Morgunblaðið - 13.05.1971, Side 1

Morgunblaðið - 13.05.1971, Side 1
32 SIÐUR Ráðstefnusalurinn á Hótel Loftleiðum, þar sem EFTA-fundurinn verður haldinn. (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.) EFTA-fundurinn: Heróín fyrir milljarð kr ] Newark, New Jersey, 12. maí —- NTB — BANDARÍSKIR tollverðir . fundu nýlega mikið magn af hreinu heróíni, scm smygla ( átti til Bandarikjanna. Er tal- ið að eiturlyfið hefði selzt fyr- ir um 12 milljónir dollara,' (rúman milljarð ísl. kr.) á I I eiturlyf jamarkaðinum í | , Bandaríkjimum ef smygltil- ( raunin hefði tekizt. Heróínið fannst í Volkswag 1 en-sendiferðabifreið um borð | i frönsku flutningaskipi, sem | kom til Port Elisabeth i New Jersey ríki fyrir um mánuði. Bifreiðin var á nafni fransks manns, sem handtekinn hef- | ur verið, og verði hann sekur , fundinn um smygltilraunina á hsinn yfir höfði sér 40 ára I fangelsisdóm og 40 þúsund dollara sekt að sögn borgar- ( yfirvalda i Newark. Stjórnin tapar London, 12. mai —- NTB — BÆJAR- og sveitarstjórnakosn- fngar fóru fram í Skotlandi á mánudag, og standa nú yflr í Englandi og Wales. 1 Skotlandi vann Verkamannaflokkurinn mikið á, og í dag var skýrt frá því í aðalstöðvum flokksins í London, að Verkamannaflokkur- fnn hefði unnið meirihluta ísex bæjarstjórnum í kosningum á þriðjudag. Kosningunum lýkur á laugardag. Á morgun, fimmtudag, verður kosið í öllum 32 kjördæmum í London, og er úrslitanna þar beð ið með mikilli eftirvæntingu. Við siðustu kosningar hlaut Ihalds- flokkurinn meirihluta í 28 þess- ara kjördæma, en Verkamanna- flokkurinn gerir sér vonir um að vinna talsvert á nú. Til þessa hefur Vorkamanma- floikikuriirBn unnið 146 sæti í bsej- ar- og sveitarstjórnum, en tapað aðeins fjórum. Skýrslu Rippons beðið með óþreyju GEORGE Young, blaðafull- trúi EFTA, hélt fund með fréttamönnum í gær og skýrði frá dagskrá ráðherrafundar- ins, sem hefst að Hótel Loft- leiðum kl. 10 árdegis í dag. Þar kom fram, að þar sem Geoffrey Rippon, ráðherra Breta í samningunum við EBE, kemur ekki fyrr en um hádegisbilið, verða umræður um EBE-viðræður látnar bíða til síðdegisfundar sem hefst kl. 15.00, en þar mun Rippon tala fyrstur og gefa fundinum nákvæma skýrslu um viðræður sínar í Brússel. Á fundinum, sem byrjar kl. 10, verða umræður um viðskipta- þróunina í heiminum. Meðal ann- ars verður rætt um það, sem er að gerast hjá GATT, svo og hugsanlegar hindranir í vegi frjálsra viðskipta í heiminum og á þetta einkum við um þær til- lögur, sem komið hafa fram á Bandaríkjaþingi um verzlunar- og tollahöft. Að þessum umræðum loknum verður tekin fyrir skýrsla fram- kvæmdastjóra EFTA um það, sem gerzt hefur frá þvi að síð- asti ráðherrafundurinn var hald- inn. Fundarhlé verður um hádeg- isbilið. Á fundinum kl. 15 verða EBE- umræðurnar og er ekki gert ráð fyrir að önnur mál verði rædd á þeim fundi. Um kvöldið býður svo formaður EFTA-ráðsins, Ernst Brugger, efnahagsmála- ráðherra Sviss, til kvöldverðar- veizlu á Hótel Sögu fyrir þátt- takendur og blaðamenn. Fundur hefst að nýju á föstu- dagsmorgun og verða þá tekin fyrir mál, sem eftir eru, t.d. sam- skipti EFTA við aðrar evrópskar stofnanir, viðskipti EFTA-land- anna innbyrðis og við önnur lönd, aðstoð við Danmöiku og Framh. á bls. 21 Fjöldi ferst í hörðum jarð- skjálfta í Tyrklandi Burdur og Istanbul, 12. mai — AP-NTB HARÐUR jarðskjálfti varð í morgun í fjallahéruðunum við bæinn Burdur í Suðvestur-Tyrk- landi. Fullvist er talið, að rúm- lega hundrað manns hafi farizt, en óttazt er að sú tala eigi eftir að hækka verulega þegar farið verður að grafa í húsarústum. t Btirdur búa um 60 þúsund manns og hafa um 70% allra húsa bæjarins orðið fyrir mikl- um skemmdum. Burdur er um 360 km fyrir sunnan Ankara og stendur á miklu jarðskjálftasvæði. Árlegir jarðskjálftar hafa orðið á þess- um slóðum frá 1966, og á þessum árum hafa um 4.000 manns far- izt í hamförunum. Jarðskjálftinn í morgun mæld- ist 8 stig á Richtermæli og er ótt- azt að mörg þorp í grennd við Burdur hafi gjöreyðilagzt. Björg- unarsveitir frá her og lögreglu hafa verið sendar á vettvang og þrír ráðherrar fóru þangað flug- leiðis i dag til að hafa yfirum- sjón með björgunarstarfinu. Þá hafa yfirvöldin og Rauði kross- inn sent tjöld, teppi, matvæli og lyf til héraðsins, og ætlunin er að bólusetja alla ibúa jarð- skjálftasvæðisins -— en þeir eru um 200 þúsund — til að koma i veg fyrir farsóttir. Framhald á bls. 19 Vilja vernda álminn í konungs-trjágarðinum í Stokkhólmi Stokkhólmi, 12. maí AP.-NTB. MIKLAR óeirðir urðu í Kungs- trádgárden í Stokkhólmi í nótt þegar skógarhöggsmenn í lög- reglufylgd ætluðu að fella þar nokkur álmtré tU að imdirbúa smiði stöðvar fyrir neðanjarðar- brautir borgarinnar. Um þúsund manns — aðailega umgUngar — höfðu tekið sér stöðu í garðinum til að mótmæia því að borgin léti feMa trén. Tókst mannfjöldanum að hrekja sk'ógarhöggsmennina og lög- reglu á brott með flösku- og grjótkasti, en fimm manns særð- Framhald á bls. 19 Utanríkisráðherrar EBE: Koma til móts við óskir Breta — varðandi landbúnaðarstefnu Efnahagsbandalagsins Brússel, 12. ma-í. — NTB-AP. • Geoffrey Rippon markaðs- málaráðherra Bretlands sat í kvöld fund utanríkisráðherra Efnahagsbandalags Evrópu í Brússel. Var gert ráð fyrir að fundurinn stæði langt fram á nótt. • Fyrir fundinn lýstu ráðherr- arnir bjartsýni á að í viðræðun- um næðist verulegur árangur varðandi væntanlega aðild Bret lands að bandlaginu. • Utanríkisráðherrar EBE-ríkj ana sátu í dag fund fyrir Iokuð- um dyrum til að undirbúa viðræð urnar við Rippon. Urðu þeir þar meðal annars sammála um að koma nokkuð til móts við óskir Breta að því er varðar land- búnaðarstefnu bandalagsins. • Ekki er búizt við neinu end- anlegu samkomulagi í nótt, en ráðherrar EBE-ríkjanna eru sagð Ir reiðnbúnir til að taka upp við- ræður við Breta á ný í Luxem- bourg 7. og 8. júní eftir fund Edwards Heaths, forsætisráð- herra Bretlands, og Georges Pompidous, forsætisráðherra Frakklands, í París 20. og 21. maf. Utanríkisráðherrarnir féllust á að Bretar fengju að aðlaga sig hærra verði á landbúnaðarafurð um í EBE í sex áföngum á fimm árum. Til þessa hafa Bret- ar haldið því fram að þeir þyrftu fimm og hálfs árs aðlög- unartíma til breytinga á verði landbúnaðarvara, og að sú að- lögun yrði í sex áföngum. Full- trúar Efnahagsbandalagsins hafa hins vegar krafizt þess að að- lögunin yrði gerð í fimm áföng- um á fjóru og hálfu ári. Er talið að brezku fulltrúarnir fall ist á nýju tillögurnar. Áður hafa komið fram nýjar tillögur varðandi innflutning Breta á sykri frá Samveldisrikj- unum á Karabiska hafinu og smjörinnfl'utnmginn frá Nýja Sjálandi, en nokkur ágreiningur ríkir innon EBE um stöðu sterl- ingspundsins eftir að Bretland fær aðild að bandalaginu. Fyrir fundinn í kvöld áttu margir ráðherranna viðræður við blaðametnn. Sagði Rippon meðal annars að hann væri mjög bjairtsýnn á árangur i við- ræðunum, meðal annars ai þvi að á fúndinum í gær haifi miðað mjög í saimkom uiagsátit. Mauriœ Schumann utanríkis- ráðherra Frakkland sagði að franska stjómin hefði á fundi sfauim í dag samþykkt tilJögur hans varðandi áframhaldandi viðræður um aðild Breta, og Pienre Harmel utanríkiisráðherra Beligíu lcvaðst búast við „veru- tegum árangri" á fundinum í kvöld oig nótt. Þá sagði Walter Scheel utanríkisráðherra Vestur- Þýzkalands að aJ'lt benti tiJ þess að samkomulag næðist um „viss atriði", en Joseph Luns utan- rí'kisráðherra HoMands taldi að árangurinn væri mjög háður £tf- stöðu Frakka. Eitt er það atriði í samningun- um um aðild Breta, sem margir bíða eftir afgreiðs'Ju á, en það er hver hlutur Breta skuli verða Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.