Morgunblaðið - 13.05.1971, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1971
Jeanne Judson:
NAN.
iilliiii! niiiiuíl
C OOOOOO OOOOO 0
0 oooooooooooo
3. kafli.
Mannamál vakti Nancy upp
af mókinu. Móðir hennar og
læknirinn voru komin inn til
hennar. Hún lokaði augunum
aftur til hálfs, en gat samt rétt
séð þau. Svefninn hafði ekkert
dregið úr verkjunum. Hún
komst að þeirri niðurstöðu, að
hún hefði fengið blóðeitrun og
taka yrði af henni handlegginn
uppi við öxl. Það var rétt á tak-
mörkum, að hún gæti stillt þessi
tár sjálfsmeðaumkunar og varn
að þvi, að þau rynnu niður
eftir kinnum hennar. Og gremja
hennar óx um allan helming við
að heyra hressilegt samtal
þeirra.
— Lofum henni að sofa, var
læknirinn að segja. — Bara að
haida sárinu hreinu, þá kemur
hitt af sjálfu sér. Hún er hraust
og þetta ætti að iagast fljót-
lega.
— Hvernig gen.gur hjá þér,
Tim?
— Jæja, ég hef nú tólf einka
sjúklinga — og flestir þeirra
eiga eitthvað til, og tveir þeirra
þurfa ekki einu sinni að treysta
á Bláa Krossinn vegna sjúkra-
hússreikninganna sinna. Eftir
svo sem ár vona ég. . .
Nancy var að horfa á hann
hálfluktum augum og staðfesta
álitið, sem hún hafði fengið á
honum, þegar hann kom til
hennar í sjúkrastofunni. Hérna
heima, þar sem ekkert sterkt
ljós var, gat hún ekki séð neinn
rauðan lit á hárinu á honum.
Það var næstum svart. Hann
gæti ekki verið nema svo sem
tveim þumlurtgum hærri en hún
sjálf, hann var einn þessara
snöru, fimlegu manna, sem dugn
aðurinn skein út úr. Hann var
alls ekki neitt læknislegur,
fannst henni. Munnurinn á hon
um var of kvikur, eins og hann
Iangaði til að hlæja, en hakan
héldi honum í stilli. Hefði hann
ekki verið læknir, hefði henni
fundizt hann mjög laglegur.
- Það er verst, að þú skul-
ir ekki hafa stofu á einhverjum
betri stað, sagði móðir hennar.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hag-trvggingar h.f. árið 1971
verður haldinn í Veitingahúsinu Sigtúni
laugardaginn 22. maí og hefst kl. 14.
Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. 15. gr.
samþykkta félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða-
seðlar verða afhentir hluthöfum eða öðrum
með skriflegt umboð frá þeim í skrifstofu
félagsins að Suðurlandsbraut 10, Reykjavík,
18. til 22. maí á venjulegum skrifstofutíma.
Stjórn Hagtryggingar h.f.
T œknifrœðingar
Við leitum eftir tæknifræðingi, helzt með rekstrartækni eða
véltækni sem sérgrein, til starfa hjá stóru iðnfýrirtæki í Reykja-
vík.
Vðkomandi mun í byrjun starfa með ráðunautum okkar við
endurskipulagningu verksmiðjunnar.
Starfið er síðan fólgið i:
— Að annast daglega umsjón með framleiðsluþáttum
verksmiðjunnar
— Að vinna að framhaldandi hagræðingaistörfum.
— Að koma á og líta eftir launakerfum í framleiðslunni.
Starfið býður upp á:
— Sjálfstæð og þroskandi verkefni.
— Mikla framtíðarmöguleika.
Að auki bjóðast:
— Góð laun.
— Góð starfsskilyrði.
Skriflegum umsóknum sé skilað sem fyrst til undirritaðs.
BEIMEDIKT GUNIMARSSON, tæknifræðingur
Ármúia 3, Reykjavík. Sími: 3 81 30.
Ráðgefandi:
Hagsýsla
Skipulagning framleiðslu og framkvæmda.
þessa da.gana. og bj-art er
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Þú ert livíldinni feginn og ættir að nota liana vel.
Nautið, 20. apríl — 20. inaí.
Þú skalt skoða þig vel um á næstunni.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Þér nýtast vel hæfileikar þínir
framundan.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þú ættir að líta oftar til vina þinna.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þú hefur oft liðsinnt fólkinu þínu betur en þessa dagana.
Meyjar, 23. ágúst — 22. september.
Einhver hefur reynt að koma illu til leiðar.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þú ert ekki nógu staðfastur fyrir kringumstæðurnar.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Þú átt langan vinnudag framundan, sem borgar sig.
Bogmaðnrinn, 22. nóvember — 21. desember.
Félagarnir eru þér ekki nógu leiðitamir þessa dagana.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þér leiðist hlutdrægni og öfund og það skaltu segja þeim, sem
í kringum þig eru.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Margir vildu vera í þínum sporum núna. Slepptu ekki
inni af því, sem þú hefur. i
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. I
Búðu þig undir erfiða daga. 7
ki hend- \
— Ég veit það, en þetta kem-
ur í hendi. Ég geri ráð fyrir, að
eftir eitt ár eða í hæsta lagi
tvö verði ég búinn að fá það
marga einkasjúklinga, að ég
geti sagt upp þessu starfi hjá
Llewellyn-verksmiðjunum og
flutt í betri stofu. Þú manst eft-
ir honum Folson, sem var þarna
á spítalanum tveimur árum á
undan mér? Hann setti upp rok
fína stofu í Columbus, keypti
sér öll fínustu tól og tæki, sem
hægt var að fá, og áður en árið
var liðið var hann orðin svo
skuldugur, að hann varð að
flytja sig á ódýrari stað og fara
að starfa hjá vátryggingarfé-
lagi. Nei, þá vil ég heldur byrja
neðan frá og færa mig upp eft-
ir heldur en byrja hæst og
hrapa svo niður.
— Ég veit, að þetta er alveg
rétt hjá þér, en það er bara leið
inlegt, að þetta skuli þurfa að
vera svona torsótt fyrir menn,
sem eitthvað geta. Það ættu að
vera einhverjir styrkir eða þess
háttar. . .
— Já, ríkur frændi eða stór
arfur, sagði Evans og hló. •— Ég
vil nú heldur hafa það eins og
það er. Vinnan mín þarna við
verksmiðjuna er skemmtileg og
fjöldinn allur af fólkinu verður
hjá mér áfram, þegar ég hætti
þar.
Nancy var sárgröm. Hérna lá
hún og kvaldist, en læknirinn
var þarna rétt eins og í kurteis
isheimsókn hjá móður hennár.
Hún bylti sér og reis upp við
dogg. Móðir hennar og lækn-
irinn brugðu samstundis við.
— Ertu vakandi . . . og liður
þér eitthvað illa?
— Illa? Hún var svo reið, að
hún gat varla komið upp
nokkru orði.
— Við skulum verða fljót að
koma þér í lag. Hann lét sem
hann sæi ekki augnatillitið, sem
hún sendi honum.
— Þarf ég að vera með þetta?
Nancy átti þar við fatlann, sem
hann hafði tekið af henni áður
en hann skipti um umbúðir.
— Nei, ekki ef þér farið var-
lega. Ég setti hann bara á til
þess að hindra þessar ósjálf
ráðu hreyfingar á hendinni og
handleggnum. Það er erfitt að
vera örvhendur, sé maður ekki
fæddur þannig.
Þegar hann hafði gengið frá
umbúðunum, fékk hann frú
Ross einhverjar pillur. — þetta
getur róað hana fyrir nóttina.
Sárið er hreint og verður fljótt
að gróa. Hann sneri sér aftur
að Nancy: — Eins og ég sagði,
getur orðið þarna dálítið ör eft-
ir, en ekkert teljandi. Ég iít aft-
ur inn á morgun.
Hann var varla kominn út þeg
ar Nancy þaut upp. -— Skárri
er það nú vitleysan — svolítil
óþægindi! Mér þætti gaman að
vita, hvort hann hefur nokkra
hugmynd um, hvað sársauki er.
— Svona tala aliir læknar og
það getur farið dálítið í taug-
arnar, sagði móðir hennar hugg
andi. — Dilly segir mér, að þú
hafir ekkert fengið að borða síð
an í morgun. Ef þú getur þol-
að verkina svolítið lengur, þá
skulum við borða kvöldverðinn
snemma og svo geturðu fengið
eitthvað róandi og farið að sofa.
— Ég hef ekki gert annað
en sofa í allan dag, sagði Nancy
önug. — Jæja, ég sagði þetta
nú ekki í alvöru og verkirnir
eru nú heldur ekki svo mjög
slæmir. Og eins og þú sérð, þá
hef ég fengið heimsókn.
— Kom hann sjáifur?
— Já, sannarlega. Hann kom
og talaði við mig. Mér var ekki
meir en svo um það.
— Það er ekki von, en karl-
greyið er nú samt aðdáanlegur,
og svo hreinskilinn. Hann kann
að vera gamaldags, en hann hef
ur sínar meginreglur og fer eft-
ir þeim. Þetta eru næstum of
fallegir ávextir til þess að borða
þá.
— Ekki finnst mér það. Ann-
ars finn ég, að ég er farin að
verða svöng. Ef ég fæ mér
ferskju, ata ég út alla hökuna
á mér. Það er vist betra að fá
sér bara vínber.
Meðan Nancy borðaði vínber-
in með vinstri hendi og missti
eitt og eitt niður á gól'fið, þá
datt henni snögglega í hug, að
læknirinn mundi vera eitthvað
snortinn af móður hennar, sem
var fertug, en leit alls ekki út
fyrir að vera meira en þrítug,
nema þegar hún var þreytt. Þeg
ar fólk var að segja, að þær
líktust meira systrum en mæðg-
um, þá var það næsturn alvara.
Hún hefði ekkert orðið hissa þó
að einhver maður yrði ástfang-
inn af móður hennar, en honum
mundi bara ekki koma það að
neinu haldi. Úr því að hún vildi
ekki eiga hann Phil frænda,
mundi hún engan vilja eiga.
Carmody dómari, sem hafði ver
ið bezti vinur föður hennar,
hélt áfram að vera bezti vinur
móður hennar, og Nancy vissi,
að hann hafði hvað eftir annað
beðið hennar.
— Viltu fá matinn á bakka?
kallaði móðir hennar utan úr
eldhúsinu. Nancy stóð upp og
gekk til hennar.
— Við skulum borða i borð-
stofunni. Vel á minnzt: Ég
siæddi vínberjum út um allt
gólf.
- Ég skal taka þau upp áður
en Dilly kemur og treður þau
niður í teppið. Ég er fegin, að
þú skulir ekki vilja gefa eftir.
Það er engin ástæða til að vera
meira ósjálfbjarga en maður
þarf.
Borðstofan var fallegasta stof
an í húsinu. Mjó, en náði þvert
yfir húsið og með bogaglugga á
gaflinum, svo að hún sýndist
eins og sporöskjulaga og kom
frú Ross til að kaupa sér spor-
öskjulagað borð.
Nancy var ekki eins og skó-
arabarnið alþekkta í sögunni.
Mary Ross lagði alveg jafn
mikla rækt við máltíðirnar
heima fyrir og hún gerði í
sjúkrahúsinu, og var ólík öðr-
um matvælafræðingum að þvi
leyti, að hún bjó sjálf til góðan
mat. Hún hafði sett á borðið vor-
blómin, sem Rick Armstrong
hafði komið með.
— Ég kann betur við þau en
H júkrunarkonur
Hjúkrunarkonur óskast til að leysa af í sumarfrí.
Upplýsingar gefur forstöðukona í slma 81200.
BORGARSPlTALINN.
Nýkomiö
mikið úrval af SUMARHÖTTUM.
Hattabúð Reykjavíkur
Laugavegi 10.
Akranes
Staða innheimtumanns á Bæjarskrifstofunni er laus til um-
sóknar. Reynsla í hliðstæðum störfum auk staðþekkíngar
æskileg. Laun samkv. kjarasamningi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf óskast sendar undirrituðum fyrir 22. maí nk.
Bæjarstjórinn á Akranesi.