Morgunblaðið - 27.01.1972, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27, JANUAR 1972
22 0-2M
[RAUÐARÁRSTÍG 3lJ
Vfflifm
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW SencBferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW ímanna-landfovef 7manna
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
Hópierðir
7il leigu í lengri og skemmri
ferðir S—?0 farþega bílar.
Xjarían Ingimarsson
simi 32716. _
HÖFUM TIL SÖLU
glæsilegan títið ekinn OPEL
CAOETT, árgerð '71. Hagstæðir
greiðsluskilmálar. — Ennfremur
VAUXHALL VIVA, árgerð '71.
PLASTEINANGRUN
GLERULL
BYGGINGARVÖRUR
K7
KOPAVOGI
Simi; 40990
0 Togarakaup
Guðm. Ag. skrlfar:
„Heiðraði Velvakaitdi!
„Þess skal getið, sem gert er
vel", og því langar rnig að beið
ast birtingar á þessum hugleið
ingum, til þess að láta í ijós
þakklæti mitt og margra ann-
arra til hr. Ásgeirs Jakobsson-
ar fyrir hans ágætu hugvekju
i Morgunblaðinu 13. janúar,
þar sem hann varar við hinum
mörgu áformum um togara-
kaup Islendinga á fáum árum.
Þótt aidrei hafi ég sjómaður
verið, né vandabundimn nein-
um þeim, er útgerð stunda, þá
er ég svo mikill íslendingur, að
ég hefi fyllzt ugg og kvíða yf-
ir þeim sihækkandi „skýjaborg
um“, sem furðumargir Islend-
ingar hafa undanfarið keppzt
við að byggja á þessu sviði,
án þess að séð verði, að meiri
hluti þeirra sé enn farinn að
huga að því, hvort nokkur
grunnur sé handa slíkum „loft
köstulum" að hvíla á. Mér er
vel ljóst, að verulegur hluti
elztu togara okkar þarfn-
ast endurnýjunar á næstu ár-
um. En einnig mun flestum
kunnugt, að mikill hluti þess-
ara togara hefur ekki undan-
farið aflað fyrir rekstrarkostn
aði né eðlilegum afskrift-
um, þótt ekki séu þær nema
smáimunir móti þeim fúlg-
um, sem afskriifa verður árlega
af þeim hundrað miiljón-
um, sem furðu margir telja sig
nú geta lagt út fyrir einu
fiskiskipi.
§ Ör endurnýjun
Vissulega var virðingarverð
hvatning fyrrverandi ríkis-
stjórnar til útvegsmanna
um að hefjast nú handa um
endurnýjun elztu togaranna og
loÆorð um furðu mikla fyrir-
greiðslu lána til kaupanna.
Mun þá hafa verið miðað við
10—12 skip á næstu árum, enda
hæpinn grundvöllur undir
meiri fjölgun í einu, að því er
fjármagn snertir eða vinnuafl.
Er vonandi, að tilvitnun sú
úr „stjórnarblaði", er hr. Ás-
geir Jatoobsson hefur sína fróð
legu grein með, sé ekki frá nú
verandi sjávarútvegsráðherra
komin, því að ætla mætti, að
sízt sæti á honum að ýta und-
ir kröfur á ríkissjóð núna um
allt að þrefalda lánafyr-
irgreiðslu á við það, sem fyrr-
verandi ríkisstjórn taldi mögu
legt þá, því að hætt er við, að
sá ráðherra sé, eins og hinir,
nú búinn að missa sjónar af
kúfnum á ríkissjöðnum. Vegna
fyrri afskipta hr. Lúðvíks Jós
efssonar ráðherra af útgerð
Kanadískur MUSKEG
Snjóbíll
til sölu, bíllinn hentar einnig til aksturs í
mýrlendi. Lengd 3,50 m, breidd 2,20 m, belti
71 cm. Perkins 4.236 dieselvél og 4ra gíra
kassi. Stýrishús fyrir 3, burðargeta á palli
2,0 tonn.
Upplýsinga í síma 51974.
Árg:.
Tegund
71 Cortína 2ja d.
70 Volksw. 1300
70 Cortina
68 Cortina Station
69 Opel Commandore
Sjálfslc.
69 Volksw. 1600 TI.
69 Ford 17M Station
68 Ford 17M Station
67 Volksw. 1600 L
67 Chevrolet Bisk
67 Plym. Valiant
66 Volvo Duet
65 Cortina Station
66 Skoda 1000
63 Volkswagen
46 WiIIy’s (ný vél)
Verð
þás.
270
205
215
190
430
245
335
280
220
295
245
180
95
60
65
115
Árg.
Tegund
68 Volkswagren 1500
66 Bronco
66 Toyota Crown
67 Mustangr
67 Toyota Corona St.
63 Volvo P544
68 Cortina
71 Fiat 850 S
63 Land Rover
71 Citroen Ami
68 Saab V-4
67 Dodg:e sendih.
65 Ben* 17 manna, ný
68 Taunus 12M
67 Fiat 600
71 Hillman Van
Verð
þús.
180
285
230
360
230
90
170
190
115
240
215
210
vél 310
200
65
135
Mikið af alls konar bilum með eóðum kjörum
mmn
mætti einníg ætla, að honum
væri kunnugt utn ýmsa þá ann
marka aðra, er hr. Á.J. telur
vera á svo stórioostlegri stækic
un ísl. togaraflotans á fáum ár-
urn, svo sem að manna allan
þennan fisfciflota hjá 200 þús-
und marania þjóð, þar sem flest
ar vinnuifúsar hiendur eru starf
andi, sem betur fer. Leiðir hr.
Á.J. mörg röfc að þessum vaunda
af sinni alkunnu glöggskyggni
og þekking'U á sjávarútvegi.
Ég vil svo enda þessar hug-
leiðingar um þetta mikilvsega
mát með þeirri ósk, að við Is-
lendingar gerum ekíki otftar
'leik að því að fá andstæðing-
um vorum í landlhelgismálinu
slík vopn i hendur, að þeir geti
sagt, að ekki sé mark takandi á
hjali okkar um að við viljurn
stækka landhelgina tii vernd-
unar fiskistotfnunum, — fyrst
og fremst.
Guðm. Ag.“.
0 Jón heitinn í Möðrudal
Jóhann Þórólfsson skritfar
(bréíið stytt örlítið):
„Kæri Velvakandi'.
Einu sinni enn langar miig að
leita til þín. Hinn 10. jan. hlust
aði ég í útvarpinu á endurtek-
ið efni, er helgað var Jóni Stef
ánssyni í Möðrudal, og gefur
það mér tilefni til þess að fara
nofkkrum orðum um þenn-
an þátt. Vil ég þá byrja á því
að færa Þórarni Þórarinssymi
skótastjóra, beztu þakkir mín-
ar fyrir, að þessi gamli góði
fjallabúi skyldi ekki lenda í
dái gleymskunnar. Ég þekkti
mjög vel Jón í Möðrudal, eins
og hann var oftast kallaður, og
var hann landsþekktur maður.
Það væri hægt að skrifa langt
mál um þennan heiðursmann,
en Þórarinn, vinur minn, hef-
ur gert því svo góð skil, að um
það verður ekki bætt, og á
hann miiklar þakkir skilið. Ég
er fyllilega sammála Þórarni,
að hefði Jón í Möðrudal átt
þess toost að fá þá menntun,
sem nútíminn býður, þá er eng
inn vafi á því, að þar var á
ferðinni maður, sem hefði orð-
ið frægur, hvort heldur hefði
verið á sviði tónlistar, sönglist
ar eða myndlistar. Það
var einnig ánæigjulegt að
heyra hina fögru rödd Guð-
mundar Jónssonar, er hann
söng 2 lög eftir Jón, og mér
fannst lögin hans falleg.
0 Gestrisnin í Möðrudal
Ég vil geta þess hér, þótt
blessaður gamli maðurinn sé
Ihorfinn af sjónarsviðinu,,
að haitin var mikið ljúfmemii
og gestrisnin var honum i
bióð borin. Er mér kunnugt
um það, að margur ferðalang-
ur fékk bæði kaffi og mat frá
Jóni í Möðrudal til að seðja
siitit hiumgiur, áin þesis að spturt
væri um greiðslu. Til gamans
vil ég geta þess, að á öllum
mínum ferðum í gegnum hlaðið
á Möðrudal komst ég að því,
að þar komst enginn framihjá,
án þess að hlýða á orgelspil
og söng Jóns. Svo mikið hieill-
aði tónlistin þennan aldna
fjallabúa, að ég var þess áhorf
andi, að hann henti frá sér orf
inu í brakandi þurrki til þess
að veita þeim, sem að garði
bar, sálrænt og líkamlegt fæði.
Jón í Möðrudal var stórbrot-
inn maður, ag ég fullyrði, að
með honum er faliinn einn af
Xistrænustu mönnum þessara
alda.
0 „An Guðs hefði ég
ekki getað“
Hann var mikill trútnaður.
Trúrækni sína sýndi hann bezt,
þegar hann einsamall réðst í
að byggja sér þanii minnis-
varða, sem er kirkjan í Möðru
dal og sem hann fullgerði ein-
samall á efri árum. Hann sagði
stundum við mig: „Án Guðs
hefði ég ekki getað spilað og
heldur ekki sungið. Hann gaf
mér þetta í vöggugjöf.“
Heiðursmaðurinn og fjalla-
búinn í Möðrudal verður allt-
af minnisvarði íslenzkrar tón-
listar, sönglistar og myndlistar.
Jón neytti aldrei sína löngu
ævi víns eða tóbaks, og einu
sinni hlustaði ég á það, að ferða
menn úr Reykjavík spurðu
hann: „Þú hefur verið mikili
bjartsýnismaður að byggja
svona stórt hús langt frá
mannabyiggðum. Var þetta
ekki erfiðleikum bundið að
ráðast í svona stórar fram-
kvæmdir, og þetta hlýtur að
hafa verið dýrt hjá þér?“ Svar
ið, sem þeir fengu, var stutt og
laggott. Hann sa-gði: „Ég
byggði það fyrir sígarettu-
aurana,“
„Já, það væri áreiðanlega
hægt að skrifa heila bók um
þessa öldnu þjóðarhetju og
merkismann, og vonandi skrif-
ar einhver Islendinguir ævisögiu
Jóns. Blessuð sé minning Jóns
í Möðrudal. Læt ég svo staðar
numið og færi Þórarni Þóraríns
syni og Guðmundi kærar þakk
ir fyrir þáttinn uim Jón, vin
minn í Möðrudal.
Jóhann Þórólfsson.“
Bókhaldari óskast
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða traustan og vanan
bókhaldsmann til starfa.
Umsóknir er tilgreini m.a. menntun, aldur og fyrri störf, sendist
afgreiðslu blaðsins eigi síðar en 31. janúar n.k. merkt:
„Framtíð — 954".
Leiguhúsnœ&i
Hef verið beðínn um að útvega 1—2ja herb. íbúð til leigu
á Reykjavíkursvæðinu fyrir einhleypan mann í góðri stöðu.
LÖGFRÆÐISKRIFSTQFA
RAGNARS ÓLAFSSONAR
Sími 22293.