Morgunblaðið - 15.05.1971, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1971
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson.
Rilstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstraeti 6, sími 10-100
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 12,00 kr. eintakið.
LAXÁRDEILAN
Stokkhólmsbréf
frá Hrafni Gunnlaugssyni
Hann er dauður -
hann drap sig
Aftur á FORUM, alþjóðlega stúdenta-
garðinum í Stokkhólmi, eftir 3ja mán-
aða dvöl heima. Margt i fréttum. Um
margt að spyrja. Kunningjar sem koma
og fara.
Og einn daginn yfir morgunkaffinu er
spurt í <*tdhúsinu:
Hvað er orðið af krullhærða Pólverj-
anum, sem var vanur að koma hingað
niður í eldhúsið? Ég hef ekki séð hann
síðan ég kom.
Eftir stutta þögn svarar Brasilíubú-
inn:
Hann er dauður — hann drap sig.
Aftur stutt þögn.
Hvenær! — af hverju?
Það var einhvern tíma um jólin —
eða rétt eftir áramótin, sem hann fór
hérna upp á þak og fleygði sér niður.
Ég sá þegar þeir voru að þurrka upp
sletturnar. Hann var ein klessa.
Hver var ástæðan?
Ég veit það ekki alveg, en þú manst
eflaust, að það voru götubardagar í
Gidinja og Gdansk einhvern tíma í des-
ember. Hann var sjálfur flóttamaður frá
Gdansk og tók þetta mjög nærri sér —
sérstaklega eftir að þetta rann allt út i
sandinn. Annars gáfu blöðin aðra
ástæðu sem er líklega mun sennilegri,
þó að þessi gæti hafa riðið baggamun-
inn.
Hvaða ástæðu?
Jú — hann tók þátt í einhverjum
mótmælum við háskólann i Póllandi, þar
sem hann var við nám, árið áður en
hann flúði. Hann sat í fangelsi í 8—9
mánuði fyrir vikið og var misþyrmt
grimmdarlega á meðan, að þvi er blöð-
in sögðu. Hann náði sér aldrei fyllilega
aftur. Var stöðugt hræddur um að
pólska leynilögreglan sæti um líf sitt og
tortryggði alla.
Ég mundi eftir, að hann hafði oft tal-
að um vald pólsku leynilögreglunnar og
það væri sama hvert maður flýði, hún
hefði alltaf upp á manni einn góðan
veðurdag.
Hvað var gert — hvað gerðist?
Hvað var gert? Nú það komu frá-
sagnir af atburðinum og myndir í dag-
blöðunum daginn eftir. Einhver kven-
maður grét á kaffiteríunni. Tveim, þrem
dögum síðar var þetta gleymt. Pólskir
vinir hans sem hér eru við nám, sögðu
mér síðar, að hann hefði verið leiðandi
í hópum stúdenta heima i Póllandi og
aldrei náð að festa hér rætur, eftir að
hann flúði.
Hann var ekki í sjálfu sér eingöngu
antíkommúnisti, heldur andstæðingur
bókstafstrúar almennt. Kirkjan á mið-
öldum drukknaði í kennisetningum og
bókstafstrú, og brenndi fðlk lifandi á
báli guði til dýrðar. Hann líkti komm-
únismanum við sams konar geðveiki,
sem ætti rætur sínar í óraunhæfum
kennisetningum og trúarjátningu, sem
blindir ofstækismenn og velgeltandi
flokkshundar notuðu til að færa og rétt-
læta mannfórnir. Það versta er, sagði
hann, þegar menn byrja að trúa á for-
múlur og lokalausnir, en sjá ekki lífið,
og neita að mannlegt samfélag breytist
stöðugt. Allar framfarir verða til fyrir
lýðræðislega þróun, frá áfanga til
áfanga, þar sem menn staldra við eftir
hvern unninn hjalla, litast um og spyrja
sjálfa sig:
Er ég á réttri leið — hvert höldum
við?
Sá sem hefur blindazt af trú, gengur
hins vegar stöðugt í hringi og kemst
aldrei út fyrir sinn litla, tilbúna heim.
Það er eins og viðsföðuleysi daganna
brotni á blindskeri liðins tíma, þegar
kunningi er kallaður á burt. — Fyrir
tæpu ári síðan skrifaði ég hér í blaðið
Stokkhólmsbréf, sem bar nafnið „Heill
herskari af ljóshærðu kvenfólki" og var
samantekið úr samtali nokkurra stúd-
enta hér i eldhúsinu á Forum.
Pólski kunninginn var einn af þátt-
takendunum í þessu samtalí. Þá talaði
hann af heift um bókstafstrú og komm-
únisma. Það var þá eins og hvert ann-
að skvaldur dagsins — og nú? —
Matvörukaupmenn
átelja sölufyrirkomu-
lag á mjólk
AÐALFUNDUR Félags matvöru
kaupmanna va haldinn 10. maí
sl. í Leikhúskjallaranum. Fund-
urinn var mjög vel sóttur og
voru á honum rædd ýmis áhuga
mál og hagsmunamál matvöru-
kaupmanna. Óskar Jóhannsson,
sem verið hefur formaður fé-
lagsins í 5 ár, baðst undan end-
urkosningu og voru honum þökk
uð mikil og góð stöf í þágu
kaupmanna. Formaður félagsins
var kosinn Einar Bergmann,
kaupmaður. Aðrir stjórnarmenn
eru Sigþór Sigþórsson, Jóhann-
es Óli Garðarsson, Hákon Sig-
urðsson og Torfi Torfason.
Á fundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
Aðalfundur Félags matvörukaup
manna 1971 telur, að núverandi
fyrirkomulag á sölu og dreifingu
á mjólk og mjólkurvörum sé al-
gjörlega óviðunandi og samrým-
ist ekki nútíma viðskiptaháttum.
Fundurinn bendir á, að ríkj-
andi dreifingarkerfi er sízt tit
þess fallið að vernda hagsmuni
framleiðenda og neytenda og er
úreltur arfur frá liðinni tíð.
Fundurinn skorar því á við-
komandi yfirvöld að hlutast til
um, að sala og dreifing á mjólk-
urvörum verði gefin frjáls öll-
um matvöruverzlunum hið
fyrsta.
(Fréttatilky nning frá Kaup-
mannasamtökum íslands).
¥Tm rúmlega eins árs skeið
hefur iðnaðarráðuneytið
gert ítrekaðar tilraunir til
þess að koma á saettum í Lax-
árdeilunni svonefndu. Hefur
Jóhann Hafstein, forsætis-
og iðnaðarráðherra, tekið per-
sónulegt frumkvæði í málinu
til þess að reyna að koma á
sættum og haldið tvo sátta-
fundi með deiluaðilum. Ekki
verður því annað sagt en að
stjómarvöld landsins hafi
gert það, sem í þeirra valdi
hefur staðið til þess að leysa
þetta erfiða deilumál.
Sáttatilraunir þær, sem
fram fóru í febrúarmánuði sl.
báru ekki árangur og þá lá
ljóst fyrir, að sáralitlar líkur
væri á því, að sættir gætu
tekizt. Nú hefur stjórn Lax-
árvirkjunar sótt um leyfi fyr-
ir nýrri virkjun í Laxá til
iðnaðarráðuneytisins. Er hér
um að ræða svonefnda Laxá
III, sem gerð hefur verið ný
hönnun og áætlun um. Iðn-
aðarráðuneytið hefur birt
auglýsingu um þessa fyrir-
huguðu virkjun, þar sem
kallað er eftir athugasemdum
við hinar fyrirhuguðu virkj-
unarframkvæmdir. Auglýsing
þessi er birt í samræmi við
hinn svonefnda lögbannsdóm
en hann byggist á því, að
ekki hafi verið fullnægt skil-
yrðum vatnalaga um að
kynna fyrirhugaðar fram-
kvæmdir fyrir hlutaðeigandi
aðilum.
Sérstök ástæða er til að
vekja athygli á þessari aug-
lýsingu um Laxá III og raun-
ar einnig um Lagarfossvirkj-
un, því að hér er um nýmæli
að ræða og má vænta þess,
að í framtíðinni verði ekki
ráðizt í virkj unarmannvirki
fyrr en slík auglýsing hefur
verið birt og þeim, sem hlut
eiga að máli hefur verið gef-
inn kostur á að koma á fram-
færi athugasemdum við
væntanlegar framkvæmdir.
Þegar slíkar athugasemdir
liggja fyrir, er ráð fyrir því
gert í vatnalögunum að hér-
aðsdómari skipi tvo mats-
menn til þess að meta hugs-
¥>áðherrafundi EFTA er lok-
** ið. Fundur þessi hefur
orðið til þess að skýra nokk-
uð væntanlega þróun í mark-
aðsmálum Evrópu. Nú eru
taldar verulegar líkur á, að
Bretar, Norðmenn og Danir,
fái inngöngu í Efnahagsbanda
lag Evrópu. Þá vaknar spurn
ingin: hvað verður um
EFTA? í yfirlýsingu þeirri,
sem ráðherramir gáfu út að
loknum fundinum í gær er
anlegar skaðabætur vegna
framkvæmdanna. Ætti þar
með að vera tryggt, að þeir,
sem telja sig verða fyrir tjóni
vegna virkjunarframkvæmda,
hljóti bætur fyrir. Þessi ráð-
stöfun, þótt í lögum hafi ver-
ið, er beinn árangur eða af-
leiðing af Laxárdeilunni og
er hún líkleg til þess að
hreinsa mjög andrúms'loftið í
deilumálum, sem upp kunna
að rísa í framtíðinni.
Með hliðsjón af auglýsingu
þeirri, sem iðnaðarráðuneytið
hefur nú birt má gera ráð
fyrir því, að iðnaðarráðherra
veiti Laxárvirkjun leyfi fyrir
hinni nýju virkjun, þegar
auglýsingafrestur er liðinn.
Yrði þá væntanlega afturkall-
að ráðherraleyfi frá 1969 fyr-
ir 1. áfanga Gljúfurversvirkj-
unar og hún þar með úr sög-
unni. Það á eftir að koma í
Ijós hver viðbrögð landeig-
enda verða við auglýsingu
ráðuneytisins. Eftir það, sem
á undan er gengið er þess
vart að vænta, að samkomu-
lag verði um þessa nýju ráð-
stöfun. En til þess eru stjóm-
arvöldin að höggva á hnút-
inn, þegar svo skipast málin
og það er iðnaðarráðuneytið
bersýnilega að gera nú.
Laxárdeilan hefur að
mörgu leyti verið gagnleg.
Hún hefur undirstrikað nauð-
syn þess að tekið verði fullt
tillit til náttúmvemdarsjón-
armiða við stórframkvæmdir
í framtíðinni og að þeim verði
hagað á þann veg, að náttúra
landsins bíði ekki óbætanlegt
tjón af. Hún hefur einnig
orðið opinberum aðilum á-
minning um að rétt einstakl-
inganna má ekki bera fyrir
borð. Og hún hefur líka vak-
ið upp ýmsar spumingar í
sambandi við störf dómstól-
anna. Hvemig stendur t.d. á
þeim gífurlega mun, sem er
á dómi undirréttar og Hæsta-
réttar um tryggingarfjárhæð
vegna lögbannsins? Undir-
réttur gerði landeigendum
að leggja fram 135 milljónir.
Hæstiréttur sagði 10 milljón-
ir. Minna má nú gagn gera.
lögð megináherzla á, að
stækkun EBE megi ekki
verða til þess að eyðileggja
viðskiptafrelsið innan EFTA
og jafnframt láta þeir í Ijós
þá skoðun, að viðræður þær,
sem fram hafa farið undan-
fama mánuði milli EBE og
þeirra EFTA-landa, sem ekki
æskja aðildar, ættu að geta
orðið grundvöllur væntan-
legra samninga milli aðila.
Það er augljóst, að EFTA
mun halda áfram að starfa
í einhverri mynd en framtíð
samtakanna mun þó ráðast
af niðurstöðum framan-
greindra viðræðna.
Atburðarásin síðustu vik-
ur og mánuði hefur glögg-
lega leitt í Ijós, að ekki var
seinna vænna fyrir okkur
íslendinga að gerast aðilar
að EFTA og styrkja þar með
stórlega aðstöðu okkur í samn
ingaviðræðum við EBE. í
viðtali við Morgunblaðið í
gær um þetta atriði, sagði
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
ráðherra: „Enginn vafi er á
því með hliðsjón af því, sem
nú er að gerast, að við ís-
lendingar gerðum rétt í því
ingu í samtali við blaðamann
að gerast aðilar að EFTA í
fyrra. Ef við hefðum ekki
gert það, væri öll aðstaða
okkar ti'l samninga við stækk
að Efnahagsbandalag Evrópu
mun óhagstæðari en nú er.
í samningunum við EFTA
fengum við aukið viðskipta-
frelsi, sem við nú höfum
bætta aðstöðu til þess að
varðveita.“
Ef svo fer fram sem horf-
ir, að Bretar gerist aðilar að
EBE er spurt hvað verði um
samninga þá, sem Bretar eru
aðilar að við okkur innan Frí-
verzlunarsamtakanna. Micha
el Noble, viðskiptaráðherra
Breta, svaraði þessari spum-
Morgunblaðsins í fyrradag
er hann sagði: „Þeir munu
sjálfsagt vera í gildi út samn-
ingstímabilið. Ég get ekki
séð neina sérstaka erfiðleika
í því sambandi.“
í sambandi við hugsanlega
inngöngu Breta, Norðmanna
og Dana í EFTA verður að
hafa það í huga, að skipting
Evrópu í tvö markaðssvæði
er óeðlilegt fyrirbæri. Frjáls-
ari viðskipti milli allra Evr-
ópuríkja munu stuðla að
bættum lífskjörum fólksins
og vonandi munum við ís-
lendingar njóta góðs af sam-
starfínu í hinni nýju Evrópu,
sem nú virðist á næsta leiti,
þótt við getum ekki og vilj-
um ekki gerast fullgildir með
limir EBE.
Ný Evrópa?