Morgunblaðið - 16.07.1971, Síða 3
MORGUMKLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLl 1971
3
Umsagnir
íslenzkra
skákmanna
- um einvígi Larsens og Fischers
fcKÁKl XX KNIH R fylgjast af
happi með sUákeinvígum þeim
sem nú fara fram í Denver
í Coiorado milli Bobby Fischers
og Bent Larsens annars vegar
©g bins vegar milli Tigran
Petrosjan og Viktor Forchnoi í
Moskvu. Af þessum einvigum
vekur einvígi þeirra Fischers og
Larsens að sjálfsögðu miklu
meiri athygli vegna þeirra ein-
stöku úrslita sem þar hafa orðið
til þessa, FLscher hefur unnið
allar fjórax skákirnar, sem
tefldar liafa verið i þessu tíu
skáka einvígi. Morgunblaðið
sneri sér f gær til nokkurra
kunnra íslenzkra skákmanna og
spurði þá álits á þessu einstæða
einvígi:
Friðrik Ólafsson sagði: — Ef
Fischer heldur áfram þessum ein
stefnuakstri sé ég ekki fram á
annað en keppinautar hans geti
farið að leita sér að öðrum
starfa. —- Ég er alveg hlessa á,
hve hann hefur teflt af miklu
öryggi í einviginu við Larsen.
Horaum verðuir ekki á skyssa og
andstæðingur hans finnur engan
snöggan blett á honum. Það
kæmi mér ekki á óvart þótt Lar-
eem færi eitthvað að draga úr yf-
irlýsingum sínum í framtíðinni
og sjálfstraustið virðist nú ekki
vera eins óbilað og oft áður. —
Þverrandi sjálfstraust má teljast
eðlileg afleiðing þess, að tefla við
andstæðing eins og Fischer. Hitt
finnst mér aftur á móti ótrúlegt
að þessar tölur, 4—0, sýni hinn
raunverulega mun á þessum
tveimur skákmönnum.
Margir eru farnir að líta á
Fischer sem kynjaveru, sem lað-
ar til sín vinninga og fær meira
út úr skákunum én efni standa
til. En hvað sem því líður þá
teflir hann mjög vel og ég tel
engan vafa á því, að Fischer
fari ekki aðeins með sigur af
hólmi úr einvígi hans við Lar-
sen, heldur einnig i næstu um-
ferð. Það verður síðan gaman að
sjá einvígi Fischers og Spasskys.
Einvigi það verður mikil og hrika
lega rimma og þori ég ekki að
spá þar um úrslit. En eitt er víst
að eikki verða núllin á anraan
veginn þar.
Sigur Fischers
einsdæmi í skáksögunni
Baldur Möller sagði:
Einvígi þeinra FischerB og Lars-
erus, í framilialdi af einvígi Fisc-
hers og Taimianoff, er hreinlega
einsdæmi i skáksögunni, en töl
fræðilega séð er útilokað að
Fischer geti haldið þessutm stöð-
ugu sigrum áfram. — Hitt er
svo annað mál að þegar er ljóst
að Fischer hlýtur að faxa með
sigur af hóimi úr yfirstand-
einvígi, og segja má að einvíg
iniu sé í raun og veru þegar
lokið, því útilokað er að Lar-
sen vinni allar skákimar, sem
ótefldar eru. Sálfræðileg atriði
útiloka þann möguleika.
Að undanfömu hefur mér
Bobby Fischer
fundizt Fischer birtaist í nýju
ljóisi. Áður fyrr leniti hamn imjög
oft í árefcstrum við umihveríi
sitt og hafði ekki nægilegt vald
yfir skapsmunum sínum. Þetta
hefur hvort tveggja breytzt og
hefur það í för með sér að
hann getur teflt aí meira öryggi
og með auknum styrkleika, sem
kemur glöggt fram í einvíginu
við Larsen.
Velgengni Fischers í einvíg-
inu við Larsen hlýtur að vefcja
ugg í brjósti andstæðing's hans
í næstu urnferð og gefur það
honum tilefni til þess að vera
vongóður um framhaldið. í ein
vígi hans við Spasslky koma aft-
ur imn fleiri atriði. Spassky er
mjög sterkur og Fischer hefur
oft gengið þunglega á móti hon-
um á mótum og er því hæpið
að spá um úrsiit í einvígi
þeirra.
Yfirkurðir Fischers
með ólíkindum
Ingi R. Jóhannsson sagði: Ég
hef ekki fylgzt með öllum skák-
um þeirra Fischers og Larsens
en af þeim sem ég hef séð dreg
ég þá ályktun að Fischer tefli
mjög vel, en Lansen undir styrk-
leifca. Það er með ólíkinduim að
þegair tveir menn í svipuðum
gæðaflókki tefla hvort á móti
öðrum, að anraar þeirra vinni með
jafn miklum yfirburðum og raun
ber vitni um. — í þessu sam-
bandi er þó ekki óeðlilégt að
minniast einvígis þeirtra Taiman-
offs og Fischers, sem fór fram
fyrir skömmu, en þá vann Fisch-
er andstæðing sinn 6—0, en
miðað við gæði taflmennskunnar
Bent Larsen
í þesisu ednvígi hefðu úrslitin
hæglega geta OTðið 2% vinndngur
á móti 1 Vz. Svo virðist sem Lar-
'sen nái ekki sömu töfcum á
Filscher og Taimianoff miðað við
taflmennsfcu þvi Larsen hefur
bæði leikið af sér og leifcið veikt
á köflum. — Ekki tel ég að þetta
istafi af vanmáttarkennd Larisens
gagnvairt Fischer, heldur mætti
frekar kenma þama um of djörf-
um leik Larsens.
í dag er Larsen sagður veikur,
en ég tel að hann sé að safna
Framh. á bls. 8
Ingi R. Jóhannsson
DOMUDEILD:
HERRADEILD
KÁPUR
RÚSKINNSJAKKAR
— KAPUR
— STUTTB.
PEYSUR — STUTT-
ERMA & LANGERMA
BLÚSSUR
STUTTERMA
SAFARI-JAKKAR
GALLABUXUR
BELTI
STUTT JAKKAR
BOLIR
PRJÓNUÐ STUTT-
BUXNASETT
FÖT UR DENIM
FRAKKAR ÚR
DENIM
STAKIR JAKKAR
ÚR DENIM
PEYSUR — STUTT-
ERMA
VESTI
GALLABUXUR
SKYRTUR — STUTT
ERMA
BOLIR
BELTI
RÚSKINNSJAKKAR
©
'Á
ST/VKSTEINAR
Hvar er
hrollvek j an“?
Stefnuyfirlýsing ríkisstjómar-
innar, sem felst í málefnasamn
ing-i stjórnarflokfcanna, er aSS
mörgu Icyti kynlegt plagg. Fyr
ir kosningar héldu talsmenn
þessara flokka fram, að 1. sept
ember n,k. stæði þjóðin frammi
fyrir ógnvekjandi efnahagsörðug
leikum og „hrollvekju“. Ekki
bentu þessir aðilar þó á neinar
leiðir til lausnar þessum mikla
vanda, sem þeir sáu í hílling-
um. Fráfarandi rikisstjóm benti
þegar fyrir kosningar á, að
staða þjóðarbúsins væri góð,
þannig að unnt væri að fram-
lengja verðstöðvuniná fram til
áramóta, og stefnt yrði að því
að iétta henni af smám saman,
Það vekur hins vegar sérstaka
athygli nú, að í stefnuyfirlýs-
ingu nýju ríkisstjórnarinnar er
hvergi getið um „hrolIvekjuna“
né heldur sérstök úrræði til
lausnar þeim mikla efnahags-
vanda, sem stjóraarflokkarnir
einblíndu á fyrir kosniilgar. Ef
marka má stefnuyfirlýsinguna
ætlar ríkisstjómin að taka á
þessu viðfangsefni á sama hátt
og fráfarandi stjóm liafði boff-
aff, með því að framlengja verð
stöðvnnina fyrst um sinn,
Þetta sýnir svo aff ekki verð
ur um villzt, að staða þjóðar-
húsins er mjög góð nú, þegrar
viðreisnarstjórnin lætur af
völdum. Fullyrðingar núverandi
stjórnarflokka fyrir kosmingar
um hrollvekju 1. september hafa
augsýnilega ekki átt við rök að
styðjast.
Stórauknar
f j ár veitingar
Það hefur jafnan einkennt til
löguflutning núverandi stjóraar
flokka, að þeir hafa lagt áherzlu
á auknar fjárveitingar, án þess
að gera tillögur um öflun fjár-
magns. Stefnuyfirlýsing nýju
stjómarinnar er einnig einkenn
andi að þessu leyti.
Nú er boðað, að lækka eigi
vexti á stofnlánum atvinnu-
veganna og lengja lánstima
þeirra. Að endurkaupalán Seðla
bankans verði hækkuð og vext
ir á þeim lækkaðir. Fella á nið
ur eða lækka gjöld, er hvíla á
framleiðsluatvinnuvegunum. —
Fella á niður söluskatt á nauð-
synjavörum, Auka á rekstrar-
lán til framleiðsluatvinnuveg-
anna. Lækka á verðlag og
hindra verðlagshækkanir. Beina
á auknu fjármagni til iðnaðar-
ins. Veita á fjármagni til þess
að stórefla fiskiskipaflotann. Lög
teknum hækkunum á elli- og
örorkulífeyri verður flýtt með
bráðabirgðalögum, og er þá að-
eins fátt eitt nefnt.
Ekki er unnt að setja út á
þessi markmið í sjálfu sér, enda
geta trúlega flestir á þau fallizt.
Hitt vekur athygli, að í stefnu
yfirlýsingunni er hvergi getið
um nýjar leiðir til þess að
tryggja aukið fjármagn til þess
ara aðgerða. Þetta bendir því
ótvírætt til þess, að staða ribis
sjóðs sé nú svo sterk, að gerlegt
sé að gera slikar ráðstafanir án
sérstakrar fjáröflunar.
Ugglaust verður fylgzt af
gaumgæfni með því, þegar
stjómin hefst handa um fram-
kvæmd stefnunnar. Sennilega
verður fjármálaráðherrann að
vesra nokkuð glúrinn; það á
eftir að koma í ljós, en vitað er
að hann er kokhraustur.