Morgunblaðið - 21.10.1970, Blaðsíða 7
MORjGUNBKAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1970
7
„Piltur og stúlka“
senn að hætta
Hinn vinsæli alþýðnsjónleiknr Piltur og stúlka verðnr sýndur í
30. sinn n.k. fimmtudag þann 22. október. Aðeins verður unnt að
hafa örfáar sýningar til viðbótar á leiknum, þar sem á næstunni
verða frumsýnd tvö ný leikrit Iijá Þjóðleikhúsinu, en leiktjöld og
annar sviðsbúnaður í Pilti og stúlku er allrúmfrekur .— L.eikur-
inn Piltur og stúllca, var sem kunnugt er sýndur 27 sinniun á s.1.
leikári við góða aðsókn. — Myndin er af feðgunum á Búrfelli en
þeir eru leiknir af Val Gíslasyni og Bessa Bjarnasyni.
Blöð og tímarit
Strandapósturinn, ársrit, IV.
árgangur er kominn út og hefur
verið sendur Mbl. Strandapóst-
urinn er gefinn út af Átthaga-
félagi Strandamanna og er 136
lesmálssíður fyrir utan auglýs-
ingar. Á forsíðu er mynd af
Hólmavíkurkirkju pftir Matthías
Þorsteinsson. Efnið er afar fjöl-
breytt og margar myndir prýða
ritið. Formaður Átthagafélags-
ins er Haraldur Guðmundsson,
en formaður ritnefndar Stranda
póstsins er Ingi K. Jóhannes-
son.
Af efni ritsins má nefna: Til
lesenda ásamt bréfi dr. Richards
Becks. Jóhannes Jónsson
frá Asparvík yrkir kvæðið: Um
sumarnótt á ferð um Strandir.
Afdalabóndinn, kvæði eftir
Þuríði Guðmundsdóttur frá Bæ.
Strandaannáll eftir Brynjólf
Sæmundsson. Jóhann Hjaitason
skrifar um Staðarpresta í Stein-
grímsfirði á siðskiptatímanum.
Ljúft á fundi ljóðaþings. Vísna-
bálkur. Dagstund hjá Ingimundi.
Torfi Guðbrandsson færði í let-
ur. Kvæðið Ófeigur af Strönd-
um eftir Þórhildi Sveinsdóttur.
Ljóðið Andleysi yrkir Ingimund
ur Jörundsson. Lítil ferðasaga
eftir Guðjón Guðmundsson, frá
Eyri. Stökur og ljóð eftir
Magnús Guðjónsson á Ósi.
Kveðja til Hermanns Jónasson-
ar eftir J.G., Hellu. Gömul þjóð
saga eftir Franklín Þórðarson
frá Litla Fjarðarhorni. Guð-
mundur Kjartansson jarðfræð-
ingur skrifar greinina: Um stutt
kynni af landslagi á Ströndum
og steininn í Stóru-Ávík. Guð-
rún Haraldsdóttir skrifar Yfir-
lit yfir starfsemi Átthagafélags-
ins. Kvæðið: Reiður ungur mað-
ur eftir Þuríði Guðmundsdóttur
frá Bæ. Jónas Einarsson skrifar
um Borðeyrarverzlun írá alda-
mótum. Kvæðið Sumarnótt eftir
Ingimund Jörundsson, en hann
á fíleiri kvæði og stökur í ritinu.
Jóhannes frá Asparvik skrifar
um Svipmynd frá siðustu öld.
Þorsteinn Matthíasson skrifar
Aldabil. Ritið er prentað í Prent
verki h.f. Setning hjá G. Bene-
diktssyni.
FRETTIR
Bamaverndarfélag Reykjavíkur
hefur fjársöfnun á laugardag-
inn, 1. vetrardag til ágóða fyrir
Heimilissjóð taugaveiklaðra
barna. Bamabókin Sólhvörf og
merki félagsins verða afgreidd
frá öllum barnaskólum í Reykja-
vík og Kópavogi kl. 9—15
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur basar mánudaginn 2.
nóvember í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Þeir sem ætla að
gefa muni á basarinn, vinsam-
legast komi þeim til Maríu,
Barmahlíð 36, simi 16070, Vil-
helimánu, Stigahlíð 4, sími 34114,
Pálu, Nóatúni 26, sími 16952
Kristínar, Flókagötu 27, s. 23626
og Sigríðar, Stigahlíð 49, s.
82959.
Númer í happdrætti
hestamannafél. Faxa, sem dregið
var í nú nýlega: Nr. 3584 Reið-
hestur. Nr. 4257 Hryssa ótamr
in. Nr. 1811 Hestfolald. Nr. 448
Merfolald. Nr. 3043 Klyftöskur.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
heldur fund á morgun, fimmtu
daginn 22. október, að Hótel
Borg kl. 8.30.
Gegnum
kýraugað
Eins og allir ökumenn bif-
reiða þekkja, skapar umferð
hrossa og kinda mikla um-
ferðarhættu á vegum, ekki
sízt eftir að dimma tekur.
Það hefur reynzt álit fjöl-
margra ökumanna, að bráð-
nauðsynlegt sé, þegar ökur
maður hefur séð hrossahóp í
ljósgeislanum, að stanza bif-
reiðina hið bráðasta úti á veg
arkantinum, slökikva ljósin
og flauta. Annars er hættan
mikil á því, að hestarnir
blindist af 1‘jósunum og æði
framan á bifreiðina.
Svo mætti bæta þvi við, að
reiðmenn ættu að fá sér glit-
merki á reiðann á hnakkn-
um og geta þeir með þvi kom-
ið í veg fyrir margt slysið.
B.J. og Mjöll Hólm
Myndin hér að ofan er af hljómsveitinni B.J. og Mjöll Hólm, seni tindanfarið hefur leikið í
Þórskaffi, 3 kvöld í viku, og virðast gestir kunna vel að meta hana, einkanlega fyrir fjöl-
breytt lagaval. Meðlimir iiljómsveitarinnar eru: Lárus H. Ólafsson, bassi og söngvari, Þorkell
S. Árnason, gítar, Benedikt Pálsson, tromnnir og söngvari, Jiilíus Sigurðsson, saxafón, Þórar-
inn Jónsson, orgel og Mjöll Hól m söngkona.
IE5IÐ pJergtmMabib DRCLECH BROTAMÁLMUR Kaupi alian brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, simi 2-58-91.
IBÚÐ ÓSKAST Óskum eftiir að taka á te-ig'U 2ja heí<b. ibúð í Voga- eða Heimaihv. fná 1. eða 15. nóv. Nokkiur fyni'nfraong'r, ef ó'Skað er. Tiíb. send'ist Mb'l. f. helg'i merkt: „Ibúð 4490". NÝLEG 2JA HERB. ÍBÚÐ í Vestunbænium t»l teigiu frá og með 1. nóv. Issikápur og teppi fylgja. Regil'us. og góð umg. ás'k. Tilto. send'i’St Mtol. f. föstudag n. k., m.: „Reglu- seirrti 4485".
Lokað frá kl. i f í dag
vegna jarðarfarar.
Húsasmiðja Snorra Halldórssonar
Súðarvogi 3.
Lokað
Lokað vegna sumarleyfisferðar starfsfólks, (bæði skrifstofa
og verkstæði) frá 20. október til 7. nóvember.
VERZLUIMIIM VERÐUR OPIN.
dmaaa Gsx>sosM35a ld %
Síðumúla 33.
Skrifstofustúlka
óskast til vélritunar og annarra starfa á endurskoðunarskrif-
stofu. Góð vélritunar- og íslenzkukunnátta nauðsynleg. Eftir
samkomulagi kemur til greina starf hluta úr degi sérstaklega
á síðari árshelmingi.
Eiginhandarumsóknir er greini aldur, menntun, fyrri störf og
hugsanlegan vinnutíma sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 27.
október n.k. merkt: „4491".
NEW 10 Key Electric Adding Machine
RICOMAC *211
nmm beikiivél
Verð krónur I0.l50,oo
★ 11 stafa útkoma
★ Leggur saman
★ Dregur frá
★ Margfaldar
★ Prentar á strimil.
Útsölustaður Akureyri:
BÓKVAL, Hafnarstræti 94.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
^ + •"'x ^ ^ HVERFISGÖTU 33
SÍMI 20560 - PÓSTHÓLF 377