Morgunblaðið - 03.04.1971, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUK 3. APRÍL 1971
>
>
>
\
RAUÐARÁRSTIG 31
-=^—25555
■ ^ 14444
WfilflW
BILALEIGÁ
lIVERFISGÖTU 103
" VW Sendifer5abifreið-VW 5 manna-VW svefnvagw
VW 9maona-Landrover 7manni
IITIA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastraeti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
hilaleigan
AKBMA UT
/ZC3V
car rental scrvice
* 8-23-47
scndum
r
BÍLALEIGAN
Bliki hf.
Lækjargata 32, Hafnarfirði.
Sími 5-18-70
KVÖLD- OG HELGAR-
SÍMAR 52549 — 50649
NÝIR BÍLAR
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 20070
Motsveinn
31 árs með próf frá matreiðslu-
skóla, óskar eftir starfi í landi.
Til greina kemur sendi- eða
vörubítaakstur. Tilboð merkt
„Matsveinn 6473" leggist inn til
blaðsins fyrir páska.
Skurðgröiur
til sölu
Ein Priestman „Wolf' 9000 Seri-
es, 40 feta bóma og bómuendí
með „Wylie" þungaöryggi og
Vi cu. yd. gröfuskóflu — 24”
breið belti, knúin Dorman dísil-
vél. Verð £825 F.A.S. Laiths
Docks. - Tvær Priestman „Wolf"
8000 series með 35 feta bómu,
„Wylie" þungaöryggi, traustur
krani, 18" breið belti, knúin
Dorman dísilvél. Verð £625 hvor
F.A.S. Leith Docks.
Jack Naismith & Co. Ldt.
Earthmoving Equipment
Grampian Works
McGown Street
Paisley, Scotland
Tefephone: 041-887-2161
Telex: Naismith 77667.
0 „Er sjónvarpsdag-
skráin fölsuð?“
Þannig spyr Þórður Jóns-
son og skrifar síðan:
,,Það hefur vakið athygli
mína, að alltaf er sleppt að
geta þess í sjónvarpsdag-
skránni, þegar auglýsingatím
ar eru fleiri en einn. Að þessu
leyti er dagskráin fölsuð, enda
standast þá engir tímaútreikn
ingar. Hér á ég ekki aðeins
við prentuðu dagskrána, held
ur einnig þá, sem lesin er upp
rétt í upphafi hverrar dag-
skrár, þegar Ijóst hlýtur að
vera, hve margar auglýsingar
hafa borizt.
Getur verið, að ástæðan sé
sú að sjónvarpið auglýsi
meira en það má? Þess vegna
verði að falsa dagskrána?
í guðanna bænum, sleppið
okkur við auglýsingarnar! All
ir eru dauðþreyttir á þeim,
vegna þess hve þær eru leið-
inlegar. Þær hafa alveg öfug
áhrif. Og því eru málvillur í
þeim og oft réttritunarvillur
óleiðréttar kvöld eftir kvöld,
viku eftir viku? Er þetta allt
saman eftirlitslaust?"
0 Hvaða innrás
Ólafur G. Ólafsson skrifar
m.a.:
„Hvaða innráis eru fjölmiðl
arnir alltaf að tala um, að
hafi verið gerð í Kambódíu
og Laos af Suður-Víetnömum?
Einræðisstjórnin í Norður-
Víetnam sendi hermdarverka-
menn sína og reglulega her-
menn inn í þessi lönd fyrir
mörgum árum og hefur stjórn
að stórum hlutum þessara
landa, eins og hún ætti þá.
Svo, þegar Suður-Víetnamar
fara stjórn Kambódíu til hjálp
ar að reka innrásarliðið út,
fá þeir sjálfir innrásarstimpil
hjá íslenzkum fjölmiðlum! —
Sama er að segja um Laos.
Það er líka íhugunarvert
fyrir íslendinga, að engin
þjóð í öllum heiminum hefur
haft hlutleysi sitt betur tryggt
en einmitt Laosbúar. öll stór
veldin og mörg meðalsterk
ríki ábyrgjast hlutleysi Laos.
Samt hefur verið barizt þar
árum saman, og Norður-Víet
namar hafa marserað inn og
út úr landinu, eins og þeim
þóknast".
0 Menn og hundar
Undir þessari fyrirsögn skrif
ar Steingrímur Davíðsson:
„Kæri Velvakandi.
Þótt ég leggi orð í belg um
þessi mjög viðkvæmu deilu-
mál hér í höfuðborginni, mun
ég forðast að mestu leyti end
urtekningar á því, sem fyrr
hefur verið rætt og ritað um
hundahaldið hér.
Talið er, að hundurinn sé
fyrsta húsdýr mannsins, og
hafi orðið það aftur í grárri
forr.eskju. Þetta sagði mér
fyrst fyrir sjötíu árum fróður
barnakennari, að vísu ekki há
skólamaður. Þetta vitra og
a ponnuna
HH smjörlíki hf.
Útsýnarkvöld
SlÐASTA FERÐAKYNNING VETRARINS í SÚLNASAL HÓTEL
SÖGU, SUNNUDAGINN 4. APRlL KL. 9 E.H.
* FERÐAKYNNING: Ný litprentuð feröaáætlun ÚTSÝNAR
lögð fram. Forstjóri ÚTSÝNAR, Ingólfur Guðbrandsson,
ræðir um ferðalög: Ódýrar utanlandsferðir fyrir alla.
★ MYNDASÝNING: Myndir frá COSTA BRAVA og kvikmynd
frá COSTA DEl SOL.
TlZKUSÝNING Modelsamtökin sýna nýju VOR- og
SUMARTÍZKUNA.
FERÐABINGÓ: 2 vinningar: Lundúnaferð og ferð með
ÚTSÝN TIL COSTA DEL SOL.
ic DANS TIL KL. 1. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar.
ÚTSÝNARKVÖLD ERU VINSÆL EINS OG ÚTSÝNARFERÐIR.
Öllum heimill aðgangur — ókeypis — aðeins rúllugjald.
Tryggið yður borð í tíma hjá yfirþjóni, því að jafnan er húsfyllir,
og mætið stundvíslega. Góða skemmtun!
FERÐASKRIFSTOFAN Ú T S Ý N .
dauðtrygga dýr hefutr fylgt
manninum um aldirnar, lifað
með honum súrt og sætt, þó
lengst af súrt, bjargað lifi
fjölda manna og húsdýra með
viti sínu, dyggð og hreysti.
Frá því eru sagðar margar
sannar sögur. Svo mikla ást
hafa sumir hundar borið til
húsbænda sinna, að þeir hafa
tárfellt við líkbörur þeirra og
neitað að yfirgefa þá í dauðan
um. „Fram á sínar lappir ligg
ur líki bóndans hjá“.
Margar eru ættir hunda og
tegundir; hefur tegundum
fjölgað þannig, að ræktuð
hafa verið afbrigði, er fram
hafa komið. Sumar tegundir
eru stórar sem kálfar, aðrar
svo smávaxnar sem litlir kett
ir (kjölturakkar). Hundurinn
hefur frá ómunatíð þjónað
mönnunum, veiðihundar, varð
hundar, vörzlu- og íjárhundar,
jafnvel kjölturakkar veita eig
endum sínum eins konar þjón
ustu.
íslenzki hundurinn er meðal
stór. Hann hefur einvörðungu
þjónað sem vörzlu- og fjár-
hundur. Hann hefur til
skamms tíma lítið blandazt er
lendum ættum. Nú fer blönd
un kynjanna ört vaxandi.
Þakka má þá tilburði, sem eru
um að varðveita islenzka stofn
inn hreinan.
Ég, sem þetta rita, átti á
unglingsárum húsbóndavald
yfir mörgum hundum og
minnist með þakklæti þjón-
ustu þeirra, ljúflyndi og
tryggð. Einum þeirra, er hét
Týrus, kenndi ég ýmsar
„kúnstir“, þ.á.m. að finna
muni, er ég týndi, svo sem
vettlingana, smalaprikið o.fl.
Þurfti ég aðeins að segja hon
um, að þetta væri týnt, þá
brá hann við í leitina, og að
erindislokum fékk hann mér,
hróðugur, hlutina. Ég skrifaði
eitt sinn í Dýraverndarann
æviágrip Týrusar. Vona ég að
sjá Týrus minn á landi lif-
enda ásamt mörgum öðrum
vinum mínum í dýraríkinu.
0 Hundahald á ekki við
í þéttbýli
Þegar girt var um tún og
engi, og fráfærur lögðust nið
ur, styttist vinnutími hund-
anna. Þá komu fram svipuð
vandamál og af sama toga
spunnin í hundahjörðinni, sem
nú eru áberandi í samfélagi
okkar mannanna. Sumir sveita
hundar fóru í iðjuleysinu að
taka fyrir ýmsa óknytti: ráð-
ast á fé í högunum og valda
akaða. Hvaðan höfðu þeir fyr-
irmyndirnar? Oftlega er itl-
gresi sáð meðal hveitisins.
fslenzki hundurinn var
aldrei hlekkjaður við staur
eða leiddur í bandi, hlýddi að
eins kalli og skipun húsbónda
síns og vinar. Hundunum var
í árdaga ásköpuð frelsisþrá,
og þeir kjósa að leika lausuna
hala í óspilltri náttúrunni og
eiga þar starfs-vettvang.
Þegar ég mæti hér í borg-
inni einhverjum með hund í
bandi, harma ég örlög þessa
lífsglaða dýrs. Þegar seppi ætl
ar að hlaupa, bregða á leik,
kippir miskunnarlaus hönd í
tauminn. Manni koma þá í hug
orð skáldsins um fuglana í
búrinu: „Þið vesalings, vesal-
ings fangar, ég veit, hversu
sárt ykkur langar“. Líkt gild-
ir um öll dýr, er svipt eru
frelsi sínu, lokuð inni, hneppt
í fjötra.
Við mennirnir erum eigin-
gjarnasta og grimmasta dýra-
tegundin á jarðairkringlunni.
Vegna sjálfselsku gera menn
hunda að bandingjum hér í
þéttbýlinu. Ekki er það vegna,
brjóstgæða. Fráleitt er að
vitna til hundahalds í erlend-
um stórborgum. Þeir um sín
vandamál, er þar búa. Og er
ekki öllu skemmtilegra að
vera til fyrirmyndar um góða
siði en apa allt það versta eft
ir öðrum þjóðum? MáL að
slíku linni.
Um uppeldishlutverk hunds
ins, hreinlæti á götum úti,
sem læknirinn drap á í sjón-
varpsþættinum, get ég ekki
rætt í þessum fáu línum. En
hugleiðið aðeins, hvernig um
horfs mundi á götum og í al-
menningsgörðum, ef hér í
borginni væri 15—20 þúsund
hundar.
Það má ljóst vera, að ég er
andvígur hundahaldi í þétt-
býli. Hins vegar vil ég, að
borgarstjórnin endurskoði á-
lyktun sína um hundahald og
breyti henni á þann veg: að
stranglega sé bannað að flytja
inn hunda til borgarinnar, þeg
ar frá þessum tíma, og þá sé
og óheimilt að ala upp hunda
innan borgarmarkanna. En nú
verandi hundaeigendum verði
veittur frestur til að losa sig
við hundana til 1. nóv. 1975.
Hundsævin er skömm, svo að
fátt mundi orðið þá um húnda
í borginni.
Þessu yrði vitanlega að fram
fylgja, en ekki dotta. Til þess
eru lög, að boðorð séu haldin.
Stgr. Davíðsson“.
AÐVENTKIRKJAN
Sigurður Bjarnason flytur er-
indi í Aðventkirkjunni í Reykja
vík sunnudaginn 4. apríl kl. 5.
Ólafur Ólafsson syngur ein-
söng.
Missið ekki af síðustu erind-
unum.
Allir velkomnir.
Keflavík — Suðurnes
Hvemig get ég orðið hólpinn?
er spurning, sem leitar á alla fyrr
eða síðar. Verið velkomin að hlýða á
erindi Steinþórs Þórðarsonar í safn-
aðarheimilinu Blikabraut 2, Keflavik
sunnudaginn 4. apríl kl. 5.
Njótið tónlistar í umsjá Árna Hólm.
Erindaflokki þessum mun Ijúka 18.
apríl, en það bezta er eftir.