Morgunblaðið - 24.11.1971, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1971
Maðurinn minn,
Edward Lövdal,
Bólstaðahlið 37,
iézt 23. þ. m.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðleil I.övdal.
Móðir okkar,
Jónfríður Bjarnadóttir,
andaðist 22. nóvember að
heimili sínu, Sælundi, Bíldu-
dal.
Börn hinnar látnu.
Systir mín,
Sesselja Sigurðardóttir,
kaupmaður, Tjarnargötu 10,
lézt í Landakotsspítalanum
22. þ.m.
Steinunn Sigurðardóttir.
Móðurbróðir minn,
Haraldur Davíð
Jóhannsson,
Leifsgötu 24,
lézt í Landspítalanum 24. þ.m.
Þorgerður Þórarinsdóttir.
Minning:
Kristinn Guðjónsson
Fæddur 22. sept. 1898.
Dáinn 17. nóv. 1971
MILLI lífs og dauða er aðeins
eitt fótmál. Það sannaðist við
burtför vinar míns Kristins Guð
jónssonar er hann kom niður að
morgni, rakaði sig og þvoði, gekk
svo inn í stofu, settist í stól og
var þar með allur.
Mágur minn og föðurbróðir
okkar,
Berg Ingimann
Ólafsson,
frá Norðfirði,
til heimilis að Skeiðarvogi
143, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 25. nóv. kl. 3 e. h. Blóm
vinsamlegast afbeðin. Þeim,
sem vildu minnast hans er
bent á líknarstofnanir.
Þórey Jónsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Einar Eyjólfsson,
Guðný Jónsdóttir,
Gunnar Ehiarsson.
Hjartkær móðir min, tengda-
móðir og amma,
Gíslína Sigurðardóttir,
sem andaðist 20. þ. m., verð-
ur jarðsungin frá Stykkis-
hólmskirkju laugardaginn 27.
nóv. kl. 10,30 f. h. Kveðjuat-
höfn verður frá Fíladelfíu-
kirkjimni Hátúni 2, n. k.
fimmtudag kl. 1,30. Þeir sem
vildu minnast hinnar látnu
vinsamlegast láti Fíladelfíu-
kirkjuna njóta þess.
Geir Jón Þórisson,
Rakel Þórisdóttir,
Leifsgötu 9.
Jarðarför eiginkonu minnar
svövu Arnadóttur,
Safamýri 49,
sem andaðist í Landspitalanum 17. þ.m., fer fram frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 25. nóv. kl. 1,30 e.h.
Blóm og kransar afbeðnir.
Það var mikið áfall fyrir konu
hans er kom rétt á eftir inn í
stofuna, en tæplega ársgömul
dótturdóttir þeirra lék sér á gólf
inu.
Kristinn Guðjónsson var fædd-
ur á Hamri í Gaulverjabæjar-
hreppi 22. sept. 1898, sonur hjón
anna þar Guðjóns Nikulássonar
og konu hans Guðbjargar Guð-
mundsdóttur. Voru börnin átta
og eru nú aðeins þrjú þeirra á
lífi. Um átta ára aldur missti
hann föður sinn og móður sína
tveimur árum síðar. Var þá heim
ilið leyst upp og fór Kristinn á
bæ þar í sveitinni þar sem hann
var til átján ára aldurs. En þá fer
hann vinnumaður til Páls í Nesi
í Selvogi og er þar í 6 ár.
Eftir það fer hann til sjós og
er bæði á togurum og á bátum.
Á þeim árum er hann var á tog
urunum varð hann fyrir því slysi
að falla niður í lest og meiðast al
varlega á baki og innvortis, þó
náði hann sér nokkum veginn á
yfirborðinu í bili en kom fram
síðar eins og sagit verður frá hér
á efitir.
Hann var á togaranum Jóni for
seta er hann fórst við Stafnes
árið 1928 og var einn af 10, sem
af komust, en 15 menn drukkn-
uðu. Mun það hafa verið mikil
reynsla að horfa á eftir skipsfélög
um sínum tínast í sjóinn einn af
öðrum, og bíða í reiðanum í ó-
vissu um hvort nokkur kæmist af
eða ekki.
Eftiir að Jón forseti fórst fór
hann á togarann Hafstein en
brátt kom í ljós að eitthvað var
að, og hann þoldi ekki erfiðis-
vinnu. Mun slysið og strandið
hafa átt sinn þátt í því.
En það var ekki að hans skapi
að leggja árar í bát. Hann sneri
sér því að alifuglarækt sem hann
smá stækkaði og eins garðrækt
sem konan var mikill þátttakandi
í og eins börnin eftir að þau kom
ust á legg.
En bærinn stækkaði líka og
innan tíðar var hænsnabúið örðið
fyrir einbýlishúsum, sem höfðu
verið ákveðin síðar í skipulaginu.
Varð hann því að farga miklu af
því, þó hafði hann nokkrar hæn
ur til hins síðasta.
7. júní 1930 gekk Kristinn að
eiga eftirlifandi konu sina Ingi-
björgu Sigurðardóttur frá Ertu
í Selyogi. Mestu myndar- og
nianmkostakonu. Voru þau mjög
samhent um að byggja upp
heimilið eftir því siem efni og
ástæður leyfðu.
Kristinn sem var algjör reglu-
maður og hafði iagt allit sitit kaup
tii hliðar, byggði á fyrstu búskap
arárum sinum lítið, snoturt íbúð
arhús á lóðinni Holtsgötu 3 í Hafn
arfirði, sern þau hjónin hafa búið
í síðan og bætt það og fegrað eft
ir ástæðum.
Þau hjón eignuðust 5 börn og
eru þrjú þeirra á lífi. Mestu mynd
arböm og hafa fengið góða
menntun. Eru það tveir drengir
og ein stúlka, tvö af þeim eru
gift, en eldri sonurinn hefur ver
ið í heimahúsum fram að þessu
og stutt foreldra sína með ráðum
og dáð. Fyrsta bamið sem þau
áttu misstu þau, dreng, 7 ára,
mesta e&idspilt, var það þumgt
áfall, hann hafði verið eina barn
ið fyrstu 6 árin og í miklum dáíð
um. Stúlku misstu þau svo við
fæðingu.
Kristinn var vel meðalmaður á
hæð, þrekinn um herðar og vel
byggður, glaður í lund og fjöl-
fróður, þótt hann nyti ekki skóla-
göngu, hafði glöggt auga fyrir
því sem var að gerast í krinigum
hann og stálminnuigur. Hiann
var mjög barngóður og síðasta
árið var dóttuirdóttirin yndi hans
og eftirlæti.
Allt hans starf miðaðist við að
hlúa að heimilinu og að ástvinir
hans hefðu það sem bezt. En heils
an var tæp og hann varð að gæta
sín, en aldrei heyrðist hann
kvarta, þó leyndist það engum
sem náin kynni höfðu af honum
að honum leið oft illa af þeim
sökum.
Ég vil svo að lokum þakka
þessum góða dreng alla hans vin
áttu og allt sem hann hefur fyrir
okkur gert. Megi góður Guð leiða
hann á fund ástvina sinna, sem
farnir eru á undan honum og búa
honum stað á landi 'lif enda þar
sem friður og hamingja ríkir. —
Konu hans og ástvinum sendum
við hjónin okkar innilegustu sam
úðarkveðjur.
Jóhannes Sigurðsson.
„Dulrænir áfangar“
— ný bók eftir Ólaf Tryggvason
KOMIN er út ný bók, eftir Ól-|tveggja heima, verndar, sem for
af Tryggvason. Nefnist hún „Dul eldrar geta glætt og hagrætt með
rænir áfangar“. |ástúð, umhyggju og skilningi,
„Allir njóta ástar og umhyggju
máttugra dulrænna vera“, segir
m.a. á kápusíðu. „Við njótum
einnig verndar frá fæðingu,
verndar máttugra fuiitrúa
t Móðir okkar og amma
GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTTIR,
Rauðalæk 9,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, aðfaranótt
23. þ. m. — Jarðarförin auglýst síðar. Maríus Helgason, Halldór Helgason, Þórunn Pálsdóttir, Bragi Sigurðsson.
ólafur Tryggvason
Fyrir mína hönd og barna okkar
Benedikt Ólafsson.
t
Móðir okkar og tengdamóðir
BJARNASÍNA MARGRÉT ODDSDÓTTIR,
Suðurgötu 38. Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 25.
nóv. kl. 2 e.h.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Böm og tengdaböm.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR KJARTANSSON,
Suðurgötu 45, Keflavik,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 26. nóv.
kl. 2,30.
Svava Þorkelsdóttir,
Lóa Guðmundsdóttir, Ævar Ámason,
Svava Hallgrímsdóttir, Sigurður H. Guðmundsson,
og bamaböm.
einlægs vakandi vilja. — Ein-
lægni í athöfnum er auðlegð á
vöxtum I ríki himnanna, sam-
kvæmt því sem höfundurinn
kennir, og bænin er athöfn og
máttugt afl þeim, sem henni
kunna rétt að beita.
Þessi bók er áfangi á könnun
arferð óvenjulegs og dulræns höf
undar um kunn og áður ókönnuð
svið og spannar óravíddir. Yfir-
skilvitleg skynjun höfundarins á
torskilda hluti gerir þá einfalda
og eðlilega, þegar þeir eru rök-
studdir dæmum úr lífsreynslú
hans og fræðslu, — sameinast í
trúarlegu og vísindaiegu innsæi
hans.“
Bókin er 222 bls. að stærð. Út-
gefandi ér Skuggsjá.
t Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför fósturföður okkar t Föðurbróðir minn, Sigurður Sigurmundsson,
AUÐUNS JÓHANNESSONAR frá Seyðisfirði,
frá Krossanesi við Reyðarfjörð. Vitastíg 5, Hafnarfirði,
F. h. vandamanna verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 25.
Páll Guðmundsson, nóvember kl. 10.30.
Guðni S. Guðmundsson. Guðbjartiu' H. Eiríksson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐJÓN RUNÓLFSSON,
framkvæmdastjóri,
Vesturgötu 65, Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 26. nóvem-
ber klukkan 13.30 eftir hádegi.
Blóm vinsamlega afbeðin. Þeim, er vildu minnast hins látna,
er bent á Sjúkrahús Akraness.
Helga Jónsdóttir,
Guðrún Friðjónsdóttir, Viðar Danielsson,
Laufey Runólfsdóttir, Edvard Friðjónsson,
barnaböm og barnabamabörn.