Morgunblaðið - 13.05.1971, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
Ráðstefnusalurinn á Hótel Loftleiðum, þar sem EFTA-fundurinn verður haldinn.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
EFTA-fundurinn:
Heróín
fyrir milljarð kr ]
Newark, New Jersey,
12. maí —- NTB —
BANDARÍSKIR tollverðir .
fundu nýlega mikið magn af
hreinu heróíni, scm smygla (
átti til Bandarikjanna. Er tal-
ið að eiturlyfið hefði selzt fyr-
ir um 12 milljónir dollara,'
(rúman milljarð ísl. kr.) á I
I eiturlyf jamarkaðinum í |
, Bandaríkjimum ef smygltil- (
raunin hefði tekizt.
Heróínið fannst í Volkswag 1
en-sendiferðabifreið um borð |
i frönsku flutningaskipi, sem |
kom til Port Elisabeth i New
Jersey ríki fyrir um mánuði.
Bifreiðin var á nafni fransks
manns, sem handtekinn hef- |
ur verið, og verði hann sekur ,
fundinn um smygltilraunina á
hsinn yfir höfði sér 40 ára I
fangelsisdóm og 40 þúsund
dollara sekt að sögn borgar- (
yfirvalda i Newark.
Stjórnin
tapar
London, 12. mai —- NTB —
BÆJAR- og sveitarstjórnakosn-
fngar fóru fram í Skotlandi á
mánudag, og standa nú yflr í
Englandi og Wales. 1 Skotlandi
vann Verkamannaflokkurinn
mikið á, og í dag var skýrt frá
því í aðalstöðvum flokksins í
London, að Verkamannaflokkur-
fnn hefði unnið meirihluta ísex
bæjarstjórnum í kosningum á
þriðjudag. Kosningunum lýkur á
laugardag.
Á morgun, fimmtudag, verður
kosið í öllum 32 kjördæmum í
London, og er úrslitanna þar beð
ið með mikilli eftirvæntingu. Við
siðustu kosningar hlaut Ihalds-
flokkurinn meirihluta í 28 þess-
ara kjördæma, en Verkamanna-
flokkurinn gerir sér vonir um
að vinna talsvert á nú.
Til þessa hefur Vorkamanma-
floikikuriirBn unnið 146 sæti í bsej-
ar- og sveitarstjórnum, en tapað
aðeins fjórum.
Skýrslu Rippons
beðið með óþreyju
GEORGE Young, blaðafull-
trúi EFTA, hélt fund með
fréttamönnum í gær og skýrði
frá dagskrá ráðherrafundar-
ins, sem hefst að Hótel Loft-
leiðum kl. 10 árdegis í dag.
Þar kom fram, að þar sem
Geoffrey Rippon, ráðherra
Breta í samningunum við
EBE, kemur ekki fyrr en um
hádegisbilið, verða umræður
um EBE-viðræður látnar
bíða til síðdegisfundar sem
hefst kl. 15.00, en þar mun
Rippon tala fyrstur og gefa
fundinum nákvæma skýrslu
um viðræður sínar í Brússel.
Á fundinum, sem byrjar kl. 10,
verða umræður um viðskipta-
þróunina í heiminum. Meðal ann-
ars verður rætt um það, sem er
að gerast hjá GATT, svo og
hugsanlegar hindranir í vegi
frjálsra viðskipta í heiminum og
á þetta einkum við um þær til-
lögur, sem komið hafa fram á
Bandaríkjaþingi um verzlunar-
og tollahöft.
Að þessum umræðum loknum
verður tekin fyrir skýrsla fram-
kvæmdastjóra EFTA um það,
sem gerzt hefur frá þvi að síð-
asti ráðherrafundurinn var hald-
inn. Fundarhlé verður um hádeg-
isbilið.
Á fundinum kl. 15 verða EBE-
umræðurnar og er ekki gert ráð
fyrir að önnur mál verði rædd á
þeim fundi. Um kvöldið býður
svo formaður EFTA-ráðsins,
Ernst Brugger, efnahagsmála-
ráðherra Sviss, til kvöldverðar-
veizlu á Hótel Sögu fyrir þátt-
takendur og blaðamenn.
Fundur hefst að nýju á föstu-
dagsmorgun og verða þá tekin
fyrir mál, sem eftir eru, t.d. sam-
skipti EFTA við aðrar evrópskar
stofnanir, viðskipti EFTA-land-
anna innbyrðis og við önnur
lönd, aðstoð við Danmöiku og
Framh. á bls. 21
Fjöldi
ferst
í hörðum jarð-
skjálfta í
Tyrklandi
Burdur og Istanbul, 12. mai
— AP-NTB
HARÐUR jarðskjálfti varð í
morgun í fjallahéruðunum við
bæinn Burdur í Suðvestur-Tyrk-
landi. Fullvist er talið, að rúm-
lega hundrað manns hafi farizt,
en óttazt er að sú tala eigi eftir
að hækka verulega þegar farið
verður að grafa í húsarústum.
t Btirdur búa um 60 þúsund
manns og hafa um 70% allra
húsa bæjarins orðið fyrir mikl-
um skemmdum.
Burdur er um 360 km fyrir
sunnan Ankara og stendur á
miklu jarðskjálftasvæði. Árlegir
jarðskjálftar hafa orðið á þess-
um slóðum frá 1966, og á þessum
árum hafa um 4.000 manns far-
izt í hamförunum.
Jarðskjálftinn í morgun mæld-
ist 8 stig á Richtermæli og er ótt-
azt að mörg þorp í grennd við
Burdur hafi gjöreyðilagzt. Björg-
unarsveitir frá her og lögreglu
hafa verið sendar á vettvang og
þrír ráðherrar fóru þangað flug-
leiðis i dag til að hafa yfirum-
sjón með björgunarstarfinu. Þá
hafa yfirvöldin og Rauði kross-
inn sent tjöld, teppi, matvæli og
lyf til héraðsins, og ætlunin er
að bólusetja alla ibúa jarð-
skjálftasvæðisins -— en þeir eru
um 200 þúsund — til að koma
i veg fyrir farsóttir.
Framhald á bls. 19
Vilja vernda álminn
í konungs-trjágarðinum
í Stokkhólmi
Stokkhólmi, 12. maí AP.-NTB.
MIKLAR óeirðir urðu í Kungs-
trádgárden í Stokkhólmi í nótt
þegar skógarhöggsmenn í lög-
reglufylgd ætluðu að fella þar
nokkur álmtré tU að imdirbúa
smiði stöðvar fyrir neðanjarðar-
brautir borgarinnar.
Um þúsund manns — aðailega
umgUngar — höfðu tekið sér
stöðu í garðinum til að mótmæia
því að borgin léti feMa trén.
Tókst mannfjöldanum að hrekja
sk'ógarhöggsmennina og lög-
reglu á brott með flösku- og
grjótkasti, en fimm manns særð-
Framhald á bls. 19
Utanríkisráðherrar EBE:
Koma til móts við óskir Breta
— varðandi landbúnaðarstefnu
Efnahagsbandalagsins
Brússel, 12. ma-í. — NTB-AP.
• Geoffrey Rippon markaðs-
málaráðherra Bretlands sat í
kvöld fund utanríkisráðherra
Efnahagsbandalags Evrópu í
Brússel. Var gert ráð fyrir að
fundurinn stæði langt fram á
nótt.
• Fyrir fundinn lýstu ráðherr-
arnir bjartsýni á að í viðræðun-
um næðist verulegur árangur
varðandi væntanlega aðild Bret
lands að bandlaginu.
• Utanríkisráðherrar EBE-ríkj
ana sátu í dag fund fyrir Iokuð-
um dyrum til að undirbúa viðræð
urnar við Rippon. Urðu þeir þar
meðal annars sammála um að
koma nokkuð til móts við óskir
Breta að því er varðar land-
búnaðarstefnu bandalagsins.
• Ekki er búizt við neinu end-
anlegu samkomulagi í nótt, en
ráðherrar EBE-ríkjanna eru sagð
Ir reiðnbúnir til að taka upp við-
ræður við Breta á ný í Luxem-
bourg 7. og 8. júní eftir fund
Edwards Heaths, forsætisráð-
herra Bretlands, og Georges
Pompidous, forsætisráðherra
Frakklands, í París 20. og 21.
maf.
Utanríkisráðherrarnir féllust
á að Bretar fengju að aðlaga sig
hærra verði á landbúnaðarafurð
um í EBE í sex áföngum á
fimm árum. Til þessa hafa Bret-
ar haldið því fram að þeir
þyrftu fimm og hálfs árs aðlög-
unartíma til breytinga á verði
landbúnaðarvara, og að sú að-
lögun yrði í sex áföngum. Full-
trúar Efnahagsbandalagsins hafa
hins vegar krafizt þess að að-
lögunin yrði gerð í fimm áföng-
um á fjóru og hálfu ári. Er
talið að brezku fulltrúarnir fall
ist á nýju tillögurnar.
Áður hafa komið fram nýjar
tillögur varðandi innflutning
Breta á sykri frá Samveldisrikj-
unum á Karabiska hafinu og
smjörinnfl'utnmginn frá Nýja
Sjálandi, en nokkur ágreiningur
ríkir innon EBE um stöðu sterl-
ingspundsins eftir að Bretland
fær aðild að bandalaginu.
Fyrir fundinn í kvöld áttu
margir ráðherranna viðræður
við blaðametnn. Sagði Rippon
meðal annars að hann væri
mjög bjairtsýnn á árangur i við-
ræðunum, meðal annars ai þvi
að á fúndinum í gær haifi miðað
mjög í saimkom uiagsátit.
Mauriœ Schumann utanríkis-
ráðherra Frakkland sagði að
franska stjómin hefði á fundi
sfauim í dag samþykkt tilJögur
hans varðandi áframhaldandi
viðræður um aðild Breta, og
Pienre Harmel utanríkiisráðherra
Beligíu lcvaðst búast við „veru-
tegum árangri" á fundinum í
kvöld oig nótt. Þá sagði Walter
Scheel utanríkisráðherra Vestur-
Þýzkalands að aJ'lt benti tiJ þess
að samkomulag næðist um „viss
atriði", en Joseph Luns utan-
rí'kisráðherra HoMands taldi að
árangurinn væri mjög háður £tf-
stöðu Frakka.
Eitt er það atriði í samningun-
um um aðild Breta, sem margir
bíða eftir afgreiðs'Ju á, en það
er hver hlutur Breta skuli verða
Framhald á bls. 19