Morgunblaðið - 15.04.1970, Side 7
MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1B70
7
SÉ ÞETTA MEST BEINT UPP
1 HEIÐAN HIMININN
Ljóðamyndasýn-
ing á Mokka
„Ég er fæddur I Grafardal, en
síðan hef ég átt heima á Drag-
hálsi í Borgarfirði frá því ég
var 9 ára gamaJl, og er bóndi
þar nú,“ sagði Sveinhjöm Bein-
teinsson, sem um þessar mund-
ir sýnir „ljóð“ sín á Mokka.
Það eru vísur og kvæðabálkar
skrifaðir á pappa, eins konar
„skileri', eins og þetta var nefnt
hér áður fyrri.
„Svo að Skarðsheiðin hefur
máski hjálpaJV þér til að
yrkja?“, spyrjum við.
„Já, það er eiginlega hún, sem
gcrir þctta, og svo kannski bú-
skapurinn. Ég hef ekki stórt bú,
aðallega kindur. En ég hef lengi
fcngizt við að yrkja, og nokkr-
ar ljóðabækur hafa komið út eft
ir mig.“
„Hverjar helztar?"
„Fyrst voru „Gömlu lögin“ þá
„Stuðlagaldur", síðan „Brag-
fræði og háttatal". Það var eig-
inlega kennslubók í bragfræði,
ég ortd svo vísurnar inn ihana.
Þetta voru 450 vísur, upp á j afín
marga bragarhætti. Og ekki má
gleyma bókinni „Vandkvæði",
það voru 16 spjöld með 8 mis-
munandi litum heft saman."
„Bru þér tamastar vísurnar,
Sveinibjörn?"
„Ég býst við því, annars er
það svona með ýmsu móti. Ég
hef nú prófað þetta allt saman,
eða flest.“
Hittirðu aldrei Andrés John-
sen í Hafnarfirði, sem orti und-
ir firna mörgum bragarhátt-
um?“
„Ég spurði hann eitt sinn uppi,
en þá var hann ekki heima.
Þegar ég ætlaði svo að koma til
hans næst, — var hann kominn
í annan heirn."
„Eru þessar „ljóðamyndir" þín
ar til sölu?“
„Ég get svo sem selt þetta,
ef einhver vill kaupa. Annars
hef ég ekki vevðlagt þetta enn-
þá.
Þetta eru eins konar „skilerí",
rétt eims og „Drottinn blessi
heimilið", eða þá Sálmavers
Hallgríms Péturssonar, sem
hanga uppi í Hallgrímskirkju í
Reykjavík."
„Heldurðu, að séra Hallgrímur
hafi haft áhrif á kveðskap ykk-
ar Borgfirðinga?"
„Já, það er ég viss um. Við
kölluðum hann all'taf Hallgrím
sáluga Pétursson, og þegar ég
var krakki, töluðu allir um
hann eins og hann væri nýdá-
inn, og menn sögðu ekki „sál-
ugi“, nema um kunningja og
vini eða sína nánustu.
Mér finnst alltaf séra Hall-
grírnur sálugi vera okkar mesta
skáld, og þar er alls ekki um
neinn sveitarríg að ræða.“
„Bjarni Brekkmann sálugi
dáði séra Hallgrím mjög, hef-
urðu séð síðustu bók hans
„Langlífið á jörðinni"?
„Já, hann færði mér hana.
Fyrri bækur hans voru betri,
það voru ýmsir til að lesa þær
yfir. Líklega hefur enginn lesið
þessa yfir. Hann gerði þetta
alltaf svona. Hann skrifaði þetta
niður, eins og hann talaði það,
svo að ekki er að undra, þótt
eitthvað sé ekki eins og eigi að
vera.“
„Hvenær þykir þér bezt að
yrkja? Þegar þú ert kominn
inn frá verkum, eða þegar þú
ert að vinna?"
„Það er nú svona hvort
tveggja. Það er líka gott að
vera að gera eitthváð, ef maður
fær svo ró til að ganga frá því
á eftir. Á þessari sýningu hjá
honum Guðmundi á Mokka, eru
15 spjöld, þar af 11 einstakar
vísur, en 2 spjöld og önnur 4,
mynda 2 kvæði, og þetta hangir
hér uppi í mánuð."
„Hvernig er útsýni þitt frá
Draghálsi? Sérðu niður íSkorra
dalinn?"
„Nei, ég hef hvorki sjávarsýn
né vatns, tæpast nein einstök
íslenzkir fískimenn hinir
afkastamestu í heimi
•//
— segir Economlst — Þeir veiba 200 tonn
hver á ári, fimm sinnum meira en þeir
sem næstir koma
Sveinbjörn Beinteinsson. Ein „ljóðamynd" hans er á veggnum fyr-
ir ofa-n. (Ljósm. Sv. Þorm.).
fjöll, sé þetta mest beint upp í
heiðan himininn, og hjá mér er
ekkert rafmagn, þar af leiðandi
ekkert sjónvarp, svo að hvorki
glepur það gegningar né yrk-
ingar."
„Ertu með nýjar bækur á
prjónunum?"
„Já, ég er langt kominn með
ljóðabók, sem líklega verður
prentuð í ár, í henni eru mest
kvæði. Nú og svo er ég að ljúka
við bók um ljóðagerð í Borgar-
firði.“
„Verður það eims konar ný út
gáfa af borgfirzkum ljóðum?"
„Nei, þetta er sögulegt yfirlit
um ljóða.gerð í Borgarfirði allt
frá Agli Skallagrímssyni á
Borg til Þorsteins á Hamri."
„Finnst þér þeir líkir?"
„Ja, það gæti verið Agli að
kenna, hvernig Þorsteinn yrkir,
en auðvitað bítur Þorsteinn
ekki menn á barkann eða svo-
leiðis. Og bókin er frekar saga
en ljóðasafn. Hún er langt kom-
in, en er ekki enn komin í prent
smiðju."
Og með það fellum við Svein
björn talið. — Fr. S.
Tveir
á
tali
r/‘Y-71
100 W. VOX MAGNARI til sölu hjá hijómsveit'intnii TRIX. Uppl. i Silfuirtunglinu. BROTAMALMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, simi 2-58-91.
húsdýraAburður SAUMASKAPUR
til söliu, heimikeynður í pok- Tek að mér að sauma dömu-.
um. Sími 81687. telpna- og drengjaibuxur. —
Upplýsingair i síma 23359.
DODGE WEAPON
PÖKKUNARSTÚLKUR
Vil kaupa Weapon, árg.
óskast ( frystihús. Upplýs- 1952 eða yng'ri. Upplýsingar
ingair í sima 34735. í síma 41293 eftir kl. 7.30
i kvöld.
VERKSMIÐJUPRJÓNAVÉL ÓSKA EFTIR
nýieg mr. 12 til söiu. Uppl. tveggja herbergja ibúð. —
í síma 93-1190 eftir k'l. 7 á Hningið í síma 2693, Kefla-
kvöldin. vík.
Bólstrarí
sem gæti veitt verkstæði forstöðu óskast.
Húsgagnaverkstæði Axels Eyjólfssonar
Sími 10117 og 18742.
Fnunkvæmdastjóri óskast
fyrir iðnfyrirtæki sem framleiðir fatnað.
Þeir sem hafa áhuga á að kynnast þessu leggi nöfn sín inn
á afgreiðslu Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt: „Iðnaður —
5004".
Héraðslæknisembætti
auglýst laus til umsóknar
Eftirtalin héraðslæknisembætti eru laus til umsóknar:
1. Austur-Egilsstaðahérað.
2. Eskifjarðarhérað.
3. Flateyrarhérað.
4. Breiðumýrarhérað.
5. Þórshafnarhérað.
6. Reykhólahérað.
Austur-Egilsstaðahérað og Eskifjarðarhérað veitast frá 1. sept-
ember nk., en hin þegar að umsóknarfresti loknum.
Umsóknarfrestur er tii 12. maí nk.
Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytið,
13. april 1970.
HtíreZ)
GLUSGAB - UTUUBBIH
Tilboð óskast í smiði á gluggum og útihurðum í nýbyggingu
Rannsóknarstofnunar iðnaðarins við Keldnaholt.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Rvík.,
gegn 1.000,— króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 22. apríl
n.k., kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 SÍMI 10140
BEZT AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU