Morgunblaðið - 24.09.1970, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. SEPT. 1970
— Hr. Rick á von á yður.
Hann bað mig að vísa yður á
herbergið yðar og bað yður svo
að hitta sig úti. Maðurinn brosti,
framkoma hans var lotningar-
full, en um leið vingjarnleg, eins
og honum vœri það persónulegt
áhugamál að láta Raeburn finna
sig vera þarna velkominn. —
Hr. Rick bað mig afsaka, að hann
skuli ekki koma sjálfur, en hann
hefur verið veikur. Læknirinn
hefur fyrirskipað honum að
liggja fyrir nokkra klukkutima
daglega.
— Ég vona, að hann hafi gott
af þvi, sagði Raeburn.
— Já, en þetta er erfiður sjúk
dómur, og það er vont að fá hr.
Rick til að fara sér varlega. En
23.
Fyrsta merki þess var fallegt
járnhlið í nokkurri fjarlægð frá
veginum, og lítill dyravarðabú-
staður hjá. Fyrir innan hliðið
var stöðuvatn og fyrir handan
var það sjálft Churtons Ward.
Reabum hafði nú lítið vit á
húsagerðarlist, enda þótt hann
kynni vel við rauðan múrstein,
en hinsvegar kannaðist hann við
auðæfi í sjón, og Churton Ward
bar þau með sér — þar hringlaði
allt af peningum, líkast ógleym-
anlegri tónlist. Nýlega málningin
á húsinu, slétt malarbrautin, þar
sem ekki vottaði fyrir iligresi, og
svo slétt og rólegt húsið, bar
vott um hið sama. Þegar hann
stöðvaði bílinn fyrir framan dyrn
ar með súlunum, datt honum í
hug, að þó aldrei nema Guest og
kunningjar hans í Wimbledon
væru í góðum efnum, þá væru
þeir þó ekkert í samanburði við
manninn, sem gæti leigt svona
bústað. Þegar hann hringdi opn
aði maður i hvítum jakka dyrn
ar.
— Er hr. Rick heima ?
— Já. Er það hr. Raeburn?
— Já.
við vonum nú, að hann sé að
hressast.
— Hafið þér verið lengi hjá
honum?
— Nei, bara síðan hann kom
til Englands og tók þetta hús á
leigu, fyrir svo sem fjórum mán-
uðum. Þetta var einkennilegt,
þvi að maðurinn hafði talað um
Rick eins og gamall fjölskyidu-
þjónn. Þeir gengu nú yfir þykk
ar gólfábreiður og maðurinn opn
aði herbergi. — Þetta er her-
bergið yðar, herra minn. Ég vona
að þér segið mér til, ef þér þarfn
izt einhvers. Enn virtist maður-
inn hafa sérstakan áhuga á, að
allt væri í lagi. Síðan lokaði
hann dyrunum og fór út. Her-
bergið var stórt, með kínverskri
gólfábreiðu, sem glitraði í sól-
skininu, sem streymdi inn um
háu gluggana. Loftið var þungt
af rósailmi, og stór skál með rós
um í stóð á borðinu. Gegnum
rósailminn mátti greina ofuriít-
inn þef af húsgagnagljáa. Rae-
burn tók upp vasaklútinn sinn
og strauk honum yfir skrauthill-
una ofan á fataskápnum. Klútur
inn var jafnhreinn eftir sem áð-
ur. Það leyndi sér ekki, að þjóna
liðið hjá Rick var vandvirkt
ekki síður en viðkunnanlegt.
Hann leit á annað borð, þar sem
stóð krystalsflaska og kanna.
Hann opnaði flöskuna og þefaði
úr henni. Viskí og vatn. Við hlið
ina stóð lokuð fata með is. Þetta
var líka einkennilegt. í Englandi
var venjulega sódavatn með vískí
inu, en sem sannur Skoti, þá
drakk Raeburn víski annaðhvort
óblandað eða með vatni. Það
hafði hann gert í samkvæminu
hjá Guest. Hafði Rick tekið eftir
þvi? Það var varla hugsanlegt.
En þarna var nú samt kalt vatn.
Hann opnaði dyr og þar var
fyrir baðherbergi. Þar var bað-
ker á gólfinu, en skrautleg
steypa í horninu, en stór skáp-
ur með gati á að ofan, reyndist
vera gufubað, en í öðrum skáp
voru alls konra snyrtimeðöl, allt
frá Chanel-baðsalti til nudd-
hanzka. Rick hlaut að vera fyrir
mynd að „manninum, sem átti
allt“. Raeburn stóð og virti fyrir
sér brosandi alla þessa viðhöfn,
sem kringum hann var, en þá
varð hann þess var, að einhver
var kominn inn í svefnherberg-
ið að baki honum. Enda þótt
hann heyrði ekkert hljóð, fann
hann alveg á sér, að þarna var
einhver á ferð, og hann gekk
snöggt fram í herbergið. Maður-
inn í hvíta jakkanum var að
taka upp úr töskunni hans. Task
an virtist heldur litil og lúin og
hafði ekki annað inni að halda
en það, sem hann þurfti til einn-
ar nætur. Maðurinn lagði nátt-
fötin á rúmið.
— Þakka yður fyrir. Nú vildi
ég gjarna tala við hr. Rick.
— Sjálfsagt. Viljið þér koma
hérna. Raeburn kinkaði kolli
— Hvað heitið þér?
— Barker, herra.
— Allt í lagi, Barker. Viljið
þér fara á undan. Hann elti svo
manninn, fullur áhuga.
Rick var á garðhjallanum að
húsabaki. Skammt fyrir neðan
garðinn rann áin Avon. Og þar
vissi Raeburn, að var einhver
bezta silungsveiði á öllu land-
inu. Rick lá aftur á bak í garð-
stól, með fæturna hátt uppi. Við
brikina á stólnum var festur ein
hver slynglegur útbúnaður, sem
Raeburn þekkti, að var áhald til
að halda veiðiflugum. í þetta á-
hald var fest ein fluga, sem
Rick hafði verið að laga til.
Rick veifaði hendi brosandi.
— Halló, hr. Raeburn. Gaman
að sjá yður. Afsakið ef ég stend
ekki upp.
— Vitanlega. Þeir tókust í
hendur. Rick hafði þennan
NAUÐSYNLEG
BOK
TILVALIN ..
TÆKIFÆRISGJOF
Hrúturinn, 21. marz — 19. april.
Fer ekkl betur á þvi að þú dragir inn seglin um hrið og gerist
samvizkusamur.
Nautið. 20. apríl — 20. mai.
Ef þú átt einskis annars úrkostar, skaltu verzla I kvöld, annars
ekki fyrr en í fyrramálið.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Hver sem er getur leikið á þig þessa dagana.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Fjármálin hvíla þungt á þér, of þungt. Reyndu að vera dálítið
léttúðugri.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að fara út úr bænum, ef þú nennir.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Hugur þinn hefur ætíð staðið til náttúruverndar, ef himintunglin
segja rétt fyrir. Haltu áfram á þeirri braut.
Vog^n, 23. september — 22. október.
Það er ekki allra að fara í fötin þín. Láttu engan standa þér á
sporði.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Ef enginn réttir þér hjálparhönd, er réttara að þú kippir líka að
þér hendinni, er óskyldir leita á náðir þínar.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Hvernig litist þér á að rcka erindi annarra um hríð, og fara að
græða? Nú er tækifærið.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Það er arðvænlegt í kringum þig. Hvaðan þetta fé kemur er ekki
glöggt, en það er engu líkara, en það sópist að þér.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Eitthvað kemur þér ákaflega á óvart. Einhverjar stórgleði-fréttir
eru í aðsigi.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Hver, sem segir þér, að þú eigir ekki að vinna þetta verk eða liitt,
ekki að aðhafast þetta eða hitt, hlýtur að eiga einhverra hagsmuna
að gæta. Það átt þú líka. Treystu eingöngu á sjálfan þig.
dræma kanadíska málróm, sem
Raeburn mundi eftir, og nú virt-
ist hann betur hvildur en verið
hafði í samkvæminu, en auðséð
var samt, að hann hafði verið —
og var kannski enn — mjög sjúk
ur maður. Andlitið var hrukkótt
og virtist innfallið, og undir sói-
brunanum var yfirliturinn ekki
hraustlegur. En bros hans var
eðlilegt og hlýtt. Hann kinkaði
kolli að garðstól og Raeburn sett
ist.
— Eruð þér veiðimaður, hr.
Raeburn?
— Ekki gæti ég haldið því
fram. Þó hef ég borið það við í
Skotlandi. Silung og lax. Venju-
lega í óleyfi.
— Væri ég hraustur, skyldi
ég fara til laxveiða í Skotlandi.
Eða jafnvel í Noregi. Ég kann
ekki við þetta siðmenningarvatn.
Að mínu áliti ættu veiðiár að
vera handa hverjum, sem kærir
sig um. Hann leit niður á Avon.
— Jú, ég borga fyrir hálfrar
mílu veiðirétt hér. Að veiða smá
silung á silungastöng getur ver-
ið gaman, að minnsta kosti fyrir
fariama mann. Hann brosti, en
það var ofurlítil beizkja í rödd-
inni. Raeburn var fullur samúð-
ar. Rick hafði talað alveg út frá
hans eigin hjarta um „siðmenn-
ingarvatnið". En lengst norður í
Skotlandi var veiðiþjófnaður
ekki reiknaður til syndar frem-
ur en smygl.
— Hvaðan eruð. þér úr Skot-
landi, hr. Raeburn? Hvar var
það, sem þér veidduð? Mark fór
að skýra frá þvi og Rick að
koma með spurningar, og eftir
tíu mínútur talaði Raeburn ekki
um annað en tiltektir sínar á
unglingsárunum, og viðureign
veiðiþjófa og veiðivarða.
—- Þér ættuð að hitta veiði-
vörðinn minn. Sniðugur maður
og hefði sjálfsagt getað staðið í
yður. Kannski gætuð þér líka
gefið honum einhverjar bending
ar. Rick hló. Hann lét sem hann
hefði haft mjög gaman af þessu
samtali, sem hafði komið honum
burt frá elli, veikindum og pen
ingum ásamt ábyrgð, og til æsku
áranna áhyggjulausu. Raeburn
varð hálfilla við, er hann upp-
götvaði, að þetta var af ásettu
ráði gert hjá Rick. Hann hafði
verið að reyna að fá hann burt
frá efninu og að öðru, sem hann
hefði gaman af að tala um. Og
þetta tal hans áður um „siðmenn
Varahlutir í
Rambler Classic
'63-'65
Höfum fengið mikið magn af varahlutum í Rambler Classic
(svo sem boddýhluti og vélahluti).
Upplýsingar í síma 81387.
SPEGLAR
TÆKIFÆRISGJAFIR
Komið og veljið gjöfina.
Fjölbreytt úrval.
Verð og gæði við allra hæfi.
LUDVIG
STORR
SPEGLABÚÐIN.
Laugavegi 15.
Símar: 1-96-35.