri tungllendingu og áætlun um hvemig fyrsti dag ur mannsins á öðrum hnetti líði 35. TUNGLFERJAN LEYST FRÁ STJÓRNFARINU Að lokinni átta stunda hvíid skriða fararstjóri Apollos—11, Neil Armstrong og Edwin Aldr in, sem stjómar tunglferjunni inn í göngin, sem liggja úr stjómfarinu inn í tunglferjuna. Göngin eru þröng og þeir skriða hvor á eftir öðrum. Fé- lagi þeirra, Michael Collins, verður eftir í stjóm- farinu og þaðan gefur hann fyrirmæli um stjóm tungl ferjunnar. í þrjár klukku- stundir yfirfara Armstrong og Aldrin ferjuna, til þess að ganga úr skugga um, að allt sé með felldu. Ef svo reynist, eru opnaðar læsingar, sem festa ferjuna við stjórnfarið, tungl- fararnir tveir kveikja á þýrsti hreyflum tunglferjunnar og skilja hana frá stjórnfarinu. Að því loknu verða tvö miönnuð geimför á braut umliverfis tungl ið, en það gerðist í fyrsta skipti í ferð Apollos—10 í maí sl. Bílið milli geimfarann,a er um 12 metrar og Collins skoðar tunglferjuna gegnum gluggann á stjórnfarinu. Komi hann ekki auga á neitt óeðlilegt, tilkynn- ir hann félögum sínum í tungl- ferjunni, að þeim sé óhætt að hef ja lendingu. 36. BRAUTARBREYTING Armstrong og Aldrin ræsa nú þrýstihreyflana á ný og flytja tunglferjuna í 630 metra fjarlægð frá stjórnfarinu. Lend ingarkerfi hennar tekur nú að starfa og flytur hana á spor- öskjulaga braut. Verður tungl- nánd aðeins 15 km. Tunglferj- an færist neðar og neðar á hinni nýju braut sinni og fjar lægist Collins og stjórnfarið stöðugt. En það er á braut í 111 km fjarlægð frá tunglinu. Af nýju br.autinni geta tungl fararnir beint tunglferjunni á fallbraut. Þeir sjá gígótt yfir- borð tunglsins nálgast gegnum þríhyrningslaga glugga ferjunn ar. Þeir standa við stjórntæk- in mieð öryggisbelti spennt um sig til að verjast höggum. Armstrong og Aldrin feta ná kvæmlega í fótspor fyrirrenn- ara sinna í Apollo—10 þar til þeir beina tunglferjunni á fall- braut. Þá hefst sá hluti ferð- arinnar, sem aldrei hefur verið farinn áður. Tunglferjan, knú- in þrýstihreyfli nálgast tunglið með 15 gráðu halla. 37. LENDINGIN Tungifarar- nir geta sjálfir ákveðið hraða tunglferjunnar á fallbrautinni og látið hana svífa hægt yfir yfirborðinu meðan þeir velja hentugasta lendingarstaðinn. Þeir ákveða lendingarstaðinn endanlega, þegar ferjan er í 22 metra hæð, og frá þeim punkti fellur hún nærri lóðrétt, þar til hún snertir yfirborðið. Nið- ur úr pöllunum fjórum, sem tunglferjan stendur á eftir lend ingu, hanga fálmarar, um einn metri á lengd. Þegar þeir snerta tunglið, berst Armstrong og Aldrin merki um, að slökkva megi á hreyflinum. Hægt og rólega lendir „Örninn" aðeins rúmri mínútu eftir að honum var beint inn á fallbraut. Þá er klukkustund liðin frá því að ferjan var leyst frá stjórnfar- inu , fjórir sólarhringar frá því að Saturnus—5 bar Apollo — 11 út í geiminn, átta ár frá því að undirbúningur undir lendingu á tunglinu hófst fyrir alvöru, og árþúsundir frá því að manninn dreymdi fyrst um að stíga fæti á annan hnött. 38. FYRSTU KLUKKUSTUND IR MANNSINS Á TUNGLINU Að lendingu lokinni kl. 20.19 hafa tunglfararnir samband við stjórnstöðina í Houston. Því næst taka þeir ákvörðun um hvort þeir eigi að skjóta ferj- unni á loft strax aftur, tölvan undirbýr ferjuna undir að hefja sig á loft og á mælaborðinu koma fram orðin: „HreyfiIIinn tilbúinn“. Armstrong og Aldr- in gera athuganir á tækjum ferjunnar og finni þeir bilun þrýsta þeir á hnapp sem ræsir hreyfilinn og sendir ferjuna í átt til stjórnfarsins. Ef engar skemmdir hafa orðið í lending unni, gefa þeir tölvunni til kynna, að ekki pigi að skjóta ferjunni á loft strax. Rúmum tveimur klukkustundum eftir lendingu, að lokinni nákvæmri Bandaríski fáninn, sem skilinn verður eftir á tunglinu. tunglforarnir 1 dog og ó morgun?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.