Morgunblaðið - 16.07.1971, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til forsvarsnianna nokk-
urra stéttarsamtaka í landinu og bað þá að segja álit sitt
á málefnasamningi núverandi ríkisstjórnarflokka — eink-
um þeim hlutum hans, sem snúa að hag samtaka þeirra.
Svör þessara manna fara hér á eftir:
aukinn, nema enn frekari
hækkanir verði á mörkuðum
okkar erlendis eða aflabrögð
aukist til muna.“
Gjaldþol atvinnuveganna
fylgir afkomu þeirra
Formaður Félags íslenzkra
iðnrekenda, Gunnar J. Friðriks
son sagði um málefnasamning
st jórnarf lokkanna:
— Kaflinn um atvinnumál-
in í málefnasamningi rikis-
stjórnarinnar er svo almenns
eðlis, að framvinda mála hlýt
ur að veita mjög á framkvæmd
hans.
— Ég geri varla ráð fyrir
því, að stefna stjórnarinnar í
kjaramálum verði til þess að
kalla fram mikla breytingu.
Frjálsir samningar munu sjálf
sagt verða áfram milli vinnu
veitenda og verkalýðsfélaga og
áfram hlýtur sú meginregla að
gilda, að gjaldþol atvinnuveg
anna fylgi afkomu þeirra. Eigi
atvinnuvegirnir að standa und
ir auknum kaupgreiðslUm, hlýt
ur um leið að þurfa að hlú að
þeim.
— Hvernig mun iðnaðinum
takast að greiða þá visitölu-
hækkun launa, sem nú hefur
verið boðuð?
— Á meðan verðstöðvun er
föstu að hann verði ekki hærri
en 20%.
— Hafa ekki allar ríkisistjórn
ir haft aukinn kaupmátt að
stefnumáli?
— Jú, það er kannski rótt.
en fráfarandi ríkisstjórn hef-
ur þó gengið allfreklega á okk
ar rétt. Það er því ekki óeðli
legt að við treystum betur
þeirri rikisstjórn til þess að
gæta hagsmuna okkar, sem við
teljum að sé hlynntari okkur.
Við trúum því að minnsta
kosti ekki að ríkisstjórnin
Halldór Björnsson
Heppilegra að kjaraatrifti
verfti leyst án afskipta
ríkisvaldsins
Formaður Vinnuveitendasam
bands íslands, Jón H. Bergs,
hafði þetta að segja um fyrir-
hugaðar ráðstafanir ríkisstjórn
arinnar í kjaramálum:
„Viðvíkjandi styttingu vinnu
vi'kunnar og lengingu orlofs
eru í málefnasamningnum kom
in fram frá ríkisstjórninni ný
viðhorf. Hingað til hafa óskir
um slikar breytingar komið i
sambandi við samningagerð
vinnuveitenda og launþega.
Það hefur af báðum aðilum
verið talið heppilegra, að slík
kjaraatriði væru leyst án af-
skipta ríkisvaldsins með frjáls
um samningum.
Um vísitölustigin er það að
segja, að þegar þau voru felld
niður með verðstöðvunarlögun
Jón H. Bergs
um, var vinnuveitendum um
leið gert að greiða hærri launa
skatt. Þannig tóku vinnuveit-
endur á sig sinn hluta-byrðar
innar og mér finnst þá rétt, að
launaskattshækkunin verði
felld niður um leið og vísitölu
stigin verða aftur gild.“
— Hvað um að ríkisfyrir-
tæki hverfi úr Vinnuveitenda
sambandinu?
„Þetta hefUr komið til tals
áður. Ég tel, að náðzt hafi
betra samræmi en annars
væri í kaupi og kjörum þessa
atarfsfólks; það er að segja
þeirra starfshópa, sem ekki
falla undir launalög.
Það er kannski ástæða til að
fjatóa það fram hér nú, að
sú tíð ætti að vera liðin, að
litið sé á Vinnuveitendasam-
bandið sem fjandsamlegan að
ila launþegasamtökunum. Höf
uðmarkmið sambandsins er að
leysa ágreiningsmál vinnuveit
enda og launþega með frið-
samlegum og frjálsum samning
um.“
Lækkun núverandi verftlags
sjávarafurfta getur leitt til
upphóta efta gengislækk-
ana . . .
Formaður Landssambands ís
lenzkra útvegsmanna, Kristján
Ragnarsson, sagði í viðtali við
Mbl., er það spurðist fyrir
um málefnasamning ríkisstjórn
arinnar, að í kaflanum um
kjaramálin væri rætt um stytt
Kristjáu Ragnarsson
ingu vinnuvikunnar í 40 stund
ir. Kvað Kristján styttingu
vinnuvikunnar óeðlilega, án
þess að fram færi athugun á
raunverulegum vinnutáma, og
hann sagði: „Ég held að með
þessari ákvörðun sé vinnu-
timi hérlendis gerður almennt
styttri en gerist í nágranna-
löndunum, því að hér eru mat
ar- og kaffitimar reiknaðir til
vinnutíma, sem ekki er gert í
nágrannalöndunum.“
Kristján sagðist og lýsa
furðu sinni á þvi að núverandí
stjórnarflokkar skyldu ákveða
kjarasamningaatriði með lög-
um, svo sern eins og atriðin
um vinnutímastyttingu og or-
lofslengingu. Þessir sömu flokk
ar hefðu á undanförnum árum
lýst mikilli andstöðu við slík
ar aðgerðir, þegar hið opin-
bera hefði neyðzt til að grípa
inn i af þjóðfélagslegum ástæð
um, sem nú væru ekki fyrir
hendi. Um visitöluákvæði
samningsins sagði Kristján
Ragnarsson:
„Það skiptir í sjálfu sér ekki
meginmáli, hvort þessi 2%
vísitöluuppbót kemur til fram
kvæmda nú eða 1. september,
en um leið og hún er notuð,
hlýtur að fara fram endur-
skoðun á þeim grundvelli, sem
verðstöðvunin er í raun byggð
á.“ — „Fram kemur, að gera
eigi ráðstafanir í sjávarútvegi,“
sagði Kristján, „sem hafi í för
með sér, að gengið verði á eða
minnkaðar greiðslur í Verð-
jöfnunarsjóð. 'Mun það leiða
til þess að við förum að starfa
á hærri verðgrundvelli en við
höfum áður talið ástæðu til
að gera, vegna þess að verð-
lag er nú hærra en við höfum
áður þekkt. Lækkun frá nú-
verandi verðlagi mun því fljót
lega leiða til sérstakra ráð-
stafana, svo sem til uppbóta
eða gengisfellinga. Haldist hins
vegar núverandi verðlag, geta
þessar ráðstafanir gengið, þó
ekki ef til umtalsverðra kostn
aðarhækkana kemur í næstu
framtíð."
Um yfirlýsingu ríkisstjórnar
innar um að auka kaupmátt
launa um 20% á næstu tveim
ur árum, sagði Kristján.
„Vafalaust hafa allar ríkis-
stjórnir haft að markmiði að
auka kaupmátt launa eins mik
ið og auðið væri. f þessari yfir
lýsingu felst því ekkert sér-
stakt, því að augijóst er að
kaupmátturinn verður ekki
Gunnar J. Friðriksson
í gildi hljóta þessar auknu
byrðar, sem vísitölubæturnar
fela í sér að íþyngja iðnaðinum
því að vitað er, að það hafa
orðið ýmsar óhjákvæmilegar
kostnaðarhækkanir, sem ekki
hefui' verið unnt að mæta með
verðhækkun á vörunum. Eigi
launþegar að fá hlutdeild i af
rakstri atvinnuveganna, hlýt-
ur betri afkoma þeirra að
verða forsenda þess að svo geti
orðið.
Jákvæftur samningur
fyrir launafólk
Ritari V'erkamannafélagsins
Dagsbrúnar, Halldór Björns-
son, sagði um kjaramálakafla
máiofnasamnings stjórnarflokk
anna:
— Launþegar fagna stytt-
ingu vinnuvikunnar í 40 stund
ir og jafnframt þvi að orlofið
sé nú gert að fjórum vikum.
Er það orðið allgamalt barátfu
mál launþegasamtakanna. Um
kaupgjaldsvísitöluna vil ég
það segja, að aldrei hefði átt
að ræna fólkið þessari vísitölu.
— Um aukningu kaupmátt-
ar. Ég tek það atriði með
nokkrum fyrirvara. Ég er
ánægður með að unnt verði að
auka hann, en vil ekki slá því
leggist á samninga okkar eins
og fráfarandi ríkisstjórn hefur
gert.
— Við fögnum því að sölu
skattur falli niður, verði bað
gert, en orð min má þó ekki
skilja á þann hátt, að við séum
á móti því að atvinnuvegunum
sé gert kleift að starfa eðli-
lega, siður en svo.
— Um styttingu vinnuviku
og lcngingu orlofs. Finnst þér
í raun að ríkisvaldið eigi að
skipta sér af slíkum málum?
Er hér ekki um samningsatriði
milli atvinr.urekenda og laun
þega að ræða?
— Jú, það má segja að svo
sé, en nú hefur rikisvaldið þeg
ar stytt vinnuvikuna hjá starfs
fóiki sínu í 40 stundir. Er það
þvi ekki óeðlilegt að ríkisstjórn
in láti hin almennu launþega
samtök njóta hins sama.
Almennt um málefnasainning
inn sagði Halldór:
— Ég tel samninginn i heild
mjög jákvæðan fyrir launa-
fólk, og vona að sem mest af
honum eða hann allur komist
í framkvæmd.
Inn á varhugaverfta braut
Formaður Verzlunarfélags
Re.vkjavíkur, Guðmundur H.
Garðarsson, orðaði svar silt
svo:
„Enn sem komið er, hefur
mér ekki gefizt nægilegur tími
til að kynna mér málefnasamn
inginn til hiítar. Umsögn mín
verður því stutt og almenns
eðlis.
Málefnasamningurinn er sam
bland almennra fyrirheita og
óskalista stjórnmálamanna.
Fyrir islenzku þjóðina er
kaflinn um utanríkismál alvar
legastui'. í honum er stefnt að
því að gera ísland varnarlaust
land og fjarlægja þjóðina vest
rænum þjóðum. Yrði það hin
mesta ógæfa, ef slíkt tækist.
Sem fyrr segir er máiefna-
samningurinn fjölbreyttur óska
listi. Sum atriðanna eru sama
eðlis hjá öllum stjórnmála-
flokkum. Hvaða flokkur ætlar
til dæmis ekki að efla atvinnu
Guðmundur H. Garðarsson
vegina, auka menntun og
hækka ellilífeyri? Það, sem
greinir á um, eru leiðirnar að
settu marki. í þeim efnum er
ég núverandi stjórnarflokkum
ekki sammála.
Varðandi kjör launafólks
vil ég segja þetta: Góð fyrir-
heit um styttingu vinnuviku
og lengingu orlofs eru góðra
gjalda verð, ef samningsaðiiar
vinnumarkaðarins fá þar um
fjallað með jákvæðum árangri.
En ef þessi fyrirheit ríkisstjórn
arinnar boða frekari afskipti
ríki-svaldsins af frjálsum samn
ingum, eða takmark-
andi áhrif á valfrelsi stéttar-
félaganna um hvað helzt skuli
samið um á hverjum tima, þá
er hér farið inn á varhuga-
verða braut.“
Hvernig skal afla tekna
til útgjaldanna?
Formaður Kaiipiiiannasain-
taka Islands, Hjörtur Jónsson,
svaraði:
„Mér er það ekki alveg fylli
lega ljóst, hvað í þessum mál
Hjörtur Jónsson
efnasamningi felst. Það er tal
að um strangt verðlagseftir-
lit og gagngera athugun á nú
gildandi verðlagningu. Við höf
um strangt verðlagseftirlit og
höft, þannig að ég geri ekki
ráð fyrir, að ríkisstjómin hygg
ist ganga öllu lengra eftir því,
sem lesa má út úr málefna-
samningnum.
En við erum alltaf að von-
ast eftir frjálsri verzlun, hvort
sem þessi ríkisstjórn uppfyll
ir nú þær óskir, eða ekki.
Gott væri það þó. Og þeir
hugsa mikið um almenning.