Morgunblaðið - 17.04.1971, Side 20

Morgunblaðið - 17.04.1971, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1971 FJÖGUR leikrit eru á fjölum Þjóðleikhússins um þessar mundir. í þessari viku nær hvert leikrit heilum eða hálfum tug, hvað sýningafjölda snertir og er það all óvenjulegt á þetta skömum tíma. Ég vil — ég vil verður sýnt í 40. skiptið n. k. fimmtudag, og eru þá eftir að- eins 3 sýningar á leiknum. — Ég vil — ég vil, var frumsýnt í lok október og hefur leik- urinn verið sýndur við mjög góða aðsókn. Fást verður sýndur í 30. skiptið n.k. sunnudag og verð- ur það næst síðasta sýning leiksins. Leikurinn hefur vakið óskipta athygli og góða að- sókn. 25. sýningin á Litla Klá- usi og Stóra Kláusi verður á sumardaginn fyrsta. Uppselt hefur verið á 22 sýningar leiks- ins. N.k. laugardag verður svo 10. sýningin á Svartfugli Gunnars Gunnarssonar, en leikgerðin er sem kunnugt er eftir Örnólf Árnason. Leikurinn var frum- sýndur fyrir réttum mánuði. Heilsubrunnar t>að var meira en strekkingur, báihvasst í hrynunum. Þegar kom upp fyrir Rauðhólana sást ekki til vegarins fyrir hriðar- (kófinu, þó var eornn bjart aif degi, en myrkrið var skammt undan, skammdegið sat að völdum. Sumir farþegarnir í bílnum, en þeir voru yfir tuttugu, voru jafnveJ uggandi um vegferðina. Bílstjórinn var óttalaus, kunn- ugur vegi og veðri, og hafði oft séð hann svartari. Óttinn var ástæðulaus, bílnum var stjórnað af sjónfráum augum og styrkri hendi. Vélfákurinn klauf hrið- arsortann svo hvergi skeikaði, og skilaði farþegum og farangri heiiu og höldnu á leiðarenda. Nokkrir farþeganna, þ.á.m. við hjónin, vorum að fara til nokk- urra vikna dvalar á Heilsuhæli Náttú rul ækni.ngafélags ísJands í Hveragerði. Við væntanlegir dvalargestir vorum boðnir vel- komnir, í blómskreyttu anddyri hælisins. Hlýjar móttökur á ókunnum stað eru gestum gulli betri. Or and-dyrinu vorum við leidd um uþpljómaða ganga til ibúðarherbergja, er okkur hafði verið úthlutað. Ibúðarherbergin eru rúmgóð, búin öllum þægind- um, auk svefnbeðanna: borð, stóiar og þvottaskál. Við fyrstu sýn var ljóst að hér var þreytt- um gott að hvíiast, og njóta kyrrðarinnar. Á borðinu er út- varpstæki, í gegnum það er hægt að kalla íbúana í síma, eða til annarra erinda, þegar með þarf. Biblía, með stóru letri er í hverju herbergi. Sýnir það hvers vernd hælið er falið og hverjum þar ber að þjóna. Eftir stvmdar hvíld gengum við á fund yfirlæknisins, Björns L. Jónssonar. Vorum við fyrst mæld og vegin, hjá hjúkrunar- konu, og síðan tók læknirinn heiisu okkar til rækilegrar at- hugunar, og gerði ráðstafan- ir um meðferð í heilsu- bótadeildum hælisins._ Þegar gengið var til kvöld- verðar, voru sumir, nýkomnir dvalargestir nokkuð uggandi um að þeim mundi ekki falla matur, sem að mestu væri sótt- ur í jurtaríkið, hvorki kjöt eða íiskur. En brúnir lyftust, þegar að matborðinu var komið, þar blöstu við margir gimiiegir réttir, er úr mátti velja, og svo lystilega framreiddir að boðlegt var hverjum sælkera af kon- unga kyni. Flestir voru réttim- ir gerðir úr sannkölluðum Para- dísar ávöxtum og margs konar fjörefnaríkum jurtum, en á borðum voru og hvítur matur: mjóik, ný og súr, skyr og rjómi, fjailagrasamjólk, heilgrjóna- mjólk, söl og lýsi. (Lýsi er að- eins á borðum, þegar etinn er dögurður). Þessi al-íslenzki matur, er sú fæða, er íslend- ingar hafa lengst á lifað, og fengið frá sína mestu döngun. Mjólkin verður alltaf ein aðal- fæðutegund manna, og neyzia hennar mun aukast. Hins vegar munu menn er tímar líða sælija fæðu sína milliliðalaust í skaut jarðargróðurs og vatna. Þá hætta menn að heimta blóð til eldis sér og sínum. Ræktun landsins heldur áfram, og meiri enn nú. island er heitt land. Það kann að hljóma kynlega í sumra eyrum, en er þó rétt, verður ekki nánar skýrt í þess- ari grein. Hér hefur verið minnzt á fyrsta kvöldverðinn á hælinu, og þó réttirnir í öðrum máltíð- um séu flestir gerðir úr sömu efnum, þá er fjölbreytni mikil og þeir svo vel gerðir og smekk- lega fram reiddir, að hverjum heilbrigðum manni hugnast vel, og getur vart kosið sér annað betra. „Maturinn er mannsins meg- in." Þetta er stjórnendum Heilsuhælisins vel ljóst, og þá jafnframt að fæðan verður að fullnægja heilsufarslegum kröf- um líkamans, annars veldur hún hrörnun og heilsubilun fyr- ir aldur fram. Það er staðreynd, sem ekki verður véfengd, að nú- tíma matreiðsla, þegar mest er haft við um matargerð þver- brýtur hollnustu náttúrulegra fæðutegunda. Hveiti og hrís- grjóri er svift næringar- og lífefnarikustu hlutum sinum, og síðan jafnvel blönduð ann- arlegum efnum. Sýkurinn er vél unninn úr jurtaríkinu og á þann hátt gerður óhæfur til neyzlu, enda súpa margir af því seyðið, svo mætti langan lista gera. Á heilsuhælinu í Hvera- gerði eru korntegundirnar not- aðar eins og þær koma óspillt- ar af jörðinni. Sykur er ekki notaður, nema lítið eitt hrásyk- ur. Líkaminn fær fullnægingu af sykri í mjólk og ávöxtum. „Maðurinn lifir ekki af brauði einu sarnan." Þetta sígilda spak mæli getur átt við bæði efnið og andann, enda störf sálar og líkama svo samslungin, að ef annað þjáist þá liður hitt. Þó dæmi finnist um hið gagnstæða eru þau ekki algild. Hvort tveggja er og, að einstaklingar er heilsuna missa taka út þján- ingar, er sennilega hefði mátt hindra, og samfélaginu er glöt- uð starfsorka þeirra, er annars hefðu getað ávaxtað sitt pund hundraðfalt. Þetta er forráða- mönnum hælisins Ijóst, og því hafa þeir sett í stefnuskrá fé- lagsins: „Ljós, loft, vatn, hollur matur, hreyfing, hvíld." Hæl- ið og vistin þar er og grundvöll- uð á þessarri Stefmiskrá. Þsur er ekki láíið sitja við orðiin tóm. Tvær laugar eru við hælið, svo haglega fyrir komið, að þrjár áimur hússins veita þeim skjól, en sér veggur á eina hlið. Önn- ur laugin er allstór sundlaug, en hin er minni f»g grynnri, ætl- uð ósyndum, er þar geta buslað og endumært sig í heitu vatni. 1 þeirri laug eru setbekkir und- ir yfirborði vatnsins, svo hægt er að hvílast eftir buslið og baxið við sundtökin, sem ekki náðust. Þarna er náðugt að sitja, láta fætur og arma fljóta á hita- uppstreyminu. Minnast gjarnan Snorra i Reykholti, er fyrstur Islendinga byggði setlaug á Is- landi. Sennilega hefði Snorri, vegna heilsuræktar sinnar náð yl*'' ■* , ^ , - %&■<¥•* * p,- V / y.V » ^ í'itiJu'jjí ■ Heilsuhæli NLFÍ i Hveragerði Málverk af Jónasi Kristjánssyni háum aldri, ef Gissur hefði ekki gripið fram í, og fornbókmennt- ir okkar auðgazt af rnörgum dýrgripum sannfræðilegra bók- mennta. Þetta er orðin önnur saga en ætlað var. Áður en farið er í laugarnar verða menn að þvo sér rækilega úr sápuvatni, sturtu, er það gert í baðálmunni bak við laugarn- ar. Þegar stigið er upp úr, fá menn sér heilsusamlegan sprett kringum laugamar. 1 leikfimissal hússins, sem bú- inn er mörgum leikfimistækjum, ágætum liðkunaráhöldum, geta dvalargestir fengið ágætar hreyf ingar innanhúss, þegar veð- ur hamla útivist. Auk þessa, er hér hefur nefnt verið, fá dvalargestir margs kon ar meðferð, eftir læknisráði, hver við sitt hæfi. Til þess er m.a. haft: nudd, strokur, stutt- bylgjur, hljóðbylgjur, kolboga- ljós, kerlaugar, heitar og kald- ar, og leirböð, sérstaklega fyrir gigtveika. Af þessari stuttu frá- sögn má marka, að bæði ung- um og öldnum er hollt að dvelja á hælinu. Ungir læra þar heilsu- samlega lifnaðarhætti, og end- urtiæfa sig, ef þess er þörf. Þeir öldnu fá dásamlega hvild og hressingu, yngjast jafnvel, sem svarar áratugum. Margir hafa fengið mikla bót meina sinna. Þess má þó ekki vænta að ailir likamskvillar verði þarna þurrk aðir út, eða eilin ytfirbuguð að öllu. 1 allrúmgóðri setustofu geta dvalargestir skemmt sér við tafl og spil, lestur bóka og blaða, eða rabbað við náungann. í matsalnum safnast fólk- ið saman til að horfa á sjón- varp, þeir, sem það kjósa. f mat- salnum fara og fram kvöldvök- ur. Þar eru flutt erindi, lesnar sögur, sungið o.fl. þess háttar. Föndurstofa er og rekin í hælinu. Þögn heitir eitt herbergið í húsinu. Það er kapelia fagurlega búin. Kristsmynd er á altari, svo og skrautbund- in Biblía. Gluggi er mynd- skreyttur. Þarna geta trúaðir átt þögla bænastund með Guði. Reykingar eru stranglega bannaðar í öllum vistarverum hælisins, nema einni, það er turnlaga salur, er til þessa eins var byggður utanvelt við eina álmu hússins, áfastur með gangL Þama er þéttsetið að loknum máltíðum. Dvalargestir kalla sal inn Syndina, líklega réttnefnL Verða stundum úr gamanmál, þegar aðvífandi maður spyr eft- Framhald á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.