Morgunblaðið - 03.07.1970, Síða 12
12
MOBOUlSroLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3, JÚL.Í 1970
Líff ræðingurin n, sem týndist...
— þegar mótmæii höfðu áhrif á Kreml
EI'TIR BRIAN CROZIER
Það vakti mikla athygli
íyrir skömmu, þegar sovézk
yfirvöld létu undan kröfum
vísindamanna og slepptu hin
um fræga líffræðingi, dr.
Jaures Medvedev, af geð-
veikrahæli. í þessari grein
frá Forum World Features
f jallar Brian Crozier um þetta
mál, en Crozier hefur rit-
að mikið um stjórnmál og
mun á næstunni ljúka við
bók um kommúnismann.
FWF London — í síðasta mán
uði gerðist atburður í Sovét-
ríkjunum, sem, á sér ekkert for
dæmi, að því er ég bezt veit.
Yfirvöldin tóku tillit til mót-
mæla gegn nauðungarflutningi
manns á geðveikrahæli, og mað
urinn er nú frjáls ferða sin-na.
Forsaga þessa máls er á marg
an hátt sérstæð. Hinn hand-
tekni var enginn venjulegur
Sovétborgari, og þeir, sem mót
mæltu handtöku hans, voru
heldur engir venjulegir Sovét-
borgarar.
Maðurinn nefnist Jaures Med
vedev og er heimskunnur erfða
Jaures Medvedev,
liffræðingurinn, sem týndist.
fræðingur. Þeir, sem mótmæltu
aðför leynilögreglunnar KGB
að honum, voru samstarfsmenn
hans, er sóttu almennan fund
sovézku akademíunnar þann
11. júní. Það leið ekki vika frá
þeim fundi, þar til Medvedev
var látinn laus. Innan fárra
daga höfðu fréttir af fundinum
breiðzt út með leyniblöðum, og
þær síuðust síðan út úr land-
inu. Slíkar fréttir sigla ekki
hraðbyri í Rússlandi.
Vert er að hafa það í huga,
að Medvedev er hvorki skáld,
rithöfundur né listmálari, held
ur vísindamaður. Þeir, sem risu
upp honum til varnar eru ekki
meniningarfrömuðir úr röð-
um listamanna, heldur teljast
þeir til hóps „menntamanna" á
sviði vísinda og tækni. Það er
nauðsynlegt að gera þennan
greinarmun. Því að þörf
sovézku stjórnarinnar fyrir vís
indamenn er allt önnur en þörf
hennar fyrir skáld og rithöf-
unda. Stórveldisdraumar Sovét
ríkjanna raskast ekki, þótt
skáld og rithöfundar séu sendir
í þrælkunarvinnu eða lokaðir
inni í geðveikrahælum. En rísi
vísindamennirnir gegn kerfinu,
getur framtíð þe3s verið í voða.
Hvað hafði Medvedev gert
af sér, sem leiddi til þess, að
hann var fluttur af heimili sínu
í Obninsk skammt fra Moskvu
þann 29. maí s.l.? Það er erfitt
að segja til um það, þar sem
engar sakir voru á hann born-
ar. Vinir hans sögðu, að hann
hefði verið fluttur úr félags-
skap heilbrigðra manna, af því
að hann sætti sig ekki við opin
berar takmarkanir á ferða-
frelsi, sem valda því, að sovézk
um vísindamönnum er ókleift
að eiga eðlileg samskipti við
starfsbræður sína erlendis.
SAGÐUR GEÐVEIKUR
Sömu örlög biðu Medvedevs
og Grigorenkos, hershöfðingja,
og Varlerys Tarsis, rithöfund-
ar, auk margra annarra, hann
var talinn geðveikur. Hann var
tekinn og fluttur á stofnun
sem yfirleitt hýsir slíka póli-
tíska geðsjúklinga, Kaluga-hæl
ið rétt sunnan við Moskvu.
Andrei D. Sakharov, kjarn-
eðlisfræðingur, ritaði Leonid
Brezhnev, flokksleiðtoga, hóg-
vært en skorinort bréf, sem tal
ið er hafa haft töluverð áhrif.
Sakharov sjálfur átti í útistöð
um við yfirvöldin fyrir tveim-
ur árum, þegar bæklingur hans
um friðsamlega sambúð og
menningarlegt frelsi hafði birzt
á Vesturlöndum. En í þessu riti
hvatti hann til þess, að hætt
yrði að stjórna með „fangabúð
um fyrir pólitíska fanga“ og
ný-stalínisminn hyrfi algjör-
lega úr opinberu lífi.
En fundur vísindamannanna
réð líklega úrslitum í máli Med
vedevs. Undir forsæti Dr. Msti-
slavs Keldysh, forseta vísinda-
akademíunnar, gerðu starfs-
bræður týnda Mffræðingsins og
aðrir vísindamenn harða hríð
að Boris Petrovsky, heilbrigðis
málaráðherra. Sálfræðingurinn,
sem hafði rannsakað Medve-
dev, dr. Vikbor Morozov, lýsti
því yfir, að hann þjáðist af
„sjúklegri geðveilu." En vis-
indamennirnir sættu sig ekki
við þessa skýringu, og þeir
vildu fá að vita, hvernig unnt
væri að skýra síðustu vísinda-
afrek Medvedevs, ef hann væri
nú þannig á sig kominn.
Úr röðum sovézkra lista-
manna barst Medvedev einnig
hjálp. Hinn frægi og umdeildi
rithöfundur Alexander Solzhen
itsyn, sem rekinn var úr so-
vézku rithöfundasamtökunum í
nóvember s.l., skrifaði bréf eins
og Sakharov. En bréf rithöf-
Andrei Voznesensky,
hann er sakaður um „pop-
stjörnu vinsældir.
undarins var skrifað af meiri
tilfinningahita en bréf vísinda-
mannins. Þar sagði Solzenit-
syn:
„Fjórir lögreglumenn og tveir
læknar koma til heimilis heil-
brigðs manns án nokkurrar
handtökuheimildar eða heil-
brigðisástæðu. Læknarnir lýsa
því yfir, að hann sé vitlaus, og
lögreglumennirnir hrópa að
honum „Valdið er í okkar hönd
um! Stattu upp!“ Þeir snúa
upp á handleggina á honum og
fara með hann á geðveikrahæli.
Þetta gæti komið fyrir hvern
okkar sem er á morgun.“
ERFIÐIR TÍMAR FYRIR
MENNTAMENN
En það er mjög ólíklegt, að
mótmæli Solzhenitsyns eins
hefðu tryggt frelsun líffræð-
ingsins. Það eru nú erfiðir tím-
ar fyrir menntamenn í Rúss-
landi. Þan.n 21. maá, fáeinum
dögum áður en KGB handtók
Medvedev, var Andrei Amalrik
handtekinn, en hann er einn
hvassyrtasti ungi rithöfundur-
inn í Rússlandi. Raunar er
furðulegt, að hann hafi fengið
að ganga svo lengi frjáls (árið
1965 var Amalrik sendur til
Síberíu, en hann losnaði þó síð
ar úr útlegðinni). En Amalrik
er höfundur ritgerðarinnar:
Halda Sovétríkin velli fram til
ársins 1984? Nafnið eitt nægir
til að vekja grunsemdir KGB.
Ritgerðin kom út á Vesturlönd
um á síðasta ári, áður hafði fá-
mennur hópur manna í Sovét-
ríkjunum kynnzt henni í gegn-
um Sam-Izdat-útgáfurnar, sem
ganga á milli manna þar. Þess-
ar útgáfur berast einnig til
Vesturlanda og úr þeim eru
fengnar þær upplýsingar, sem
koma fram í þessari grein.
Alexander Tvardovsky nefn
Innritun í Háskóla íslands hafin:
Nokkur óvissa ríkir um
tilhögun náms i
félagsfræðum
- rætt við próf. Guðlaug Þorvaldsson
þjóð-
Innritun stúdenta í Háskóla
íslands hófst miðvikudaginn 1.
júlí og stendur fram til 15. júlí.
Talið er líklegt, að talsvert yfir
500 stúdentar muni láta innrita
sig að þessu sinni, en stúdent-
amir, sem útskrifuðust úr
menntaskólunum í vor, voru
um 560. í fyrra innrituðust 507
stúdentar, en á síðara misseri
háskólans voru nemendur hans
1434. Hnnritun feir fram í háskól
anum, innritunarstjóri er
Stefán Sörensen.
A liðnum vetri skilaði há
skólanefnd skýrslu sinni um
eflingu háskólans. í samræmi
við skýrsluna hefur farið fram
endurskoðun á reglugerðum ein
stakra háskóladeilda, og er ráð
gert, að byrjað verði að kenna
eftir nýju reglugerðunum í
haust. Morgunblaðið sneri sér
í gær til háskólayfirvalda og
spurðist fyrir um það, hvernig
ástandið í þessum málum væri
og hvort unnt væri að innrita
sig til náms í almennum þjóð-
félagsfræðum að þessu sinni.
Magnús Már Lárusson, háskóla
rektor, dvelst nú í Þýzkalandi
og tekur á móti heiðursverð-
launum frá háskólanum í Kiel.
Guðlaugur Þorvaldsson, deild-
arforseti viðskiptadeildar, er
vararektor, og ræddi fréttamað
ur Mbl. við hann um þessi mál.
— Ný reglugerð hefur verið
staðfest fyrir læknadeild, sagði
Guðlaugur. Hins vegar hafa
reglugerðir fyrir lagadeild, við
skiptadeild og verkfræði- og
raunvísindadeild ekki verið
staðfestar, enda þótt stúdent-
amir, sem nú innrita sig, muni
vafalítið byrja nám sitt í sam-
ræmi við þær í haust. Háskóla-
ráð hefur samþykkt þessar
reglugerðir, en ráðherra á eftir
að staðfesta þær.
— Hvað um kennslu í al-
mennum þjóðfélagsfræðum,
hvernig innrita stúdentar sig í
hana?
— Þeir, sem ætla í reglulegt
nám í almennum þjóðfélagsfræð
um, verða til bráðabirgða að
innrita sig í viðskiptadeild, og
er þeS'Sl tilhögun í samræimi við
samþykkt háskólaráðs, sem
gerð var s.l. þrðjudag.
— Þú áttir sæti í nefnd
þeirri, sem vann að undirbún-
ingi þessarar nýju námsgrein-
ar. Hverjar voru ykkar tillög-
ur?
— Nefnd þessi starfaði á liðn
um vetri og skilaði tillögum sín
um til háskólaráðs seint í marz
s.l. Formaður nefndarinnar var
dr. Björn Björnsson, prófessor,
og hlutverk okkar var að gera
tillögu um námsefni og skipu-
lag námsins. Þetta gerðum við
og lögðum til, að almenn þjóð-
félagsfræði yrði til bráðabirgða
gerð að skor í heimspekideild
og yrði síðar að sérstakri deild.
Það er Ijóst, að námsefnð stend
ur að ýmsu leyti nálægt laga-
deild, viðskiptadeild og guð-
fræðideild, að því er varðar ein
stakar greinar þess, en það er
einnig efnislega nátengt náms-
efninu í heimspekideild.
— En nú hefur hásfcólaráð
samþykkt, að viðskiptadeild
verði sú deild, sem nemendur í
almennum þjóðfélagsfræðum
innriti sig í. Verður þetta til
frambúðar?
— Eftír þessa samþykkt há-
Guðlaugur Þorvaldsson,
prófessor.
s'kólaráðs er í ráði að skipa
nefnd ful'ltrúa guðfræðideildar
heirji'Spek id eild ar, 1 agad eild ar
viðskiptadeildar, ®túdienta ag
menntamálaráðuneytisins til að
gera tillögur um stöðu al-
mennra þjóðfélagsfræða og
námsefni með hliðsjón af tillög
um þjóðfélagsfræðinefndar.
Þessi nefnd á að ljúka störfum
fyrir 20. ágúsf n.k.
Nefndinni er frjálst að gera
tillögu um það, að stofnuð verði
sérstök deild almennra þjóðfé-
lagsfræða í háskólanum, eða að
þetta verði ákveðin skor sem
hluti af fleiri en einni deild,
eða að almennum þjóðfélags
fræðum verði skipaður fastur
sess í einhverjum af eldri deild
um háskólans. Vonandi fæst við
unandi lausn þessara mála þá.
— Nú ert þú forseti við
skiptadeildar, hvað segir sú
deild um að taka þetta hlutverk
að sér að þessu sinni?
— Viðskiptadeild tók þá af-
stöðu á fundi sínum 29. júní s.l.,
að hún treysti sér ekki til að
fallast á, að almenn þjóðfélags-
fræði yrðu gerð að skor í deild
Alexander Tvardovsky,
hann var rekinn frá Novy Mir.
ist annar rithöfundur, sem
stendur höllum fæti gagnvart
yfirvöldunum. Hann var neydd
ur til þess að segja af sér rit-
stjórn tímaritsins Novy Mir
fyrr á þessu ári. Novy Mir —
og Tvardovsky — hafði leyft
sér að verja nokkra framúr-
stefnúhöfunda, eins og Amalrik
og birta yfirleitt greinar, sem
voru lausar við alla hugmynda
fræðilega vellu.
Með Tvardovsky voru rekn-
ir fjórir aðrir úr ritstjórn tíma-
ritsins, sem voru sama sinnis og
hann. í sLað þeirra skipuðiu rit-
höfunda®amtökin „harðlínu-
menn“ úr kommúnistaflokkn-
um. Eins og venjulega var so-
vézkum lesendum ekki sagt frá
vandræðunum á Novy Mir, fyrr
Framhald á bls. 17
inni að svo stöddu. Voru ýmis
rök færð fyrir því, meðal ann-
ars þessi: Deildinni gafst of
naumur tími til að undirbúa
þetta mál og kanna, þar eð sam
þykkt háskólaráðs um að beina
spurningunni til deildarinnar
hefði verið gerð þann 25. júní.
Auk þess væri mikil kennara-
ekla í deildinni, en prófessorar
hennar eru aðeins fjórir og nem
endur á s.l. vetri 190. Og sem
þriðja atriði get ég nefnt það,
að deildinni þótti stefnt út í
mikla óvissu með kennslu í
þjóðfélagsfræðum, þar sem eng
in endanleg afstaða hefði verið
tekin til tillagna þjóðfélags-
fræðinefndar um námsefnið.
Daigimin eftir fuinidinn í viS-
sfciptadeildarráðiniu tóik há-
skólaráð mál þetta til endan-
legrar afgreiðslu, og þar var
samþykkt sú tilhögun, sem nú
er fylgt, að viðskiptadeild taki
á móti stúdentum í almenn þjóð
félagsfræði. Ég tek það fram,
að deildin telur sér skylt að
hlíta þessari samþykkt háskóla
ráðs, enda þótt hún sé ekki í
samræmi við vilja hennar. En
deildin telur mjög brýnt, að
nefnd sú, sem nú er í ráði að
skipa hafi veg og vanda að und
irbúningi námsins og skipulagn
ingu á kennslu.
— Hafa nýstúdentar, sem
hingað koma til innritunar
kvartað yfir þeirri óvissu, er
óneitanlega ríkir varðand þær
deildir, sem ekki hafa staðfesta
reglugerð, svo að ekki
sé minnzt á almennu þjóðfélags
fræðina?
— Ég hef verið hér á skrif-
stofu rektors frá því að innrit-
un hófst, en til mín hafa ekki
margir stúdentar leitað, og ég
mun verða hér á hverjum
morgni, þangað til innritun lýk
ur, tii.1 þess að útsfcýra það fyrir
S'túdentuim, hvaða horfur
eru í þessum málum. Mér finnst
mjög eðlilegt, að stúdentum
þyki óþægilegt, að ekki skuli
hafa tekizt að koma málunum í
heila höfn, áður en innritun
hófist. Til hiras ber þá einnig að
líta, að engum er mieinað að i-nn
rita sig í þá grein, sem hann
æskir, því að nú þegar er unnt
að skýra frá því í megindrátt-
um, hvernig kennslan fer fram
í öllum deildum.