Morgunblaðið - 24.11.1971, Side 14
14
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUÐAGUR 24. NÖVEMBER 1971
Miðstöð fyrir
aldraða í Haf narbúðum
Á FUNDI borgrarstjómar
Reykjavíkur fimmtudaginn 18.
þ. m. bar Albert Guðmundsson
(S) fram svohijóðandi tillögu:
Borgarstjórn samþykkir að fela
félagsmálaráði að setja á stofn
í Hafnarbúðum, ef annað hent-
hugra húsnæði er ekki fyrir
hendi, miðstöð fyrir félagsstarf
aldraðra og dagdvalarheimili, þar
sem aldraðir geta dvalizt allan
daginn eða hluta úr degi.
í ræðu, sem borgarfulltrúinn
hélt, er hann mælti fyrir tillögu
sinni, kom fram, að félagsmála-
stjóri borgarinnar hefur gert
bráðabirgðakönnun á húsakynn-
iim Hafnarbúða með þessa starf-
semi fyrir augrum. Er álit hans
& þá leið, að húsnæðið gefi ýmsa
möguleika til slíkrar dagdvalar-
starfsemi, þar sé gott eldhús og
góð bað- og hvíldaraðstaða.
Albert Guðmundsson sagði í
upphafi ræðu sinnar, að tillagan
væri ekki flutt vegna þess að
finna þywfti verkefni fyrir Hafn-
arbúðir, heldur af tilliti til aldr-
aðra borgara Reykjavíkur í von
um að sfcarfcemin geti orðið til
að auka ánægjustundir aldraðra.
Væri till'agan fram kornin vegna
þess hve vel starfeemi Félags-
málastofnunarinnar fyrir aldraða
í Tónabæ hefði tekizt. Benti hann
á, að fyrir hefði komið, að fjöldi
aldraðra saman kominna í Tóna-
bæ hefði farið upp í 300 manns.
Borgarfulltrúinn kvaðst hafa
leitað til félagsmálastjóra og beð-
i@ hann að kynna sér húsakynni
Hafnairbúða. í greinargerð, sem
Æélagsmálastjóri samdi að þeirri
bráðatoirgðakönnun iofcinni, seg-
iir m. a., að húsnæðið í Hafn-
arbúðum gefi ýmsa möguleika til
dagdvalarstarfsemi, sem að ein-
hverju leyti væri hægt að tengja
hinini almennu félags- og tóm-
stundast a rfseim i fyrir aldraða, í
likingu við þá starfeemi, sem
farið hefur fram í Tónabæ. Þar
sé gott eldhús, góð bað- og hvild-
araðstaða, sem sé mjög nauðsyn-
leg öldruðu fólki, ef um daglanga
dvöl sé að ræða. Jafnframt sé
þar góð aðstaða tii föndurs og
tómstiundastarfa og einnig að-
staða í kjallara, sem hægt væri
að nýta sem vinnuaðstöðu. í>á
segir í g rei nargerðinni, að í
Hafnarbúðum sé efcki lyfta, en
lyftugat sé fyrir hendi. Óhjá-
kvæmilegt yrði að setja lyftu í
húsið, ef það yrði nýfct til þess-
arar starfsemi.
Altoert Guðmiundsison sagði
ennfremiur, að staðsetning húss-
ins ihlyti að vera heppileg fyrir
þessa starfeemi. Þarna væri út-
sýni yfir höfnina og fjallahring-
inn, og eiinnig gæti gamla fólkið
fylgzt með því, sem vaéri að
gerast við lífæð borgardnnar,
Reyk j avikurhöfn.
Þá benti hann á, að eldhús
Haifnarbúða væri bæði stórt og
fuMkomið, og opnaði það mögu-
leika till að selja ódýran mat
til aldraðra einstakllinga, sem
byggju einir og þannig jrrðu
þeiim spöruð innkaup í misjöfn-
um veðrum og matargerð heima
fyrir ef illa stæði á.
Steinunn Finnbogadóttir (SVF)
kvaðst fagna tilllögu þessari. Hún
sagði'st áður hiafa fHutt tiilögu
um sjómannastoflu í Hafnarbúð-
um snemma á þessu ári. Þá hefði
verið skipuð nefnd í xnálið, sem
ekfci hefði sfcilað áliti enn,
Hún sagðist halda, að gerð
hússins hið innra væri frekar
óhagstæð til þeirrair stanfeemi,
sem hér væri gert ráð fyrir. Um
hitt kvaðst hún vera viss, að
staðsetning hússins væri slæm,
Framhald á bis. 19
Frá uppboði Sigurðar Benediklssonar hf. Dýrasta myndin boðin upp, mynd Brynjólfs Þórðar-
sonar. — (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.)
Uppboð Sigur5ar Benediktssonar hf.
Málverk seld fyrir
rúmlega 1,1 millj. kr.
FIMMTÍU og eitt listaverk var
boðið upp á listmunauppboði
Sigurðar Benedikrssonar hf. í
Súlnasal Hótel Sögu síðdegis í
gær. Fjórar myndir voru ekki
slegnar, þar eð eigi bárust nógu
há tilboð, en lágmarksverð var
tilgreint af eigendum. Myndirn-
ar fóru á samtais 1.165.000,00 kr.
Dýrasta myndin var Hrafna-
björg, olíumálverk á striga eftir
Brynjólf Þórðarson og seldist
hún á 85.000,00 krónur.
Eintal
Meg Jenkins
I KVÖLD fá sjónvarpsáihorfendur að sjá
Meg Jenfcims í einitalsþættinium Drottn-
imgin temgi ldfi. Eintalsiþættir þessir, sem
sjónvarpið hefur sýnt að umdanfömu
umdiir samheitmiu Venus 1 ýmsum mynd-
um, virðast njóta hér talsverðra vinsælda
hjá áhorfendum. Þessir þættir eru frá
BBC sjómvarpsstöðinni, sem fékk til liðs
við sig ýmsa smjaMa teikritahöfunda til
að semja þessa þætti sérstaklega fyrir tii-
teknar leikkomur. Eru þættirnir þó mjög
ólíkir að uppbygigimgiu og innihaldi —
alit frá gráu ,gammi til harmleiks.
Alis voru gerðir 12 slíkir eintalsþættir
á vegum BBC, og þátturimn sem við sjá-
um í kvöid er hinn áttumdi í röðinni.
Áður höfum við Aemgið að sjá úrvalsteik-
komur, svo sem Rachel Roberts í þætti
eftir Emlym Williams; Margaret Leight-
om í þætti eftir Terence Rattigan; Moira
Lister í þætti eftir John Mortimer; og
Irene Worth í þætti eftir J. B. Priestley.
Stærsta hiutinn í þessum þáttum á þó
Aldo Nicolaj. Hann er ítalskur að ætt
og uppruna og einn snjaliasti rithöfu.ndur
núlifandi, sem skrifar fyrir leikhús á Ítal
íu. Leikriit hans hafa verið flutt í ftestuim
löndum Evrópu, og höfuðstyrkur hams er
sagður iiggja í vel unnum söguþræði
ásamt skarpri persónumótun. Hamn
starfar einmig sem fram/Ieiðandi og hanid
riitahöfundur fyrir ítalska sjómvarpið.
Fyrr á þessu ári höfum við fengið að
sjá þrjá eimtalisþætti eiftir Nicolaj. 1
þessum fjórða þæfcti hams, sem fliuittur
verður í kvöld, verður Meg Jenkins í
eldlinunni. Hún er ein fremsta skap-
gerðarteikkoma Emg'tendimiga, fædd árið
1917 og hefur leikið í ótal leiikritMm,
bæði í Englandi og í Bandaríkjumum,
auk þess sem hún hiefur ledkið í kvik-
myndum og sjómvarpi. Jenkins hóf feril
sinn á teiksviði árið 1933 í Liverpool, og
árið 1940 vakti hún á sér veruteiga at-
hygli í leikriti Emlyn Wi'lliams ,,The
Light of Heart“. Fimm árum síðar jók
hún enn á frægð sína í leikritinu „The
Wind of Heaven“, einnig eftir WiBi-
ams. 1956 hlaut hún Clarence Derwent
verðlaunin fyrir leik sinn í Horft af
brúnni, og síðasti leiksigur henmar á
teiksviði var í leikriitinu „Enter a Free
man“ eftir Tom Stoppard. Meg Jenk-
ins lék fyrst í kviikmynd árið 1939, en
margir mumu mimnast hennar úr m,ynd-
umum Ivar hdújárn og „Cruel Sea“ eða
Brimaddan stríða, eins o.g hún mun hafa
heitið hér. Nýlega hefur hún leikið í
myndunum „OHver“ og „The Smash-
ing Bird I used to Know“.
Á næstunni munum við væmtantega
fá að sjá tvo eintalsþætti tid viðbótar
eftir Aldo Nicolaj — með frönsfcu leik-
konunni Genievieve Page og rússnesku
leikkionunni Lila Kedrova svo og einn
þátt eftir Frank Marcus, sem frægur
varð fyrir leikritið „The Kiltling of Sist-
er George", en þennan þátt samdi hann
sérstaktega fyrir Lynn Redgrave, sem
tæpast þarf að kynna hér.
Sveimn Benedlktsson, forstjóri,
flutti nokkur orð í upphafi upp-
boðsins og minntist Sigurðar
heitims Benediktssonar, sem gerð
ist uppboðshaldari árið 1953 og
hélt því áfram til dauðadags.
Nokfcrir vinir Sigurðar stofnuðu
síðan fyriirtækið Sigurð Bene-
diktsson hf. og uppboðið í gær
var hið fyrsta á þess vegum.
Sveiinn sagði, að vamdi væri að
feta í fótspor Sigurðar, en engu
að síður væri það ætlunim. Gaf
hanm síðan Hilmari Foss, fram-
kvæmdastjóra Sigurðar Bene-
diktssonar hf„ orðið, en hann
stjórnaði uppboðiniu.
Næst dýrasta myndin á upp-
boðinu var Skaftafell, olíumynd
á striga eftir Gunnlaug Blöndal.
Hún fór á 82.000,00 krónur.
Þriðja dýrasta myndin var Úr
Gálgahrauni, • olíumálverk á
striga, sem slegin var á 80.000,00
krónur. Þá kom næst Nakiin kona
við ofn, olíumálverk eftir Jón
Stefánsson, ómerkt, sem slegin
var á 75.000,00 kirónur. —
Ömniur lítil mynd eftir Jón
Stefánsison, Ávextir í skál,
var slegin á 70.000,00 króniur.
Mynd eftir Svein Þórarinsson,
Ásbyrgi, olíumynd á striga, var
slegin á 55.000,00 krónur.
Aðrar myndir fóru á lægra
verði, hin ódýrasta á 3.000,00 kx.
Það má til tíðinda telja af upp-
boðimu að lítil sjálfsmyind eftir
Sölva Helgason og eigihhandar-
ritgerð, 17x11 cm að stærð, var
slegin á 38.000,00 krónur og
hafði uppboðshaldarinm um það
að segja, að „dýr myndi Hafliði
allur“.
Mikið fjölmennii var á uppboð-
inu, sem stóð í rúimar tvær
klulckustundir.
Sjálfsmynd Sölva Helgasonar,
sem slegin var á 38.000,00 kr.
Fyrri eigandi setti lágmarks-
verð 5.000,00 krónur.
EM í Bridge:
Frakkland sigraði
ísland 11 — 9
EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ í
bridge fyrir árið 1971 fer að
þessu sinni fram í Grikklandi.
Mótið hófst í gær en lýkur 4.
desember. f opna flokknum
keppa 22 sveitir, en í kvenna-
flokki 16 sveitir.
f fyrstu umferð keppti ís-
lenzka sveitin við frönsku sveit-
ina, sem er núverandi Evrópu-
meistari, og sigraði franska sveit
in með 11 stigum gegn 9.
Úrslit í opna flokknum í 1. um-
ferð urðu þessi:
Frakkland — ísland 11— 9
ítalía — Tyrkland 20----í-4
Portúgal — ísrael 20—-2
Danm. — Ungverjal. 20—=-2
Svíþjóð — Júgóslavía 11— 9
Noregur — Bretland 12— 8
írland — Finnland 14— 6
Belgía — Austurríki 12— 8
Holland — Spánn 17— 3
Þýzkaland — Grikkl. 20---=-5
Pólland — Sviss 16— 4
Spilaðar eru 2 umferðir á dag,
nema n.k. mánudag, en þá taka
keppendur sér frí.
í gærkvöldi átti íslenzka sveit-
in að spila við þá ítölsku, en úr-
slit voru ekki kunn, er blaðið fór
í prentun.
íslenzka sveitin er þannig skip
uð: Ásmundur Pálsson, Eiinar
Þorfinnsson, Hjalti Elíasson,
Páll Bergsson, Stefán J. Guð-
johnsen og Þórir Sigurðssön.
Fararstjóri og fyrirliði er Alfreð
Alfreðsson.
Aibert Guðmundsson: