Morgunblaðið - 29.10.1970, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. OKTÓRER 1970
5
„Réttindi og skyldur
fari saman“
— segir Félag héraðsdómara
EINS og Morgunblaðið hefur
skýrt frá var aðalfundur Félags
dómarafulltrúa haldinn laugar-
daginn 24. október og var nafni
félagsins þá breytt í Félag hér-
aðsdómara og ný stjóm kosin. Á
fundinum urðu miklar umræður
um kjaramál og réttindi félags-
manna og hefur Morgunblaðinu
borizt eftirfarandi fréttatilkynn
ing frá Félagi héraðsdómara þar
um:
„Á fundinum kom í ljós, að
megn óánægja ríkti meðal fé-
lagsmanna vegna þeinra kjara,
er þeim eru nú búin af hálfy
ríkisvaldsins. Var það einróma
álit fundarmanna, að dómarar
gaetu ekki sætt sig við að þeim
væri mismunað í launum svo
sem verið hefði hingað til, en nú
vaéri á sveimi orðrómur «m, að
slíkt vaeri áfO'rmað í þeim kjara-
samningum opinberra starfs-
manna, er nú standa yfir.
Ýmsir félagsmenn gáfu í skyn
að þeix myndu ekki saetta sig
öllu lengur við ríkjandi ástand
og leita sér starfa á öðrum svið
um. Var á undirtektum annarra
Athugasemd frá stjórn
Hjúkrunarfél. íslands
Mbl. hefur borizt eftirfarandi
athugasemd:
„Stjórn Sambands islenzkra
barnakennara boðaði blaðamenn
á sinn fund 19. okt. s.l. og flutti
þar, skv. blaðafréttum, áróður
fyrir kjaramálum sinum, m.a.
með samanburði við aðra starfs-
hópa innan Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, þ.e.a.s.
hjúkrunarkonur og lögreglu-
þjóna.
Nú eru framundan og standa
raunar yfir samningaviðræður
milli B.S.R.B. og forsvarsmanna
ríkisins og bæjarfélaganna í
landinu.
Innan B.S.R.B. er ætlazt til að
allir aðilar vinni saman að kjara
bótum og sýni þannig félagsleg-
an þroska, en noti ekki saman-
burðaráróður til þess að lyfta
einum hópi á kostnað annarra.
Þar sem þetta er komið fram
og hjúkrunarkonur teknar til
samanburðar, til þess að setja
þær i óhagstæðari aðstöðu, verð
ur ekki komizt hjá að gera at-
hugasemd.
Það er viðurkennt um allan
heim að hjúkrunarkonur hafa
verið vanmetnar til launa, enda
er víðast mikill skortur á hjúkr-
unarkonum, og svo er einnig hér
á landi. Vegna þessa hefur Al-
þjóðavinnumálastofnunin (ILO)
í samráði við Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunina (WHO) og Al-
þjóðasamband hjúkrunarkvenna
tekið kjaramál hjúkrunarstéttar
innar til athugunar.
1 ræðu er flutt var á fundi ráð
gjafanefndar Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar, 8. des. 1967 var
m.a. bent á að „samtimis þvi, að
umbætur á starfskjörum hafa
verið fáar og smávægilegar, hafa
kröfur þær, sem gerðar eru til
hjúkrunar, farið sívaxandi, ekki
einungis að því er tekur til um-
fangs, heldur og til gæða, —
kröfur um meiri visindalega
þekkingu og tæknilega hæfni.
Skorturinn á hjúkrunarkon
um, jafnframt vexti og fjölgun
hjúkrunarstofnana hefur skapað
mjög brýnt vandamál, svo sem
bent var á af ýmsum fulltrúum
á vinnumálaráðstefnunni á þessu
ári. Okkur ber öllum skylda til
að reyna að finna leiðir út úr
þeirri sjálfheldu, sem hjúkrun-
armálin hafa ratað í vegna úr-
eltra hefða og slæmra starfsskil
yrða. Ef ekki vegna hjúkrunar-
kvennanna sjálfra, þá a.m.k.
vegna þess fólks, sem þarfnast
þjónustu þeirra, verður að
gera hjúkrunarstarfið eftirsókn
arverðara sem atvinnugrein,
bæði fyrir karla og konur.
Þetta er jafnmikið hagsmuna-
mál fyrir vinnandi fólk, atvinnu
rekendur og ríkisstjórnir. Til að
framleiðsla geti aukizt þarf
heilsuhrausta starfsmenn, til að
efla heilbrigði þarf hjúkrunar-
konur."
Starf barnakennara er vanda-
samt og ábyrgðarmikið og von-
andi að það verði rétt metið til
launa, en það virðist alltaf geng
ið framhjá þvi, að allar hjúkrun
arkonur hafa kennsluskyldu í
sínu starfi, sem leiðbeinendur
sjúklinga, við heilsuverndar
störf, og við að kenna hjúkrun-
arnemum og aðstoðarfólki við
hjúkrunarstörf. Þeim mun meiri
ástæða er fyrir þessa hópa að
vera traustir samherjar."
fundarmanna að heyra, að fleiri
myndu fylgja eftir.
RÉTTASSTAÐA DÓMARA
Frá því var skýrt, að stjóm
félaigsins hefði í j anúar sl. rit-
að dómsmálar^ðherra bréf, þar
sem gerð *»r grein fyrir skoðun
félagsmanna á því, að ekki væri
vansalaust að draga lengur að
breyta réttarfarslögum á þann
veg, að dómarafulltrúakerfið
yrði lagt niður í núverandi
mynd. í framhaldi af því þréfi
var síðan nefnd, er fjallar um
endurskoðun á dómaskipun í land
ínu, ritað bréf í febrúar sl., en
er fundurinn var haldinn hafði
enn ekkert gerzt í málum þess-
um, enda hefur umrædd nefnd
eigi komið saman til að fjalla un
málið.
Var talið, að ekkert réttlætti J
að þeir sem fara með einn af
þrernur höfuðþáttum ríkisvalds- \
ins, dómsvaldið, sætu ekki allir
við sama borð hvað réttarstöðu
varðaði. Almenna reglan sé sú að
réttindi og skýldur fari sarnan.
Félagsmenn hafi skyldur dóm-
ara og þeirn beri réttindi í sam-
ræmi við það.
f samræmi við þetta var
minnzt á ummæli í greinargerð
með frumvarpi að lögum nr. 98/
1961:
„ . . . Fjöldi einkamála, sem
rekin eru í Reykjavik er orðinn
svo mikill, að dómararnir hafa
Framhald á bls. 13
Laus stoða ó ísafirði
Staða skrifstofustjóra Rafveitu fsafjarðar er laus til umsóknar
með umsóknarfresti til 15. nóv. nk.
Laun skv. 19. flokki opinberra starfsmanna.
Umsóknir um stöðuna sendist til Rafveitu Isafjarðar.
RAFVEITUSTJÓRI.
Sniðnámskeið
Næsta kvöldnámskeið hefst 2 nóvember.
Kenni. viðurkennt sænskt sniðkerfi.
Innritun í síma 19178.
SIGRÚN A. SIGURÐARDÓTTIR
Drápuhlið 48 II. hæð.
Til sölu
iðnaðarhúsnœði
um 150 ferm. jarðhæð við Auðbrekku, góðar innkeyrslur.
FASTEIGNASALAN Hátúni 4 A
Símar 21870 og 20998.
PHILIPS
PHILIPS
PHILIPS
PHILIPS
JTercQ
HEIMILISTÆKI SF.
/ Nú fást
i Kóróna fötin líka í
\ Herrabúðinni
\ við Lœkjartorg