Morgunblaðið - 20.07.1969, Page 11
MORCiUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚL.Í 1009
11
athugun á öllum tækjum ferj-
unnar, fá tunglfararnir leyfi tU
að borða og hvílast, í 4 klst.
Hugsanlegt er, að hvítdartím-
inn verði styttur, ef tunglfar-
arnir verða orðnir mjög eftir-
væntingarfullur, og telja sig
ekki geta notið hvíldarinnar
þess vegna. Ef svo fer, stígur
fyrsti maðurinn á tunglið nokkr
um klukkustundum áður en
fyrirhugað var. Hér á eftir
verður miðað við upphaflegar
tímaákvarðanir. Ráðgert er að
geimfararnir verði vaktir kl.
kl. 02.58 eftir ísl. tíma aðfara-
nótt mánudagsins, og fá þeir
síðan klukkustund til að mat-
ast. Kl. 03.58 taka Armstrong
og Aldrin að klæðast hinum
þunga og margbrotna búningi,
sem dvölin utan tunglferjunn-
ar krefst. Tunglfararnir verða
um tvær klukkustundir að kom
ast i búningana. Síðan setja
þeir á sig bakpoka með ýms-
um tækjum. AIIs vegur útbún-
aður þeirra 82 kg. á jarðar-
visu, en á tunglinu vegur hann
aðeins M þeirra þyngdar.
Kl. 05.58 er ráðgert, að loft-
þrýstingurinn inni í tunglferj
unni verði minnkaður og jafn-
aður þrýstingnum útj fyrir, en
það er nauðsynlegt til þess að
takast megi að opna dyr ferj-
unnar. (sjá grein um tunglbún-
inginn á bls. 13).
39. FYRSTU SKREFIN Á
TUNGLINU. Þegar dyrnar, sem
eru fremur þröngar, hafa ver-
ið opnaðar, leggur Armstrong
að stað út úr ferjunnL Vænt-
anlcga kl. 06.12. Hann getur átt
í nokkrum erfiðleikum með að
komast út vegna þess hve fyrir
ferðarmikill tunglbúningur
hans er. Bakpokinn gerir það
að verkum, að tunglfarinn lík-
ist mest skjaldböku, sem geng-
ur á afturfótunum. Armstrong
staðnæmist á litlum palli utan
við dyr tunglferjunnar, snýr sér
við, og tekur að feta sig aftur
á bak niður stigann, sem
tengdur er einum þeirra fjög-
urra „fóta“, sem tunglferj-
an hvílir á. Talið er, að
Armstorng renni fremur
en gangi niður stigann. Undii
fætinum er pallur, og þar stað
næmist Armstrong. Varlega rétt
ir hann vinstri fótinn út af pall
inumi, en heldur sér fast stig-
ann á meðan, ef hugsast gæti,
að tunglið væri ekki eins fast
undir fæti og geimvísindamenn
Bandaríkjanna telja. En hafi
vísindamennirnir rétt fyrir sér,
stígur Armstrong hægra fæti út
af pallinum og sleppir stigan-
um. Hann reynir að ganga
nokkur skref til þess að sann-
færa sig og aðra menn um, að
unnt sé að hreyfa sig á tungl-
inu. Fregnir af ævintýri Arm-
strongs berast til jarðar jafn ótt
og það gerist. Hann hefur
senditæki í bakpokanum, og inn
í glæra hjálminum hans er hljóð
nemi, sem hann talar í. Sendi-
stöðin í tunglferjunni magnar
orð Armstrongs svo mikið, að
þau ná til jarðarinnar.
40. JARðARBÚAR FYLGJAST
MEð ARMSTRONG.
Armstrong lýsir yfirborði
tunglsins, og dýpt fótspora
sinna. Ef sporin verða ekki fyr
ir loftsteini, verða þau enn sjá
anleg eftir 500 þús. ár. Arm-
strong lýsir umhverfi sínu nán
Teikningin sýnir hið sögulega augnablik, þegar Armstrong stígur fæti á tunglið fyrstur manna.
44. TÆKJUM KOMIð FYRIR
Aldrin gengur nú aftur að
birgðageyms>u tunglferjunnar
og tekur fram tæki, sem nota
á til að reyna að ná efnisögn-
um, sem berast frá sóiinni.
Þegar hann hefur lokið
við að koma því fyrir, tekur
hann verkfærakassa út úr
tunglferjunni. Kassinn inni-
heldur m.a. hamra, tengur og
ýnaislegt fleira, sem tunglf.arar
nir nota við söfnun sýnishorna.
Vegna þess hve búningur þeirra
er stífur, geta þeir lítið beygt
sig, og því eru tengumar nauð
synlegar. Armstrong nær í tvo
kassa, sem nota á til að geyma
sýnishornin í á leið til jarðar.
Kassamir verða lofttæmdir þeg
ar þeim er lokað og ekki opn
aðir aftur fyrr en i sérstöku
lofttómu herbergi í ranusóknar
stöðinni í Houston. Er þetta gert
vegna þess, að kæmist innihald
kassanna í snertingu við and-
ar. í«að er morgunn á lending-
arstaðnum, sólin er lágt á lofti,
hún virðist minni og skærari
en séð frá jörðinni. Á tunglinu
er ekkert gufuhvolf til þess að
draga úr hita sólargeislanna.
En tunglförunum er ólhætt þótt
hitinn verði mikill. Hvíti bún-
ingurinn endurkastar mestu af
sólarljósinu, og auk þess er í
honum kælibúnaður með vatni,
sem haldið er nálægt frost-
marki. Armstrong horfir til
himins, þar sér hann jörðina
græna, hvíta og bláa í svört-
um geimnum nokkur hluti henn
ar er hulinn myrkri. Sjóndeildar
hringurinn er aðeins um 2.5 km
frá Armstrong, þar sem hann
fetar sig varlega áfram í námd
við tunglferjuna.
Að sjálfsögðu eru súrefnis-
birgðir í tunglbúningnum, og
ráðgert er, að þær endist í 4
klukkustundir. Súrefniskerfið
gengur fyrir rafhlöðum, eins
og kæli og þrýstikerfi búnings
ins. Ef súrefniskerfið brygðist,
er lítiU vai-ageymir í bakpok-
anum með nægiiegu súrefni til
hálfrar klukkustundar, en sá
tími ætti að nægja geimförun-
um til þess að komiast aftur inn
í tunglferjuna.
41. ÖRYGGI. Lítil hætta er á,
að Armstrong verði fyrir slysi
þar sem hann gengur fyrstu
skrefin á tunglinu. Þrýstings-
kerfið í tunglbúningnum á að
vama því. Búningurinn er
ín.a. gerður með það fyrir aug-
'um, að hann láti ekki undan
þótt smæstu loftsteinar lendi á
tunglfaranum. Flestir loftstein
anna, sem falla á yfirborð
tunglsins eru svo örsmáir, að
Mynd tekin úr stjórnfari Apo Uos—10. Sýnir hún tunglferj
una á sveimi yfir fyrirhuguðum lendingarstað „Arnarins“ á
Hafi rósemdarinnar.
hið seiga efni tunglbúningsins
þolir þá. Seigla efnisins á einn-
ig að ver,a nægileg til þess, að
búningurinn rifni ekki, þótt
tunglfaramir hrasi, að minnsta
kosti meðan þeir em að venj
ast því að ganga um á tur.gl-
inu þar sem þyngd þeirra er
H minni en á jörðinni. En
þeir, sem teiknuðu búningana
þeirra, fullyrða, að þeir séu of
og höfðu umsjón með gerð
stífir til þess að hugsanlegt sé
að tunglfararnir handleggs- eða
fótbrotni.
42. STÖRFIN HAFIN
Armstrong heldur áfram að
segja frá því, sem fyrir augun
ber, meðan Aldrin stendur í
dymm tunglferjunnar og læt-
ur myndavél síga niður til hans
í bandi. Armstrong festir mynda
vélina, sem er sjálfvirk, um
háls sér. Því næst gengur hann
að hólfi einu í tunglferjunni,
þar sem ýmis verkfæri eru
geymd, og opnar það. Hann
dregur fram einskonar skóflu
og plastpoka. Hann skóflar upp
jarðvegssýnishornum, og lýsir
þeim um leið og hann lætur
þau detta niður i pokann. Hann
lokar jiokanum og stingur
honum í vasa á tunglbúningi
sinum. Ef óvænt atvik neyddi
tunglfarana til þess að yfirgefa
áfangastað sinn í flýti, hefðu
þeir að minnsfa kosti þetta jarð
vegssýnishorn. Armstrong tek-
ur nú myndir af yfirborði
tunglsins og tunglferjunni.
Hann segir jafn óðum frá því,
sem hann aðhefst og jarðar-
búar fylgjast með.
43. TVEIR MENN Á
TUNGLINU. Aldrin klifrar nú
út úr tunglferjunni og Arm-
strong beinir myndavélinni að
honum meðan hann fer niður
stigann. Þá hefur Armstrong
verið einn á tunglinu í 26 min-
útur. Fyrsta verk Aldrins er að
sækja þrífót í verkfærageymslu
tunglferjunnar. Hann hafði með
sér Utla sjónvarpsmyndatökuvél
úr tunglferjunni og nú gengur
hann rúmilega 10 metra frá
henni og setur myndavélina á
þrifótinn. Tekur vélin síðan
myndir af tunglferjunni, tungl-
förunum við störf, og umhverf-
inu. Tunglfararnir ganga úr
skugga um, að tunglfcrjan hafi
ekki laskazt í lendingunni. Mest
hætta er á, að leki komist að
súrefniskerfinu eða eldsneytis-
geymunum. Ef þetta gerist,
verða tunglfararnir að freista
þess að skjóta ferjunni á loft
þegar í stað og reyna að tengja
hana stjórnfarinu á ný. Reynist
allt í góðu lagi, halda tungl-
fararnir áfram störfum.