Morgunblaðið - 17.06.1971, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1971
17
Fleur
gömul, þegar hún byrjaði að
dansa, spila og leika og 7
ára gömul lék hún í fyrstu
kvikmyndinni, „Woman in
the Hall“. Faðir Susan er
efnaður verksmiðjueigandi,
og þegar móðir hennar fann
ekki nógu góðan skóla fyrir
dóttur sína ákvað hún að
standa undir kostnaði af
stofnun nýs skóla, þar sem
Susan gseti fengið þá mennt-
un, sem börnum betri borg-
ara hæfði. Þessi ákvörðun
móðurinnar hafði þó engin
áhrif á Susan — hún var
staðráðin i að gerast leik-
kona. Á unglingsárunum las
hún Shakespeare spjaldanna
á miilli og fljótlega „debút-
eraði“ hún hjá litlu áhuga-
mannaleikfélagi. Rúmlega
tvítug fékk hún fyrsta hlut-
verkið í West End í London
í söngleik, og síðan tók eitt
hlutverkið við af öðru. í
kvikmyndinnli „Dásamlegt
líf“, sem hún lék í árið 1962
ásamt Cliff Richard, varð
hún mjög vinsæl meðal ungl
inga — en var um leið sett
í flokk „ljóshærðra og blíð-
legra smástirna". Úr þeim
flokki hafa margar leik-
konur ekki átt afturkvæmt,
en Susan ákvað að staðna
ekki- þar. Hún vildi verða
„alvöruleikkona“.
Árið 1965, þegar franski
leikstjórinn Pierre Granier-
Deferre, var að undirbúa
kvikmynd áína „ParÍ3 i
ágúst“, vantaði hann stúlku
til að leika aðalhlutverkið,
unga enska st.úlku í sumar-
leyfi í París. Valið var erf-
itt, því í hönduinum hafði
hann myndir af 180 stúlkum,
sem til greina komu. Susan
varð hlutskörpust, og eins og
oft vill verða hreifst leik-
stjórinn af leikkonunni.
Hann elti hana til London
og þar gengu þau í hjóna-
band 15. apríl 1967.
Eftir kvikmyndaleikinn í
París fékk Susan sitt stóra
tækifæri, er henni var boðið
hlutverk Fleur í Forsyte-
ættinni. Þarf ekki að fara
mörgum orðum um þann
myndaflokk og sigurför hans
um 58 lönd — en eftir frum
sýninguna efaðist enginn um
að Susan Hampshire væri
„alvöruleikkona". Siðan
hefur tilboðunum rignt yfir
hana og með leik sínum í
Churchill-ættinni hefur hún
enn styrkt stöðu Sína. Ný-
lega lauk hún við að leika í
kvikmyndinni „Frjálst Mf“,
sem tekin var í Kenya og
sagt er að sú mynd muni
opna henni hlið Hollywood.
Milli þess sem Susan
Hampshire er að leika, gefur
hún sér þó tíma til að dvelj-
ast heima hjá manni sínum
og 8 mánaða syni þeirra, en
hann ber nafnið Christop-
her, eins og sonur Fleur í
Forsyteættinni,
ANDLIT brezku leikkonunn-
ar Susan Hampshiire er orð-
ið íslenzkum sjónvarps-
áhorfendum vel kunmugt,
þVí svo oft hefur hún birzt
á sjónvarpstjaldinu, fyrst
sem Fleur Forsyte og síðan
Sara Churchill. Meðan áhorf
endur hafa deilt um hvort
hún sé lagleg eða ekki hafa
þeir verið sammála um að
hún hafi einhvern „sjarma“,
sem geri þær Fleur og Söru
ógleymanlegar.
Susan Hampshire var ekki
Susan Hampshire með son sinn Christopher, sem nú er
orðinn 8 mánaða.
15. apríl 1967 giftist Susan franska leikstjóranum Pierre
Granier-Deferre.
Susan nampsmre er hér 7 ára að leika í kvikmyndinni
„Woman in the Hali“.
Skálmöld í Guatemala
Tugir manna myrtir daglega, öðrum rænt
SKÁLMÖLD ríkir í smárík-
inu Guatemaia í Mið-Ame-
ríku, án þess að það hafi vak-
ið teljandi athygli. um 5.000
manns hafa verið myrtir eða
hafa horfið fyrir tilverknað
nýkjörinnar ríkisstjórnar hers
og lögreglu landsins og hálf-
Íasistískra samtaka og í
skjóli neyðarástands og
strangrar ritskoðunar. Til-
gangurinn er að uppræta alla
pólitíska andstöðu. Ekkert
lát er á ógnunuum, og tugir
manna eru myrtir dag livern.
Ríkisstjórniin er löglega
kjörin og túlkar sigur siinn
í tnýlegum kosningum sem
umboð frá kjósendum til þess
að heyja leynilega baráttu
gegn skæruliðum í tveimur
frumstæðum fylkjum og til
þess að berjast með valdi gegn
löglegum og ólöglegum sam-
tö’kum róttækra og vinstri
sinnaðra stjórnarandstæðinga.
Blöð og útvarp segja daglega
frá mannránum. Daglega
finnast lí'k, sem efkfki tekst að
bera kenmisl á. Einn daginin
sögðu blöðin í Guatemala frá
14 man.nránum, og það þótti
ekkert einsdæmi. Daglega
eru að auki framin álíka mörg
mannrán, sem aldrei er sagt
frá opinberlega.
• VOPNAÐIR ÞINGMENN
Fulltrúar erlendra ríkja eru
í senin skelfingu lostnir og
fokreiðir vegna mannrán-
anina. Einn sendiherra, Vest-
ur-Þjóðverjinn Karl von
Spreti hefur þegar verið
myrtUr. í þinginu úir og grú-
ir af vopnuðum lífvörðum.
Á einum þingfundi voru 11
þingmenn vopnaðir vélbyss-
um. Lögreglumenn, embætt-
ismenin, blaðamenn og marg-
ir aðrir hafa fengið sér líf-
verði. Skari vopnaðra líf-
varða fylgist með hverju
fótskrefi forsetans, Arana
ofursta, í livert sinn sem hann
yfirgefur forsetahöllina. Sjálf
ur gengur hann alltaf með
skammbyssu.
Skálmöldin er runmin und-
an rifjum neðanjarðarhreyf-
ingar stjórnarandstæðinga,
sem stjórn Arana leggur allt
kapp á að brjóta niður. Afls-
munarbarátta milli stjórnar-
imtnar og þriggja helztu
Skæruliðasamtakanma hefur
vofað yfir síðan Arana var
kjörinn forseti í júní í fyrra.
Hann sagði nýlega í einu
fárra blaðaviðtala, sem hafa
verið höfð við hann: „Komm-
únistar eru fábjánar. Ef þeir
væru ekki fábjánar, væru
þeir ekki kommúniistar.11
Arana lét til skarar Skríða
gegn hreyfingum Skæruliða
(ein þeirra hallast að stjórn-
imni í Havana og önnur nýtur
stuðnings Peking-stjórnarinn-
ar, sú þriðja fylgir stefnu
Trotskys) þegar hann komst
að raun um, að þær höfðu
fótfestu í Mexíkó. 13. nóvem-
Framh. á bls. 18
Nytt
orgel
í Skarðs-
kirkju
VIÐ ferniingargiiðsþ.jóiuistu i
Skarðskirk.jn á Landi s.1. hvíta-
sunmidag va.r nýtt org«4 — harni
onium tekið í notkun við guðs-
þjónustuna.
Áthöfnin hófst með því, að
kirkjukórinn söng sálmavers án
undirleiks, en síiðan heligaði sókn
arpresturinn, sr. Hannes Guð-
mundsson, hljóðfærið, um leið
og hann þakkaði öllum þeim,
sem á einn og annan hátt höfðu
stuðlað að því, að kirkjan eign-
aðist þennan góða grip. Lék org
anisti kirkjunnar, Anna Magnús
dóttir, síðan á orgelið præludium
eftir J. S. Bach, og fór guðsþjón-
ustan síðan fram með venjuleg-
um hætti. Hið nýja orgel var
smíðað í orgelverksmiðju Vest-
re‘s í Noregi og er með tveim
hlijómtoorðum og fótspili.
Fyrir nokkrum áratugum var
Orgelisjóður Skarðskirkju stofn-
aður, m.a. fyrir frumkvæði
Magnúsar Jónssonar, bónda á
Hellum í Landsveit, sem ávallt
síðan hefur annazt vörzliu sjóðs
ins. Hafa sjóðnum á undanförn-
um árum borizt höfðinglegar
gjafir og nú siðast kr. 100 þús-
und frá Jónínu H. Kristófers-
dóttur frá Vindáisi í Landsveit,
nú til heimilds að Lokastíg 28A
í Reykjavík. Ennfremur hefur
Bragi Hinriksson prentmynda-
smiður og kona hans, til heim-
ilis að Digranesbletti 68 í Kópa-
vogi, gefið orgelsjóðnum and-
virði mynda, sem hann gerði af
Skarðskirkju og nam sú upphæð
kr. 25 þúsund.
(Frá Skarðskirkju.)
Reykjanes
KOSNINGAHÁTÍÐ starfsfólks
D-listans í Reykjaneskjördæmi
verSur haldin í Súlnasal Hótel
Sögu miðvikudagiim 23. júní n.k.
(Fréttatilkynning frá Kjör-
dæmisráðinu).