Morgunblaðið - 23.12.1971, Page 13
MORGUNBLlAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1971
13
Jóhann Hjálmarsson
skrifar um
BÓKMENNTIR
MEÐ HATT-
BUNDNA LJÓÐINU
Maríus Ólafsson:
ARFURINN.
Reykjavik 1971.
MARÍUS Ólalsson kalla.r Ijóða-
bok sdna Aríinn. „Með
háítbundna Ijúðinu leystist sá
vandinn, / sem landnáms og 5s-
lenzkrar sérstöðu beið", yrkir
hann í samnefndu ljóði. Og hann
er sizt af öliu sáttur við „hátt-
leysuna". Arfurinn er fjórða
Ijóðabók Maríusar Ólafssonar,
hinar eru Við haííð (1940),
Hóltagróður (1950) og Draumar
(1956).
Marius Ólafsson setur ekki
markið hátt i kvæðagerð sinni:
vfeur, smákvæði og tækifæris-
ljóð, en hann er ekki smeykur
yið að glíma við erlenda meist-
ara, 'því að í bók hans eru þýð-
ingar á ljóðum eftir skáid eins
og Wiliiam Wordsworth, Matt-
hew Arnold og George Santay-
ana. I>ýðingarnar eru lagiega
gerðar, til að mynda Ó veröid
eftir Santayana, sem fjallar um
þá trú, sem „leiðir hjartað með
sinn dauðadóm / að dyrum Guðs
frá mannsins fai]ivaJi:leSk".
Ég fann nokkur skemmtileg
og failega gerð smákvæði í Arf-
inum. Tvö þeirra langar mig sér
staklega til að minnast á; fræg-
ari skáid en Maríus Ólafsson
mættu vera hreykin af þeim.
Hið fyrra nefnist Heim úr sveit-
inni og er á þessa leið:
Heim úr sveitinni á haustin,
hægfara lestaganginn.
Sjávarhljóðið í suðri,
sölva- og þaraangan.
Yljað heima á hlaði
hlýjum fagnaðarorðum.
1 þessu kvæði er sannköiluð
sveitasæla. Siðara kvæðið kall-
ar Marius Við vegdmn :
Hann, sem er hœttur að ferðast,
hættur að flytja póstinn,
gengur á gamalsaldri
götuna upp á f jallið,
og hressir við hrundar vörður.
„Að hressa við hrundar vörð-
Maríus Ólafsson.
ur“ er ekki svo lítið hlutskipti
í iáfi gamals manns. Tengslin við
fortíðina verða ekki rofin þrátt
íyrir allar háttleysur heimsins.
Því er Maríusi Ólafssyni óhætt
að trúa. Hann er einn þeirra
manna, sem okkur þykir gott að
eiga samfylgd með.
Það er eitthvað hreint og
óþvingað við Ijóðabók Mariusar
ÓlafsSonar.
Matvöruverzlun tíl sölu
Til sölu kjöt- og nýlenduvöruverzlun, í fullum rekstri, í Austur-
borginni, við fjölfarna götu.
Mikiir möguleikar að auka núverandi sölu, sem er þó allgóð.
Leigtrhúsnæði eftir samkomulagi
Tilboð, merkt: „Áramót” — 754" sendist afgreiðslu Morgun- -
blaðsins fyrir 26 þessa mánaðar.
Flugeldasalan
Björgunarsveit Fiskakletts efnir til sinnar
árlegu flugeldasölu dagana 27. — 31. des. að
Linnetstig 6 (Gamla Stebbabúð).
Komið og kaupið flugeldana hjá okkur í
rúmgóðu húsnæði.
Mikið úrval af alls konar púðri.
Pöntunarlistar hafa verið bornir í hús í
Hafnarfirði og verða þeir sóttir og afgreiddir
fyrir gamlársdag.
Þökkum viðskiptin með ósk um góðar
undirtektir.
Björgunarsveit Fiskakletts
LEIKIR OG LÉTT GAMAN
Séra Sveinn Víkingur tók saman.
Hópleikir
Leikþrautir
Leikir að aurum
og eldspýtum
Talnaleikir og ráðgátur
Taflborðsleikir
Huglestur og sjónhverfingar
Gátur.
KVÖLDVÖKUÚTGÁFAN.
ÚRVAL JÓLAGJAFA
ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR
VERZLIÐ í ST/ERSTU
LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUN
BORGARINNAR
AUSTURSTRÆTI
Teppin sem endastendast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasfa teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
síslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppjn
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greiðsluskilmála. Leitið tii þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
LITAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262