Morgunblaðið - 17.06.1971, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JUNl 1371
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Rilstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100
Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80.
Áskriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 12,00 kr. eintakið.
SAS í fargjaldastríði
við leiguflugfélög
$%%%%%%%%%%%%%%%%%
17. JUNI
-rV þessum þj óðhát íðardegi getur íslenzka þjóð-
in fagnað yfir unnum sigrum. Fyrir fáum árum
steðjuðu geysimiklir erfiðleikar að á sviði at-
vinnu- og efnahagslífs, en ótrúlega fljótt tókst
að rétta við, og við Islendingar búum nú við
meiri hagsæld en nokkru sinni áður.
Á erfiðleikaárunum sýndi íslenzka þjóðin, að
hún skilur enn sinn vitjunartíma. Menn öxluðu
byrðarnar möglunarlítið og sýndu furðumikið
jafnaðargeð, er nauðsynlegt var að grípa til
harðneskjulegra aðgerða af hálfu stjórnarvalda
til að rétta við fjárhag þjóðarinnar.
En þá sögu verður að segja eins og hún er, að
íslendingar eru gálausari, er allt leikur í lyndi,
og kom það raunar glöggt í ljós í kosningunum,
sem nú eru nýafstaðnar.
Þrátt fyrir hina almennu hagsæld, er nú ugg-
ur í brjósti manna, jafnt margra þeirra, sem í
kosningunum sigruðu, og hinna, sem lægri hlut
báru. Menn vita nú ekki, hvernig háttað muni
verða stjórn landsins, en hin svonefndu vinstri
öfl hyggjast nú taka höndum saman, hvernig svo
sem þar mun til takast.
Þegar er tekið að brydda á því af hálfu þeirra,
sem mest hafa barizt gegn þeirri utanríkisstefnu,
sem íslendingar hafa fylgt allt frá lýðveldisstofn-
un, að nú eigi að taka upp „nýja og sjálfstæða
stefnu“ eins og komizt er að orði. Með þessu er
við það átt, að gera eigi ísland varnarlaust, og
við eigum að segja okkur úr varnarsamtökum
lýðræðisþjóðanna.
Á sama tíma sem erlent herveldi seilist hér til
stöðugt meiri áhrifa og herðir á aðgerðum flota
síns í höfunum umhverfis landið, er það boðað,
að við eigum að fórna öryggi okkar. Að sjálf-
sögðu vita þeir, sem fyrir þessari stefnu berjast,
að þá mundi hið austræna herveldi herða hér
tökin, og enginn getur í dag sagt fyrir um það,
hvernig þá færi um sjálfstæði þessarar litlu
þjóðar.
Á þessu er ástæða til að vekja athygli einmitt
á þjóðhátíðardegi. Lýðveldi okkar stofnuðum við
fyrir rúmum aldarfjórðungi í þeim tilgangi að
varðveita frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar, en ekki
til þess að fóma því með gáleysislegri stefnu í
utanríkismálum.
En þótt þessar hættur steðji nú að íslenzku
þjóðinni, er vissulega ástæða til að treysta því,
að sá mikli meirihluti landsmanna, sem fylgj-
andi er samstöðu okkar með öðrum lýðræðis-
þjóðum, muni beita áhrifum sínum svo, að ekki
verði af áformum þeirra, sem vilja að hér skap-
ist tómarúm, sem yfirgangsmenn gætu fyllt,
hvenær sem þeim sýndist.
Við skulum þess vegna horfa vonglöð fram á
veginn, en ástæða er þó til, að hver og einn haldi
nú vö>ku sinni.
Sakaö um einokunaraðstöðu með undirboðum
MIKIÐ fargjaldastríð er raú
komið upp milli SAS og flug-
félagsmis Sterling Airways, en
síðamnefnda flugfélagið hefur
einkum íengizt við leiguflug
á Norðurlðndum. Hefur
Kjeld Rördam lögmaður og
formaður stjómar Sterling
Airways sagt, að fái SAS
einnig einokunaraðstöðu inin-
an leiguflugsinis á Norður-
löndum, þá muni afleiðingam-
ar verða þær, er til lengdar
lætur, að fargjöld með leigu-
flugi verði óhjákvæmilega
dýrari. Ber hann þær sakir á
SAS, að leiguflugfélagið
Scanair sé raumar ekkert
annað en deild innan SAS,
sem reyni nú með undirboð-
um að ryðja öðrum fiugfé-
lögum af markaðinum.
Þannig segir Rördam, að
Scanair hafi boðið sænisku
ferðaskrifstoíunni RESO, sem
Sterling hafi samning við
eins og er, að amnast flug
fyrir hana á 50% lægra verði
en Sterling. Þessu hefur aftur
á móti verið neitað af RESO,
sem segir, að eklkert flugfélag
sé þess megnugt að fljúga á
svo lágu verði.
En Rördam hefur ekki látið
neinn bilbug á sér finna held-
ur sagt:
— Það hlýtur að vera and-
stætt allri skynsemi, að SAS,
sem nýtur ríkisaðstoðar, geti
með því einu að koma á fót
sérstakri deild undir nafninu
Scamair keppt í leiguflugi við
ömnur flugfélög með skilyrð-
um, sem einkaflugfélögum er
algjörlega ofviða að standa
undir. Þar er greinilega um
ólöglega samkeppni að ræða
( við einkaframtakið, sem studd
er fjárhagslega með fé skatt-
greiðenda. Forsendan fyrir
þátttöku hims opin'béra í flug-
samvinnu á Norðurlöndum
náði til áætlumarflugs og ég
vil minna á, að í greinargerð
frá árinu 1950 frá dansk-
norsk-sænsku embættismanma
nefndinni er lögð áherzla á
það, að sameining flugferða
í Skandinavíu átti ©kki að ná
til flugferða utan áætlumar-
flugs, þar á meðal leigufíugs.
PRESTURINN ÓTTAST SAS
— Ef SAS-Scanair ætla sér
að vega aftan að Sterling Air-
ways, þá leikur ekki vafi á
því, að þeir fyrstnefndu hafa
fjárhagslegt bolmagn til þess.
Og þá vaikmar sú spurning,
hvort Sterling Airways muni
ekki deyja út í slíkri viður-
eign. Ég á erfitt með að trúa
því, að þetta sé það, sem æski-
legast sé, sagði séra Eilif
Krogager í blaðaviðtali er
hann var spurður álits um
þessa samkeppni innan
leiguflugsins. Og hann sagði
ennfremur: — Ég veit ekki,
hver áform SAS eru, en það
er viissulega unnt að ganga
svo langt, að Sterling Air-
ways verði þ\'ingað til þess
að gefast upp og þannig verði
lokað fyrirtæki, sem skapar
gjaldeyri (í Danmörku) og
veitir 1100 manns atvimnu.
Það næsta væri svo, hvort
T.iæreborg Rejser fengju
lifað áfram. En það væri
senmilega einn-ig kleft að
ryðja okkur til hliðar, ef
gengið er til hins ýtrasta í
undirboðssamkeppninni.
VILL SAMVINNU MILLI
SAS OG STERLING
— Ég hef árum saman látið
það í ljós við SAS og Sterl-
ing, að mér væri það óskilj-
anlegt, að þessi félög gætu
ekki komizt að samkomulagi,
því að það er jú rúm fyrir
bæði. Deilan hefur oft valdið
mér gremju, en nú komast
þessi félög ef til vill að sam-
komulagi, sagði Ove Guld-
berg samgöngumálaráðherra
Danmerkur í blaðaviðtali,
eftir að Sterling Airways
hafði látið í ljós óánægju yfir
hinni höxðu samkeppni frá
SAS-Scanair .
Það hefur verið ljóst í
mörg ár, að leiguflugið bitn-
aði á áætlunarfluginu og ég
hef sagt það margsinnis við
leiguflugfélögin, að þau ættu
það í hættu, að SAS gripi til
gagnaðgerða.
Þessi ummæli Guldbergs
samgöngumálaráðherra voru
einmitt viðhöfð vegna kvört-
unar flugfélags Tjöruborgar-
prestsios til yfirvaldanna, þar
sem sagði, að Scanair, leigu-
flugfélag SAS, beitti ólög-
legri samkeppni gagnvart
Sterling.
Séra Eilif Krogager — Er
verið að kippa grundvellinum
undan starfsemi hans á sviði
ferðamála?
SAMVINNA LEIGU-
flugfélaganna
Á föstudag í síðustu viku
komu fulltrúar 12 stærstu
leiguflugfélaga Norður-Ame-
ríku og Vestur-Evrópu sam-
an til fundar í Strassborg,
þar sem ákveðið var að koma
á fót alþjóðlegum samtökum,
er skori á allar ríkisstjórnir
heimis að afnema þær tak-
markanir, sem hindri leigu-
flugfélögin í samkeppni
þeirra við áætlunarílugfélög-
in, sem oft séu ríkisstudd.
Sterling Airways hefur
verið aðili að þessurn sam-
tökum frá upphafi og hefur ,
verið skýrt frá því af þess
hálfu, að fulltrúar flugfélag-
ainna tólf komi saiman til fund-
ar 12. júlí í París, þar sem
enn fleiri leiguflugfélög muni
gerast aðilar að samtökunum
Er haft eftir Helgstrand,
framkvæmdastjóra Sterling
Airways, að aðildarflugfélög-
in tólf annist nú um þrjá
fjórðu hluta alls leiguflugs og
fljúgi næstum jafn marga fer-
kílómetra eins og áætlumar-
flugfélögin.
Markmiiðið með stofnun
þessara nýj u flugaamtaka,
sem hafa fengið mafnið Inter-
national Air Charter Associa-
tion, er að koma á fót stofn-
un til mótvægis við IATA,
samtök áætlunarflugfélaga. í
samtökum þesisum eru nú
þegar auk Sterling Airways
tvö brezk flugfélög, Donaldson
og Britannia, þýzka flugfé-
lagið Atlantis, Sater í Sviss
og Spantex á Spáni. Hin sex (
aðildarfélögin eru stór ame- i
rísk leiguflugfélög. ,
Héraðsskólinn
á Laugarvatni
HÉRAÐSSKÓLANUM á Laugar-
vatni var slitið 28. niaí sl. Próf-
um Iiiku 104 nemendur, þ. á m.
20 gagnfræðaprófi og 21 iands-
prófi. Hæsta einkunn við skól-
ann fékk Gunnar M. Gunnars-
son, Grindavík, 8,40 á nnglinga-
prófi og Þórarinn Ölafsson,
Eyrarbakka, fékk 8,07 á lands-
prófi.
Hæstu emkurvn gagnfræðinga
hlaut Hólmfríður Jóhannsdóttir,
Brúnalaug, Öngulstaðahreppi,
7,21 og hæstu einkunn í 3. bekk
almennri bóknámsdeild, hlaut
Garðar Árnason, Böðmóðsstðð-
um, Laugardal, 7,98.
Við skólann störfuðu i vetur
auk skólastórans, Benedikts Sig-
valdasonar, sex fastir kennarar
og þrír stundakennarar. Þórar-
inn Stefánsson, smíða- og teikní-
kennari, iætur nú af störfum, en
hann he/ur kennt við skólann I
40 ár.