Morgunblaðið - 01.12.1970, Page 28
28
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1970
^o00o
báóum
áttum
EFTIR FEITHBALDWIN
29
mér eins og allur heimurinn væri
að hrynja saman Og ég elsk-
aði þig svo heitt, að ég vissi, að
þú hlauzt að elska mig líka.
Þetta virtist ekki rök-
rétt, að minnsta kosti ekki í svip
inn. Hún sagði og andvarpaði:
— Jæja, það er víst engin
ástæða til að vera með nein ólík
indalæti og halda þér í vafa . . .
þvi að þú tókst mig bókstaflega
með trompi.
— Ég ætla að reka þennan
bölvaða klaufa á morgun, sagði
Pat harkalega.
— Hvaða klaufa? Nú, hann
Garman. Nei, það máttu ekki
gera, Pat. Lofuðu mér því. Hann
er búinn að vera svo lengi hjá
þér. Og það var heldur ekki
honum að kenna beldur hinum
manninum.
— Ég skal sjá um hann lika.
Hún sagði: — Farðu nú ekki
að sleppa þér. Þetta er allt í
lagi. Tryggingin sér um bílinn.
Það eina, sem ég hef áhyggjur
af eru blöðin.
— Þér er óhætt að gleyma þvi.
Ég skal sjá um þau. Komi það
nokkurs staðar, þá verður það
svo litil frétt, að enginn tekur
eftir þvi. Og ég skal sjá um, að
nafnið þitt komi hvergi fram.
— Þú færð öllu framgengt,
sem þú vilt, er það ekki, elsk-
an?
Hann tók fastar utan um
hana. — Vitanlega. Ef mað-
ur vill eitthvað og kann tökin
á því að fá það.
Þegar þau komu að húsinu hjá
honum, var hún hálfsofnuð, svo
að hann varð að lyfta henni út
úr bilnum.
Hann hjálpaði henni gegn um
forsalinn en dyravörðurinn
stóð og horfði á, og svo fóru
þau inn í lyftuna, sem var mann
tóm. Hann talaði eitthvað við
drenginn, sem gætti lyftunnar
og þau þutu upp og staðnæmd-
ust ekki fyrr en á efstu hæð.
Þegar þangað kom, gat hún
gengið að dyrunum, sem Pat opn
aði með lyklinum sínum. Hann
hálfstuddi hana inn í forsalinn,
sem var allur uppljómaður og
hann æpti: Mamma!
Frú Bell kom fram og leit
skritilega út í víðum flúnels-
slopp og með krullupinna i hár-
inu. Hún sagði: — Hvað geng-
ur á. Þú öskrar eins og verið sé
að drepa þig. En þá kom hún
auga á Kathleen. — Hvað er að?
spurði hún.
— Slys, sagði Pat. — En henni
er óhætt. Hún fékk höfuðhögg,
svo að ég fór með hana heim.
— Stattu þá ekki þarna eins
og glópur, sagði móðir hans ön-
ug, og tók síðan að skipa fyrir.
Áður en Kathleen vissi af því,
var hún komin í rúm í gestaher-
berginu, í náttkjól af Carmelu.
Frú Bell og stofustúlka aðstoð-
uðu hana. Pat var niðri, í síman
um. Allt i einu kom hann og
læddist á tánum og horfði nið-
ur á hana. Hann sagði: — Ég
hringdi í hana Hönnu. Ég skal
láta einhvern sækja töskuna
þína þangað á morgun.
— Hvernig líður henni? sagði
Kathleen.
Allar tegundir i útvarpstæki, vasaljós og leik-
föng alltaf fyrirlíggjandi.
Aöcins f heildsölu til verzlana.
Fljót afgreiösla.
HNITBERG HF.
Öldugötu 15. Rvik. — Simi 2 28 12.
SETBERG
Fyrir nokkrum árum kvað sér hljóðs nýr skáldsagnahöfundur, Gísli
Jónsson, fyrrverandi alþingismaður. En áður var hann þó þjóðkunnur
af ritstörfum fyrir ferðaþættina í „Frekjunni“, sem kom út 1941, og
hina áhrifamiklu og sérstæðu frásögu „Frá foreldrum mínum“, sem
kom út haustið 1966. Fyrsta skáldsagan, „Misgjörðir feðranna“, kom
frá hendi Gísla árið 1967. Önnur bókin, „Eins og þú sáir“, kom svo
ári síðar, en nú hin þriðja þeirra, „Síðasti faktorinn“. - Gísli Jónsson ;
lézt í Reykjavík hinn 7. októbef 1970. «
Gisli Jónsson
TÍZKUVERZLUN VESTURVERI SIMI 17575
NÚ DUGAR EKKERT
ElKJUBLAÐ . . .
. • .
.
STAKAR BUXUR, MAXI
FRAKKAR, SKYRTUR,
BINDI, RÚLLUKRAGA-
PEYSUR, BELTI.
l ■ m