Morgunblaðið - 08.05.1971, Síða 10
10
MORGUNBLAÐHD, LAUGARDAGUR 8. MAl 1971
„Hér vantar
fólk í vinnuu
Næg atvinna á Hornafirði
ÞORSTEINN Gnðmundsson
fréttaritari Morgunblaðsins í
Höfn í Hornafirði var á ferð-
inni í bænum um daginn og
Fréttir
Í.1TSL
Hornafirði
Rætt við I»orstein
Guðmundsson
frá Hcjfn
þá ræddum við stuttlega við
hann og spurðum frétta úr
byggðalaginu.
— Af öklkur væri aíllt gott
að frétta, ©f ekki hefði komið
fyrir hið hörmutega silys um
daginn, er Sigurifari fórtst og
með honum 8 ungir og afni-
legir m<mn.
— Er ekki næg atvinna í
Höfn?
— Jú, það er nóg að gera
og yfirteitt svo mikið að
fól'k vantar til startfa. Vertáð-
in hefur verið sæmiteg, þó
að afli sé minni en hann var
í fyrra. Það er mikið byggt,
sem ber vott um góðan etfina-
hag fóllkaiins og það er vel
byggt. Nú er verið að ljúlka
við viðbótarálmu við hótelið,
sem taka á í notikuin innan
Skamms. Einnig er í smíðum
bankahús, fyrir Landsbank-
aran, sveitarfélagið er að
koma upp skrlfstofumiðstöð,
þar sem einnig verður
slökkvistöð og fangageymsla.
— Nú, eiitt af brýnustu
verkefnum byggðaf'lagsins er
vegagerðiin yifir Skeiðarár-
sand, en mér akiist að stefnt
sé að þvi að ljúka rannsókrn-
um á saindiinum í surraar og
framkvæmdum síðara á næstu
4 árum. I>að þanf vart að taka
það fram hversu stórkostteg
bót það verður er hægt verð-
ur að aka til Hornaf jarðar og
Frá Höfn í Hornafirði.
þar með hringinn i kringum
iandið. Ýmsir telja raú að
Skeiðará fari að hlaupa, því
að nú er komið á sjötta ár
frá síðasta hlaupi. Stytzt hafa
liðið 5 ár, en leragst 11 ár.
— Hvað er að frétta úr
sveituraum þama?
— Það má segja, að þar sé
sama veimegunira. t>að er
mikið um nýjar og glæsileg-
ar byggiragar á bæjuraum og
miklar ræktunarframkvæmd-
ir. Sífellt er verið að rækta
sandama upp, en samt þyrfti
að gera mieira áitak í þeiim
efnium. Bændur hafa viðast
fjölgað bústofni og það má
segja að það vainti sumar-
haga. Ýmisir hafa heyjað mik
ið og selit umframhey, en
markaður hefur verið mjög
góður uradarafariin ár. Það
mætti einnig gera stærra
átak í þesisum málum, því að
þama er furadið fé fyrir
bændur. Yfirleibt má segja að
mikil gróska sé á flestum
sviðum, sagði Þorsteiran að
lokuim.
Þorsteinn Guðnnindsson.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, forstöðukona:
H j ú kr unark vennaskor turinn
Erindi flutt á fundi hjá Samtök
um heilbrigðisstétta í Domus
Medica
Það eru að verða 10 ár síðan
ég tók við starfi forstöðukonu
við Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri. Það var í júníbyrjun ár-
ið 1961, og þá var svo mikill
skortur á hjúkrunarkonum,
ekki sízt þeim, er farið höfðu í
sémám, að ég fór beint úr al-
mennu hjúkrunarnámi í þetta
starf og komst ekki í nauðsyn-
legt sémám fyrr en 3 árum síð-
ar. í þessi 10 ár hefir alitaf ver-
ið skortur á hjúkrunarkonum
og eitt af minum erfiðustu við-
fangsefnum hefir verið það, að
fá nógu margar hjúkrunarkon-
ur til starfa við sjúkrahúsið.
Fyrir 7 til 8 árum lét Sjúkra-
húsmálanefnd Læknafélags
Reykjavíkur fara fram athugun
á þessum málum, og Sigmundur
Magnússon læknir skrifaði um
hana fróðlega grein í Tímarit
Hjúkrunarfélags íslands. Hann
skýrði þar frá, að sjúkrahús
landsins vantaði um 30—40
hjúkrunarkonur til starfa, en
auk þess þyrfti á næstu árum
150—200 hjúkrunarkonur til að
starfrækja mætti þau sjúkra-
hús, er þá voru í smíðum. Um
700 hjúkrunarkonur voru þá í
Hjúkrunarfélagi íslands, en að-
eiins liðlega þriðjungur þeirra
við hjúkrunarstörf. Nefndin
sendi þeim hjúkrunarkonum,
sem ekki unnu að hjúkrunar-
störfum, spumingalista, sem þær
voru beðnar að svara. Um 100
svör bárust, og í ljós kom, að
úr þeim hópi mátti fá vinnu-
kraft, er samsvaraði um 25—30
fullstarfandi hjúkrunarkon-
um, ef þeim væri auðveldað að
boma til starfa að nýju, með þvi
aö komið yrði upp barnaheimil-
um og stofnað yrði til upprifj-
unarnámskeiða.
Og hvað hefir svo gerzt á þess
um 7—8 árum, síðan könnun
þessi var gerð. Borgarspítaiinn
hefir tekið til starfa með marg-
ar nýjar deildir. Viðbyggingar
við Landspítalann og Landakots
spítala eru komnar upp og ný
sjúkrahús hafa risið upp úti á
landsbyggðinni og önnur verið
stækkuð. Má þar nefna sjúkra-
húsin á Húsavík og Akranesi.
Lokið er smiði Hjúkrunarskól-
ans og nú getur hann húsnæð-
is vegna brautskráð meira en
helmingi fleiri nemendur en áð-
ur fyrr, eða um eða yfir 90 á ári.
1 félaginu okkar eru nú 1000
hjúkrunarkonur og hlutfallslega
heldur fleiri starfandi en fyrir
8 árum. Sjúkrahúsin i Reykja-
vík — Landspítalinn, Borgar
spítalinn og Landakot hafa öll
barnaheimili á sínum vegum, og
gera á þann hátt giftum hjúkr-
unarkonum kleift að sinna
hjúkrunarstörfum. Upprifjunar-
námskeið hefir verið haldið einu
sinni í Borgarspitalanum.
Þetta hefir ekki dugað til. Ef
til vill er aðalmeinsemdin sú, að
ekki var byrjað á réttum enda.
Sjúkrahúsin voru stækkuð og
þau kölluðu á meiri starfskrafta,
áður en byggingu skólans var
lokið og hann viðbúinn að fjölga
nemendum og brautskrá þá, til
að sinna því kalli. Það var
aldrei brúað það bil, sem kom-
ið var, og því ekki skapaður sá
grundvöllur, er á þurfti að
byggja.
Á þessum árum er vinnuvika
hjúkrunarkvenna stytt úr 48
klukkustundum niður i 44, síðar
42 og nú í vetur i 40 stundir.
Það gerir einn 8 stunda vinnu-
dag á viku eða 52 daga á ári.
Miðað við núverandi vinnuviku
hjúkrunarkvenna, en þær vinna
5 daga vikunnar, svarar þessi
vinnustytting til þess, að 6. hver
hjúkrunarkona hafi hætt
störfum. Ef við reiknum með, að
um 360 hjúkrunarkonur séu í
starfi, þá eru þetta 60 hjúkr-
unarkonur, eða álíka margar og
skólinn hefur stundum braut-
skráð á ári og er þá miðað við
2 fjölmenna hópa. Þessi vinnu-
stytting hefir verið sanngjörn,
og var fremur á eftir miðað við
aðrar stéttir eða starfshópa. en
Ingibjörg Magnúsdóttir.
hún hefir ef til vill höggvið
stærra skarð, en margur hefir
gert sér grein fyrir.
Á s.l. áratugum hefir þjónust-
an í sjúkrahúsum breytzt gífur-
lega mikið. Þekking i læknis-
fræði hefir tekið stökkbreyting-
um, allri tækni hefir fleygt
fram.
Aukinn tækjabúnaður krefst
aukinnar þekkingar — gagns-
laust er að bæta við nýjum, verð
mætum tækjum, ef starfsliðið
kann ekki með þau að fara. Og
hjúkrunarkonan hefir farið inn
á ný svið. Mörg þessara nýju
tækja spara spor hennar, en
ekki alltaf tíma. Hjúkrunarþörf
sjúklinga, eða sá timi sólar-
hringsins, sem þeir þurfa hjálp
frá hjúkrunarliði, er venjulega
áætlaður í hjúkrunarstundum.
Fáir sjúkliragar komast af með
færri en 3 hjúkrunarstundir á
sólarhring, en á einstaka deild-
um t.d. gjörgæzludeildum, þar
sem sjúklingar þurfa stöðuga,
nákvæma hjúkrun allan sólar-
hringinn, geta hjúkrunarstund-
imar farið yíir 30. Hjúkrunar-
konur skiptast þá á 8 klst. vakt-
ir, en auk þess þurfa þær að
vera 2 eða fleiri við sérstaka að-
hlynningu sjúklings. Gæði
hjúkrunar fer mjög eftir mennt-
un og hæfni hjúkrunarliðsins,
hvort sem hjúkrunarstundirnar
verða fleiri eða færri. Vissar að
gerðir og störf krefjast meiri
hæfni en önnur.
Nám hjúkrunarkvenna þarf
að haldast í hendur við þarfir
sjúkrahúsanna. Þegar sérfræð-
ingar í lækningum fara inn á
ný svið, þarf hjúkrunarkonan
að fylgja eftir. — Hún þarf að
vera betur menntuð, og hjúkr-
unarskólinn þarf að geta aukið
og bætt nám hennar.
Fyrir 10 árum var bóknám
hjúkrunarnema, eða þær
kennslustundir, sem þeir fengu í
Hjúkrunarskóla Islands um 700
eða liðlega það. 1 dag eru þær
um 1430 eða helmingi fleiri. Mest
fjölgun kennslustunda varð í
hjúkrunarfræði og sálarfræði.
Þrátt fyrir þessa miklu aukn-
ingu nær áætlun ráðamanna
skólans lengra eða upp i liðlega
1500 stundir, þegar þvi verður
við komið. Jafnhliða þessari
breytingu hefur verið reynt að
láta nemendur fá skipulagða tll-
sögn í verklegu námi hjá hjúkr-
unarkennara og hjúkrunarkon-
um á sjúkradeilduraum. Auk þess
fá þeir öðru hverju einn skóla-
dag, sem spannar yfir 5—7
kennslustundir. Njóta þeir þá
kennslu lækna og hjúkrunar-
kvenna. Þessar auknu menntun-
arkröfur hefir skólinn reynt að
uppfylla, þrátt fyrir þröngt hús
næði framan af og stöðugan
skort á hjúkrunarkennurum. Ég
vil skjóta því hér inn í, að ég
tel skólann hafa haft færa kenn
ara þau ár, sem ég þekki til, ekkl
bara þá sem kennararéttindi
hafa, heldur og ýmsar áhugasam
ar og vel gefnar hjúkrunarkon-
ur, sem lagt hafa skólanum gott
lið. Sumar af mínum beztu hjúkr
unarkonum að norðan hafa farið
til starfa í skólann. Má þar
nefna 2, sem vinna þar nú við
kennslustörf.
Hvernig gengur svo að sam-
eina bóknám i skóla og verk-
nám á deildum? Hvemig er sam
starf skóla og þeirra sjúkra-
húsa, er hafa nemendur í verk-
námi?
Hlutverk skóla er að braut-
s'krá sem hæfasta nemendur, hlut
verk sjúkrahúsa er að veita
sjúklingum sem bezta þjónustu.
Kennslusjúkrahús hafa skyldur
við nemendur sína. En enn eru
nemendur starfskraftur á deild-
um, þeir eru hluti af þeim starfs-
mannafjölda, er deildunum er
fenginn, og þegar 2 nemar
hverfa af deild til að stunda
bóknám í skólanum, þarf deild-
in að fá aðra 2 í staðinn. Þetta
getur auðveldlega valdið
árekstrum og þarna þarf skiln-
ing, umburðarlyndi og þolin-
mæði, svo að samvinna náist. Og
í þessum samskiptum liggur
mjög miki'l og nákvæm vinna. —
Kennsla á deildum og tilsögn
krefst færari hjúkrunarkvenna
og sú tilsögn er tímafrek. Stytt-
ing vinnuvikunnar náði einnig
til hjúkrunarnema engu síður
en hjúkrunarkvenna. Við getum
tekið hiiðstæðar tölur og fyrr,
við getum miðað við 180 nem-
endur. Ef vinnuvika þeirra er
stytt úr 48 stundum niður í 40,
eða Ve, inna þeir sama verk af
hendi og 150 nemendur áður.
Framhald á bls. 24.