Morgunblaðið - 08.11.1970, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÖVEMBER 1970
33
fé til að prófa bíla sína, en þeir
bandtf ísku hafa oft verið ásak-
aðir íyrir að “ugsa minnst um
öryggi í þeim prófunum. Mest
áherzla hafi verið lögð á að
koma tækjunum upp í hundrað
á sem skemmstum tima, og að
koma þeim sem lengst upp
fyrir hundrað eftir það. Þetta
virðist nú vera að breytast
mikið og í auglýsinigum er nú
oftar nefnt hvað bíllinn sé ör-
uggur, en hvað hann komist
hratt.
Mengunin er ekki minna
vandamál. 1 einni stórbqí'g
sýndu rannsóknir að bílar votu
valdir að um 60% þeirrar
mengunar, sem mældist í and-
rúmsloftinu. Miklar rannsóknir
eru nú hafnar í því skyni að
smiða vélar, sem menga minna,
en framleiðendur telja sig ekki
geta bætt úr þessu nokkur
næsitu árin. Þá er einnig unn-
«5 að því, að finna upp alls kon-
ar síur til að nuinnka mengun
frá bílvélum, og sjálfsagt verða
stórstigar framfarir í þessum
efnum á næstu árum, enda veit
ir ekki af. 1 septembermámuði
si. samþykkti bandaríska öld-
ungadeildin lög, sem segja fyr-
ir um að árið 1975 verði allir
biiar, sem seldir eru í Banda-
ríkjumum, hvort sem þeir eru
innlend eða erlend framleiðsla,
að framleiða 90% minni meng-
unareiningar en bilar framleiða
í dag. Japanskir framleiðendúr
eru löngu byrjaðir að kaupa
upp allar uppfinningar, sem
þeir komast í færi við, sem
gætu stuðlað að minni mengun,
og þeir bandarísku eru nú að
byrja á þvi sama. Aðal meng-
unarvaldurinn er blýið, sem
bætt er í bensínið til að gera
það orkumeira, og 95% af öllu
bensíni inniheldur blý. Blýlaust
bensín er ekki nógu orkumikið
fyrir stórar vélar, en þama
gæti smábílaáhuginn komið til
hjálpar, því flest 1971 módel-
anna geta notað blýlaust bens-
ín. Þó er fyrirsjáanlegt að
þetta verður enn vandamál um
árabil.
— Óli Tynes.
Saab
verksmiðjurnar sænsku smíða hljóðfráar orrustuþotur, æf-
ingaflugvélar. eldflaugar, tölvur, gervihnattastjómstöðvar og
bíla. Framleiðsla á Saab-bíliinum með framhjóladrifi hófst
skömmu eftir síðari heimsstyrjöldina og hefur vaxið jafnt og
þétt síðan. Nýlega var opnuð verksmiðja í Finnlandi, sem fram-
leiðir um 100 þúsund bíla á ári. I.itlar breytingar hafa orðið á
útliti Saab-bilanna þar til Saab 99 kom á markaðinn, en þar er
um að ræða alveg nýtt módel, stærra og rúmbetra en Saab V4.
Sá gamli er þó enn í fullu gildi og seldur jafnhliða númer 99.
Saah V4 kostar nú kr. 315 þús., tveggja dyra 99 kostar 396
þí!s. og f jögurra dyra 99 kostar 417 þús. Á myndinni er Saab 99.
Sunbeam
eða sólargeislinn frá Crysler-verksmiðjunum, er meðalstór
fjölskyldubill og líklega með þeim ódýrari. Hann er framleiddur
í mörgum gerðum, en sá, sem mest nmn seldur hér á landi, er
Sunbeam 1250, fjögurra dyra með 53 hestafla vél (1250 c.c.).
Hann kostar eitthvað um 250 þús. kr. í ár.
Volkswagen
Allir vildu Lilju kveðið hafa. og brezkt bilablað sagði einbvern
tima. að allar bílaverksmiðjur vildu bafa smíðað Volkswagen.
Þess í stað hafa margar þeirra reynt að smíða keppinaut, en
líklega hefur enn ekki tekizt að finna neinn, sem gæti orðið
varanleg ógnim. VW 1300 hefur verið mest seldur hér á landi
og í ár kostar hann kr. 217.900. I>á er og kominn liér á mark-
aðinn VW 1302, sem er eiginlega endurbættur 1300. Munurinn
er sá, að hann er 7 /2 cm lengri að framan og eykur það far-
angursrými um 85%. Helztu breytingar á VW eru gormar á
frambjóiiini og endurliætt fjaðrakerfi, þannig að liann er nú
sagðnr býðari en áður. VW 1302 kostar kr. 225.100.
Moskovichinn
Nýi Moskovichinn hefur aflmeiri vél en 1970 árgerðin (80 hö.
á móti 60 hö.) og nýjan girkassa, þar sem allir gírar eru sam-
hæfir. Það liafa orðið þó nokkrar útlitsbreytingar á Moskovich
undanfarin ár, og þótt ekki sé um neina byltingu að ræða, eru
nýju gerðirnar niun fallegri. Áætlað verð Moskvich 412 fólks-
bifreiðar er kr. 224.750. M-427 station kostar um 244.014 kr. og
M-434 sendibifreið kr. 173.975.
Thunderbird
er líklega nokkuð hafinn yfir kaupgetu flestra Islendinga,
enda búinn slikmn þægindnm og aukalilutuni, að helzt þyrfti
flugmannspróf til að vita hvað á að gera við alla þessa takka.
Meðal kosta, sem honum eru taldir, eru: vökvastýri, vökva-
henilar, beygjuljós, flugvélaöryggisbelti, þriraða blikkandi
stefnnljós, takka-st jórnað-rafniagnsknúiö-sólþuk, upp-og-niður-
lireyfanlegt-stýri, rafknúið-sjálfvirkt-andrúmsloftsblöndunar-
tæki, sjálfvirkt hraðastjórnunarkerfi fyrir langkeyrslur, stereo-
segnlband og vél, sem nægja myndi til að knýja Queen Eliza-
beth áfram með 40 hnúta hraða.
Cortina
er önnur bifreið, sem náð hefur miklum vinsældum á ís-
landi. Að venju segja framleiðendur að þetta sé bezta árgerð,
sem framleidd hafi verið hingað til, en vist er að útlitið er tölu-
vert breytt, eins og sjá má. Á myndinni er Cortina GXL, sem
mun vera mesta lúxusmódelið, enda kostar hann 384 þús. kr.
ódýrari ge.rðin. Cortina G, tveggja d.vra með 1300 c.c. vél, kost-
ar hins vegar iun 263 þús. kr.
Pinto
þýðir folald eftir því sem við komumst næst, enda er Ford
Pinto gefinn út fyrir að vera einn af hinum svokölluðu „com-
pact“-bílum. Og svo við höldum áfram með það, sem við kom-
umst næst, mim „compact“ eiga að þýða smábíll, sem eigin-
lega er ekki lítill. Hvað um það, hann er snotur, eins og myndin
sýnir, og tveggja dyra ltostar hann frá 398 þús. kr.
Framhald á bls. 41