Morgunblaðið - 14.07.1971, Side 14
MORGUNHLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. JÚLl 1971
Vinstri stjórn
Olafs Jóhannessonar
í DAG tekur við störfum ný
ríkisstjóm undir forsæti
Ólafs Jóhannessonar, for-
manns Framsóknarflokksins.
Fimm ráðherrar í ríkisstjóm-
inni taka nú í fyrsta sinn við
ráðherraembættum. Tveir
ráðherranna í hinni nýju rik-
isstjóm, Hannibal Valdimars-
son og Lúðvík Jósepsson,
áttu sæti í ríkisstjóm Her-
manns Jónassonar 1956 til
1958 og gegna nú að mestu
sömu embættum. Hér á eftir
verður getið helztu atriða í
starfsferli ráðherranna:
ÓLAFUB JÓHANNESSON
' verður forsætis-, dóms- og kirkju-
málaráðherra. Hann er fæddur
1. marz 1913. Ólafur varð stúd-
ent frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1935 og cand. juris frá Há-
skóla íslands 1939, og síðan við
framhaldsnám í Stokkhólmi og
Kaupmannahöfn 1945 til 1946.
Lögfræðingur og endurskoðandi
hjá Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga 1939 til 1943; fram-
kvæmdastjóri félagsmáladeildar
og lögfræðilegur ráðunautur
SfS 1944 til 1947. Settur prófess-
or við lagadeild Háskóla fslands
1947 og hefur gegnt þvi embætti
síðan. Hann var formaður FUF
1941; formaður Framsóknar-
félags Reykjavíkur 1944 til 1945.
1 miðstjórn Framsóknarflokks-
ins frá 1946; hann var kjörinn
varaformaður Framsóknarflokks
ins 1960 og formaður 1967. Ólaf-
ur Jóhannesson var fyrst kjör-
inn á Alþingi 1959 og hefur átt
steti þar síðan, en hann tekur nú
í fyrsta sinn við ráðherra-
embætti.
, EINAR ÁGÚSTSSON verður
utanríkisráðherra. Hann er fædd-
ur 23. september 1922. Stúdent
frá Menntaskólanum I Reykja-
vik 1941 og cand. juris frá Há-
skóla fslands 1947. Einar var
skrifstofustjóri Sölunefndar vam
arliðseigna 1947; starfsmaður
fjárhagsráðs 1947 til 1954; full-
trúi í fjármálaráðuneytinu 1954
til 1957. Einar var spaiisjóðs-
stjóri Samvinnusparisjóðsins
1957 til 1963 og bankastjóri Sam-
vinnubankans hefur hann verið
Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra.
Lúðvík Jósepsson,
sjávarútvegsráðherra.
siðan 1963. Einar Ágústsson var
formaður Framsóknarfélags
Reykjavíkur 1957 til 1960; í mið-
stjórn Framsóknarflokksins frá
1958 og varaformaður flokksins
frá 1967. Hann hefur átt sæti i
borgarstjórn Reykjavíkur frá
1962; fyrst kosinn á Alþingi 1963
og hefur átt þar sæti siðan. Ein-
Halldór E. Sigurðsson,
fjármálaráðherra.
Magnús Kjartansson,
iðnaðarráðherra.
ar Ágústsson hefur ekki gegnt
ráðherraembætti áður.
HALLDÖR E. SIGURÐSSON
verður f jármála- og landbúnaðar-
ráðherra. Hann er fæddur 9.
september 1915. Brautskráður
frá héraðsskólanum í Reykholti
1937 og búfræðingur frá Hvann-
Hannibal Valdimarsson,
félagsmálaráðherra.
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra.
— Marokkó
Framhald af bls. L
millibili og síðan formlega svipt
iir öllum tignarmerkjum sínum.
Þegar mennirnir höfðu verið
skotnir, hlupu til fulltrúar land
hers, flota og flughers og spýttu
ÞEGAR uppreisnartilraimin
gegn Hassan n. konungi í
Marokko hafði verið gerð sJ.
laugardag, fól hann innanrík-
tsráðherra landsins, Oufkir,
hershöfðingja að hafa um-
sjón með öllum aðgerðum
gegn uppreisnarmönnum. Hef
ur hann stjómað leit að upp-
reisnarmönnum og aftökum
herforingjanna tíu.
á lík hinna föllnu. „Réttlætinu
hafði verið framfyigt“, sagði að
lokum í tilkynningunni.
UPPREISNARMANNA
LEITAÐ
Allt er sagt með kyrrum kjör
um í Marokkó í dag. Hermenn
hafa haldið uppi víðtækri leit
að uppreiisnarmönnum m.a. var
leitað í öllum skipum í höfn-
inni í Casablanca og haft er eft
ir góðum heimildum, að borg
arstjórinn þar, Sedik Abon
Ibrahimi hafi verið handtekinn.
Hann er sagður hafa verið ná-
inn vinur Medbouhs, hershöfð-
ingjans, sem stjómaði uppreisn
inni og féll í átökunum í höll
inni, fyrir skotum sinna eigin
stuðningsmanna.
Þá kemur fram i opinberri
tllkynningu Lybíustjómar, að
hermenn Marokkóstjórnar hafi
þjarmað að sendiráði Lybáu í
Rabat og starfsmönnum þetss.
Krafðist Lybíustjórn þess, að
þeim yrði séð fyrir vernd, en
þeir væru nú nánast fangar
stj órnarhersins.
EGYPTAR VILJA
MIÐLA MÁLUM
Hussein, Jórdaníukonungur
fór heimleiðis í dag eftir sólar
hringsdvöl í Marokkó, en hann
kom þangað til að lýsa samúð
og stuðningi við Hassan konung.
Þá gekk sérstakur fulltrúi An-
wars Sadats, Egyptalandsfonseta
á fund konungs í dag og afhenti
honum pensónulega orðsendingu
Sadats. Er talið, að Sadat muni
reyna að miðla málum milli
Marokkó og Lybíu, sem lýsti op
inberlega stuðningi við upp-
reisnarmenn. Hélt útvarpið í
Trípolí áfram andróðri gegn
Hassan konungi enn í dag ogl
hvatti uppreisnarmenn í Mar-
okkó til að gefast ekki upp við
að koma honum frá völdum, þó
svo illa hafi tekizt í þetta sinn.
f AP-frétt segir, að stjóm Mar
okkó hafi kallað út allt varalið
landsins og tilkynnt, að það
eigi að vera komið til æfinga
l. ágúst. Er þetta talið liður í
endurskipulagningu hersins eft-
ir uppreisnina, en hann hefur
nú misst marga háttsetta og
reynda foringja.
Af hálfu stjórnarinnar er
sagt, að 93 menn hafi týnt Iífi
í átökunum við sumarhöll kon
ungs á laugardaginn, áður hafði
verið talað um að 27 manns
hefðu látizt.
Margir gestanna höfðu verið
skotnir þegar þeir reyndu að
rökræða við uppreisnarmenn —
og margir -voru skotnir á flótta,
þar á meðal belgíski sendiherr
ann, Marcel Dupret. Þá segir í
fréttum istjórnarinnar, að þrír
menn hafi látizt af völdum skot
sára í sjúkrahúsi í dag en nærri
200 manns séu ennþá í sjúkra
húsum og sumir illa særðir,
m. a. hafi orðið að taka aðra
höndina af Hassan Ouazzani, for
manni eins þeirra stjómmála-
flokka, sem styðja Hassan kon-
ung.
— Stjórnarskipti
Framhald af bls. 1.
Samsteypustjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins,
viðreisnarstjórninni, sem setið
hefur að völdum frá þvi haustið
1959, verður veitt lausn frá störf-
um á ríkisráðsfundi, er haldinn
verður laust fyrir hádegi í dag.
Þar með er lokið lengsta stjórn-
arsamstarfi stjórnmálaflokka á
Islandi.
— Kennedy
Framhald af bls. 1.
skörpu og hreinu dómgreind,
sem almenningur hafi rétt til að
krefjast af háttsettum embættis
manni.“ Síðan segir blaðið. „Af
þessari ástæðu einni væri heppi
legast fyrir Kennedy að sækjast
ekki eftir forsetaembættinu á
næsta ári.“
Skoðanakönnun á vegum Lou
is Harris, sem birt var í New
York í dag sýnir, að ef kosið
yrði um forseta núna, fengi Nix
on forseti 44%, Edward Kenne
dy 36% og George Wallace
13%. 7% höfðu ekki myndað
sér ákveðna skoðun. Könnunin
leiddi í ljós að Kennedy á
mestu fylgi að fagna meðal
blökkumanna, eða 71%, en Nix
on 13% og Wallace 2%. Meðal
fólks undir 30 ára aldri voru
45% fylgjandi Kennedy, 37%
Nixon og Wallace 11%. Meðal
kjósenda yfir 50 ára aldri hafði
Nixon fylgi 54%, Kemnedy 27%
og Wallaoe 12%.
Ólafur Jóhannesson,
forsætisráðherra.
eyri 1938. Halldór var síðan
bóndi að Staðarfelli í Dalasýslu
1937 til 1955. Sveitarstjóri I
Borgarnesi 1955 til 1967. Kjörinn
á Alþingi 1956 og hefur átt þar
sæti óslitið síðan. Halldór E. Sig-
urðsson tekur nú í fyrsta sinn
við ráðherraembætti.
HANNIBAL VALDIMARSSON
verður nú félags- og samgöngu-
málaráðherra. Hann er fæddur
13. janúar 1903. Gagnfræðingur
frá Akureyri 1922 og kennara-
próf frá Jonstrups Statssemin-
arium 1927. Starfrækti smábama
skóla á Isafirði 1927 til 1928;
skólastjóri barnaskólans á Súða-
vík 1929 til 1931; skrifstofumað-
ur hjá Samvinnufélagi Isfirð-
inga 1929 til 1938. Skólastjórl
gagnfræðaskólans á Isafirði 1938
til 1954. Hannibal Valdimarsson
átti sæti i bæjarstjórn Isafjarð-
ar 1933 til 1949. Forseti Alþýðu-
sambands Islands óslitið frá
1954. Formaður Alþýðuflokksins
og ritstjóri Alþýðublaðsins 1952
til 1954; formaður Alþýðubanda-
lagsins 1956 til 1968. Formaður
Samtaká frjálslyndra og vinstri
manna frá stofnun 1969. Hanni-
bal hefur verið alþingismaður
frá 1946; hann var félags- og
heilbrigðismálaráðherra i vinstri
stjórninni 1956 til 1958.
LÚÐVÍK JÓSEPSSON verður
nú sjávarútvegs- og viðskipta-
málaráðherra. Hann er fæddur
16. júni 1914. Gagnfræðingur frá
Akureyri 1933; kennari við gagn-
fræðaskólann á Neskaupstað
1934 til 1943. Starfaði að útgerð
1944 til 1948. Forstjóri Bæjarút-
gerðar Neskaupstaðar 1948 til
1952. Forseti bæjarstjórnar í
Neskaupstað 1942 til 1943 og 1946
til 1956. Lúðvík var kjörinn á
Alþingi 1942 og hefur átt þar
sæti síðan; hann er nú formað-
ur þingflokks Alþýðubandalags-
ins. Sjávarútvegs- og viðskipta-
ráðherra i vinstristjórninni 1956
til 1958.
MAGNÚS KJARTANSSON
verður nú iðnaðar-, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra. Hann
er fæddur 25. febrúar 1919.
Stúdentspróf frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1938 og cand.
phil. frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1941; við verkfræðinám í
Kaupmannahöfn 1938 til 1940 og
norrænunám i Kaupmannahöfn
1940 til 1943 og síðar við háskól-
ana í Lundi og Stokkhólmi.
Magnús varð ritstjóri Þjóðvilj-
ans 1947 og hefur verið það síð-
an. Hann átti sæti í miðstjórn
Sósíalistaflokksins frá 1949 og 1
framkvæmdanefnd frá 1957.
Fyrst kjörinn á Alþingi 1967 og
tekur nú við ráðherraembætti í
fyrsta sinn.
MAGNÚS TORFI ÓLAFSSON
verður nú menntamálaráðherra.
Hann er fæddur 5. maí 1923.
Stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1944. Blaðamaður við
Þjóðviljann 1945 til 1959; rit-
stjóri Þjóðviljans 1959 til 1962;
síðan við störf hjá bókaverzlun
Máls og menningar. Magnús
Torfi var formaður Alþýðubanda
lagsins í Reykjavik 1966. Hann
var fyrst kjörinn á Alþingi nú
í sumar og tekur nú í fyrsta sinn
við ráðhérraembætti.