Morgunblaðið - 16.07.1971, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1971
„Sjóorrusta út
af Seyðisfirði66
NÝAFSTAÐNAR flotaæfingar
Sovétríkjanna á Atlantshafi og
víðar voru ekki eins umfangs-
miklar og margar fyrri æfingar,
en hins vegar var notað mikið af
nýjum hergögnum og virðist
sem Sovétríkin hafi m.a. verið
að reyna þarna hæfni nýrra
vopna varnar- og árásasveita
sinna.
Þegar eftirlitsflugvélar frá
varnarliðinu í Keflavík uppgötv-
uðu fyrstu skipin, voru þau á
leið hingað úr Norðursjó. Þetta
voru létt beitiskip af „Sverdlov"-
gerð og „Kanin“-tundurspillir
búinn eldflaugum. Nokkru síðar
bættist „Kashin“-tundurspilhr i
hópinn, einnig vopnaður eldflaug-
um.
Þessum skipum var ætlað að
leika NATO-flotadeild. Þegar þau
voru í 240 mílna fjarlægð frá
Keflavík tóku þau stefnu á
Noreg (27. júní). Um svipað
leyti kom mikill fjöldi könnunar-
og sprengjuflugvéla inn á þetta
svæði, margar með stefnu á Is-
land, og fóru orrustuvélar frá
Keflavik til móts við þær.
Könnunarvélamar sendu upp-
lýsingar um, hvar „NATO-flota-
deildin" væri og nokkur beitiskip
og tundurspillar, sem léku rússn-
eska flotadeild, sigldu til móts
við hana. Um 400 mílur norður
af Seyðisfirði var gerð árás á
„NATO-deildina“ (29. júní). 52
rússneskar sprengjuflugvélar,
búnar fjarstýrðum eldflaugum,
tóku þátt í árásinni.
„NATO-flotadeildin“ tók að því
búnu stefnu á Norður-Noreg og
þar var gerð önnur árás á hana
(30. júní). Fyrr um morguninn
hafði rússnesk flotadeild, sem
taldi 31 skip, gert strandhögg á
svipuðum slóðum og er talið, að
þar hafi verið æfð hertaka mik-
ilvægra hafna í Noregi.
NÝTT - NÝTT
KVENPEYSUR og GOLFTREYJUR
Clugginn Laugavegi 49
LOKAD
Skrifstofum okkar í Garðastræti 41 verður
lokað vegna sumarleyfa til 9. ágúst.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Kjartans Reynis Ólafssonar hrl., fer fram opinbert
uppboð að Hringbraut 121, föstudaginn 23. júlí n.k. kl. 15,30
og verður þar seld bifreið R-24969, Plymouth Belvedere 1966.
Greiðsla við hamarshögg
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Létt beitiskip af „Sverdlov“-g erð, rúm 19000 tonn. Aðalvopn eru tólf 5,8 tommu fallbyssur.
Eldflaugatundurspillir af „Kashin“-gerð.