Morgunblaðið - 21.10.1970, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1970
23
Hvaða nauðsyn rak
til þess að fylla upp
óshólma Elliðaánna?
1 þéttbýli er að vísu hver
blettur dýrmætur til ýmiss kon
ar nota, en þó þykir nauðsyn-
legt að gera ráð fyrir opnum
svæðum. Þessi opnu svæði eru
oftast af mannahöndum skipu-
lögð, svo þau að mannlegu
hyggjuviti færi unað. Minna er
um það, að minnsta kosti hér-
lendis, að frjáls náttúra fái að
ráða.
Á Seltjarnamesinu er stöðugt
að færast út stærsta þéttbýli
ísliands og því hlýtur sú út-
færsla mannvirkja að raska
frjálsri náttúru og verður í
mörgum tilvikum ekki hjá þvi
komizt.
Með lögum um náttúruvernd-
arráð Islands og náttúruvemdar
nefndir, sem skyldu stofnaðar í
kaupstöðum og sýslum og svo
með tilkomiu samtaka áihuga-
manna um náttúruvernd, er l’eit-
azt við að nýting náttúrunnar sé
ekki hömlulaus né ágangur án
takmörkunar.
Nú er mikið rætt um náttúru-
vernd og ber þar hæst Mývatn
og Þjórsárver. Sjónvarp og
hljóðvarp hafa leitazt við að
vekja athygli almennings á nauð
syn náttúruverndar og vinna
því máli skilning og haldgott
álit.
Fyrir nokkrum dögum var
náttúruverndarnefnd Reykjavík
ur endurskipulögð, og vonandi
hefur þetta verið gert af brýn-
um ástæðum. Þeirra ástæðna hef
ur eigi verið getið — og þar sem
mér eru þær ekki kunnar, leyfi
ég mér að vekja athygli á einu
máli, sem þvl miður er kannski
of seint að rita um.
Samtímis og hinn nýi þjóðveg-
ur hefur verið lagður yfir Elliða
árnar, hafa óshólmar ánna verið
fylltir upp. Þessir óshólmar,
sem nú eru horfnir, voru sér-
stæðir. Hrauntunga gekk fram í
botn Elliðaárvogs og runnu árn-
ar til sjávar sín hvorum megin
tungunnar. Á hrauntungunni
voru grasteygingar. Milli þeirra
voru kílar, sem sjór gekk upp í.
Botnar kílanna voru leirur,
sandfyllur eða hraunheliur, sem
voru vaxnar fjörugróðri. Langt
fram í voginn eða allt að Gelgju
tanga, komu á útfalli upp leir-
ur, sem náðu md'lti fjöruborða
beggja vegna vogsins og allt inn
til ármynna.
Á seinni árum heíur byggð-
in færzt fram að sjávarbökkum
vogsins og þar á meðal vélsmiðj-
ur, iðjuver, fiskvinnstastöð, olta
stöð, bifreiðaþvottastöð, malbik-
unarstöð, steypustöð og ein
stærri skólpleiðsla borgarinn-
ar fengið framrennsli í vestan-
verða óshólmana, og sorp, sem
eigi verður brennt í skarna,
hrúgazt upp við Grafarvog er
gengur inn úr Elliðaárvogi til
austurs. Undravert hefur verið,
hve mengun frá öllum þessum
mannvirkjum hefur eigi á ytra-
borðinu verið merkjanleg. Get-
ur verið, að kjörlendi lifvera
leirunnar hafi að einhverju
leyti breytzt.
Ég hef nú í nær 30 ár fylgzt
með fuglallifi óshólmanna á ölt-
lim árstimum og komið hefur fyr-
ir, að þar hafi gefið að líta um
3000 fugla, 27 tegunda, Óshólm-
arnir, þ.e. hrauntunga, leira og
árnar hafa verið hinum fiðruðu
lífverum sannkallað töfraborð
eða mettandi Samherji.
Ekki er langt síðan sjónvarp-
ið sýndi myndir frá nágranna-
löndum, þar sem svipuð kjör-
lendi fugla hafa verið eyðilögð
með mengun eða mannvirkjagerð
um — eða rómuð athvörf fugla
t.d. mýrlendin Las Marissnas
norður af Cadiz á Spáni, eiga
að hverfa — en hver var sú
um mannsins. Margir, sem sáu
þessar myndir, fylltust harmi og
reiði. Vel getur verið að stlík
svæði verði af mikilli nauðsjm
að hverfa — en hver var sú
Rúmlest og smálest
Furðulega þrálátur ruglingur
er ríkjandi á hugtökunum rúm-
lest og smálest, þegar rætt er um
stærðir skipa. Þó er þetta raun-
verulega ákaflega einfalt mál ef
að er gáð.
Rúmlest er rúmmálseining, sem
samkvæmt gildandi alþjóða-
ákvæðum er 100 ensk rúmfet eða
2.83 rúmmetrar. Lang oftast er
stærð skipa miðuð við brúttórúm
lestir, en það er rúmmál ákveð-
inna rýma í skipum samkvæmt
alþjóðareglugerð um mælingu
skipa. Brúttórúmlest heitir á
ensku GROSS REGISTER TON,
oft skammstafað GRT,en á norð
urlandamálum Brútto Register
Tonn og þá skammstafað BRT.
Þar sem hér er rætt um Ton
á erlendum málum, þá má segja
að ekki sé óeðlilegt, að þýðanda
erlendra greina komi fyrst i hug
þyngd en ekki rúmmál, þegar
orðið Ton kemur fyrir. Hér er
því fróðlegt að hafa í huga að
í rauninni er heldur ekki á ensk
unni um þyngdareininguna tonn
að ræða, því að upphafleg mynd
þessa orðs er tun, sem er sama
orð og tunna á íslenzku. Fyrsta
stærðarmæling skipa er til kom-
in vegna flutnings á vintunnum
frá Frakklandi til Bretlands, og
stærð skipanna miðuð við hve
margar vínámur skipin gætu
flutt. Þetta er að vísu löngu lið-
in tíð, en af þessu sést þó aö
einnig þá var um rúmmálsmæl-
ingu að ræða.
Hugtakið smálest, sem alltaf
annað veifið sést misnotað i stað
orðsins rúmlest, þegar rætt er
um stærð skipa, á hins vegar
ekkert skylt við rúmmál. Smá-
lest er sama og tonn i metrakerf
inu, þ.e.a.s. 1000 kg., og þetta
orð mun upphaflega hafa verið
tekið upp til aðgreiningar frá
enska tonninu, sem er 1016 kg.
Reyndar er orðið smálest algjör
lega óþarft, því í metrakerfinu
heita 1000 kg. öðru nafni 1 tonn,
og éngin ástæða er til að forðast
notkun þess orðs frekar en t.d.
orðsins metir fyrir lengd eða
lítir fyrir rúmmál.
Burðarhæfni skipa er að sjálf
sögðu gefin upp í þyngd, en þá
er átt við þá þyngd í tonnum,
sem hvert skip getur borið, þeg-
ar það er fullhlaðið að dýpsta
leyfilega hleðslumarki á skips
hlið.
Heildarþyngd fullhlaðins
skips er jöfn þyngd þess sjávar,
sem skipið ryður frá sér, og eig-
inþyngd skips er á sama hátt
þyngd þess sjávar, sem skipið
ryður frá sér þegar það er tómt.
Burðarhæfni skips er því heild-
arþyngd skipsins að frádreginni
eigin þyngd þess, þegar það er ó-
hlaðið. Einstaka sinnum er getið
um burðarhæfni flutningaskipa
til að gefa til kynna stærð
þeirra, og þá er sú stærð að
sjálfsögðu gefin upp í tonnum.
Stundum er í burðarhæfni skips
meðtalin þyngd olíu, vatns og
vista skipsins sjálfs, og þá er
þetta nefnt á ensku „Dead
weight all told“.
Eins og að framan segir, þá er
þó mæling skipa byggð á rúm-
málseiningunni rúmlest, og þá
oftast notuð brúttórúmlest, sem
er algjörlega óskyld þyngd
skipsins.
Ef þetta greinarkorn getur
minnkað eitthvað þann leiða hug
takarugling, sem oft verður vart,
þegar getið er um stærðir skipa,
þá er tilganginum náð.
Hjálmar R. Bárðarson.
nauðsyn, sem rak reykvísk borg-
aryfirvöM til þess að fylla upp
óshólma Elliðaánna. Einhverj-
ir munu álíta hina grænu fleti
uppfyllinganna fegurri en grá-
ar leirurnar og enn snyrtilégra
verði þetta svæði séð frá strand
vegum og nýjum Elliðaárbrúm,
þegar í vestra ármynnið verður
komin tjöm með róðrarbátum,
en svo hefur borgarverkfræðing
ur skýrt mér frá að sé ættanin.
Væri ekki tillitssamara við
þá náttúru, sem þama hefur
ríkt, að lofa vestari árrennslinu
að hafa frjálst rennsli til sjávar,
svo að smá sneið af leirunum
fái að viðhaldast milli miðupp-
fyllingarinnar og vestari strand-
ar vogsins? Minnumst þess,
að allar slíkar leirur við Sel-
tjarnarnes eru að hverfa ásamt
mýrlendum og tjömum. Síðast
var fyllt upp í tjöm Vatnagarða
og nú er verið að færa athafn-
irnar í tjarnir nágrennisins t.d.
er sjávarlónið við Gufunes að
verða uppfylling. Mýrlendi eru
nær öll horfin á borgarlandinu.
Suðurmýrin austur af háskóla-
svæðinu er á fömm.
Borgarsvæðið hafði sérstætt og
margbreytilegt fuglalíf. Þeir,
sem fylgzt hafa með því, sjá ör-
ar breytingar. Að visu hefur
skóg- og garðrækt verið því lífi
jákvæðar framkvæmdir og eins
má segja um andaeldi borgarinn
ar á Þorfinnstjörn, matargjafir
borgarbúa til fugla Tjarnarinn-
ar, en það er að verða um sein-
an að bjarga kjörlendum fugla í
frjálsri náttúru. Minnumst þess,
að í stað þeirra getur aldrei kom
ið eitthvað það, sem er upphugs
að og gert af mannahöndum.
Þorst. Einarsson.
Athuga-
semd
um greinargerð
menntamála-
*
nefndar S.H.I.
í NÝLEGU Morgunblaði rakst
ég á greinargerð menntamála-
nefndar S.H.Í. um inntöku
manna í háskóla. Heldur virtist
mér greinargerð þessi óljóst orð
uð og fátt um rökstuddar álykt
anir. Þó er aðeins eitt atriði
hennar, sem mig langar að gera
að umtalsefni hér, en það er eft
irfarandi klausa um Verzlunar-
skóla íslands: „Verzlunarskóli
virðist veita nægil-ega breiða al-
menna menntun, en námskröfur
eru litlar og alvörulausar (letur-
breyting mín). Má því telja rétt,
að honum viðkomandi gildi á-
fram sömu reglur og gilt hafa“.
Sjálf var ég nemandi í V. í. 6
ár og kennari við Menntaskólann
í Reykjavík 3 ár. Ennfremur
hafði ég mjög gott tækifæri til
að fylgjast með námsstarfi nem-
enda, sem luku verzlunarprófi
frá V.Í., en innrituðust að því
loknu í M.R. og taku þaðan stúd
entsprófi. Við samanburð á skól
unum tveknur á grundvelli þess
ara kynna fæ ég ekki með
nokkru móti séð, að námskröfur
í V.í. séu minni eða alvörulaua-
ari en í M.R., nema síður sé.
Ekki minnist ég þess heldur að
hafa nokkurn tíma heyrt verzl
unarskólastúdent kvarta yfir því,
að honum sæktist illa háskóla-
nám heima eða erlendis vegna
ónógs undirbúnings.
Mér þætti því fróðlegt að vita,
á hverju menntamálanefnd
S.H.Í. byggir dóm sinn um náms
kröfur í V.í. og öðrum fram-
haldsekólum íslenzkum, því að
ekki leikur vafi á, að umfangs-
miklar rannsóknir hljóta að
liggja að baki svo skýlausum full
yrðingum sem þeim, er hér um
ræðir.
Ann Arbor, Michigan,
9. október 1970.
Ragnheiður Briem,
menntaskólakennari.
Þyrlan í
viðgerð
VARÐSKIPIÐ Ægir kom til
Reýkjavíkur í gærmorgun að
norðan með þyrta Landhelgis-
gæzlunnar og Slysavamafélags
íslands og var hún tekin í land
ti-1 viðgerðar í gær.
Tónlistarskóli
Rangæinga
Á VEGUM Tónlistarfélags Rang-
æinga verður í vetur, eins og
fyrr, starfræktur tónlistarskóli.
Kennsla er þegar hafin og
verða kennslustaðir sem áður
Hvolsvöltar, Hella og nokkrir
aðrir staðir i sveitum Rangár-
þings. Skólastjóri og kennari er
Guðmundur Jónsson, píanóleik-
ari og tónlistarkennari.
. . ; ',-L_ ~T~ - **
Rjómaísterta -
eftirréttur
eða kaff ibrauð ?
Þér getið valið
Ef til vill vitið þér ekki, að yður býðst
12 manna Emmess ísterta, sem er með tveim
tertubotnum úr kransakökudeigi. — Sú er þó
raunin. Annar botninn er undir Isnum, en. hinn
ofan á. Isinn er með vanillubragði og ispraut-
aðri súkkulaðisósu. Tertan er því sannkallað
kaffibrauð, enda nefnum við hana kaffitertu.
Kaffitertan er fallega skreytt og kostar aðeins
250,00 krónur. Hver skammtur er því ekki dýr.
Reglulegar istertur eru hins vegar bráð-
skemmtiiegur eftirréttur, bæði bragðgóður og
fallegt borðskraut í senn. Þær henta vel við
ýmis tækifæri og eru nánast ómissandi ( barna-
afmæium.
Rjóma-ístertur 6 manna terta
kosta: g manna terta
12 mann.a terta
12 manna kaffiterta
kr.
125.00.
155.00.
200.00.
250.00.