Morgunblaðið - 16.07.1971, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.07.1971, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLl 1971 17 þ j óðin kaus kr abbamein Hvað gat ég gert? segir De Gaulle í síðasta viðtalinu við Malraux Hinn 11. desember 1969 hélt franski rithöfundurinn André Malraux til La Boisserie, bústað ar de Gaulles í Colombey-les- Deux-Eglises, til hádegisverðar (og að bíða eftir honum) og til tál þess að eiga viðtal við fyrr- verandi forseta FraWka. Úr þessu varð bókin „Les Ohenes Qu’On Abat (Eifkur sem felldar eru), er k)om út hjá Gaimard- útgáfunni. 1 formála segir Mal- raux: „Þessi bók er viðtail, al- veg eins og „La Oondition Humaine" var fréttafrásögn." En sú bók er eitt af hans fræg- ustu verkum. Einn af gagnrýnendum stór- blaðsins Le Monde skrifar um þessa viðtalsbók og byrjar þann ig: „Jæja! Ég býst þá við að Malraux hafi verið fréttamaður í Kína, alveg eins og Stendhal í orustunni við Waterloo og að „La Chartreuse de Parme“ hafi lika verið fréttafrásögn. Malraux veltir þvi fyrir sér hvað úr því hefði orðið, ef Ohateaubriand heföi á sinum tíma farið til St. Helenu í stað þess að fara til Prag, til að spjalla við hinn gáfnasnauða Karl Gústaf, sem ekkert hafði í rauninni að segja. Hvílikt viðtal hefði hann ekki getað átt við litla manninn, Napoleon, sem einu sinni hafði haft Evrópu undir þumaiifinigri sinum. Og hann fellir nokkur krókodilatár yfir þessum fræga kolilega sín- um, sem missti af tækifærinu. Sjálfum tekst Malraux, þar sem Ohateaubriand mistófcst á 18. öld, og hann hélt tii annarar St. Helenu, nær París. Þar átti Malraux i mesta lagi fjögurra klukkustunda viðtal. Þar af fór minnst klukkutími í kurteislegar viðræður undir borðum. En hann hefur samt gert úr þessu 235 blaðsíðna ósiit ið samtai, ákafiega skemmtilegt í stí'l. Árangurinn er hvorki sam ræður (hvernig hefði það líka átt að vera?) né flokkur eintala (sem hefði ekkert haft upp á sig), heldur fagurt harmþrungið Ijóð, sem sveiflast milli ljóð rænu og napurleika. Sviðið er heimurinn, og við- fangsefnið sagan og mannkynið. AJllir eiga þar hlutverk, en for- ustu hafa tvær drynjandi radd- ir, sem skiptast á, ganga hver ylfir aðra, blandast, skiljast að og vega salt í mótvægi. Hetjan og sniUingurinn ljóstra upp og uimbreyta um leið í andstæðu. Þegar de Gaulle fýlgdi gesti Sinum undir myrkur til dyranna 1 La Boissierie, setti hann sig í stellingar og lét athugasemdina sina faJlla, eins og við mátti bú- ast. Hann lyfti hendi og benti til stjarnanna og sagði: „Þær styrkja trú mína á lltilvægi allra hluta." Þetta eru regluleg lokaorð, og hefðu getað verið hinzta kveðja — sem þau reynd ar urðu. Þessi lokaorð hljóma svo fail'skt að þau eru liklega sönn. Þetta sambland af stórmennsku og háði er vissulega mjög drama tiiskt. „Ég hafði ekki áhuga á að ná honum eins og á Ijósmynd," seg- ir Malraux. „Mig dreytmdi um E1 Greeo málverk." Mynd de Gaui'les er einmitt farin að dofna og fjarlægjast. Eins og André Malraux, þessi fyrrver- andi fréttaritari, sagði einu sinni: „Dauðinn breytir lífinu í örlög.“ Og allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi í myndinni, sem hann dregur upp. Hún er I senn sambland af minningum og andstæðum. Bókin er heii náma af smásög- um. Þegar de Gaulle talar um heilsufar sitt og aldur, seg- ir hann: „Þreytan frá síðustu mánuðunum við völd er nú horf- in. En þegar ég tfór frá völdum, þá hefur aldurinn kannski átt sinn þátt í þeirri ákvörðun." Hvað las hann þá? „ÆSkylus, Shakespeare, minningar Ohate- aubriands, og svoMtið af verk- um Claudelis. Og svo þessar bækur, sem fólk sendir mér og venjulega eru ekki áhugaverð- ar. Ég svara alltaf fólki, sem sendir mér bæfcur. Auðvitað væri tillitssamara af þvtí að senda mér þær ekki.“ Og aftur skýtur upp kol'lin- um því sama: „Þegar til lengd- ar lét, þá var einasti aliþjóðlegi keppinauturinn minn hann Tin- tin (fræg tfrönsk teiknifígúra), eins og þú veizt. Við erum litlu mennirnir, sem ekki láta stóra fólkið traðka á sér. Hvað mig snertir, þá gerði sér bara eng- inn grein fyrir þessu, því ég er svo langur." Skýringin kemur 120 blaðsið- um seinna: „Frakkland er enn- þá hræðilega mikið undir áhrif- um af goðsögnum. Ég varð sjálf- ur sagnapersóna. Tilbúnar sög- ur hafa svo lengi verið mínir förunautar, að ég er orðinn eins og Tintin." Auðvitað er þarna að finna gamansemi — til dæmis um John- son forseta: „Hann hirti þó ekk ert urn að iláta sem hann hugs- aði . . .“ segir de Gaulie. Og urn Staiín Mka, en þar hefur Malraux fyrst orðið: „Harður lögreglutforingi með sinn þegj- andalega áhuga á heiminum, ógnunum, pípunni sinni og vel snyrta yfirskegginu." De Gaulle tekur undir þetta: „Gamall alráður fressköttur. Köttur, sem situr og biður við aftökupallinn. Köttur, sem í rauninni var vilhdýr.“ Þarna er hafsjór af sögum. Malraux minnir de Gaulle á það, sem hann hafði sagt um Jackie Kennedy eftir að hann kom heim frá jarðartför Kenn- edys forseta: „Hún er stjarna, og endar áreiðanlega á skemmti snekkju einhvers skipakóngs- ins.“ De Gaulle gerir sér upp undrun: „Sagði ég það virki- lega? Aldrei datt mér það í hug“ En svo bætir hann við, og slær út hendinni: „Satt að segja datt mér miklu fremur í hug að hún mundi giftast Jean-Paul Sartre. Eða jafnvel þér, Malraux." Við eitthvert af þessum al- kunnu tækifærum, þegar de Gaulle blandaði sér I mann- fjöldann og tók rösklega í út- réttar hendur, sagði hann einu sinni: „Góðan daginn, prestur minn.“ Og maðurinn svaraði undrandi: „En ég er ekki prestur. Ég er einn af yðar eig- in „górillum," (leynilögreglu- mönnurn)." „Jæja þá, góðan dag- in Monsieur Górilla!" sagði de GauMe hifclaust. Meðal þess, sem forvitnilegt er í bókinni, er frásögnin af dauða Ohe Guevara. „Gegnum þessa rússnesk-argentínsku ást- mey hans, sem var agent Rússa, tókst þeim að vemda hann í nokkra mánuði. En svo fékk hún fimrn kúlur í kviðinn í bar- daga og dó. Guevara var svik- inn ellefu dögum síðar.“ De Gaulle afneitar eftirmönn- um sinum og raunar allri ver- öldinni: „Ég á enga eftirmenn, eins og þú veizt," segir hann. „Ég rýf ekki þögnina nema ef Frakklandi er á einhvern hátt ógnað. Það verður að vera' öM- um Ijóst — og ég treysti á þig til að koma því á framfæri — að það sem nú fer fram er alveg utan við mig. Ég kem þar hvergi nærri." Og urn atburðina 1 maí 1968, þegar de Gaulle hætti, segir hann: „1 maí var allt að renna mér úr greipum. Ég hafði ekki /lengur -vald yfir minni eigin stjóm." Auðvitað hefði það verið eitt- hvað undarlegt, ef de Gaulle hefði ekki látið nókkur vel val- in orð falla í garð erkióvina sinna, stjórnmálaflokkanna. Og verið viss, það lætur hann ekki undir höfuð leggjast. „Fjölmargir hermenn hafa dá ið fyrir lýðveldið, en enginn hef ur enn dáið fyrir Radikala- flokkinn. Kommúnistarnir, sem fara göngur frá BastMlunni og upp að þjóðartorgi, og Sósíalist- André Malraux. arnir, sem marsera eitthvað út í loftið . . . Allt þetta og Ferdin- and Lop (kynlegur kvistur úr Latinuhverfinu, sem heldur ræð ur á kaffihúsum) er alveg það sama. Kommúnistar hafa ekki lengur nægilega sterka trú á kommúnismanum, og hinir trúa ekki heldur á byltingu. Það er orðið of seint. Þeir eru búnir að Ijúga svo mikið í tilraunum sínum til að hrifsa till sín lýð- veldið, að þeir eru orðnir lýð- veldissinnar." „Þeir vilja ógna þeim, sem eru við völd, en kæra sig ekki leng- ur um að ná þeim völdum. Kannski er kommúnisminn á leiðinni að verða það, sem allir flokkar verða fyrr eða seinna — goðsögn, sem stjórnað er af einhverri samsvarandi hjálpar- stofnun. Með öðrum orðum, við skulum sneiða kökuna handa okkur sjálfum í nafni fátæktar fólksins." „Áður en öld er liðin mun það sem við nú köllum „Vinstri" og „Hægri" vera orðið að óaðgrein anlegri hræru. Vinstri flokfcarn ir kalla sig vinstri menn, til að greina sig frá kommúnistunum. En þeir hafa ekki kafflað sig vinstrisinná nema síðan vinstri stefnan hætti að vera til.“ Og loks kemur síðasta stóra höggið, sem beint er til þeirra allra: „Gagnstætt því, sem þeir hálda sjálfir, þá gera stjórnmála menn ekki neitt: Þeir sópa að sér landi meðan þeir bíða etftir að misSa það og þeir verja vissa hagsmuni meðan þeir bíða þess tíma að þeir sviki þá. Örlög eru ráðin eftir öðrum leiðum." Þessi ónot, skrýtlur, bitra gagnrýni og minningar eru ekk- ert annað en léttur forleikur að sálminum mikla, sem kemur á eft ir. Sálmurinn er auðvitað Frakk land -— en það er hans Frakk- land, ekki land Frakka, sem „ekki elska Frakkland, hafa engan þjóðarmetnað" og sem „voru miklir án þess að vita það og eru nú aftur orðnir meðal- menn, án þess að vilja trúa því.“ Frakkland sækir á hann, eins og alþýðan sótti á Lenin og Kína á Mao. Hlustið þó á bitra reiði og napurt háð þessa risa meðal dverga í þess garð: „O-jú, Frakkar eiga kannski enn eftir að koma veröldinni á óvart — en seinna. Þeir munu standa í samningum um allt, við Ameríkumenn, og jatfnvel við Rússa, Þjóðverja og kommún- istalöndin. Þetta er þegar byrj- að og heldur kannski átfram, án þess að það tákni nokkurn skap aðan hlut. Frakkland hafði náð sér frá þingræðinu, en er á leið- inni út í það aftur. Þjóðin kaus krabbamein. Hvað gat ég gert við því?“ Þessi svartsýnu örvæntingar- hróp eru kunn frá minninga- bófcum þeirra, sem de Gaulle hefur gert að trúnaðarmönnum, eins og blaðamannsins Jean Mauriac, sem er sonur rithöf- undarins heitins, Francois Mauriac. Óvenjulegri er játning hans á mistökum, eins og sú sem forviða ráðherrar heyrðu af hans vörum rétt fyrir seinni umferðina í forsetakosningun- um 1965. Samt segir hann við Malraux: „Ég hélt að Rússland mundi ófært um að framleiða atom- bombuna. Að við værum árið 1946 óumflýjanlega á leið fram á stríðsbarm. Að Frakkland mundi ekki geta haldið áfram,“ o.s.frv. En eins og búast mátti við, er í þessu vottur af stolti: „En ég hafði ekki á röngu að standa um örlög Frakklands." Malraux veltir því fyrir sér hvort de Gaulle trúi á guð og kemst að þeirri niðurstöðu að De Gaulle. það geri hann ekki. Sem sönn- un bendir hann á þá staðreynd að hann vitni sjaldan í Bibluna og hafi aJlls ekki gert það í erfða skrá sinni. En er það sönnun? Hann vitnaði sjaldan i Róm verja og þó var hann ákaflega rómverskur. „Það verður aðeins ein kyn- slóð milli nútímans og komu „þriðja heimsins" fram á svið veraldarinnar. I Bandaríkjunum er það þegar hafið.“ Svo þetta er endirinn á heims veldum? „Ekki aðeins á heims- veldum," segir de Gaulle, „held ur líka á fólki eins og Gandhi, Churchill, Stalin, Nehru og jafn vel Kennedy. Þetta er jarðarför aMs heimsins “ Og sýnMega var aftast í þeirri líkfylgd maður- inn, sem lagður var tiil hinztu hvílu í litla kirkjugarðinum í Coloombey-les-Deux Eglises. Það er eftirmáli þessarar bókar. P. Viansson-Ponté í Le Monde. SALT: — Sama góða andrúmsloftið Hörð gagnrýni í Rauðu stjörnunni HELSINGFORS 13. 7., AP, NTB. Fulltrúar Bandarikjanna og Sov- étríkjanna héldu annan fimd sinn í SALT-viðræðunum f Hels- ingfors í dag og stóð fundurinn í tvær klukbustimdir. Ákveðið var að lialda næsta fund á þriðjudaginn eftir Viku. Mjög rnikil Ieynd hvílir yfir vlðræð- unnm, en heimildir herma, að viðræðurnar á fundinum hafi farið frani í hreinskilni og að sama góða andrúmsloftið hafi ríkt á fundinum í dag og í si. viku. Ástæðan fyrir að svo langur támi er látinn líða þar til næsti fundur verður er sögð sú, að tækniieg undirbúningsatriði séu svo mörg og flófcin. Formenn nefndanna, þeir Vladimir Sem- anov fná Savétríkjuinu'm og Ger- ard Smith frá Bandaríkjunum voru saigðir hafa rætJt stjóm- málaleg atriði, sem lögð verða til grundvallar í viðræðunum í framttðinni. Gert er ráð fyrir að þesisi um- ferð SALT-viðræðnanna, sem er sú fimmta, standi í 6 vitour. Rauða stjarnan, má'lgagn sov- ézka varnarmálaráðuneytisins birti í dag grein etftir Kharitíh ofursta, hemaðarsérfræðing, þar siem hann segir að það standi SALT-viðræðunum mjög fyrir þrifum, að bandariska vamar- málaráðuneytið neiti að hætta við kjamorkuví'gbúnaðarkapp- hlaupið. Hann sagði að Sovét- rilkin myndu bregðast við á við- eigandi hátt til að tryggja vam- ir sinar. Hann sagði að frá Ðandaríkjunum heyrðust móður- sýkisleg hróp um „sovézku ógn- unina“, á sama tíma, seim Bandaríkjamenn héldu áfram að vigbúast. Þetta hefði neikvæð áhrií á viðræðumar í Heíiisinig- fors. Blaðið segir að þetta sé fyrsita greinin í flokki, sem birt- ur verði meðan á viðræðunum í Helsingfors stendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.