Morgunblaðið - 22.05.1971, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAl 1971
13
Halldóra Hallsteins-
dóttir - Minning
Árin og dagarnir aevinni
granda,
eitt fœr þó staðizt, sem
mennirnir sá:
Alit sem þú fómaðir öðrum
til handa
umlykur sólbjarma síunga
brá.
Já, Dóra mín, þessi orð komu
ósjálfrátt í huga minn fyrir
fjórtán árum síðan, þegar þú
náðir sjötugsaldri; það var eng-
in tilviljun, þvi hin fómfúsa
hetjulund þín var þitt aðals-
merki.
Nú, þegar þú ert horfin héðan,
koma mér í hug minningar
margra áratuga. Sú íyrsta er,
þegar ég sá þig bera systur
mina, máttlitla, í fanginu frá
heimili mínu og heim til þin, til
að styrkja hana og gleðja. í>að
endurtókst þú um árabil.
Það varst einnig þú, er lokaðir
augum móður minnar við andlát
hennar, og þegar einkadóttir
min íæddist varst þú fyrsta
manneskjan, er barst hana í örm-
um þér.
Þegar ég kynntist þér, eign-
aðist ég bezta vininn, sem ég hef
átt á þessari jörð meðal vanda-
lausra.
Átján ára að aldri varst þú
heitbundin Jóhannesi Jónssyni,
gáfuðum og góðum manni. Þú
sagðir okkur brosandi að hann
hefði getað verið faðir þinn,
hann var þá þrjátíu og sex ára,
en betra hjónaband hef ég ekki
þekkt.
Harmur þinn var þungur og
sár þegar hann lézt, eftir stutta
legu, fyrir þrjátíu og niu ámm
en sorgin var borin með
stillingu og trúarþreki, sem bar
þig uppi alla tíð.
Heimili ykkar var gestrisið svo
að af bar, enda var æsikuheimiii
þitt í Skorholti byggt yfir þjóð-
braut þvera og er enn í dag á
vegum systkina þinna þar.
Eftir lát manns þíns vannst þú
að matargerð, enda var þér eink-
ar hugleikið að fyila diska þeirra
og mali er áttu störfum að sinna
til sjós eða lands.
Síðustu árin eftir að heilsan
bilaði áttir þú heima hjá einka-
dóttur þinni, Haildóru, og njanni
hennar, Ástvaldi Bjarnasyni.
Betri son gat hún ekki gefið
mér, sagðir þú eitt sinn við mig.
Þeirra góða heimili og bömin
þeirra léttu þér siðasta áfang-
ann; þau vöktu yfir hverjum
andardrætti þínum þar heima og
siðast i sjúkrahúsi, þar til kall-
ið kom.
Elsku Dóra mín, þér fylgja í
dag hjartans þakkir um hálfa
öld og heitustu bænir mínar.
Nú styðst þú við höndina
styrku, sem bar þig uppi til ævi-
loka.
Þorvaidína Alafsdótt-ir.
F ramkvœmdastjóri
Samtök sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi óska að ráða
framkvæmdastjóra.
Upplýsingar um starfið gefur ölvir Karlsson, oddviti, Þjórsár-
túni (sími um Meiritungu).
Umsóknir sendist fyrir 16. júní nk. til Sambands íslenzkra
sveitarfélaga, Laugavegi 105, Reykjavík, pósthólf 5196.
STJÓRNIN.
Fró Somvinnuskólanum
Bifröst
Umsóknir um Samvinnuskólann Bifröst fyrir næsta vetur, vet-
urinn 1971—1972, skulu hafa borizt skrifstofu skólans, Sam-
bandshúsinu, Sölvhólsgötu, Reykjavík, fyrir 20. júní næstkom-
andi. Umsækjendur skulu hafa gagnfræðapróf eða landspróf
og þurfa Ijósrit af prófskírteinum að fylgja umsóknum. Vænt-
anlegir nemendur skulu yngstir verða 16 ára á yfirstandandi
ári.
Þeir, sem þegar hafa sótt um skóíavist, en ekki enn sent til-
skilin prófskirteini, þurfa að hafa sent þau fyrir sama tíma.
SKÓLASTJÓRI.
Westinghouse
Ytrabyrði úr ínabrenncfu stáli - Innrabyrði úr glerhúðuðu stáll - SJálfvirk affryst-
Ing - Stórt lokað frystihólf og frostskúffa - Glæsilegir og vandaðir - Hin viður-
kenndu Westinghouse gæði eru alltaf etfirsóttust -
Fæst hjá kaupfélögum um allt land.
Útsðhistaðir í Reykjavík: Liverpool og Domus Laugaveg?,
Dráttarvélar Hafnarstræti,
Rafbúð SÍS Ármúla 3.
A
Sambund isl. samvinnufélaga
Véladeild
Ármúla 3, Rvíb. simi 38 900
m
Ungir Islendingar
geta fengið frítt pláss að hluta á SNOGH0J FOLKEH0JSKOLE
á 6 mánaða vetrarnámskeiðinu nóvember—apríl.
Norrænir kennarar og nemar. Tungumál og valgrein að óskum
(m. a. sálarfræði og' uppeldisfræði, hjálp í viðlögum, munstur-
prentun og kjólasaumur).
Hér fáið þér gott tækifæri til menntunar.
Forstander Poul Engberg
Snoghdj Folkehþjskole
700 Fredericia.
ALLIR ÞEKKJA
loftplöturnar
og límið
Verzlið þar sem úrvalið er mest —
og kjörin bezt.
IH JÓN LOFTSSON HR
WÍB Hringbraut 121 íS 10 600
Keflavík — Suðurnes
Til sölu í Keflavík 5 herbergja einbýlishús við Suðurgötu.
ofarlega. Bilskúr og stór lóð.
4ra herbergja efri hæð við Hringbraut. Blskúr fylgir. Allt sér.
4ra herbergja hæð við Hringbraut.
2ja til 3ja herbergja íbúð við Austurgötu.
6 herbergja efri hæð við Austurbraut. Góður bílskúr.
Fokhelt raðhús og bílskúr við Greniteig. Skipti á 3ja til 4ra
herbergja íbúð æskileg.
5 herbergja eldra einbýlishús við Vesturgötu. Lág útborgun.
3ja herbergja íbúð við Kirkjuveg í steinhúsi.
Góð 130 fm hæð við Suðurgötu. Skipti á 3ja herbergja íbúð
æskileg.
VOGAR
Til sölu 120 fm einbýlishús, 16 ára.
GARÐUR
Til sölu steinsteypt einbýlishús í góðu standi. Eldhús, sam-
liggjandi stofur og 1 herbergi á hæðinni. 3 herbergi í risi.
Geta verið tvær ibúðir. Góður bilskúr fylgir.
GRINDAVÍK
Til sölu nýlegt einbýlishús með bilskúr. Skipti á góðri íbúð
í Reykjavík æskileg.
NJARÐVÍK
Til sölu góðar fasteignir í Ytri- og Innri-Njarðvik.
FISKISKIP
Höfum til sölumeðferðar sérstaklega góðan 170 lesta bát.
Byggður 1961.
FASTEIGNASALA VILHJALMS OG GUÐFINNS,
símar 1263 og 2376.
YFIRVINNUBANN
hins alvarlega ástands, sem hefur ver-
ið að skapast í lengd vinnutíma verzlunar-
fólks hefur stjóm Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur ákveðið, samkvæmt samþykkt fé-
lagsfundar þann 29. apríl sl„ að banna alla
yfirvinnu í þeim almennu verzlunum, sem hafa
opið lengur en heimilt er samkvæmt 7. grein
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
kjarasamnings V. R. við vinnuveitendur, þ. e.
til kl. 18.00 mánudag til fimmtudags, kl. 19.00
á föstudögum og kl. 12.00 á laugardögum.
Samkvæmt því er öllu afgreiðslufólki í hlut-
aðeigandi verzlunum óheimilt að vinna við af-
greiðslu eftir ofangreindan tíma frá og með
laugardeginum 22. maí 1971.