Morgunblaðið - 02.04.1971, Síða 4
f 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR 2. APRÍL 1971
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
vw Scndlferffabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VWSmanna-LaiKli'over 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sím/14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BÆNDUR
Steypum upp votheysturna í
skriðmótum 4 eða 5 metra víða.
Hringið eða skrifið og við send-
um yður upplýsingar um hæl.
Steypuiðjan sf„ Selfossi,
sími 99-1399.
Einar Elíasson, Selfossi,
sími 99-1215.
BÍLAR
Notaðir bílar
Sejum í dag m. a.:
Cortina '70
Benz, dísill, '64
Rambler American '66—67
einkabilar
Opel Kadett Fast back '67
Simca 1301 '70
Volkswagen 1300 '67
Plymouth Belvedere '66—'67
Dodge Coronet sjálfsk. '67.
Auk þess bjóðum við nokkr-
ar bifreiðir gegn skuldabréf-
um.
©V0KULLH.F.
Chrysler-
umboðið
Hringbraut 121
sími 106 00
MORGUNBLADSHÚSINU
eigendur til þess að hafa hann
þama gjammandi framan í
þeim, sem erindi eiga í húsið
(verzlunarhús að nokkru leyti
ef ekki öllu). Margir eru
hræddir við hunda, ekki síður
fullorðnir en börn, og þetta
fólk þorir ekki í húsið. —
HræðsLu við hunda geta hunda
eigendur ekki breytt, hversu
fegnir sem þeir vildu, og þeir,
sem óttast hunda, eiga heimt-
ingu á því að komast ferða
sinna um borgina. Og leyfir
lögreglan þetta opinbera
hundahald framan í öllum?
Nei, góðir hálsar, það er
gott, að málið leystist á far-
sælan hátt. Raunar hefði þetta
aldrei átt að verða neitt mál,
hvað þá „stórmál“, hefði lög-
gæzlan verið í lagi allan tím-
ann. En hundaeigendur gætu
a.m.k. virt þann frest, sem
þeir fengu“.
• ÖLdrykkja er
áfengisneyzla
Ragnar Tómasson, héraðs-
dómslögmaður, skrifar:
„Velvakandi,
Morgunblaðinu.
I „Reykjavíkurbréfi“ í dag,
þar sem rætt er um hjarta-
vernd o. fl., gat að líta neð-
angreinda setningu: „Bannað
er að selja bjór hér á landi,
þó er ekki vitað til að hann
hafi dauða í för með sér“. —
Þessi setning er svo eindæma
barnaleg, að með ólíkindum
er, hvernig hún hefur slæðzt
inn í „Reykjavíkurbréf", sem
um áraraðir hefur verið þekkt
fyrir snjalla meðferð orðs og
efnis. Að drekka áfengan bjór
er áíengisneyzla. — Áfengis-
neyzla er bein og óbein orsök
margra dauðsfalla. Um það
hélt ég, að ekki þyrfti að
deila.
Eins og bréfritari segir, þá
„þykir sannað, að sígarettur
valdi dauða margra hjarta- og
krabbameinssjúklinga“. Það
þættu þannig ekki frambæri-
leg rök á læknaþingi, þó að
einhver þátttakenda stæði þar
upp og reykti sígarettu til að
„sanna“, hvað allt tal um
„dauða“ af völdum sígarettu-
reykinga væri fjarstæðukennt.
Að sjálfsögðu má bréfritari
og/eða Morgunblaðið hafa
sína skoðun á áfengum bjór,
en að skreyta forystugreinar
blaðsins með svona „blómum“
er ófyrirgefanlegt vanmat á
dómgreind alls gáðra lesenda.
Reykjavík, 28. marz 1971.
Ragnar Tómasson.
P.s.
Að morgni hins 29. marz
1971, kl. 7,30 var lesin frétt í
Ríkisútvarpið, sem mér finnst
tilhlýðilegt, að fylgi hér með,
höfundi og lesendum „Reykja
víkurbréfs" til fróðleiks:
„Ráðstefna er hafin í Liver
pool um hætturnar af völd-
um eiturlyfja og áfengis.
1 ræðum, sem þar voru flutt
ar í gær, var því m.a. haldið
fram, að einblínt væri um of
á hætturnar af eiturlyfjanotk
un ungs fólks, en of lítil á-
herzla lögð á að draga úr
þeim hættum, sem heilsu
fólks, ekki sízt miðaldra hús-
mæðra, stafaði af óhóflegri
pilluneyzlu, en mesta hættan
stafaði af áfenginu, en svo
væri komið, að sívaxandi áfeng
isnautn væri mesti skaðvald
urinn og ylli margfalt fleiri
dauðsföllum en hjartabilanir
og lungnakrabbi“.
R. T
0 Hundaeigendur virða
ekki frestinn
Ólafía Jónsdóttir, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Nú ætla Hafnfirðingar að
fara sömu leið og við Reyk-
víkingar í því að afnema ólög
legt hundahald, nema hvað
þeir munu veita ólöglegum
hundaeigendum eitthvað
lengri frest en við hér gerum.
Mér finnst það furðulegt,
hve hundaeigendur hér í
Reykjavík gera mikið úr því,
hversu reglur þær um hunda
hald, sem þeir sjálfir vilja
setja samfélaginu, yrðu örugg
lega vel haldnar. Hverja
tryggingu hefðum við hin fyr
ir því? Minna en enga, segi
ég, og skal ég nú rökstyðja
það nánar.
í fyrsta lagi er hér um að
ræða hóp manna, sem vitandi
vits brýtur lög á samborgur-
um sínum með því að halda
hunda svo að ekki er
sterkri löghlýðnikennd fyrir
að fara. Því skyldi þessi hóp
ur halda betur lög og reglur
í framtíðinni, einmitt á þessu
sviði? Hópurinn myndast ein
mitt í kringum lögbrot.
f öðru lagi er eftirtektar-
vert, hve lítils hundaeigendur
meta þann frest, sem þeim var
veittur til þe33 að losa sig við
dýrin. Hundar sjást sprang-
andi úti um alla borg, eins og
ekkert hafi í skorizt. Nú er
það bæði atriði í reglugerð
þeirri, sem hundaeigendur
vilja setja okkur, að hundar
gangi ekki lausir og valdi
ekki ónæði og þar að auki er
þeim veittur fresturinn með
þessu ákveðna skilyrði. Samt
brjóta þeir reglurnar, sem í
þessu tilfelli eru bæði reglur
þeirra og samfélagsins.
Allir sjá og heyra, að krakk
ar, allt niður í óvita, eru send
ir út með hunda og sleppa
þeim oft lausum, þrátt fyrir
þetta. Fyrir framan hús í
Garðastræti er stór hundur
bundinn flesta daga. Ég hef
séð hann þar gegnvotan í aus
andi rigningu, en enginn sinnti
honum. Er þetta ekki „dyr-
plageri“? Og hvaða leyfi hafa
Hesthúseigendur Selóshverfi
Fundur um stofnun félags hesthúseigenda í Seláshverfi
verður haldinn í Neðri-Bæ föstudaginn 2. april kl. 20,30.
Fundarboðendur.