Morgunblaðið - 08.10.1969, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.10.1969, Blaðsíða 15
MOHGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1969 15 Nýir stjómendur í Bonn Willy Brandt, fyrsti kanslari jafnaðarmanna eftir strib — Walter Scheel, nýr utanrikisráðherra með nýjar hugmyndir JAFNAÐARMENN undir forystu Willy Brandts hafa ákveðið að taka við stjórn- arforystunni í Vestur-Þýzka landi og mynda sam- steypustjórn með frjálsum demókrötum. Þetta eru kaflaskipti. Frá stríðslokum hefur enginn kanslari Sam- bandslýðveldisins verið úr röðum jafnaðarmanna, SPD. Við stjómarskiptin nú koma og menn fram á stjórnmálasviðið þar, sem lítt eru þekktir utan Þýzka- lands, menn eins og Walter Scheel, leiðtogi frjálsra demókrata, FDP, en Scheel á að taka við embætti utan- ríkisráðherra. Hér á eftir verður greint frá þessum tveimur mönn- um, þeim Willy Brandt og Walter Scheel, en þeir munu ráða mestu um stefnu þeirrar stjórnar, sem taka á við völdum í Sam- bandslýðveldinu Þýzkalandi 21. þ. m. SLAPP FRÁ GESTAPO TIL NOREGS Willy Brandt fæddist 18. desember 1913 í hafnarborg- inni Liibeck og lauik þar stúd- entsprófi 1932. Þegar í æsku tók hann að starfa í sósíalist- ískum æskulýðssamtökum og gekk í flokk jafnaðarmanna 17 ára gamall. Skömmu eftir, að Adolf Hitler hafði komizt til valda í Þýzkalandi, flýði Brandt úr landi til Noregs, nokkrum klukkustundum áður en Gestapo, hiin alræmda lisyni- lögregla Hitlers, hugðist hand taka hann og árið 1940 flýði hann til Svíþjóðar, er nazistar hernámu Noreg. Lýðræðishug- sjónir Norðurlanda og skoðan- ir jafnaðarmanna þar höfðu mikil áhrif á þennan unga mann, sem hiafði einsett sér að verða stj órnmálamaður. í stríðs lok hélt hann til Þýzkalands og var viðstaddur réttarhöld- in í Niirnberg sem fréttaritari bæði norskra og sænskra dag- blaða. Því hefur oft verið beitt gegn Brandt í Vestur-Þýzka- landi, að hann hafi haldið sem sigurvegari inn í sitt eigið land eftir stríðið, en í Noregi hafði Brandt gerzt þarlendur ríkisborgari og skipt um nafn og hann hafði hlotið majors- gráðu í norska hernum, er hann hélt til föðurlands síns að nýju. En með tímanum hef- ur þetta viðhorf gagnvart Brandt breytzt mjög og er það sennilega yngri kynslóðin frem ur en sú eldri, sem metur það við Brandt, hversu langt hann gekk í barátJbu sinni gegn nas- istum. Hve margir voru þeir annars, sem án þess að þurfa, sáu sig knúna til þess að taka upp baráttuna gegn Hitler þeg ar árið 1933 og máttu þess vegna flýja land? Árið 1947 varð Brandt for- maður flokksdeildar SPD í Berlín og tveimur árum síðar var hann þar kjörinn á fyrsta Sambandsþingið í Bonn. Árið 1955 var hann kjörinn forseti fylkisþingsins í Vestur-Berlín og tveimur árum síðar varð hann borgarstjóri í hinum frjálsa hluta Berlinar. Frá því í febrúar 1964 hefur Willy Brandt ennfremur verið for- maður SPD, j af n a ð arman n a - flokks Þýzkalands. Sem borgarstjóri í Vestur- Berlín gat Brandt sér mikið orð og varð heimskunnur mað- ur ekki hvað sízt, þegar Berlín ardeilan harðnaði að nýju á ár- unum upp úr 1960. Hann varð fulltrúi frelsisins í tvískiptri borg og borgarbúar litu á hann sem persón jigerving andscöðu þeirra gegn yfirgangi og hót- unum kommúnista. Jafnaðarmenn vonuðust til þess að vinna mikinn sigur í þingkosningunum í V-Þýzka- landi 1965 með Willy Brandt sem kanslaraefni. En kosning- arnar urðu þeim vonbrigði og Brandt lýsti því yfir, að hann myndi ekki keppa framar að því að verða kanslari. Jafnað- armenn höfðu að vísu unnið á í kosningunum, en aðal andstæð- ingar þeirra, kristiiegir demó- kratar, CDU—CSU, unnu einn ig á og mynduðu næstu ríkis- stjórn ásamt frjálsum demó- krötum, FDP. En Brandt kom að nýju fram á sjónarsviðið, er stjórnarsam- vinna CDU-CSU og FDP fór út um þúfur síðari hluta árs 1966 og ný stjórn var mynd- uð undir forystu Kurt Georg Kiesingers, en þar varð Brandt libanríkisráðthierra og varakansl ari. Þebba var í fyrsba sinn eft- ir stríð, að jafnaðarmenn eign- uðust aðild að stjórn landsins og stjórnaraðild þeirra sl. þrjú ár virðist hafa kveðið nið ur þá skoðun, sem áður var möninum væri yfirleitt ekki mjög úitíbreidd, að jafnaðar- treystandi fyrir forusbunni í stjómmálum landsins. FRIÐSAMLEG SAMBÚÐ VIÐ VESTUR-EVRÓPU Þau málefni, sem Brandt hef ur lagt helzta áherzlu á í kosn ingabaráttunni nú, vom tvenns konar: Að keppa að sem frið- samlegastri og árekstralaus- astri sambúð við Austur-Ev rópu í þeirri von að kalda stríðið hverfi eins og unnt er úr sögunni. Hann vill sann- færa Rússa, Pólverja og Tékkóslóvaka um, að gamli þýzki hernaðarandinn sé liðin tíð og að engar landakröfur verði gerðar á hendur þessum þjóðurn, náiist heildar friðar- samningar og samkomulag um Þýzkaland. Sú skoðun er út- breidd i röðum jafnaðarmanna í V-Þýzkalandi, að þegar ekki verði framar unnt á nokkurn hátt að benda á V-Þýzkaland sem friðarspilli í Evrópu og það sem meira máli skipti, sann færa stjórnmálamenn og al- menning í löndum Ausitur-Evr- Willy Brandt og Walter Scheel. óup, einkurn Póllaindi og Tékkóslóvakíu, að hugur fylg ir máli, þá muni þessi lönd sem önnur kommúnistalönd í Aust- ur-Evrópu verða miklu óháðari Sovétríkjunum en nú og ein- hver von skapast á endursam- eiiningu 'Þýzkalands. tannig hafi Þýzkalandsvandamálið leg ið beint eða óbeint að meira eða minna leyti að baki innrás- inni í Tékkóslóvakíu í fyrra. Á meðan Þýzkalandsvandamál- ið sé óleyst, haldist „status quo“ eða óbreytt ástand í Ev- rópu. Innanlands hefur Brandt lagt áherzlu á, að framfylgt yrði þeirri efnahagsmálastefnu sem Karl Schiller efnahagsmála ráðherra hefur mótað undan- farin þrjú ár. EINDREGINN STUÐNINGSMAÐUR NATO Willy Brandt var fulltrúi lands síns á ráðherrafundi Atl antshafsbandalagsins, sem hald inn var í Reykjavík 23.—24. júní í fyrra. í grein, sem hann skrifaði fyrir Morgunblaðið þá í tilefni ráðherrafundarins, sagði hann m.a.: „Við getum ekki rætt um tryggingu á friði í Evrópu, nema með því að taka tillit til Atlantshafsbandalagsins við at- huganir okkar. Um mokkurt árabil hefur alþjóðlegt hættu ástand ekki komið upp í Evr- ópu. Þessi þróuin hefði ekki orðið, ef Vestur-Evrópa og Norður-Ameríka hefðu ekki staðið saman á hættutímum undanfarinna ára og verið reiðubúin til þess í sameimingu að hrinda af sér árás. Ríki Evr- ópu hefðu ein sér og ef þau hefðu einungis getað reitt sig á sig sjálf, ekki getað byggt upp neina raunhæfa vörn gegn þeirri ógnun, sem þá vofði svo háskasanjlega yfir. Sú vit- neskja lá til grundvallar stofn un NATO, að til lamgframa væri öryggi Evrópu aðeins tryggt með sameiginlegu varn- arbandalagi við Bandaríkin. Vesturþýzka Sambandslýð- veldið hefur leitað náinna tengsla við hið vestræna banda lag alveg eins og við höfum knýtt örlög okkar með nánum hætti þeirri sameiningu Evr- ópu, sem skapazt hefur und- ir vernd þess. Aðstaða okkar var slík, að við áttum ekki annarra kosta völ. En val okk ar var einnig þeim mun léttara, þar sem bandamenn okkar gerðu lögmætt takmark þjóðar okkar að sýnu eigin takmarki: Það er sjálfsákvörðunarrétt einnig fyrir þjóð okkar og frið samlega skipan mála, sem gerði Þjóðverjum kleift að lifa sam- an í einu ríki“. Willy Brandt kvæntist konu sinini Ruth, sem er norsk að uppruna, á útlegðarárunum í Noregi og eiga þau þrjá syni. Hann hefur skrifað ýmsar bæk ur um stjórnmál og hlaut m.a. heiðursdoktorstitil við Har- wardháskóla 1963 fyrir bók sína: „Koexistens — Zwang zum Wagnis“. WALTER SCHEEL — FRJALSLYNDUR LÝÐRÆÐISSINNI Walter Scheel, sem taka á við embætti utanríkisráðherra Þýzka sambandslýðveldisins við stjórnarskiptin 21. október nik., er formaður Frjálsa demó krataflokksins, FDP, sem standa mun að samsteypu- stjórninni ásamt SPD. Scheel er fæddur 8. júlí 1919 í Soling- en og nam viðskiptafræði að loknu stúdentsprófi. Frá 1939 —1945 gegndi hann herskyldu í flugher Þýzkalands, þar sem hann var orðinn liðsforingi, er styrjöldinni lauk. Frá stríðs- lokuim fram til 1953 starfaði hanm sem fjármálaráðgjafi hjá ýmsum stofnunum, en það ár setti hann á stofn eigin skrif- stofu á þessu sviði í Dúsisel- dorf og hefur ver ið búsettur þar síðan. Walter Scheel gekk í Frjálsa demókrataflokkinn þegar árið 1946 og var honum strax falið að gegna ýmsum ábyrgðarstörf um fyrir flokk sinn, fyrst í borgarstjórn Solingen en síðan á fylkisþingi Nordrhein-West- falen. Hann varð þingmaður á Sambandsþinginu 1953 og hef- ur verið það síðan. Hann gat sér mikið orð fyrir störf sín í sambandi við efnahagslega upp byggingu Vestur-Þýzkalands og . 1958 varð hann formaður þeirr ar nefndar Sambandsþingsins, sem hafði á hendi eftirlit með efnahagsaðstoð þeirri, er Sam- bandslýðveldið veitir til þróun arlanda. Þremur árum síðar varð hann ráðherra og tók við yfirstjórn þess ráðuneytis, sem annast efnahagssamstarf við önnur lönd. Þessu embætti gegndi hann til ársloka 1966, er samsteypustjórn jafnaðar manna og kristilegra demó- krata komst á fót. Á þessum tíma ferðaðist hann víða í því skyni að kynna sér vandamál þeirra ríkja, sem efnahagsað- stoð hljóta frá V-Þýzkalandi. Þegar Erich Mende lét af forystu FDP 30. janúar 1968, var Walter Scheel kjörinn for- maður í hans stað á landsþingi flokksims. I kosningabaráttu sinni hef- ur FDP lagt kapp á, að tekiii verði upp utanríkisstefna, sem á ýmsan hátt er frábrugðin þeirri, sem V-Þýzkaland hefur fylgt til þessa. Það er því ekki að ástæðulausu, að því er gef- inn gaumur, að Walter Scheel, leiðtogi FDP á nú að taka við stjórn utanríkismálanna. í afstöðu sinni til NATO hef ur FDP eltki boðað neina breyt ingu. „Frelsi og framfarir eru óhugsanlegar án ytra öryggis. Það verður að tryggja með til- stilli NATO“, segir í stefnu- skrá flokksins. TVÖ ÞÝZK RÍRI En í afstöðu sinni til Aust- ur-Þýzkalands er FDP róttæk- ur miðað við ráðandi afstöðu til þessa. Flokkurinn vill falla frá þeirri kröfu, að vestur- þýzka stjórnin skoðist sem full trúi allrar þýzku þjóðarinnar og falla frá svonefndri Hall- stein-kenningu, sem falið hefur í sér, að V-Þýzkaland slíti stjórnmálasambandi við þau ríki utan kommúnistaríkjanna, sem viðiurkemna ausburþýzku- stjóimina. Þá vill FDP, að V- Þýzíkalaind gerist aðili að Sam- einuðu þjóðunum, en það verði ekki unnt að gera, nema A- Þýzkaland fái þar aðild líka, því að Sovétrikin muni koma í veg fyrir allt annað. Eftir heimsstyrjöldina síðari hafi komizt á fót tvö þýzk ríki og horfast verði í augu við þá sbaðreynd. Vegna þessa vill FDP, að gerður verði samning ur við A-Þýzkaland eins og milli tveggja ríkja, en tekið verði þar fram, að Vestur- og Austur-Þýzkaland séu hlutar sama lands, er líti ekki hvort á annað sem framandi ríki. En sjónarmið FDP, að því er smertir Vestur-Berlín eru mjög einörð. Auk þeirrar trygging- ar, sem felst í fjóveldasamn- ingunum um Berlín, vill FDP, að Vestur- og Austur-Þýzka- land geri með sér samning um stöðu Vestur-Berlínar, þar sem tekið verði skýrt fram: — Aðgangur til og frá Vest- ur-Berlín verði algjörlega ó- hindraður. — Réttarfars- og efnahags- kerfi Vestur-Berlínar verði það sama og í Sambandslýð- veldinu — með þeim afleiðing- um, sem slíkt hefur í för með sér. — Samis konar stjórnskipu- lag verði í Vestur-Berlín og í Sambandslýðveldinu. Þessa yfirlýsingu er vart unnt að skilja á annan hátt, en að staða Vestur-Berlínar skuli tryggð fullkomlega og að vest- rænt lýðræðislegt stjórnarfar ökuli ríkja þar. Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.