Morgunblaðið - 30.08.1970, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1970
svo töluðu þeir um Kóreu og
komust ekki í rúmið fyrr en
klukkan hálf f jögur.
II.
Mark Raeburn var að vegg-
fóðra. Hann hafði tekið á leigu
íbúðina uppi yfir skrifstofunni
sinni, fyrir hærri leigu en hann
hafði efni á, og varð því að
veggfóðrá sjálfur. En þar eð
hann háfði mikið að gera, gat
hann ekki snúið sér að þessu
nema stund og stund. Föstudag
inn 19. júlí, eitthvað þremurvik
um eftir boðið hjá Walter, var
hann líka að veggfóðra fyrir
morgunverð og jafnframt að
reikna út yfirdráttinn sinn í hug
anum. Hann blístraði einhverja
lagleysu, um leið og hann greip
4.
seildist eftir viskíflösku og
barmafyllti glasið hjá Mark.
Hann þekkti venjur Marks: Þeg-
hann drakk á annað borð, þá
drakk hann.
— Jæja, þetta var gott boð,
sagði hann.
— Það var eftirtektarvert boð.
Mark saup vel á og rifjaði það
upp fyrir sér. Tekið andlitið á
Edith Desmond og starandi aug-
un, og kuldalega fjarrænu i
framkomu mannsins hennar, vin
gjarnlega brosið á Harry Rick
og varfærið augnaráð, og upp-
þotið hjá Sally Evans, eins og
hjá óhemju, og Clayton
ofursta, þegar hann tók Edith
undir arminn og leiddi hana
burt. — Já, eftirtektarverðasta
boð, sem ég hef lengi verið í.
Walter saup lika vel á. Hann
var orðinn dálítið þéttur.
— Veslingurinn hann Alec Des
mond. Maður hefði getað haldið,
að Edith ætlaði að „deyja“ í
kvöld. En líklega gerir hún það
ekki, heldur fer hún að kasta
hinu og þessu lauslegu í hann.
Eða þá hún hleypur út á Al-
menninginn í náttkjólnum. Það
gerði hún einu 'sinni. Það er
nú meiri kellingin. . . .!
Þeir töluðu stundarkorn um
kvenfólk og drukku meira viskí,
veggfóðursrenninginn og bar
hann upp að veggnum, uppi við
loft.
í sama bili hringdi síminn.
Mark bölvaði í hljóði og flýtti
sér að ganga frá renningnum.
En þetta skyldi vera viðskipta-
vinur, sem kynni að hafa eitt-
hvert feitt verkefni handa hon-
um. . . Hann sleppti veggfóðrinu
og tók símann.
Mark? Þetta er bara hann
Walter.
— Geturðu beðið andartak,
Walter? . . . Ég er með hálf-
límdan veggfóðursrenning.
— Nei, Mark. Hlustaðu nú á.
Nú heyrði hann, að það var ein-
hver asi á Walter.
— Er eitthvað að?
— Já, það hefur komið
fyrir nokkuð hræðilegt.
Pósturinn var rétt núna
að segja henni frú Gull hjá
okkur, að Edith Desmond hefði
fundizt úti á Al-menningnum,
myrt og henni hefði verið nauðg
að.
Mark velti þessari frétt fyrir
sér, þegjandi. Edith stóð ljóslif-
andi fyrir augum hans, eins og
hann hafði séð hana i fyrsta
sinn — föl, máluð og tauga-
óstyrk....
Leyndardómur
góðrar
uppskriftar!
Uppskrift verður aldrei góð, ef notuð eru iéleg
hráefni. Þetta vita allar reyndar húsmæður. Því hefur
Ljóma Vítamín Smjörlíki verið mest selda smjörlíki
á (slandi í mörg ár.
LJÓMA VÍTAMÍN SMJÖR-
LlKI GERIR ALLAN MAT
GÓDAN OG GÓÐAN MAT
BETRI
SD smjörliki hf.
— Heyriðu til min, Mark?
Hann gerði sér ljóst, að nokkur
augnablik voru liðin.
— Já. Þetta er ljótt að heyra.
— Nú, jæja, en sannleikur-
inn er sá, að ég er ekki full-
komlega viss um það enn, að það
sé satt. Pósturinn sagði að vísu,
að hann vissi það fyrir víst, en
það er aðeins hugsanlegt; að um
misskilning sé að ræða.
— En þú heldur, að svo sé
ekki?
— Nei, sannast að segja, held
ég það sé satt. Þú skilur, að það
hefur tvisvar verið ráðizt á
kvenfólk þarna úti á Almenn-
ingnum, siðustu vikurnar.
— Var það rán eða nauðgun?
— Nauðgun. Maðurinn er sýni
lega eitthvað bilaður. 1 gær var
fullt tungl og þá eru svona
menn sagðir vera verstir.
— Já, sagðir vera.
— Sjáðu nú til, Mark. Ef þetta
er satt, verð ég að hafa sam-
band við Alec tafarlaust. Þau
Edith eru bæði skjóistæðingar
mínir.
— Já, það þarftu sjálfsagt.
— En ef það nú skyldi vera
ósatt. Þú veizt nú, hvernig svona
sögur komast á kreik. Ég get
ekki hringt í Alec fyrr en ég
veit, hvort það er satt. Geturðu
komizt að því hjá Scotland
Yard?
— Ég gæti sennilega fengið að
vita það hjá blöðunum.
— Já, blessaður gerðu það. Og
hringdu svo í mig.
Raeburn hringdi á blað og
spurði um hr. Cassidy.
— Ég held ekki, að Cassidy
sé kominn.
— Viljið þér gá að því? Segið
honum, að ég heiti Raeburn. Seg
ið honum, að ég vilji segja hon-
um frá morði í Wimbledon. Þeg-
ar morð var nefnt, kom Cassidy
samstundis í símann.
-— Þetta er Cassidy. Er það
Mark Raeburn?
— Já.
— Hvað er þetta í Wimbledon?
— Ég frétti, að kona að nafni
Edith Desmond hefði verið myrt
úti á Almenningnum.
— Það stendur heima.
— Dökkhærð, rúmlega þritug, á
heima þarna í nágrenninu ?
— Stendur heima. Svo að þetta
var þá Edith Desmond. En Cass-
idy sagði:
— Því miður, það heyrði ég
ekki.
— Ég var að segja, að ég hefði
verið þarna áðan.
— Var henni nauðgað?
— Já, það hefur verið látið í
veðri vaka. En það var henni
ekki. Henni var misþyrmt og hún
kyrkt. En hvernig veiztu yfir-
leitt um þetta?
— Lögfræðingurinn hennar,
sem á líka heima þarna í ná-
grenninu hafði frétt um þetta og
bað mig að fá það staðfest. En
annars hef ég hitt Edith Des-
inond.
— Virkilega?
— Já, ég hitti hana i samkvæmi
fyrir þremur vikum. Þú hefur
sjálfsagt fengið allar þær upp-
lýsingar, sem þú þarfnast um
hana?
— Ekki veit ég nú, hvort það
er allt, sem ég þarfnast. Hún
var þrjátíu og þriggja ára. Mað-
urinn í utanrikisþjónustunni.
Hún var líka í opinberri skrif-
stofu og í Cambridge. Vel gefin.
Og hlýtur líka að hafa verið
ásjáleg. Meira veit ég ekki í bili.
Við erum að útbúa fréttina.
Hvað veizt þú?
— Fæðingarnafn hennar var
Carmichael og faðir hennar var
lögfræðingur í Suður-Afríku.
— Þakka þér fyrir. Það vissi
ég ekki.
— Hver er í þessu af lögregl-
unnar hálfu?
— Werner.
— Hmm! Þetta var eitt af
skozku hljóðunum, sem Mark
gaf frá sér.
— Þú virðist ekkert vera hrif
inn. Werner er fær maður. Og
þú getur verið viss um, að þetta
verður ekki tekið neinum vettl-
ingatökum. Það hafa verið tvær
svona árásir áður. Og enn gæti
orðið framið morð.
— Jæja, það er nú ekki rétt af
mér að vera að tefja þig.
Mark studdi sem snöggvast
fingri á simann og hringdi síðan
i Walter.
— Walter? Sjáðu til, þetta er
satt. Þetta virðist hafa verið
hvort tveggja í senn, nauðgun
og rán.
— Guð minn góður. Óhugnan-
legt! Ég ætti líklega að skreppa
og vita, hvort ég get orðið hon-
um Alec að einhverju liði. Walt-
er hringdi af og Mark stóð andar
tak við símann og hugsaði um
Edith Desmond. Svo hristi hann
höfuðið og gekk aftur að veggn-
um. Klístrið á veggfóðrinu var
orðið skraufþurrt.
Síminn hringdi og Mark rétti
út höndina. Hann hafði verið að
hugsa út ráð til þess að draga
úr hnupli í verksmiðju í Crickle
wood, en ennþá hafði hann
aldrei haft næði til þess meira
en þrjár mínútur í senn.
-— Raeburn, sagði hann.
— Mark, þetta er Walter aft-
ur. Ég var rétt að koma frá hon-
um Alec Desmond. Þekkirðu
þennan Werner fulltrúa, sem hef
ur með málið að gera? Úti fyrir
hamaðist loftbor allt í einu, rétt
eins og vélbyssa. Raeburn varð
að bíða þangað til hann hætti
aftur.
— Já, af afspurn.
Og hvaða orð fer af honum ?
— Hann kvað vera duglegur,
en bölvaður fantur.
— Ég skil. Hann virðist hafa
gengið heldur betur hart að Al-
ec. Og þú veizt, hvernig Alec
er.
— Já. Mark mundi greinilega
eftir köldu fjarrænunni í fari
Alecs.
— Nú jæja, Werner spurði
hann spjörunum úr um Edith.
Hvað hún hefði verið að gera
úti á Almenningnum svo síðla
kvölds, hvort hún hefði átt
vanda til þess, og svo framvegis.
Hann grunar sýnilega, að Edith
hafi verið eitthvað einkennileg.
— Vitanlega. Mark tók að
missa þoiinmæðina.
— Alec mölvaði nokkur tonn
af ís og lét þau detta yfir Wern-
er úr mikilli hæð. Hann lætur
það nú ekki sjást, en hann er
afskaplega áhyggjufullur ef
Werner skyldi reka málið þann-
ig, að allt kæmi í ljós, sem er
um Edith að segja — að hún
sýni sig að hafa verið fyllibytta
með brókarsótt.
— Ég held nú ekki, að hann
verði svo slæmur, þó að hann
komi hrottalega fram. En náttúr
lega getur hann grunað, að Alec
sé að leyna einhverju um Edith
— sem hann auðvitað var — og
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Hafðu góðvini þína í huga, ef éitthvað rætist úr þinum högum.
Nautið, 20. apríi — 20. maí.
Nú verða ekki neinar stórbreytingar á í svipinn. Reyndu þvi að
ganga sem bezt frá öliu, meðan tími gefst.
og því er ekki seinna
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Margt verður til að vekja forvitni þína,
vænna að kanna alla málavöxtu.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Allt byrjar vel, og svo verður áfram um hríð. Því er gáfulegt að
Ijúka öllu þvi, sem beðið hefur, strax.
I.jónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að gera þennan dag skenimtilegan öllum þeim, sem þú
umgengst, Það fer vel á því.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Ef þú flýtir þér að taka til við allan frágang í bítið, geturðu
gengið frá öllum verkum, sem þér finnast leiðinlegust, og því gert
daginn hinn ánægjulegasta í alla staði.
Vogin, 23. september — 22. október.
Reyndu að gera það fyrir ættingjana, að ganga frá Öllu, sem þú
áttir ógert. Þeir eiga líka rétt á glaðningu.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Reyndu að koma öilum beztu hugmyndum þínum í verk strax.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Reyndu að víkka sjóndeildarhringinn eitthvað. Það borgar sig
stundum að hugsa dálitla stund.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Vertu athafnasamur í dag við að endurbæta það, sem lagfæringar
þarf með. Þú getur þar með leyft þér að vinna að merkari verkefnum
á næstunni. Reyndu endilega að bæta afkomu þína.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Flestir vilja aðstoða og láta bera á því. Þér er alveg óhætt að vera
dálítið skemmtilegri, en þú hefur Iagt á þig að vera undanfarið.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Þú skait hyrja snemma verkið, og taka allt eftir þeirri röð, sem
þú hafðir hugsað þér að vinna. Þú skalt vanda þig vel, því að ekki
er liklegt, að annað tækifæri eða betra gefist á næstunni.
þé
L'