Morgunblaðið - 24.11.1971, Síða 1
267. tbl. 58. árg.
MJÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hættuástand í Pakistan:
(Öfriðarhættan magnast við Súez-skurð. — Mynd þessi sýnir Sadat, forseta Egyptalands (annar
frá hægri með staf) í hópi egypzkra hermanna, er hann kannaði vígstöðuna við Súez-skurð ný-
lcga. Sadat sagði við hermennina: — Það er engin von framar um friðsamlega lausn. Það er
ákvörðun okkar að berjast.
Þr jár f lugvélar skotnar
niður yfir V-Bengal
Indverjar vísa ásökunum Pakist-
ana um stríðsaðgerðir á bug
Karachi og Nýju Delhi,
23. móvember, NTB, AP.
ÍNDVEKSKAK flugvélar skutu í
gær niður þrjár omistuþotur frá
Fakistan af Sabre-gerð í loft-
bardögum yfir indverska fylk-
inu Vestur-Bengal. Var frá þessu
skýrt á indverska þinginu i
dag. Útvarpið í Pakistan skýrði
frá því i dag, að lýst hefði verið
yfir hættuástandi í öllu landinu,
eftir að indierskar hersveitir
hefðu hafið innrás og byrjað
raunverulegar stríðsaðgerðir i
Austur-Pakistan. 1 höfuðborg
Jndlands var þessum fullyrðing-
um Pakistana vísað á bug, sem
hlægilegum og algjörlega til-
hæfulaiisum.
V. C. Shukla, sá ráðherra í
Indlaindsstjóm, sem yfirstjónn
hefur með framleiðslu á vörum
í þágu landvarna, sagði í dag í
ræðu á þjóðþinginu, að Pakistan
léki hættulegan leik með fullyrð-
mgum sínum um, að indverskur
her hefði farið yfir lamdamærim
til Austur-Pakistan. Hann sagði,
að þessi átök hefðu átt sér stað
milli skæruliða Bangla Desh-
hreyfingarininar og stjómarhers-
ins í A-Pakistan. En árekstrum
milli mdverskra landamæra-
varða og hermanna frá Pakistan
héldi áfram. Engu að síður væru
fullyrðingar um, að indverskur
her hefði haldið inin í Austur-
Pakistan algjörlega i'ir lausu
lofti gripnar. Áróður stjórmar-
valda í Pakistan beindist að því
að gera borgarastyrjöldina í A-
Pakistam að milliríkjamáli og fá
samtök Sameinuðu þjóðamma fcl
þess að skerast í leikimm, sagði
Shukla, sem hlaut mikið lófatak
á iindverska þjóðþinginu, er hainm
skýrði frá því, að í gær hefðu
verið Skotnar niður þrjár orr-
ustuflugvélar írá Pakistan yfir
Vestur-Bengal.
Útvarpið í Karachi í Vestur-
Pakistan skýrði frá því í dag, að
bairdagarnir milli pakistanskra og
indverskra herja á Jessore-svæð-
inu í Austur-Pakistam héldu á-
fram og að lýst hefði verið yfir
Framhald á bls. 31
Kambódía:
Tító 1 Rúmeníu
Ræðir við Ceaucescu um
afstöðuna til Sovétríkjanna
Vin, 23. nóv. — NTB.
NICOLAE Ceaucescu forseti
Rúmeniíi og Josip Broz. Tító for-
seti Júgóslavíu, komu saman til
fundar í dag í bænum Timisoara
í Rúmeníu. Tóku utanríkisráð-
herrar ríkjanna tveggja þátt í
viðræðunum attk fjölda sérfræð-
inga.
Aðalumræðuefni forsetanna
var afstaða rikjanna í Austur-
Evrópu til Sovétríkjanna, en auk
þess voru ýmis alþjóðamál á dag-
skrá.
Báðir forsetarnir hafa reynt að
takmarka áhrif Svétríkjanna á
stjórnmál rikja sinna, og reynt
að halda uppi sjálfstæðri utan-
rikisstefnu. Má í þvi efni benda
á að bæði Júgóslavía og Kúmen-
ia hafa stefnt að því að taka upp
nánara samband við Kína.
Viðræðum forsetanna verður
haldið áfram í Timisoara á morg
un, miðvikudag.
Súezskurður ekki
opnaður í bráð
Bandaríkin hætta tilraunum sín-
um til þess að fá skurðinn opnaðan
Washington, 23. nóvemiber.
— AP, NTB. —
BANDARÍSK stjómvöld hafa
hætt tiiraumim sínum til þess að
fá Egyptaland og ísrael til þess
að opna Súez-skurðinn að nýju.
Var þet-ta haft eftir áreiðanleg-
um heimildum í bandariska ut-
amríkisráðuneytinu í dag. —
Ákvörðun um þetta var tekin
eftir gaumgæfilega athugun á
ræðu Anwar Sadats Egypía-
landsforseta um helgina.
Abba Eban, utanríkisráðherra
ísraels, vísaði í dag á bug sið-
ustu stríðslhótunum Sadats for-
seta og sagði, að ísrael myndi
ekki gefa upp vonina um Jausm
á deilumálunum fyrir botni
Miðjarðarhafsins með samninga-
viðræðum.
Ráðherrann svaraði í dag
fyrirsipurnum á þjóðþingi ísraels
frá þingmönmum stjómnaramd-
stöðumnar, sem skírskotuðu til
ýfirlýsimgar Sadats nú um helg-
ina um, að Egyptair hefðu gefið
upp alia von um friðsamlega
lausn og hefðu ákveðið að berj-
ast. .
— Við höfum búið okkur und-
iir allt, sem gerast kanm. Við vit-
um, að það býr mikiil styrkur að
baki orða okkar og við munum á
engan hátt draga úr öryggiskröf-
um okkar. Engu að siður mun-
Uim við halda áfram viðleitni
okkar til þess að fimna friðsam-
lega lausn, sagði Eban.
Leiðtogi stjórnarandstöðuminar,
Menahem Begin, sagði í umræð-
unum, að ef Sadat gerði alvöru
úr stríðshótunum sínum, myndi
ísrael svara með svo öflugri
gagnárás, að egypzki forsetinm
yrði neyddur til þess að biðja
um vopnahlé. Begin, sem er for-
ingi Gahal-flokksins, sem er
hægri sinnaður, kvaðst vera
þeirrar skoðunar, að Sadat Eg-
yptalandsforseti hugsaði sig um
tvisvar, ef hanm gerði sér nokkra
grein fyrir hættunmi fyrir iamd
sitt, áður en hann legði út 1
styrjöld.
Brandt
til Parísar
París, 23. nóv. — NTB.
SKÝRT var frá því opinberlega
i Paris í dag að WiIIy Brandt
kanslari V'estur-Þýzkalandf
kæmi til borgarinnar 3. desem-
ber til tveggja daga viðræðna
við Georges Pompidou forseta og
aðra ráðamenn. Viðræðnrnar
fara fram í forsetaskrifstofunum
í Elysee-höllinni og snúast vænt-
anlega aðailega um gjaldeyris-
málin í heiminum.
Samkvæmt fransk-þýzka vin-
áttusáttmálanum frá 1963 er tfl.
Framhaid á bls. 31
Innrásin mætir
lítilli mótspyrnu
Phnom Penh, Kambódíu,
23. nóv. — AP-NTB.
TALIÐ er, að um 15 þúsund
manna lið úr stjórnarber Suður-
Vietnams hafi í gær og í dag
farið yfir landamærin inn í
Kambódíu til að reyna að draga
úr vopnaflutningum Norður-
Vietnama um Ho Chi Minh-slóð-
ann svonefnda. Hefur innrásar-
lið þetfa mætt lítilli sem engri
mótspyrnu kommúnista, en til-
kynnt hefur verið í Saigon að
sveitirnar hafi fundið yfirgefna
bækistöð Norðiir-Vietnama, sem
meðal annars var búin skotpöll-
um fyrir eldflaugar.
Sveitirnar frá Suður-Vietuam
sækja inn í Kambódiu eftir þjóð-
hrautum 1 og 7, og segja tals-
I menn þeirra, að tilgangurinn
með innrásinni sé að torvelda að-
I gerðir hersveita kommúnista í
nánd við höfuðborgina Phnom
Penh. Frá þjóðbrautunum tveim
ur gera innrásarsveitirnar skyndi
áhlaup inn i frumskóginn allt í
kring í leit að skæruliðum eða
hermönnum frá Norður-Vietnam.
Engir bandarískir hermenn
taka þátt í innrásinni, en þyrlur
og sprengjuþotur úr bandariska
flughernum hafa verið notaðir
bæði til sjúkraflutninga og loft-
árása á hugsanlegar stöðvar
kommúnista.
í tiikynningu frá innrásar-
hernum segir að 36 hermenn frá
Norður-Vietnam hafi verið felld-
ir, og að sex menn úr innrásar-
hernum hafi særzt.
Fiskifloti Rússa
fær aukna hernaðarþýðingu
600 herskip hafa bækistöð
í Murmansk og Kola
MIKIL uppbygging fiota
sovézkra hafrannsóknaskipa
hefur valdið áhyggjum í
Brússel, segir fréttaritari
norska blaðsins Aftenposten í
skeyti þaðan. Fjöldi sovézkra
hafrannsóknaskipa er meiri
en samanlagður fjöidi haf-
rannsóknaskipa allra annarra
landa heims og er um 200.
Þessi mikli fjöldi hafrann-
sóknaskipa Rússa og geysistór
fiskiskipafloti þeirra er tal-
inn hafa úrslitaþýðingu í
heildarmati á sjóhernaðar-
getu Rússa.
Æ betur er fylgzt með upp-
byggingu sovézka flotans og
telur hann samkvæmt síð-
ustu upplýsingum um 1600
skip, þar af 600, sem hafa
bækistöð í Murmansk og á
Kola-skaga, rétt austan við
norsku landamærin. Heim-
ingur sovézka kafbátaflot-
ans eða þar um bil heyrir til
sovézka íshafsflotanum.
L ANDGÖN GUPRAMMAR
Stór verksmiðjuskip hafa
stöðugt verið gerð nútíma-
iegri og eru nú þannig útbúin
að í stað fiskibáta geta þau
tekið um borð landgönguháta,
sem hægt er að nota í sam-
ræmdum aðgerðum á sjó, í
lofti og á landi. Verksmiðju-
skip af nýjustu gerð getur
Framhald á bls. 19