Morgunblaðið - 13.05.1971, Blaðsíða 32
nucLvsinGnR
^-»22480
k
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1971
DRGIEGII
ísaf jörður;
Á annað þús. 1.
af ollu 1 höfnina
Dýrkeypt afglöp brezkra
togaramanna
ísafirði, 12. maí.
Á ANNAÐ þúsund lítra af olíu
fór í höfnina hérna á ísafirði
í kvöld, þegar verið var að setja
olíu um borð í brezka togarann
Ross Intretid. Við áfyllinguna
yfirfylltist olíutankur togarans
með framangreindum afleiðing-
um. Munu skipverjar, sem með
áfyllingunni áttu að fylgjast,
hafa verið drukknir og því
ekki fylgzt með og þar af leið-
andi ekkert merki gefið í land,
þegar næg olía var komin um
borð.
Sigurfara-
slysið
í FYRRADAG fannst lik Ævars
ívarasonar, matsveins af Sigur-
fara SF 58. Líkið fanmst rekið
um 5 kílómetra frá þeim stað,
sem Sigurfari fórst á. Hafa þá
fundizt lík fimm skipverja af
átta, sem fórust með Sigurfara
um miðjan síðasta mánuð.
eða ekki?
Hæstráðandi
RANNSÓKN er nú lokið í máli
skipstjórans, sem sigldi Pétri
Thorsteinssyni BA 12 úr höfn í
Bíldudal í fyrradag áleiðis til
Reykjavíkur, þar sem áhöfnin
hugðist taka sjóveð í skipinu fyr
ir vangoldnum Iaunum. Verða
málsskjölin send saksóknara rík-
isins til ákvörðunar. f gær komu
skipstjórinn og þeir sjö aðrir,
sem um borð voru, suður, en þeir
eru allir búsettir syðra.
Ljóst virðist vera, að skipstjór
imn sigldi úr höfn í Bíldudal í
óþökk útgerðar skipsina, sem
mun hafa talið hann einskis ráð-
andi þar um borð, en hanin og
þeir, sem með honum sigldu,
aftur tahð hann hæstráðanda
þar.
Starfsmaður tryggingafélags
þess, sem togarinn er tryggður
hjá, lagði fram tryggingu fyrir
tjóni, sem af olíunni hlýzt og
kostnaði við að eyða henni, og
unnu starfsmenn hafnarinnar í
gærkvöldi að því að eyða olíunni
í höfninni. Það er gert á þann
hátt, að á olíuna er sprautað
efni, sem eyðir fitunni í henni
og sekkur olían þá til botns.
— Fréttaritari.
Hæstaréttardómur í lögbannsmálinu:
Tryggingarupphæð
landeigenda lækkuð i
tíu milljónir króna
Landeigendur borga, segir
Hermóður Guðmundsson
HÆSTIRÉTTUR ákvað með
dómi sínum í fyrradag, að trygg-
ingarupphæð sú, sem Landeig-
endafélag Laxár og Mývatns
verður að setja til að fá fram
lögbann við breytingum á
rennsii Laxár, vatnsbotni henn-
ar, straumstefnu eða vatns-
magni, skyldi vera tíu milljónir
króna, en sem kunnugt er kvað
fógetadómur upp þann úrskurð,
að tryggingarupphæðin skyldi
vera 135 milljónir króna. Þá
gerði Hæstiréttur Laxárvirkjun
að greiða Landeigendafélaginu
40 þúsund krónur í málskostnað
fyrir Hæstarétti, en málskostn-
aður í héraði var felldur nlður.
Landeigendafélag Laxár og
Mývatns krafðist við upphaf
málareksturs þessa, að fá að
leggja lögbann við þeim virkj-
unarframkvæmdum, sem hafn-
ar eru við Brúar, en í dómi
Hæstaréttar 15. desember sl. var
ekki fallizt á, „að rök séu til að
leggja að öðru leyti lögbann við
framkvæmdum þeim, sem nú
eru hafnar við Laxá á umráða-
svæði gagnáfrýjanda, Laxárvirkj
unar“. Hinis vegar dæmdi Hæsti-
réttur, að „setji aðadáfrýjandi
Félag landeigenda á Laxársvæð-
inu tryggingu, sem fógetadóm-
ur metur gilda, er lagt fyrir fó-
getadóm að leggja lögbann við
þvi, að breytt sé rennsli Laxár
í Suður-Þingeyjarsýs'Iu, vatns-
botni hennar, straumstefnu eða
vatnsmagnii". Sem fyrr segir
ákvað fógetadómur tryggingar-
upphæðina 135 milljónir króna
til að fá lagt lögbann á vatns-
tökuna, en nú hefur Hæstirétt-
ur lækkað upphæðina í 10 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið hafði í gær sam
band við Hermóð Guðmundsson í
Árnesi, formann Landeigendafé-
lags Laxár og Mývatns. Hermóð-
ur sagði, að þeir landeigendur
fögnuðu þessum Hæstaréttar-
dómi og þyrfti enginn að efast
um það, að þeir myndu neyta
réttar síns og leggja fram til-
skylda tryggingarupphæð.
1 forsendum dóms Hæstarétt-
ar segir:
„Samkvæmt gögnum málsins
og málflutningi aðila fyirir
Hæstarétti bendir ekkert til
þess, að stefndi hefji fyrr en
haustið 1972 framkvæmdir þær,
sem áfrýjanda var heimilað að
Framhald á bls. 19
Laxárvirk j un;
Fyrri Iandsleikur íslendinga
og Frakka í nndankeppni Ol-
ympíuleikanna í knattspyrnu
fór fram á Laugardalsvellin-
um i gærkvöldi og lauk hon-
um með jafntefli — hvorugt
liðið skoraði mark. Mynd
þessi er dæmigerð fyrir leik-
inn að því Ieyti að hann fór
að mestu fram á vallarhelm-
ingi íslendinga, sem lögðu
megin áherzluna á vamarleik.
Þarna er það de Martigny
sem sækir, en Jóhannes og
Matthías eru til varnar. Sjá
frásögn á íþróttasíðu.
Þrennt
meiðist
ÞRENNT meiddist, er Volkswag-
enbíll úr Reykjavík fór út af veg-
inum í Eskiholtssneið í Borgar-
hreppi í gærkvöldi.
Lögregla og læknir frá Borg-
arnesi fóru á staðinn og var fólk-
ið, tveir menn og ein kona, flutt
í sjúkrahúsið á Akranesi, en
meiðsli þess voru ekki talin alv-
arlegs eðlús; þó var annar mann-
anna lagður inn í sjúkrahús að
læknisrannsókn lokinni.
Billinn er talinn ónýtur eftir.
Tekinn fyrir meint
landhelgisbrot
Ný hönnun auglýst
— byggist á sáttatillögum
frá í nóvember
— liggur innsiglaður í Eyjum
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ aug
lýsti í gær nýja áætlun um frek-
ari virkjun í Laxá í S-Þingeyj-
arsýslu. f fréttatiikynningu ráðu
neytisins segir m. a.: „Eftir að
ljóst varð í byrjun marzmánaðar
1971, að Iangvarandi sáttatilraun-
ir til Iausnar Laxárdeilunni svo-
nefndu, myndu ekki bera tilætl-
aðan árangur, fór stjórn Laxár-
virkjunar þess á leit við iðnað-
arráðuneytið, að henni yrði gef-
ið leyfi til nýrrar virkjunar í
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu,
Laxá III, sem gerð hefði verið
ný hönnun og áætlun um.“ Ráðu-
neytið féllst á viðhorf Laxár-
virkjunar og hefur nú auglýst
þessa nýju virkjun og ennfrem-
ur sent auglýsinguna öllum
landeigendum og ábúendum
jarða við Laxá, sem talið var að
kynnu að eiga hagsmuna að
gæta.
„Þessi nýja virkjunaráætlun
er í aðalatriðum byggð á þeim
tillögum, sem reynt var að ná
samkomulagi um fyrr,“ sagði
forsætis- og iðnaðarráðherra
Jóhann Hafsitein við Morgunblað
ið í gærkvöldi, „og er sem næst
því, sem haldið er, að menn geti
fellt sig við.
Eins og sjá má af augflýs-
ingunna er þetta hrein rennslis-
virkjun sem nú ex um að ræða,
og á síðari stigum, sem auðvit-
að koma ekki til, neroa með sam
þykki Alþingis, er í eðli sínu
um renmislisvirkjun líka að ræða.
Ég vona, að menn sjái nú, að
Gljúfurversvirkjun er úr sög-
untni, og ég geri mér vonir um,
að samkomulag náist um þessar
fram'kvæmdir.
Hitt er svo aftur, að memm
geta auðvitað gert eínar athuga-
semdir við áætlun auglýsingar-
innar og þeir, sem svo telja,
geta áskilið sér rétt til sfcaða-
bóta.“
„AÐ GERA ÓLÖG AÐ LÖGUM“
Morgunbiaðið hafði samband
við Hermóð Guðmundsson, for-
mann Landeigendafélags Laxár
og Mývatns og hafði hann þetta
að segja:
, Við ekilium ekki, hvað vakir
fyrir iðnaðarráðuneytinu með á-
Framhald á bls. 19
Vestmam naeyj um, 12. maí.
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunnar
tók Jökul VE 15 í gær að meint-
um ólöglegum veiðum úti af
Landeyjasandi. Var bátnum gef-
ið merki um að sigla til Eyja, en
þar var lögð fram munnleg
kæra á hendur skipstjóranum.
Skriíleg kæra berst væntanlega
á morgtin og verður málið þá
tekið fyrir.
Á þriðja tfcnanum í gær flaug
vél Landhelgisgæzlunin>ar yfir
Jökul VE 15, er var að veiðum
með botnvörpu undan Landeyja-
sandi. Töldu starfsmenn Land-
helgisgæzlurmiar að báturinn
væri að veiðum innan landhelgi
og gáfu honium merki um að
sigla til Eyja. Flaug vélin stíðan
lengra austur með Söndum, en
sneri því næst til Eyja og lenti
þar laust fyrir klukkan 6 í gær-
kvöldi. Lögðu menn Landhelgis-
gæzlunnar fram munnlega kæru
við Sigmund Böðvarsson, full-
trúa bæjarfógeta í Eyjum vegna
meints brots Jökuls. — Sig-
mundur fór þá strax niður á
bryggju og var báturinn kom-
inn að, en enginn maður um
borð. Munu skipverjar hafa far-
ið til þess að ná sér í kröku, sem
þeir ætluðu að nota til þess að
slæða upp botnvörpu sem þeir
töpuðu í gær. Sökum þess að
Sigmundur náði ekki í mennina
iranaiglaði hann hurðina að
skipstjórnarklefa Jökuls. Gerði
hann það m. a. af því, að hann
taldi að skipver j ar héldu að
þeir mættu fara aftur út á veið-
ar en það mega þeir alls ekki
eftir að kæra hefur verið lögð
fram. Báturinn liggur enn hér 1
höfninní, en skrifleg kæra hefur
eklki borizt, að sögn fulltrúa bæj
arfógeta. Má vænta þess að hún
berist á morgun og þá fyrst er
hægt að taka málið fyrir.
— Fréttaritári.