Morgunblaðið - 23.12.1971, Page 14
MORGUN'BLAÐIÐ, FrMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1971
% 14
S---------
Markús Orn Antonsson:
Æskulýðsstarf i
öllum borgarhlutum
-> Frá umræðum í borgarstjórn
Á. fundi borgrarstjómar
Reykjavíkur fyrir nokkru
Idomu æskulýðsmál til nokkurr-
ar umræðu i tilefni af tveimur
tillögrum, sem fyrir fimdinum
lág-u. Önnur tillagran var sam-
þykkt, en það var tillagra, sem
Markús Örn Antonsson, einn af
borgrarfulltrúum Sjálfstæðis-
fiokksins flutti, en Markús er
núverandi formaður Æskulýðs
ráðs Reykjavikur Kom fram í
framsöguríeðu, sem bann flutti
með tillögru sinni, að samtals
væru ætlaðar 14,7 milljónir
króna til starfsemi Æskulýðs-
ráðs á næsta ári skv. frumvarpi
því að fjárhag-sáætlun, sem nú
ligrgrur fyrir borgarstjórninni. A
þessu ári var f járveitingin í
heild tæpar 9 millj. kr.
Ennfremur kom fram í ræðu
borgrarfulltrúans, að Æskulýðs-
ráð mun standa fyrir umfangrs
mikilli könnun meðal unglinga
Í byrjun næsta árs, þar sem
kannaðar verða óskir þeirra
varðandi félagsstarfsemina.
Hin tillagran, sem fyrir fund-
iniun lá var tillaga flutt af borgr-
arfulltrúum Alþýðubandalagrs-
Ins. Fer frásögn af umræðum
þessum hér á eftir.
Gtiðrún Helgadóttir (Ab)
imæliti fyrir tillögu borgarfulJ-
trúa A1 þ ý ðu ba:n d a lags i n s, en
sú tillaga var svohljóðandi:
„Borgarstjórn samþykkir, að á
næsta ári verði keypt eða leigt
íbúðarh ú.snæði fyirir æskulýðs-
starfsemi í Árbæjar- og Breið-
holtshverfi og síðam kornið
upp sams konar aðstöðu í eldri
hverfum borgarinnar. f>á sam-
þykkir borgarstjórn, að auglýst
Ir verði sem fyrist styrkir til
náms i æskulýðsleiðsögn."
Borgarfulltrúinn sagði, að
áfengisneyzla unglinga væri að
verða gífurlegt vandamál í
Reykjaivík. Kannanir, sem gerð-
ar hefðu verið á þessu sviði
leiddu i Ijós, að verulegur hluti
15 ára unglinga hefði neytt
áfengis. Aðstöðu þeirri, er Reykja
víkurborg veitti unglingum sín-
um eftir að skóla lyki á daginn
væri verulega ábótavant " og
væri þar skjótra úrbóta þörif.
Tillaga þeirra Alþýðubandailags
manna miðaði að úrbótum, þar
sem þörfin væri brýnust, en
það væri I Árbæjar- og Breið-
holtshverfi.
Markús Örn Antonsson mælti
fyrir tillögu sinni, sem er svo-
Mjóðandi:
„Borgarstjóm Reykjavilkur
ítrekar fyrri ályktanir sínar uim
að Sköpuð verði skillyrði fyrir
æskulýð.sstarf sem víðaist í borg
inni og þá fyrst og fremst með
því að koma upp aðstöðu fyrir
félagsstarf ungs fólks í þeton
borgarhlutum, þar sem skortur
Lœknaritari
Læknaritari óskast í fullt starf í lækningastofu í Reykjavík, sem
taka mun til starfa í febrúarmánuði nk.
Skriflegar umsóknir með uppiýsingum um menntun og fyrri
störf óskast sendar á afgreiðsiu blaðsins fyrir 5. janúar, merkt-
ar: „Læknastofan, Síðumúla 34 — 629".
Markús Örn Antonsson.
er á húsnæði til stokra nota. í
þessu saimbandi verði sérstak-
lega höfð í hiuga þau hverfi
borgarinnar, er fjærst liggja frá
þeim félagsmiðstöðvum, sem nú
eru fyrir hendi. Borgarstjórn
vekur í því sambandi athygli á
firamkomnum óskum æskulýðs-
ráðs um að reist verði æskuilýðs
heimili í Breiðlholti III, en það
mál er nú í undirbúningi.
Jafnfraimt felur borgarstjóm
æskulýðsráði að kanna hið
fyrsta, hvar skórinn kreppir að
í þessum efnum og gera tillög-
'ur um staðsetningu, stærð oig
skipan æskulýðsheimila, er
verði vettvangur fyrir félags-
starf un-gs fólks í hverfum
Reykjavíkur á sem breiðustum
grundvelli. Við þá tililögugerð
verði ítarlega kannað, hvaða
húsnæði kann að verða nýtt í
þessum tilgangi í einstökum
hverfum, t.d. skólahúsnæði, fé-
lagsheimili safnaða o.fl.“
I upphafi ræðu sinnar sagði
Markús Örn Antonsson:
4 fjárhagsáætlun fyrir 1972
FAGURT VERK
'Rauðskinna N.
er seld í áskrift
hjá útgefanda og í
bókaverzlunum
Verk sem
"'verðskuldar Iesendur
og athygli almennings
Þeita er fjórða
beildarsafn
íslenzkra þ jóðsagna og
þjóSbátta í útgáfu Þjóðsögu
og eru þá bindin orðin
16 í þessari
bókm enntagrein
■pi^ h g Sera Jon ’i'b
R^uöskinna
hin nýrri i-iii
Séra Jón Thorarensen hóf söfnun þessara fræða árið 1927 og
nefndi safn sitt Rauðskinnu, A skömmum tíma
varð hún eitt vinsælasta rit í þjóðlegum fræðum
og komu út alls 12 hefti af Rauðskinnu, og hefur
hún verið eftirspurð og ófáanleg um fjölda ára.
Efni Rauðskinnu hinnar nýju er mjög fjölbreytt og
margt sem aðeins hefur verið um fjallað í henni,
og sumt væri í gleymsku fallið ef það hefði ekki
varðveitzt í Rauðskinnu. Þótt þjóðsögurnar og sagnirnar séu snar þáttur verksins fjallar það
einnig um þjóðhætti til sjávar, vinnu á sjávarjörðum, átrúnað og dultrú. Lýst er klæðnaði,
matvenjum, hátíðahaldi, íþróttum, útvigtardögum og Iaunum manna. Miklu nýju efni er bætt
sem nú hefur verið lögð fram
eru alls ætlaðar 9.597.000 — til
relkstuiiis starfisemi Æsbulýðs-
ráðs Reykjarvikur, en 5.100.000.
— til framkvæmda. Samtals eru
þetta 14.697.000. — króniur. Árið
1971 var áætlaður rekstrar-
kostnaður Æskuilýðsráðs
6.590.000. -—, en fé til fram-
kvæmda 2.400.000. — eða sam-
tals 8.990.000. — Hér er því um
mjög verulega hækkun að ræða,
enda þótt umframeyðsla 1971
vegna firamkværnda, kr. 800.000.
sé innifalin i firamkvæmdaáætl-
un ársins 1972.
Síðan vék hann að starfsecmi
Æskulýðsráðs Reykjavikur, en
stairfssvið ráðsins væri eins og
fram kæmi í 4. grein samþykkt-
ar borgarstjómar fyrir það frá
20. septemtoer 1962, að vinna að
eflingu félags- og tómstunda
iðju meðal æskufólks í Reykja-
ví'k og hafa um það samvinnu
við þá aðila, sem um sililk mál
fjalla, og vera þeim til aðstoð-
ar og leiðbeiningar. Þessa
stefnu hefði Æskulýðsráð leit-
azt við að framkvsema á undan
förnum árum. Ein af undirstöð-
um vél heppnaðs starfs með
ungu fólki væru vel menntaðir
og bæfir stanfskraftar, en skort
ur á þeim hefði staðið starfi
allra æskulýðsfélaga mest fyr-
ir þrifum á undainfömum árum.
Þetta væri Æskulýðsráði ljóst,
og ætlaði ráðið alllt að 600 þús.
kr. til námskeiða fyrir leiðbein
endur í styrki til leiðtogaþjálf-
unar og styrki vegna nýmæla í
starfi æskulýðsfélaga.
Hann sagði, að starf Æsku-
lýðsráðs færi nú fram á 19
starfsstöðum. Stjórnunaraðsetur
væri á Friteirkjuvegi 11, og þar
væri einnig aðstaða till ýmissar
annarrar starfsemi. 1 hverfum
borgarinnar færi starfið nær
eingöngu fram í fraimhaldsskól-
um borgarinnar fyrir nemend-
ur viðkomandi skóla á hverjum
stað. Starfsemi þessi væri nú
rekin í 13 skólum og tækju 1500
unglingar þátt í henni. Þá leigði
ráðið húsnæði í Fáksheimilinu
við skeiðvöllinn fyrir starfsemi
með unglingum úr Breiðholti og
Blesugróf. Þar væri opið hús á
föstudögum og væru gestir að
jafnaði um 80 talsins. Þá væru
vikulegar kvikmyndasýningar
fyrir böm í Árbæj'arhverfi, sem
Æskuilýðsráð annaðist. Ennfrem
ur starfrækti ráðið siglinga-
klúbb í Nauthólsvík í húsnæði,
sem þar er, skemmtistað fyrir
unglinga í Tónabæ og útivistar
stað í Saltvík á Kjalarnesi.
Marteús sagði, að mjög oft
væru til umræðu í Æskulýðs-
ráði mát, sem að æskulýðsh/eim-
ilum iúta. Nú bæri að líta á
stefnumörkun, hvað æskulýðs-
heimili og hverfastarf áhrærir
sem eitt aðalverkefni þess
Æsteulýðsráðs, sem nú sæti. Nú
um áramótin hefði verið áikveð-
ið að hetf ja umfiangsmikla könn-
un á veigum ráðsi'ns meðal ungí-
inga um óskir þeiirra varðandi
félagsstar fsem ina og væri eðii-
legt að bíða með nánari á'kvarð
anir þar til sú könnun hefði far
ið fram. Hefði Dóra Bjamason
flélagsfræðingur verið fengin tii
að annast könnun þessa.
Mar-kús Öm Antonsson sagði
að loteum, að tiilaga sú, sem hér
lægi fyrir til umræðu væri liður
í þeirri þróun, sem orðið hefði
á starfisemi Æsteulýðsráðs vegna
síaukins skilnings borgairyfir-
valda á starfsemi ráðsins. Taldi
hann mjög miikiilivægt, að borgar
stjóm gæfi stoka yfMýsingu nú
til stuðnings Æskulýðsráði.
Alt'reð Þorsteinsson (F) taldi
það vem varhugaverða þróun
ef skemmtainahald væri orðinn
fyriirferðarmeiri þáttur í starf-
semi Æskuflýðsráðs heldur en
þáttur skapandi og þroskand'i
starfs. Taldi hann, að afskipti
Reykjavflkurborgar af æsteulýðs
máflum ætti frekar að beinast að
því að styrteja startfsemi ann-
arra aðila, sem sjálfstæða starf-
semi retea, á borð við íþrótta-
hreyfinguna. Vildi hann, að
gerð yrði úttekt á æskuflýðs
starfsemi Reykj avíku rborgar.
Guðrún Helgadóttir bvaðst
vilja mótmæla hræðslu Alfreðs
við opinber afskipti af æSku-
lýðsmálum. Hún sagði ennfrem-
ur að 600 þús. kr. fjárveiting ttl
leiðsagnar væri aJlllt of lítið, það
nægði í mesta lagi fyrir 2 menn
í 1 ár. Hún taldi reginmun vera
á tillögu Markúsar og þeirra Al
þýðubandalagsmanna. Sú síðar-
neflnda legði til raumhæfar að-
gerðir til lausnar vandanum ein
hin segði ekkert.
Markús Öm Antonssom
sagði að skemmtanastarfið væri
mjög mikilvægur þáttur í starf-
semi Æskulýðsráðs. Með því
væri verið að reyina að ná til
þess unga fólks, sem stæði utan
annarrar félagsstarfsemi. Gert
vseri ráð fyrir því í fjárhagstil-
lögum Æskulýðsráðs, að styrtet
yrði starfsemi félagasamtaka,
sem sjálfstætt störfuðu að awku
lýðsmálum.
Hann sagði það vera mis-
skilning hjá Guðrúnu Helga-
dóttur ef hún héldi, að 600 þús.
br. framflagið ætti að fara í
launagreiðslur fyrir leiðbeiin-
endur. Þetta fjármagn ætti að
nota í námsstyrki og yrðu þeir
auglýstir tifl umsóknar, þegair
þar að kæmi.
Að umræðu lokinni var tifl-
lögu Alþýðubandallagsins vísað
til Æskulýðsráðs með 9 attevæð
um gegn 4 og tillaga Markús-
ar samþyktet með 13 samhljóða
atkvæðum.
Ég þakka hjartanlega öllum, sem glöddu
mig á afmæli mínu með heimsóknum. gjöf-
um og skeytum. Óska ykkur gleðilegra jóla
og farsæls nýárs, með þökk fyrir liðnu árin.
Marie Ellingsein.
Laus lögregluþjónsslaðn
Staða eins lögregiuþjóns í Grindavíkurhreppi er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir um starfið, sem ritaðar séu á þar til gerð eyðubiöð.
sem fást í lögregiuvarðstofunni í Hafnarfirði, skulu sendar und-
irrituðum fyrir 15. janúar 1972,
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
17. desember 1971,
Einar Ingimundarson.