Morgunblaðið - 16.04.1970, Side 23

Morgunblaðið - 16.04.1970, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1(6. APRÍL 1970 23 Sigurður Þórðarson stöðvarstj.: Laxeldisstöðin í Kollafirði Ég hefi fylgzt vel með öllu, sem gerzt hefur í fiskræktarmál um hér á landi nokkuð lengi, og einnig hvers vegna Eyjólfur Guð mundsson byrjaði að skrifa í blöðin. Verður e.t.v. vikið að því isíðar, þyki mér greinar hans svaraverðar. Ég hefi verið sam- starfsmaður Eyjólfs í nærri þrjú ár og varð því ekki lítið undr- andi eftir að hafa lesið greinar, sem hann hefur skrifað undir að undanförnu í blöðunum, og eru mjög ósanngjarnar. Eyjólfur Guðmundsson telur sig einan og manna bezt vita hvernig eigi að reka og hvernig eigi ekki að reka laxeldisstöð. En sem betur fer, eigum við nokkra menn hér á landi, sem eru fróðari í þessum efnum en hann. Eyjólfur talar um að ó- þarfi sé að hafa næturvörzlu í Kollafirði, vegna þess að vatns- rennslið að stöðinni sé svo óör- ugrt. En vatnsrennslið er alls ekki óöruggt, nema það fari að renna upp í móti, en allt getur víst gerzt nú á tímum. >á er ýmis legt, sem næturvörður þarf að gera, t.d. taka á móti gestum, sem koma á öllum tímum, halda veiði bjöllum í hæfilegri fjarlægð, en hún étur jafnt á nóttu sem degi. Og fleira mætti telja, en verður ekki gert. Það mun víst nær und antekningalaust að öll fyrirtæki, sem einhver verðmæti eiga, þurfi að hafa næturvörzlu. Og er það ekki Eyjólfs verk að dæma um það, hvar á að hafa næturvörzlu og hvar ekki. í greinum sínum nefnir hann tölur um seiðadauða, sem eru hreinn uppspuni, lenda hiefur Eyj ólfur ekki haft aðgang að skýrsl um eða gögnum í stöðinni. Þá tal ar Eyjólfur um að veiðibjalla éti sjógönguseiði í Kollafirði. Við starfsmenn við stöðina höfum reynt eftir fremsta megni að halda veiðibjöllu í hæfilegri fjar lægð, með ýmsu móti, t.d. með þar til gerðum gasbyssum, sem skjóta með vissu millibili, og einn ig með skotmanni. Vill Eyjólfur segja alþjóð hvar á íslandi veiði bjalla situr ekki um sjógöngu- seiði? Eyjólfur Guðmundsson forðast eins og heitan eld að minnast á, hvernig hefur gengið í laxeldis- stöðinni í Kollafirði að undan- förnu. Seiðaframleiðsla hefur gengið þar mjög vel, og þakka ég það fyrrverandi stöðvar sftjóina, fiisfkradktainf.ræði'iinigniuim Áke Hákansson frá Svíþjóð, sem hefur komið góðu skipulagi á í stöðinni. Hvernig starfsmenn er- um við hinir, sem vinnum við stöðina, ef við þegjum yfir öll- um þeim óhróðri, sem Eyjólfur hiefuir diaimibt yfiir stöðiiinia? (ef sannur væri). Nei sannleikurinn er sá, að rekstur laxeldisstöðvar innar í Kollafirði gengur vel, og höfum við til sölu jafn góð seiði og aðrir, en það er þyrnir í aug- um nokkurra manna, sem óþarft mun að kynna fyrir lesendum Morgunblaðsins. Vilji Eyjólfur ræða þessi mál frekar í blöðun- um, er ég tilbúinn til þess, en við erum víst báðir jafn miklir leik- menn á þessum vettvangi, ef dæma má eftir áhuga hans á starf inu. Sigurður Þórðarson. — Minning Framhald af bls. 22 Hann hét Ámi Þormóðsson. f örskotsstund lágu leiðir okkar saman, en sú minning, sem leidd er af kynningu fyrnist ekki. Ör- skotsstundin leið milli okkar tveggja inna fjögurra veggja 5 fjórar vikur, fimm daga vikur, sjö stunda daga. Orð hana öll voru hlý, festuleg, uppörvandi, en blönduð hógværri kímni. Fyrsti dagurinn! „Vertu velkom inn til staría. Við höfum hlakkað til að kynnast þér.“ Lok fyrsta dags! „Vertu sæll, sjáumst heilir að morgni." Á hverjum degi í fjórar vikur, a.m.k. tvisvar á dag, hringt í börnin! „Hvemig hafið þið það, er sá litli eitthvað að prakkarast, hafið þið fengið eitt- hvað að borða, er uppvaskið bú- ið! „Taktu lífinu með stóiskri ró. Öll byrjun gengur betur, með því að flýta sér hægt.“ Yfir hinum hæga, traustlega, háa, granna, en þrekna manni hvíldi að því er virtist sönn „stóisk“ ró, þótt hann bæri það með sér, að hafa kynnzt erfið- leikum lífsins, bæði í sjúkdóm- um, amstri og striti. Ferskeytlur fuku, þegar við átti og allt mál- far var af hreinum norðlenzkum uppruna. „Bömin eru einnig far in að taka upp þingeyskan fram- burð.“ „Nýr bíll í pöntun.“ Harma- fregn. Búið. Óskiljanlegt. Eftir situr einn innan fjögurra veggja, maður með minningu.sem leiddi af kynningu, allt of stuttri kynningu. Hvað þá um nánustu skyld- mennin, börnin, eiginkonuna, móð urina, systumar. Eftir sitja þau með sorgina, en vonandi getur minningin um góðan dreng yljað upp kalin hjörtu ásamt vitund- inni um það, að margir aðr- ir syrgja góðan fulltrúa sinnar samtíðar, jafnvel þeir, sem að- eins hafa þekkt hann í örskots- stund. — Hafstraumar Framhald af bls. 24 á, ecf eöinlhveir hefðii spáð því 1. larpcrfll 1906, iað aitbuirlðiir imiairz- miámiaðar það ár boðlulðu minriara veðuirtfiair hér viið lanri. I fynni gineiin okfeair vair teiifcazlt við alð teiiðrétta aruiissaginliir, sem áður bötfðu biirzit í diagblöiðuim og öðruim fjöllmliiðlluim uim bafcn- sjávairtmiyinidMn og seillfcuimiaigin á íáhafssvæðitniu, og jiaifinifiramit leiyfðum váið otókur iaið gaginirýnia fciigáifcu, sem olklkuir sýnd'islt hæp- við Ihölfuim „veiitzt opinberiliega“ að einmm ué nieinum, og þydaitr oMkuir imíjög tmiiiður, að sá imiils- skifliniingur sikiuflá hiaifia komiið fraim. Aíð Wouim viljum v.ið fcalka undár þá ósk Pálls B'ergþórssoiniar, veðurfræðfimigsi, að gofct saimrifcairf verði með hiaffræðiingum og veð- Unfræðingum um samieiginlleig vamdamáil, ernda höfum við ávallillt áfct hin ánægj'ufllegusfcu siamiákipbi við Veðuirstofu ísfflanriis. Að svo mæfllfcu er blaiðaslkrifum otakair lokið um þefcba miáíl. iin. Mieð því fcel'jum við ekki, að Unnsteinn Stefánsson Svend-Aage Malmberg. Stórt verzlunorfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða strax á skrifstofu sína ungan og áhugasaman mann til bókhaldsstarfa. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu Morgunblaðsins fyrir 21. þ.m. mekt: „5301 "5 „VERZLÓ“ ‘63 og 64 Skemmtunin er á morgun föstudaginn 17. apríl í LAS VEGAS og hefst kl. 20,30. NEFNDIN. Utgeröarmenn Höfum á boðstólum 2 nýja SKUTTOGARA 330 og 950 brt. smálestir. Skipin eru með fullkomnasta útbúnaði og til af- hendingar strax. Ennfremur nýleg fiskiskip, 130—150 og 170 smálestir. Heildverzlunin ÓÐINN, sími: 17344—18151. 4 LESBÓKBARNANNA 9. Fyrst í stað barðist hver indíánahópur einn, út af fyrir sig, við hvítu mennina. En þeir sáu fljótt að það yrði óhjá- kvæmilegt fyrir þá, að safnast saman í einn hóp og velja einn höfðingja til þess að stjórna öllum Sieux-Indíánaþjóð- flokknum. Það var kallað til fundar undir beru lofti og indíánamir hópuðust þangað í þúsundatali. Sérstakt tjald var peist fyrir yfirstjórnina, þ.e. höfðingja hinna einstöku flokka Sieux-indíánanna. Fjórir menn gengu nú á fund Nautsauga. Þeir höfðu með sér nautshúð, og á henni bám þeir Nautsauga til tjalds yfir stjórnarinnar. f tjaldinu var kveikt í heilagri pípu. Pípunni var fyrst beint í áttina að jörðinni, og því næst í austur, vestur, norður og suður — og loks i átt til himln*. Að því loknu var píp- an látin ganga á milli manna í tjaldinu. Hver og einn andaði að sér reyknum á meðan hann. bað bænar til hins mikla anda. 10. Nautsauga var kos- inn höfðingi yfir öllum Sieux-indíánunum. Mik- illi hátíð var slegið upp með söng og dansi og stóð hún yfir í marga daga. Nauts- auga Allir fóm í sitt fínasta málningu og báru á höfð- bjarndýr, höfðu háls- skart. Stríðshermennirn- inu fjaðraskraut mikil. festi úr bjarndýraklóm. ir máluðu sig með stríðs Þeir, sem höfðu drepið Frh. 8 femttfmtta 14. árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 16. apríl 1970 PERLUR ÚR PERLUM ex hægt að búa til marga hluti til gjafa. Hér á eftir fara nokk- ur dæmi: 1. T.d. er hægt að gera þrjár til fjórar perlurað- ir og sauima þær síðan við lás af gamalli perlu- festi. 2. Einnig er hægt að búa til eins konar kraga úr perlum á eftirfarandi hátt: Byrjaðu á því að gera perluröð, sem er það löng, að hún liggur vel yfir viðbeinin, þegar þú mátar hana. f næstu röð eru búnar til „perlu- lykkjur“ þannig: Þú þræðir 9 perlur upp á bandið og stingur nálinni í gegnum perlu nr. 6 í fyrstu perluröðinni (sjá mynd 2). Síðan þræðir þú aftur 9 perlur upp á bandið og stingur nálinni niður í þá perlu, sem er nr. 6 í röðinni, reiknað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.