Morgunblaðið - 17.04.1970, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.04.1970, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR H7. APRÉL 11970 Manneldism j öl og fóðurmjöl í skýrslu minni til Rannsókna ráðs ríkisins þ. 12. oktober 1967 um tilraunir mínar á framleiðslu manneldismjöis, skýrði ég frá ferð minni í október 1963 til Trois Riviers, Quebec í franska Kan- ada. Var þar fast búsettur frá 1951 til 1954 og var skráður þar ennþá til heimilis, en vildi nú flytja alfarinn heim og skrá mig heimilisfastan á fslandi að nýju. Datt mér í hug að nota tækifærið til að ganga úrskugga um hvað framámönnum í Kan- ada sýndist um aðferð mína á framleiðslu á manneldismjöli. Fór ég fyrst á fund deputy min- ister Maurice Lessard, minister of Industry and Commerce, Queu- bec City, sem hafði með fiski- mál að gera. Hafði ég meðferðis fiskimjölsköggla og skýrði hon- um frá aðferðinni. Leizt honum vel á þetta og ráðlagði mér að fara til Ottawa og tala við Mr. Ray Kinsella, Chief of Fishery Division í ráðuneytinu þar. Fór ég þangað nokkru síðar og átti langar samræður við Mr. Kins- ella um manneldismjölið, sem hann áleit að gæti haft mikla þýðingu. Hann ræddi um þetta við verkfræðing sem var í hans þjónustu. Síðan gaf hann mér utanáskrift nokkurra fiskiðju- vera, vestan og austan megin strandar Kanada og sagði, að ég gæti snúið mér til einhverra af þeim sem væru staðsett þar sem mér þætti álitlegast að hefja framleiðslu. Hann áleit að pen- ingar myndu vera fáanlegir til þess. í>að var þó ekki ætlun mín að byrja á þessu þá í Kan- ada jafnvel þótt peningar til þess gætu legið á lausu, en var stað- ráðinn í að hefja framleiðslu hér heima og var og er þess full- viss að það getur orðið íslenzk- um fiskiðnaði til mikilla hags- bóta. Á leiðinni heim dvaldist ég nokkra daga í New York og kom auga á grein í nýútkomnu tímariti með yfirskriftinni „Frac as over Fishflour", deila um manneldismjöl. Var í greininni mynd af öldungadeildarþing- mönnum sem sátu við að borða morgunverð, sem var blandaður manneldismjöli, framleiddu eft- ir hinni svokölluðu Vio Bin að- ferð, dr. Ezra Levin Monticello. Öldungadeildarþingmennimir og flestir gestanna borðuðu með góðri lyst, en commissioner frá Matvælaeftirlitinu, sem boðinn var til að taka þátt í borðhald- inu, bragðaði ekki á réttunum því þeir voru blandaðir efni, manneldismjöli, sem hann hafði dæmt óhæft til neyzlu. Ég vildi fræðast meira um þetta og hringdi frá hótelinu í NewYork til dr. Ezra Levin, Monticello. Hann sagði, að hann framleiddi bæði manneldismjöl og fóður- mjöl. Fyrir fóðurmjöl fengi hann 50% hærra verð en það sem væri á markaðnum af press- uðu fiskimjöli. Með fóðurtilraun um á Vio Bin-fiskmjöli hefði kom ið í ljós að það innihéldi UGF vaxtarhvata (Unidentified growth factor) í ríkum mæli eða hérumbil tvöfalt að verðmæti miðað við venjulegt pressað fiskimjöl þar sem soðið væri ekki hirt. Væri það fyrst og fremst því að þakka að Vio Bin fiskimjöl er framleitt við tiltölu lega lágan hita eða 71° C. og framkvæmt með azeotropiskri eimun. (Þennan óþekkta vaxtar- hvata hefur ekki tekizt að efna- greina, en álitið er að hluti af honum sé í öskimni og þá senni- lega um snefilefni að ræða). Ezra Levin sendi mér bréf til hótelsins með yfirliti jrfir Vio Bin-aðferðina ásamt sýnishorn- um af framleiðslunni. Hráefnið er fiskúrgangur og óslægður ruslfiskur. Um fiskmjöl til mann eldis segir í yfirlitinu: Á mörg- um svæðum veraldar, þar sem þörf er fyrir fiskimjöl til mann- eldis, er ekki nauðsynlegt að gera það bragð- og lyktarlaust. í Austur-Asíu og mörgum svæð- um Afríku vill fólk heldur manneldismjöl með bragði og lykt. Þetta hefur verið staðfest með tilraunum. Á svæðum, þar sem lítill hluti af þessu mann- eldismjöli er blandaður grænmeti er ekki hægt að finna af því fiskibragð sé bætt í það magni sem svarar 1—3%. Á svæðum þar sem ekki er óskað eftir fisk- bragði af manneldismjöli eins og í Mið- og Suður-Ameríku, er notað við Vio -Bin-framleiðsluna methyl alkohol sem upplausnar- efni og má þá blanda allt að 15% af þessu mjöli með grænmeti án þess að finnist af því bragð eða lykt. Með Vio Bin-fiskimjöli hafa verið framkvæmdar víðtækar fóðurtilraunir og hafa þærsýnt mjög jákvæðan árangur þakkaðan tvöföldu verðmæti UGF vaxtar- hvata miðað við venjulegt fiski- mjöL Kjúklingar. Þegar 10% af Vio Bin-fiskimjöli var bætt við ann- að hreint fóður fyrir 4 viku gamla kjúklinga nam vaxtarauk inn 27 prósentum. Verpandi hænur. Tilrauna- stofnun segir: Eftir 4 ára til- raunir notum við nú Vio Bin fiskimjöl sem aðalskammt af pro teini með komi. Þessi skammtur styður eggjaframleiðsluna meira en 70% og hefur gjört það lengur en um 14 mánaða tímabil. Svín. Háskólatilraunir sýna, að þegar Vio Bin-fiskimjöl er notað handa ungsvínum í staðinn fyrir þurrmjólk sparar það 50% af kostnaði. Frá Svíþjóð. Fóður- fyrirtæki sem ræður yfir miklum útbúnaði til rannsókna segir: Við höfum eingöngu gefið Vio Bin fiskimjöl í staðinn fyrir undan- rennu-þurrmjólk til að ala stór- an hóp ungsvína og hefur ekk- ert drepizt. Kálfar. 1000 tonn af Vio Bin fiskimjöli voru notuð síðastliðið ár (1962) í staðinn fyrir mjólk. Gaf það 12-15% vaxtarauka sam- anborið við 3—6% með venjulegu fiskimjöli. Minkar. Vio Bin-fiskimjöl nú meira og meira að koma í staðinn fyrir ferskfisk sem minkafóður. Gert er ráð fyrir að 1000 tonn verði notuð af því 1963—1964. Fiskafóður. Vio Bin-fiskimjöl hefur reynzt verðmætt sem hluti af fóðri til silunga. Hefur það fengið viðurkenningu frá fram- leiðendum silungafóðurs. Hunda- og kattafóður. Vio Bin-fiskimjöl hefur verið gefið annað hvort eingöngu eða að nokkru leyti í staðinn fyrir ósoð inn fisk og hrátt kjöt eða kjöt- mjöl, sem líffræðilega er ekki eins verðmætt og er dýrara en Vio Bin-fiskimj öl. Þessi samanburður sýnir að fiskúrgangur frá hérlendum frystihúsum samsvarar að efna- Þurrkaður við hægan hita með loftblæstri eða sólþurrkaður mun hann vera jafngóður eða betri en Vio Bin-fiskimjöl því fiskur veiddur á okkar miðum er viðurkennd bezta gæðavara. Hann mun a.m.k. hafa tilsvar- andi vaxtarhvata og vaxtar- auka við fóðrun dýra, og gefinn sem manneldismjöl í fæðu full- orðinna og barna á þroskaskeiði stuðla að heilbrigði þeirra. Þá ætti að vera hægt að fá 50% hærra verð fyrir hann seldan sem fóðurmjöl samanborið við venju legt fiskimjöl. Með hinni svo- kölluðu beinu þurrkun í hér- lendum fiskimjölsverksmiðjum er soðkjarninn nýttur. Hann inni heldur 20—25% mjölefni og þau vítamín sem uppleysanleg eru í vatni, þar á meðal hin líffræði- lega verðimætu vítamín af B flokki. Þó að þetita sé mikil fram för í framleiðsluháttum þar sem soðkjaminn í flestum verksmiðj um allt til ársins 1950 var látinn renna í sjóinn, þá er álitið að eldþurrkun og í minna mæll gufukápu þurrkun (Schlotter- hose) geri protein og óbundnar aminosýrur tormeltari og skaði líffræðileg verðmæti fiskimjöls- ins. Bæði fyrir og eftir síðustu heimsstyrjöld voru þorskbein sólþurrkuð eða þurrkuð með loft hita þar sem kynt var með kol- um eða koksi hjá Gísla John- sen og seinna hjá Astþóri Matt- híassyni, V estmannaeyj um o.fl. í febrúarhefti Fishing News International er skýrt frá, að ákveðið sé að byggja manneldis mjölsverksmiðju í Greys Har- bour á strönd Washington-ríkis, U.S.A. fyrir 1.9 millj. dollara og verði fyrirtækið styrkt af rik- inu. Hráefnið á aðallega aðvera lýsingur (hake), sem Matvæla- eftirlitið hefur gefið leyfi til að notaður sé heill þ.e. ásamt inn- yflum. Áætlað er að vmnið verði úr 50 tonnum á dag, en er það þó að nokkru háð því hvaða aðferð við vinnsl una verður tekin af þeim sem reyndar og rannsakaðar hafa verið af U.S. Bureau of Commer cial Fisheries Laboratories. Hið framleidda manneldismjöl verð- ur eign U.S.A. ríkis. Fyrir nokkr um mánuðum var sagt frá í sama blaði að byggja ætti manneldis- mjölsverksmiðju I Canso, Kan- ada, og ætti vinna úr 50 tonnum af hráefni á dag, en kostnaður við að koma þessu f fram- kvæmd mundi nema 5 milljónum dollara. í apríl 1968 fór Bragi Eiríks- son forstjóri Skreiðarsamlagsins til Nígeríu og tók með sér mann eldismj ölsköggla sem ég, með hans hjálp, hafði látið köggla af malaðri skreið. Einnig nokkra plastpoka af sama efni sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins loftdró. Um árangur af þessu skrifaði Bragi Eiríksson mér þ. 28. sept. 1968 svohljóð- andi bréf: Hr. Magnús Andrjesson, Bjamarstíg 3, Reykjavík. Möluð skreið til manneldis Við höfiun gert nokkrar til- raunir með sölu á skreið til Nígeríu sem hefur verið möluð og pökkuð sem manneldismjöl samkvæmt yðar patenteruðu framleiðsluaðferð. Á ferðalagi mínu til Nígeríu síðastliðið vor gerði ég nokkrar tilraunir með sölu á því, lét til- búa úr því máltíð og bauð til hennar nokkrum Afríku-mönn- um. Skreiðarmjölið var leyst upp í vatni og tilreitt sem steikt ar fiskibollur. Gestunum þóttu fiskibollurnar mjög góðar og allt sem tilreitt var, var borðað. 1962 sendum við nokkur sýnis hom til Lagos í sambandi við Iðnaðarsýninguna þar. Okkar umboðsmenn sögðu þá að það mundi vera hægt að selja þessa framleiðslu, sem í því tilviki var framleidd úr fiskúrgangi. Við er um þeirrar skoðunar, að nú skuli alvarlega verða reynt að selja malaða skreið og fiskúr- gang samkvæmt yðar aðferð, sér staklega í Asíu, Afríku og Suð- ur-Ameríku löndum. Bragi Eiríksson forstjóri. 1962 sendi ég sýnishom af pressuðum fiskimjölskögglum, nokkmm þeirra blönduðum þurr mjólk, af manneldismjöli til fyrirtækis í Englandi sem verzl aði við franska Cameron. Köggl- amir vom pressaðir í Rannsókna stofnun byggingaiðnaðarins. Eft ir nokkura tíma fékk ég skeyti frá fyrirtækinu sem óskaði eftir verðtilboði, en þessu gat ég ekki sinnt því engar vélar voru fyr- ir hendi svo hægt væri aðfram leiða magn sem nokkru næmi. Þessar tilraunir sýna að það ætti að vera hægt að fá markað fyrir manneldismjöl ef réttum að ferðum er beitt til að kynnaþað, en til þess að það sé hægt þarf að vera fyrir hendi tilrauna- verksmiðja (pilot plant) svo mögulegt sé að útbúa sýnishorn og afgreiða pantanir. Verkfræð- ingarnir Hjalti Einarsson og Baldur Sveinsson, gerðu í júní 1966 lauslega áætlun um til- raunaverksmiðju á framleiðslu manneldismjöls samkvæmt minni aðferð miðað við kaup á vélum og tilboðum sem ég hafði fengið. Komust þeir að þeirri niður- stöðu að kostnaður við að út- búa nothæfa tilraunaverksmiðju mundi nema um 3 millj. króna, sem er minna en verð á einni Magnús Andrjesson. síldamót. Ég fékk einkaleyfi á aðferðinni I fjórum löndum, Eng landi, Kanada, Noregi og ís- landi. Ég hefi ekki ætlað mér að krefjast leigu (roalty) af eign arrétti mínum á íslenzka einka- leyfinu, svo hver sem vill getur notfært sér það hér heima og selt það sem framleitt er hér til útlanda. Aftur á móti var og er það ætlun mín að semja við fyrir tæki í þeim öðrum löndum sem hafa viðurkennt einkalejrfið, en vildi bíða með það þangað til framleiðsla væri komin í gang hér heima. Kostnaður við til- raunir, umsókn á einkaleyfum og endurnýjun þeirra árlega, ferðalög og önnur umsvif gæti ég reiknað í hundrðum þúsunda króna. Mér hefur ekki tekizt hingað til að fá lán hjá opinberum pen- ingastofnunum til að hefja fram- kvæmdir. Ég ákvað því fyrir nokkru að stofna hlutafélag þessu verkefni til framdrátt- ar, og sjávarútvegsmálaráðherra samþykkti góðfúslega styTkveit- ingu Fiskimálasjóðs um framlag, sem var skilyrðisbundið því að aðrir legðu fram fé sem nægði. Var þess vænzt að fyrirtæki og einstaklingar sem áhuga hefðu á markaðsleit og aukinni sölu á íslenzkum sjávarafurðum hefðu áhuga á að leggja til fé svo hægt væri að hefja framkvæmdir. Að- eins tveir velþekktir athafna menn, þeir Gunnar Friðriksson, forstjóri og dr. Jakob Sigurðsson, lorstjóri lögðu fram fé en ekki hef ur tekizt að fá fleiri til þess. Áður hafði ég leitað til lána stofnana og Fiskveiðasjóðs og verið synjað. Ef ekki tekst bet- ur til en hingað til væri athug- andi hvort ríkið vildi taka þetta að sér á sama hátt og með sömu skilyrðum sem ríki U.S.A. gerir. Ég hafði hugsað mér að þau fyr irtæki sem undanfarin ár hafa fengizt við sölu á okkar sjávaraf- urðum til Afríku og annarra landa tækju að sér sölu á framleiðsl- unni, þar á meðal Samlag skreið arframleiðenda. Bragi Eiríksson, forstjóri hefur manna mest og bezt verið mér hjálplegur við að koma sýnishornum áleiðis og kynna þau. Gæti líka verið þeg ar sannað er að manneldismjöl framleitt eftir minni aðferð er ágætisvara, að FAO yrði kaup- andi að einhverjum hluta, en FAO hefur milljóna sjóði til hjálpar þróunarlöndunum. Ég hefi heyrt að fólk hafi ekki trú á þessu því Rannsókna stofnun Fiskiðnaðarins sé því ekki hlynnt. Þetta er þó mis- skilningur. í skýrslu Rannsókna stofnunar fiskiðnaðarins 1968 stendur á fyrstu síðu með yfir- skrift: Möluð skreið í loftdregn um plastumbúðum. f samvinnu við Magnús Andrjesson höfðu verið gerðar tilraunir með pökkun og geymslu á malaðri og pressaðri skreið í loftdregn- um plastumbúðum, etc. Var bæði gerð efnagreining og gerlarann sókn á mjölinu, sú síðari við mismunandi hitastig og kom í ljós að gerlum fækkaði mest þar sem hitinn var mestur eða 37°C. Auðvitað er sjálfsagt og nauð- synlegt að hafa samvinnu við vísindastofnun eins og Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins er, enda hefi ég gert það frá byrj- un. Magnús Andrjesson. Útboð Tilboð óskast í að steypa upp 40 ferm. viðbyggingu við húsið Bergstaðastræti 76. Útboðsgögn eru afhent á Teiknistofunni, Ármúla 6. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 24. apríl. SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ISLANDS Fjölskyldutónleikar sunnudaginn 19. apríl kl. 15. Stjórnandi Bohdan Wodiczko, einsöngvari og kynnir Guðmundur Jónsson. Flutt verða verk eftir Britten, Cimarosa og Beethoven Aðgöngumiðar í barnaskólum, bókabúð Lárusar Blöndal og f Háskólabíói eftir kl. 13 á sunnudag. Efnahlutföll í Vio Bin-fiskimjöli, Proteáin % Asfca % Fita % Trefjar % Vatn % 70—73 18—20 1,5 0,5 8,0 Til samanburðar fara hér á eftir efnahlutföll fisíkúrgangs sam fcvæimt sfcynslu Gems Annieisiein oig Hjialta Elinarssonair efmiarverifcfræð- inga frá ráðlsiteifnu uim vinmisilu sjávarafunða. F iskú rgiagnux fró frytrtiihúsd. Miðað viö 8% vatn. HaiuBar Fita % Protam % Aska % 66,2 22,5 Hryiggir .. . . 1,5 70,0 18,8 Þuirimildi og hryiggiir . . . . 1,1 81,2 8,1 Ha/usar og hryggár . . . . 1,4 67,8 20,9 Haiuiaax, hrygigir og iþuinmflldi . . 1,3 71,7 17,2 Meðalital 1,3 71,4 17,2 innihaldi Vio Bin-fiskimjöli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.