Morgunblaðið - 24.11.1971, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUIl 24. NÓVEMBER 1971
■
tyiíorgunblaósins
Getraunaþáttur MbL;
Hverjum tekst nú að
ná 12 réttum ?
í*eir verða varla 222
36. LEIKVIKA Getrauna varð
allsoguleg. — AUs bárust um 52
þúsund seðlar og potturinn varð
því stærri en nokkru sinni áður.
En getspeki þátttakenda varð
htns vegar með eindæmum, því
aS alls bárust 222 si-ðlar með 12
leikjum réttum og 1581 seðill
með 11 leikjum réttum. Vinnings
npphæð hvers seðils með 12 leiki
réttsi nemur því aðeins 2.500 krón
um. Úrslit leikjanna á laugardag
Inn virðast ekki hafa komið
mjög á óvart, en þó má geta þess
að jafntefli kom hvergi upp, en
hins vegar níu heimasigrar og
þrír útisigrar.
ÚTslit leikja á laugardaginn
ur&u annars þessi:
1. DEILD:
Coventry — Liverpool 0:2
Crystal Palace — Chekea 2:3
Derby — Sheff. Utd. 3:0
Everton — Southampton 8:0
Ipswich — Huddersfield 1:0
Leeds — Stoke 1:0
Man. Utd. — Leicester 3:2
Newcastle — Nott. Forest 2:1
Tottenham — W.B.A. 3:2
West Ham — Man. City 0:2
Wolves — Arsenal 5:1
2. DEILD:
Blackpool — Luton 0:1
Bristol City — Carlisle 1:4
Cardiff — Sunderland 1:2
Fulham — Charlton 1:0
Mflddlesbrough — Orient 1:0
MiMwall — Birmingham 3:0
Portsmouth — Oxford 2:0
Q.P.R. — Hull 2:1
Sheff. Wed. — Norwich 1:1
Swindon — Presáon 1:1
Watford — Burnley 2:1
Þá fór fram 1. umferð ensku
bikarkeppninnar og urðu athygl
isverðustu úrslit þessi:
Bournemouth — Margate 11:0
Colchester — Shrewsbury 1:4
Frickley — Rotherham 2:2
Notts County — Newport 6:0
Southend — Aston Villa 1:0
í Skotlandi urðu þe»9i úrslit
bielzt:
Celtic — Falkirk 2:0
Hearts — Ayr 1:0
Morton — Rangers 1:2
Motherwell — Aberdeen 0:4
Man. Utd. heldur enn þriggja
0tiga forskoti í 1. deild með sigri
sbium yfir Leicester. Brian Kidd
ekoraði fyrir Man. Utd. á 1. mín.,
en síðan skoraði Denis Law tvö
mörk. Leicester náði að svara
með tveimur mörkum, í lok hvors
hálfleiks og var BSrchenall að
verki í fyrra skiptið, en Glover
í eíðara skiptið.
Man. City virðist kunna vel við
eig í London og nú varð West
Ham að lúta í lægra haldi. Leik-
urinn var harður og jafn, en á
37. mín. fékk Man. City dæmda
vitaspymu og hún sló West Ham
út af laginu. Francis Lee skoraði
úx vítaspyrnunni, en Wyn Davies
bætti öðru marki við í seinni
hélfleik.
Derby vann öruggan sigur á
Sheffield Utd. Kevin Hector skor
aði á 2. mín. leiksins, en Alan
Hinton bætti síðan tveimur
mörkum við, báðum úr víta-
spymum.
Everton tók heldur betur við
sér í leiknum gegn Southampton
og áður en yfir lauk hafði Sout-
hampton fengið á sig átta mörk.
Joe Royle skoraði fjögur mörk,
Dave Johnson þrjú og Alan Ball
eátt.
Úlfarnir bitu hressilega frá sér
í kiknum gegn Arsenal. Kennedy
skoraði fyrir Arsenal í fyrri hálf
leik og allt virtist leika í lyndi
hjá meisturunum. En i síðari
hálfleik sneru úlfamir blaðinu
við og skoruðu fimm mörk á
tuttugu mín. Derek Dougan skor
aði tvö mörk, en Wagstaff, Hibb-
itt og McCaliiog eitt hver.
Tottenham átti í erfiðleikum
með W.B.A., sem lék mun betri
knattspymu. Mike England náði
forystu fyrir Tottenham undir
lok fyrri hálfleiks, en Bobby
Gould jafnaði fyrir W.B.A., er
Ted MacDougall setti markamet
í bikarkeppninni, en hann skor-
aði níu mörk fyrir Bouraemouth
gegn Margate. MacDougall er nú
langmarkahæstur í enskri knatt-
Spymu með 28 mörk.
stundarfjórðungur var af síðari
hálfleik. Alan Gilzean skoraði
síðan tvö mörk á þremur mín.,
en Tony Brown svaraði fyrir
W.B.A. er stundarfjórðungur var
til lfeiksloka.
Peter Lorimer skoraði sigur-
mark Leeds gegn Stoke á 5. mín.
og þar við sat, þó að Leeds tefldi
nú fram liði sínu fullskipuðu.
Malcolm MacDonald skoraði
bæði mörk Newcastle gegn Nott.
Forest og lyfti þar með liði sínu
af botninum, en eftir sitja Cryst-
al Paiace, W.B.A og Nott. For-
est.
Ted MacDougall skoraði
hvorki meira né minna en níu
mörk i leik Boumemouth og
Margate í 1. umferð bikarkeppn-
innar og er það markamet í bik-
arkeppninni. Fyrra metið átti
Billy Minter og var það sett fyr-
ir tæpum fimmtíu árum. Minter
skoraði þá sjö mörk fyrir St.
Albans gegn Dulwich Hamlet, en
allt kom fyrir ekki, því að Dul-
wich Hamilet vann leikinn, 8:7.
Hið fornfræga bikarlið, Aston
ViUa, var slegið út úr bikar-
keppninni af Southend. Aston
Viila hefur unnið bikarkeppnina
oftar en nokkuð annað félag eða
sjö sinnum alls.
Við skulum þá snúa okkur að
getraunaseðli þessarar viku, en
úrslit sömu leikja urðu þessi á
síðasta keppnistímabili:
Arsenal — Crystal Palace 1:1
Chelsea — Tottenham 0:2
Huddersfield — Derby 0:0
Leicester — Everton —
Liverpool — West Ham 1:0
Man. City — Coventry 1:1
Nott. Forest — Leeds 0:0
Sheffield Utd. — Ipswich —
Southampton — Man. Utd. 1:0
Stoke — Newcastle 3:0
W.B.A. — Wolves 2:4
Norwich — Middlesbrough 1:1
Og þá er röðin komin að get-
raunaspánni:
Arsenal — Crystal Palace 1
Arsenal er greinilega í miklum
öldudal um þessar mundir, en
liðið hefur þó náð ailgóðum ár-
angri á heimavelli. Crystal Pal-
ace er nú neðst í 1. deild og ég
reikna með því, að svo verði enn
um sinn. Ég spái Arsenal sigri.
Chelsea — Tottenham 1
Chelsea er nú í miklum upp-
gangi og félagið hefur oftast
reynzt Tottenham ofjarl á Stam-
ford Bridge. Tottenham hefur
ekki unnið leik á útivelli til
þessa og leikur liðsins að und-
anförnu hefur ekki verið sann-
færandi. Ég spái því Chelsea
sigri.
Huddersfield — Derby 2
Huddersfield er í fallhættu og
liðið leikur sennilega til jafntefl-
is í þessum leik. Derby er mjög
sterkt lið nú og valinn maður i
hverju rúmi, svo að allar líkur
benda til þess, að liðið nái báð-
um stigunum í Huddersfield.
Leicester — Everton X
Leicester hefur sótt sig mjög
að undanförnu og liðið er ekki
Man. City vann annan góðan sigur i London, að þessu sinni gegn
West Ham. Þessi skemmilega mynd var tekin af viðureign þeirra
Urian Robson og Colin Bell i leiknum á laugardaginn, sem City
vann, 2:0.
auðunnið nú eins og sjá má af úr-
slitum síðustu leikja. Everton
hefur einnig sótt sig mjög og
tveir síðustu leikir liðsins gefa
til kynna, að það sé að komast i
sitt fyrra form. Ég tel þennan
leik afar tvísýnan og halla mér
að jafntefli.
Liverpool — West Ham 1
Liiverpool er enn taplaust á
Anfield Road og svo verður ör-
ugglega enn um sinn. West Ham
hefur sýnt ágæta leiki að undan-
förnu, en liðinu hefur þó aðeins
einu sinni tekizt að vinna leik á
útivelli. Ég spái Liverpool sigri.
Man. City — Coventry 1
Gengi Man. City hefur verið
mikið á undanförnum vikum og
sigrar liðsins yfir Arsenal og
West Ham á útivöllum gefa til
kynna, að liðið gefi ekki ná-
grönnum sínum á Old Trafford
mikið eftir. Árangur Coventry á
útivelli er slakur, aðeins einn sig
ur og þrjú jafntefli í níu ieikjum.
Ég spái Man. City öruggum sigri.
Nott. Forest — Leeds 2
Nott. Forest hefur verið í fall-
baráttu það sem af er þessu
keppnistímabili og verður það
GETRAUNATAFLA NR. 37
. a« i I § | |
»acoAs;oSSt2;
§SÍþi?«ioiii
AESENAL - CRYSTAL PALACB 1111111111
CHELSEA - TOTTENHAM 1X11X1X1X?
HUDDERSFIELD - DERBY 222 2 2 ? 2 X 2 S
LEICESTER - EVERTON X1X221XX1 2
LIVERPOOL - NEST HAM 11111XX1X1
MAN. CITY - COVENTRY 1111111111
NOTT.FOREST - LEEDS 22222X2X
SHEFFIELD Ul’D. - IPSWICH 11111111
SOUTHAMPTON - MAN. UTD. 22222X22
STOKE - NEWCASTLE 1111X11111
W.B.A. - WOLVES I X2XX222 X 22
NORWICH - MIDDLESBROUGH I 1111111111
2 2
1 1
X X
1
X
2
1
1
1
2
1
X
1
X
X
1
1
1
2
1
2
1 1
X X
1 1
ALLS
1X2
12
5
0
5
9
12
0
12
0
11
0
12
0
6
9
4
3
0
2
0
4
1
6
O
0
1
10
3
0
0
10
o
8
0
6
0
sennilega til loka þess. Leeds
getur nú teflt fram sínu sterk-
asta liði, en að undanförnu hafa
margir leikmenn liðsins verið á
sjúkralista. Ég reikna því fast-
lega með sigri Leeds.
Sheffield XJtd. — Ipswich 1
Sheffield Utd. hefur beðið mik
inn ósigur í tveimur síðustu leikj
um sínum, fyrst gegn West og
síðan gegn Derby, en ekki ætla
ég, að þau úrslit segi okkur mik-
ið um úrslit þessa leiks. Ipswich
hefur aðeins unnið einn leik á
útivelli, en hefur náð nokkrum
jafnteflum. Ég spái Sheffield
Utd. sigri.
Southampton — Man. Utd. 2
Southampton galt mikið af-
hroð á Goodison Park um sið-
ustu helgi og varla verður liðið
búið að jafna sig þegar það mæt-
ir Man. Utd. Þeir Denis Law og
félagar hans í Man. Utd. eru enn
i mikiu stuði og mér þykir því
vænlegast að spá þeim sigri 1
þessum leik.
Stoke — Newcastle 1
Stoke hefur löngum verið
dæmigert heimalið, og svo er
enn, þó að liðið hafi tapað sdð-
asta ieik sínum á Victoria
Ground. Newcastle hefur hina
vegar reynzt lélegt á útivelli og
hefur aðeins náð tveimur jafn-
teflum í níu leikjum. Stoke og
Newcastle hafa verið lítið gefin
fyrir jafntefli í viðureignum sín-
um og þvi spái ég Stoke sigri.
W.B.A. — Wolves X
Árangur W.B.A. hefur verið
sl'akur til þessa og liðið hefur
uppskorið fleiri stig á útivelll
en á heimaveUi. úlfarnir hafa
unnið góða sigra á heimavelli, en
hafa aðeins unnið einn sigur á úti
velii. Leikir þessara liða hafa
jafnan verið tvísýnir og oft orðið
jafntefli og ég geri ráð fyrir þeim
úrslitum nú.
Norwich — Middlesbrough 1
Norwieh er efst í 2. deild og
liðið hefur enn ekki tapað leik á
heimavelli. Middlesbrough eff
sterkt lið á heimavelli, en hins
vegar slakt á útivelli. Ég apái
því Norwich sigri.
Framhald á bls. 31.