Morgunblaðið - 22.05.1971, Síða 1
32 StÐUR OG LESBÓK
113. tbl. 58. árg.
LAUGARDAGUR 22. MAI 1971
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
S ALT-viðræðurn ar:
F j ölspr eng j u-
f laugar valda
erfiðleikum
Santa Alfio, Sikiley,
21. maí — NTB
SKARAR af fólki í grennd
við eldfjallið Etnu á Sikiley
gengu í dag með helgimyndir
á lofti á móti glóandi hraun
straumnum, sem nú streym-
ir niður hlíðar fjallsins. Elur
fólkið með sér örvæntingar-
fulla von um kraftaverk, sem
á síðustu stundu komi í veg
fyrir að hraunstraumurinn
svelgi heimili þess og eignir.
Hraunstraumurinn rann í dag
fram með 3—4 metra hraða
á klukkustund, en dauðþreytt
ir bændur kepptust við með
tár í augum að flytja húsgögn
og aðrar lausar eigur sínar
brott. Hér á myndinni er
hraunstraumurinn kominn að
íbúðarhúsi, sem hefur verið
yfirgefið.
Washington, Moskvu,
21. maí — AP
SAMKOMULAG Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna um að einbeita
sér á þessu ári að því að finna
leiðir til að takmarka framleiðslu
varnareldflauga, og þá um leið
árásareldflauga, gefur góðar von
ir um að samningarnir um tak-
mörkun kjarnorkuvopna fari að
ganga betur.
Þótt orðalagið: „einbeita sér
að því að finna leiðir“ sé langt
frá því að vera nokkurt endan-
legt samkomulag, er hér um
meiriháttar pólitískan ófanga að
Bretland gengur í EBE
þegar í næsta mánuði
sagði Pompidou að loknum
viðræðum þeirra Heaths
París, 21. maí — AP
AÐ LOKNUM fundi þeirra
Pompidous, Frakklandsforseta
og Heaths, forsætisráðherra
Bretlands, í dag, sagði Pompidou
við fréttamenn að það væri ó
raunhæft að ætla annað en Bret
land gæti gerzt aðili að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, í næsta
Everest sigrar enn;
24 haf a náð-
24 hafa dáið
Katmandu, 21. maí — AP
LEIÐANGURINN, sem lagði af
stað upp á hæsta tind Everest
28. febrúar sl. hefur nú endan-
lega gefið upp alla von um að
ná takmarkinu, eftir mikla
hrakninga, veikindi og skort á
ýmsum nauðsynjum. Einn mað-
ur lét lífið og nokkrir voru
fluttir veikir niður af fjaUinu.
Ákvörðunin um að hætta við
leiðangurinn var tekin sl. föstu
dag. Það voru tveir Bretar sem
þá voru komnir næst tindinum.
Þeir voru í tjaldi sínu í 8.296
metra hæð, og áttu þá aðeins
Fangar 1
verkfalli
JESSHEIM 21. maí, NTB. —
Um 120 fangar í norsku rikis-
fangelsi hafa farið í verkfall,
og kratfizt hærri launa fyrir
stförtf, sem þeir vinna I
s'teininum. VerkfaMið hófst
18. þesaa mánaðar, og síð-
an hafa verkfallsanennirn ir
hvorki hreyít hönd né fót til
að sinna daglegum störfuan.
eftir 552 metra upp á hæsta
tindinn. Þeir voru hins vegar
orðnir mjög þreyttir og auk
þess skorti þá bæði súrefni, mat
væli og reipi til að geta haldið
áfram. í alþjóðareglum um far
þegaflug segir að ekki megi fara
með farþega hærra en tólf þús-
und fet, ef farþegaklefinn er
ekki loftþrýstur, strax upp úr
því fer súrefnisskortur að gera
vart við sig.
Bretarnir tveir, Don Whillans
og Douglas Haston, hafa verið
í rúmlega 25 þúsund feta hæð
sl. 18 daga, og eru nú í rúm-
lega 27 þúsund feta hæð. Þar
við bætist að þeir þurfa að þola
mikinn kulda og líkamleg á-
reynsla er gífurleg. Þeir komast
því ekki langt án súrefniskút-
anna sinna og á Everest getur
tekið marga klukkutíma að kom
ast örfáa metra upp á við.
í gær var ekki búið að taka
ákvörðun um hvenær lagt yrði
af stað niður af fjallinu.
Everest hefur aðeins verið
sigrað fimm sinnum, í fyrsta
skipti 29. maí 1953 þegar Sir
Edmund Hillary og Tenzing Nor
gay stigu þar fæti fyrsti allra
manna. AUs hafa 24 fjallgöngu-
menn komizt á toppinn, en jafn
margir hafa látið lífið við að
reyna að ná þangað.
mánuði. Pompidou hefur þar
með sópað úr veginum hindrun
um sem Frakkar lögðu fyrir
Bretland, og sem hingað til
hafa haldið því utan bandalags
ins.
Pompidou lagði á það áherzlu
að á fundunum sem leiðtogarnir
tveir hafa átt með sér síðustu
daga, og sem staðið hafa í sam
tals tólf klukkustundir, hefði
hann sannfærzt um að Frakk
lands gæti ekki lengur lagzt
gegn aðild Bretlands að EBE.
Edward Heath, sagði að Frakk
land og Bretland hefðu »ömu
skoðanir á framtíð Vestur-Evr-
ópu, stofnunum hennar og stöðu
hennar í heiminum. Þessi Sam-
staða yrði til góðs, ekki aðeins
fyrir umrædd tvö lönd, heldur
og öli önnur ríki Evrópu.
Leiðtogarnir tveir gáfu í skyn
að iöndin væru sammála um
hlutverk sameiginlegra stofnana
sem gætu tekið bindandi ákvarð
anir fyrir öll aðildarlöndin. —
Bæði Frakkland og Bretland
vilja takmarka áhrif þeirra,
enda hefur þetta atriði valdið
hvað mestum deilum í Bretlandi.
Leiðtogarnir lögðu báðir á-
herzlu á að viðræður þeirra
hefðu farið fram í mikilli vin-
semd og af einlægni, og þeir
hefðu verið sammála um flest
atriði. Það væri að vísu ekki
búið að leysa endanlega öll
vandamálin, en þeir kæmu ekki
auga á neitt, sem gæti staðið
í vegi fyrir inngöngu Bretlands
í EBE í næsta mánuði.
ræða, og tilslakanir af hálfu Sov
étríkjanna.
Sovétríkin hafa frá upphafi
viljað ræða sérstaklega um varn
areldflaugar, og taka þar með
skammdrægar kjarnorkueld-
flaugar NATO í Evrópu. Banda-
ríkin hafa hins vegar ekki vilj-
að semja um varnarflaugarnar
sér og alls ekki viijað blanda eid-
Framhald á bls. 19
Gomulka
úr ríkis-
ráðinu
Varsjá, 21. maí — NTB-AP
WLADYSLAW Gomulka, fyrr-
um leiðtogi pólska kommúnista-
flokksins heið enn einn pólitisk
an ósigur í gær, er hann vék úr
ríkisráði Póliands. Sagði pólska
fréttastofan PAP, að í pólska
þinginu hefði verið samþykkt
að verða við beiðni Gomulka
um, að hann skyldi leystur frá
þessari stöðu, sem er fyrst og
fremst táknstaða.
Gomulka sem fór frá sem
flokksleiðtogi og vék síðan úr
miðstjóm kommúnistaflokksins
eftir bíóðugar óeirðir í desember
Framhald á bls. 19.
Novotny rekinn úr
kommúnistaflokknum?
Prag, 21. maí — NTB
ANTONIN Novotny, fyrrum for
seti Tékkóslóvakíu og leiðtogi
kommúnistaflokks landsins,
verður sennilega rekinn úr
flokknum ásamt sex öðrum fyrr
verandi háttsettum mönnum inn
an flokksins. Eru þeir allir sak
aðir um að hafa borið ábyrgð á
stjórnmálaþróuninni í landinu á
tímabilinu 1950—1960.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum í Prag í gær, að mið
stjórn kommúnistaflokksins
hefði samþykkt á leynilegum
fundi að bera fram tillögu um
brottrekstur þessara manna úr
flokknum á flokksþingi þvi,
sem nú stendur fyrir dyrum. í
hópi þeirra eru m.a. auk Nov-
otnys þeir Karol Bacilek, fyrr
verandi öryggimálaráðherra,
Stefan Rais, fyrrverandi dóms-
málaráðherra og Josef Urvalek,
sem var ríkissaksóknari í Slan-
skyréttarhöldunum alræmdu.
Þungir dómar í Gyð-
ingaréttarhöldunum
„Almenn fagnaðarlæti“ segir TASS
er dómarnir voru kveðnir upp
Moskvu, 21. maí —
AP-NTB —
NÍU Gyðingar, sem ákærðir
voru í Leningrad fyrir ólöglega
síonistastarfsemi og fyrir tilraun
til þess að ræna flugvél, voru í
gær dæmdir í allt að 10 ára
hegningarvinnu. Þyngsta dóma
hlutu þeir Gilja Butman, 39
ára gamall verkfræðingur, sem
hlaut 10 ára fangelsi og Michael
Korenblit, 34 ára, sem hlaut 7
ára hegningarvinnu. I dóminum
var þeim Butman og Korenblit
lýst sem skipuleggjendum til-
raunarinnar til flugvélarráns. —
Tveir af ákærðu voru dæmdir í
5 ára hengingarvinnu, einn í 4
ára, þrír í 3 ára og einn í eins
árs hegningavinnu.
Sovézk stjórnarvöld byrjuðu und
irbúning að þessum réttarhöld-
um í júní í fyrra, en þau hófust
síðan á þriðjudag í síðustu viku.
Frásagnir hins opinbera frá þess
um réttarhöldum hafa þótt
benda til þess, að þarna sé um
sýndarréttarhöld að ræða, þar
sem ákærðu hafi viðurkennt
sekt sína fullir iðrunar og lýst
sig reiðubúna til þess að taka
út refsingu sína. Hafa fréttir af
réttarhöldunum verið sendar út
af TASS, hinni opinberu frétta-
stofnun Sovétríkjanna, en engir
fréttamenn frá Vesturlöndum
hafa fengið heimild til þess að
koma í réttarsalinn, þrátt fyrir
það að opinberlega hafa verið
sagt, að réttarhöld þessi hafi
verið haldin fyrix opnum dyrum.
Samkv. frásögn TASS urðu
„almenn fagnaðarlæti", er Nina
Isakova dómari las upp dóms-
niðurstöðurnar. í forsendum dóm
Framh. á bls. 19
a