Morgunblaðið - 14.07.1971, Side 1
32 SIÐUR
154. tbl. 58. árg.
MIÐVÍKUDAGIJR 14. JULl 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Upplýsingar Marokkóstjórnar:
93 biðu banaí átökunum
Herforingjarnir 10 skotnir í gær
Hrópuðu: ,Lengi lif i konungurinn4
Rabat, Marokkó, 13. júlí — AP
TÍU helztu forsprakkar upp-
reisnarinnar í Morokkó sl.
laugardag — allir háttsettir
herforingjar, þar af fjórir
hershöfðingjar — voru teknir
af lífi i dag í einni af stöðv-
um hersins skammt frá Rahat.
Segir í opinberri tilkynningu
stjórnarinnar um aftökurnar,
að mennirnir hafi allir hróp-
að: „Lengi lifi konungurinn“
áður en skot aftökusveitar-
innar riðu af. Áður hafði
verið haft eftir stjórnarheim-
ildum, að mennirnir hefðu
verið skotnir í dögun á mánu-
dag, að staðartíma, en þessar
upplýsingar eru nú sagðar
rangar; mennirnir hafi allir
verið skotnir kl. 11.15 GMT
í dag.
í tilkynnmgu stjórnarinnar
var aftökunni lýst mjög nákvæm
lega. Sagði þar, að mennirnir
hefðu verið færðir á aftökustað
inn í herflutningabifreið, hand-
járnaðir en klæddir einkennis-
búningi hersins ,,sem þeir höfðu
svívirt“ eins og segir í tilkynn
ingunni. Mennirnir voru bundn
ir við staura með tíu metra
Franihald á bls. 14.
Skýrsla UNICEF:
Austur-pakistanskir flóttamenn
í Indlandi nú 6,7 milljónir
Hætta á barnaveiki og
malaríu yfirvofandi
Á þessari mynd sést hvar hinn nýi forsætisráðherra Ólafur Jó-
hannesson, gengur á fund forseta íslands i Alþingishúsinu i gær-
morgun.
Nýju Delhi, 13. júlí — NTB
í SKÝRSLU, sem skrifstofa
UNICEF — Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna — í
Nýju Delhi hefur sent frá sér,
segir, að yfirvofandi hætta sé
á því, að barnaveiki og mala-
Stjórnarskipti í dag
Stjórn Ólafs Jóhannessonar tekur við á ríkis
ráðsfundi síðdegis
Viðreisnarstjórninni veitt lausn
eftir 12 ára stjórnarferil
□-
Sjá grein á bls. 14.
□-
-□
-□
Á RÍKISRÁÐSFUNDI, sem
haldinn verður að Bessastöð-
um kl. 3.30 í dag, mun hið
nýja ráðuneyti Ólafs Jóhann-
essonar formlega taka við
völdum. Ólafur Jóhannesson
gekk í gærmorgun kl. ellefu
á fund forseta íslands í skrif-
stofu hans í Alþingishúsinu
og skýrði honum frá mál-
efnasamningi Framsóknar-
flokksins, Alþýðuhandalags-
ins og Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna. Fundurinn
stóð í um það bil hálfa
klukkustund og að honum
loknum var ráðherralistinn
birtur. Stefnuyfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar verður hins
vegar ekki birt fyrr en að
loknum ríkisráðsfundinum í
dag.
Ráðherralistinn, sem Ólafur
Jóhannesson lagði fyrir forseta
fslands í gær, er þannig skipað-
ur:
1. Ólafur Jóhannesson fer með
forsætisráðuneytið og dóms-
og kirkjumálaráðuneytið.
2. Einar Ágústsson fer með utan-
rikisráðuneytið.
3. Halldór E. Sigurðsson fer með
fjármálaráðuneytið og land-
búnaðarráðuneytið.
4. Hannibal Valdimarsson fer
með félagsmálaráðuneytið og
samgönguráðuneytið.
5. Lúðvík Jósepsson fer með
sjávarútvegsráðuneytið og við-
skiptaráðuneytið.
6. Magnús Kjartansson fer með
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið og iðnaðarráðuneytið.
7. Magnús Torfi Ólafsson fer
með menntamálaráðuneytið og
Hagstofu Islands.
Eins og áður segir verður rík-
isráðsfundur settur á forseta-
setrinu að Bessastöðum kl. 3.30
í dag. Á þeim fundi mun forseti
íslands setja ákvæði um skipun
og skiptingu starfa ráðherra. Að
ríkisráðsfundinum loknum munu
hinir nýju ráðherrar ganga inn
í ráðuneytin og taka við störf-
um.
Forseti fslands fól Ölafi Jó-
hannessyni að gera tilraun til
stjórnarmyndunar 19. júní sl.
Þann sama dag kom viðræðu-
nefnd flokkanna þriggja saman
til fundar. Alþýðuflokknum var
boðin þátttaka í viðræðunum 25.
júní sl., en hann hafnaði tilboð-
inu. Laugardaginn 10. júlí sl.
gaf Ólafur Jóhannesson síðan út
fréttatilkynningu, þar sem greint
var frá þvi, að flokkarnir þrír
hefðu náð samkomulagi um
málefnasamning og verkefna-
skiptingu.
Framh. á bls. 14
ría brjótist út meðal flótta-
mannanna frá A-Pakistan.
Segir í skýrslunni að tala a-
pakistanskra flóttamanna í
Indlandi sé nú komin upp í
6,7 milljónir.
f skýrslunni kemur einnig
fram, að sjúkdómar af völdum
vannæringar fara vaxandi og er
talin brýn nauðsyn á að hefja
þegar í stað úthlutun eggjahvítu-
efnaauðugrar fæðu til a.m.k.
IV2 milljónar barna og mæðra.
Mesta vandamálið varðandi
flóttafólkið er nú skortur flutn-
ingjatækja og er tekið fram, að
það vandamál verði að leysa þeg-
ar í stað. Verði æ erfiðara að
koma birgðum með bifreiðum og
lestum frá Kalkútta til flótta-
manna þar fyrir austan. Nú dugi
ekkert minna en loftbrú, þannig
að flytja megi a.m.k. 200 lestir
matvæla á dag. Brýnustu hús-
næðisvandræðin eru nú leyst, að
því er segir í skýrslunni, og er
það þakkað aðstoð erlendis frá
— hins vegar ber brýna nauð-
syn til að bæta hreinlætisað--
stöðu meðal flóttafólksins, ekki
sizt vegna farsóttahættunnar.
Grúsísku Gyð-
ingunum hót-
að handtökum
Halda áfram hungurverkfallinu
Moskvu, 13. júlí — AP-NTB
LÖGREGLAN i Moskvu hótaði
síðdegis í dag að handtaka grús-
ísku Gyðingana, sem frá þvi í
gærmorgun hafa verið í hung-
urverkfalli. Eru þeir þar með að
árétta kröfur sinar um að yfir-
völd leyfi þeim að flytjast úr
landi til ísraels. Talsmaður Gyð-
inganna segir, að þeir muni ekki
New York Times:
Ræður Kennedy
forsetaframboði
frá
New York, 13. júlí — AP
BANDARÍSKA dagblaðið New
York Times birtir í dag ritstjóm
argrein, þar sem það ræður
Edward Kennedy öldungadeildar
þingm. frá því að sækjast eftir
forsetaembætti Bandaríkjanna á
næsta ári. Röksemd blaðsins er
sú, að atburðurinn við Chappa
quidick 1968, þar sem Mary Jo
Kopechne drukknaði er bifreið
Kennedys fór út af brú, sé fóiki
enn minnisstæður og vegna þess
að hegðun Kennedys þá hafi
orðið til þess að dómgreind lians
nú sé dregin í efa.
f ri’tstjórnargreininni segir að
hinn mikli fjöldi hugsanlegra
forsetaefna Demókrataflokksins
beri vitni um sigurvissu hans
yfir Nixon forseta. Blaðið fjall
ar síðan um hina ýmsu menn,
sem til greina koma og segir um
þá Hubert Humphrey fyrrver-
andi varaforseta og forsetaefni
1968, og Kennedy að hegðun
beggja á erfiðum stundum hafi
gefið ástæðu tii að draga dóm-
greind þeirra í efa. Humprey
hafi opinberlega lýat yfir stuðn
ingi sínum við stefnu Johnsons
í Víetnam, en persónulega hafi
hann efast um að hún væri rétt.
Kennedy hafi eftir Chappaquidd
ickatburðinn ekki sýnt þá
Framhald á bls. 14.
gefa sig, hvað sem öllum hand-
tökuhótunum liði.
Upphaflega voru Gyðingarnir
27 talsins og settust þeir fyrst
að í byggingu þingsins í Kreml.
Sögðust þeir ætla að bíða þar
eftir svari við símskeyti, sem
þeir höfðu sent Podgorny, for-
seta, en þar báðu þeir um brott-
fararleyfi. Þegar þinghúsinu var
lokað, án þess þeir fengju svar,
fluttu Gyðingarnir sig yfir i að-
alsímstöð Moskvuborgar, sem op-
in er allan sólarhringinn. Þar
hafa þeir síðan setið. Sex menn
hafa bætzt i hópinn og er jafn-
vel búizt við að fleiri gangi I lið
með þeim. Sumir Gyðinganna
segjeist hafa sótt um brottfarar-
leyfi fyrir allt að því tveimur
árum en engin svör fengið enn--
þá.
NTB hefur eftir áreiðanlegum
heimildum, að sovézk yfirvöld
hafi verið heldur fúsari að und-
anförnu en áður til að veita
Gyðingum brottfararleyfi. Hafi
um 1300 Gyðingum verið veitt
slíkt leyfi í júnímánuði einum
og að sögn AP hafa m.a. ýmsir
forystumenn samtaka Gyðinga
fengið að flytjast til Israels ný-
lega. Ekki sýnist þetta þó nærri
Framhald á bis. 25.