Morgunblaðið - 17.09.1971, Side 19
MORGUiNBLAÐ'tÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBBR 1971
19
Skrifar lokaritgerð
um hulduf ólk
— og nemur söng í Vínarborg
Rabbað við Má Magnússon
þjóðháttafræðing og söngvara
MÁR Magnússon er búinn að
vera í 7 ár við nám í Vínar-
borg í Austurríki. Þar hefur
hann numið þjóðháttafræði
og söng, en á næsta vetri lýk
ur hann við þjóðháttafræði-
nám sitt með því að fuilgera
lokaritgerð sína, sem fjallar
um huldufólk á fslandi.
Við röbbuðum stuttlega við
Má um nám hans og fer spjail
ið hér á eftir:
„Ég er búirm að vera 7 ár
í Vín, þar sem ég hef numið
þjóðháttafræði. Ég byrjaði að
vísu í grisku og latinu fyrsta
árið, en síðan hef ég verið í
6 ár í þjóðháttafræði."
„Af hverju hættir þú við lat
ínuna og grískuna?"
„Minn undirbúningur í þeim
málum byggðist aðeins á nám
inu hér heima, en það er al-
gengt að til náms í þeim grein
um við háskólann í Vín komi
fólk með allt að níu ára undir
búningsnám.*
„Hvað hefur þú gert yfir
sumartímann?"
„Ég hef yfirleitt komið heim
á sumrin til þess að vinna, en
í sumar hef ég verið að vinna
við lokaritgerðina og býst við
að ljúka henni næsta vetur.“
„Hvaða þætti spannar þjóð-
háttafræðin ?“
„Það má skipta þjóðhátta-
fræði í tvennt, trúarlega þjóð
f ræði (religiöise vokskunde),
sem nær yfir þjóðtrú og flest
andleg verðmæti þjóðlegs eðlis
þ.e.as., sem eru ekki bundin
við einstakling. Hin hliðin er
þjóðháttafræði (sachvolks-
kunde), sem fjallar um verk
legu hliðina. Sumir vilja
nota á íslenzku orðið „þjóð-
fræði“ fyrir „rel. Vk“ og
„þjóðháttafræði" fyrir
„Sachvlksk." Fagið er mjög
viðtækt og snertir mörg
önnur fög, og það slær á
marga strengi mannlegs lífs.
Verksviðið er Evrópa en sem
dæmi um sameiginlega arf-
leifð má nefna Völsungaefnið.
Það er efni frá 4. öld, sem
verður að hetjukvæðum á 5.
og 6. öld og síðan nær það end
anlegu formi.
Mitt verkefni í lokaritgerð
fjallar um huldufólk á íslandi
og þess vegna hef ég safnað
sögum um huldufólk frá ís-
landi og ber þær saman við
sagnir annarra þjóða.
Huldufólkssögurnar hef ég
tekið úr sagnasöfnum en
miklu hefur verið safnað hér
lendis miðað við önnur lönd.
Hér er um að ræða mjög ungt
fag, sem ekki var byrjað að
kenna sjálfstætt við háskóla
fyrr en 1930. Um gildi þess má
segja, að þjóð sem hefur enga
sál, er ekki til, og þetta fag
reynir að greina eðli þjóðar-
inmar.
Efni ritgerðarinnar e>r miklu
meira en ég bjóst við og það
sem slær mig mest í rannsókn
þessa þjóðfræðaþáttar er
trúin á huldufólk á ís-
landi skuli vara jafn óbifanleg
og mikil og raun ber vitni i
dag.“
IESI0
eru fixulþunga- iTi
MmatkaiwSwjumr
-fcUli
„Eru margir ísiendinga,- í
Vínarborg?1
„Þeim fer fjölgandi, um 10
eru við nám, en margir eru
einnig búsettir þar og vinna
þar.“
„Hvernig er að nema þar?“
„Það er ef til viU svolítið
erfitt að nema í Vín, þar er
mjög mikið akademiskt frelsi
og menn taka þar próf í hverj
um fyrirlestri þegar hver og
einn vill og telur sig geta og
einnig er skylt að skila sjálf
stæðum fyrirlestrum. Menn
þurfa sjálfir að halda sér að
náminu, því að skipulagið ger
ir það ekki eins og víða arun-
ars staðar.“
„Hvernig er lífsviðurvær-
ið?“
„Það er eins og gengur,
bæði skin og skúrir. í svona
námi getur verið erfitt og
stundum þröngt í búi hjá smá
fuglunum.
Svo er það borgin sjálf. Vln
er óbrúlega mikið þorp miðað
við stærð borgarinnar, en þar
búa um 1,6 miflj. íbúar af 7
millj. íbúum landsins. Sumir
kalla Vín stærsta þorp í
heimi. Þar er einn borgar-
kjarni næstum eins og hér i
Reykjavík og það ér talað um
að fa-ra niður í bæ. Þess vegna
virkar Vín ekki eins mikið eins
og stórborg,
í Vín er geysilega gömul tón
listarhefð og leikhúshefð og
ber borgin mikinn svip af því,
og t.d. telja margir að bezta
þýzkan sé töluð í Burgtheater
og að jafnbezta starfsliðið sé
að finna við Staatsoper.
í Vín finnur maður greini-
lega hinn evrópska púls. Mað-
ur er i vestrinu, en þó í nám
unda við austrið og finnur
vel að staðsetningin er
Haustefnin eru komin
Ullarjersey einlit og mynstruð.
Glæsileg kvöldkjólaefni nýjasta tízka.
Dömu- og herrabúðin
LaugavegL 55.
Már Magnússon
í Mið-Evrópu. Vínarbúar eru
með . talsvert sterkum slavn-
eskum blæ og því fremur ró-
legir.“
„Nú hefur þú jöfnum hönd
um lagt stund á tónlistarnám."
„Já, ég hef verið í tónlistar
námi með skólagöngunni bæði
hér heima og erlendis. Hér
heima var ég í söngnáníi hjá
Demetz, Mariu Markan og síð
ast hjá Einari Kristjáns^yni
og í Tónlistarskólanum nam ég
píanóleik, aðallega hjá Rögn-
valdi Sigurjónssyni.
f Vín byrjaði ég fljótlega í
einkatímum í söng og 1963
tók ég inntökupróf í einsöngv
aradeiid Tónlistarháskólans í
Vín, þar sem ég hef verið fuh
gildur nemandi síðan. Það er
fremur algengt að karlsöngv-
arar taki fyrir eitthvað annað
nám, því ekki má mikið út af
bera með röddina.“
„Hefur þú í huga að halda
tónleika hér heima?“
„Nei, ekki að svo komnu
máli, það eru líka til svo
margir tenórar á fslandi.“
Og þar með var Már Magn
ússon þotinn, Vínarborg fram
undan og viðfangsefnin á
hverju strái eins og hjá svo
mörgum fslendingum, sem
stunda nám erlendis.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í byggingu íbúðarhúss að
Vogalandi 5 Reykjavík.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora
Sóleyjargötu 17 gegn kr. 2000 skilatrygg-
ingu.
Reykjavík 17. sept. 1971
H.F. Útboð og Samningar
®Í VOLVOSALUBINN S
Til sölu
Volvo 164 árg. ’69.
Volvo 142 DeLuxe árg. ’71.
Volvo 144 DeLuxe árg. ’69.
Volvo 144 DeLuxe árg. ’68.
Volvo 544 Sport árg. ’60.
Triumph Sport bifreið árg. ’66.
V.W. TLE árg. ’70.
VELTIR HE
SUÐURLANDSBRAUT 16 35200
DncLEcn