Morgunblaðið - 10.02.1972, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1972
BILALEIGA
HVERFISGÖTU103
VW Seodfor&bifreið-VW 5 manna -VW svefnvap
VW 9manna-Landrovef 7manna
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
0? Ódýrari en aðrir! SHODfí i£io*n UJÐBREKKU 44-46. SlMI 42600.
Hópferðir
-il leigu í lengri og skemmri
ferðir S—ÍO farþega bílar.
Kjarían Ingimarsson
sími 32716.
§ „Persónunjósnir
Alþýðubandalagsins“
Undir þessari fyrirsögn
skrifar Þorlákur Jónsson:
Kommúnistamálgagnið hef-
ur nú ráðið sér persónunjósn-
ara í bezta James-Bond-stíl.
Sem betur fer notar hann enn
aðeins aðferðir CIA, ekki KGB.
Þefaðir eru uppi menn um
landið alit, sem einhvem tima
kunna að hafa selt vamarlið-
inu smjörlíkisstykki eða keypt
nokkrar tylftir af gölluð-
um umslögum af Sölunefnd
vamarliðseigna. Reynt er að
hringja í löngu látna menn, en
náist ekki samband, er ekkjan
yfirheyrð stranglega i síman-
um; henni til skiljanlegrar
hrellingar („var yður kunnugt
um það, að eiginmaður yðar
hafði viðskipti við vamarliðið
árið 1957 fyrir 11.843 krónur
og 38 aura, og vitið þér, hvers
eðlis þau viðskipti voru? Var
eiginmaður yðar ekki í Fram-
sóknarfélagi Reykjavíkur?“).
Sá, sem stjórnar þessum per-
sónunjósnum, lýsir aðallega
sjálfum sér með þeim. Bama-
skapur, fáfræði, heimska, ill-
kvittni, pólitiskt ofstæki og frá
munalega lélegt vald á ís-
lenzku máli skína alls staðar I
gegn. Sama má reyndar segja
um flest af núverandi starfs-
liði Þjóðviljans, dreggjam-
ar, sem ekki var sópað burtu
í nýafstaðinni hreinsun á blað
inu, og hið nýráðna Iið.
Jæja, verði drengnum að
góðu. Það er gaman að vera
rannsóknardómari. En hvernig
væri að athuga og birta yfir-
lit yfir viðskipti helztu ís-
lenzkra máttarstoða Alþýðu
bandalagsins (fjárhagslega)
við vamarliðið bæði fyrr
og síðar? Vitanlega voru þau
viðskipti og eru enn full-
komlega lögleg og engu að
leyna. En því ekki að fá þau
fram í dagsljósið líka? Þarf
nokkuð að fela? Ha?
Þorlákur Jönsson".
£ Þakkir til hljóðvarpsins
og séra Þorsteins
Anna Guðmimdsdóttir
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Fyrir mína hönd og tveggja
skólasystra minna, sem hlust-
uðu með mér á útvarpið mið-
vikudagsmorguninn 2. febrúar,
langar mig til þess að biðja
þig um að koma á ffamfæri
kæru þakklæti til séra Þor-
1 esiii
/IH i ern öxuftunp L'gHy.'Æ'.Krtt iH j
I mciEcn
steins B. Gíslasonar, fyrrver-
andl prófasts, fyrir föstuhug-
leiðingu hans.
Það var svo gott að hlusta
á hann, og það, sem hann sagði,
snerti okkur svo djúpt, að við
erum vissar um það, að hug-
leiðing hans á erindi við
marga, ekki sízt okkur krakk-
ana. Við getum hlustað á fleira
en músík i útvarpinu og kunn
um að meta það, sem vel er
gert. Það ætti vissulega að
endurtaka hugleiðingu séra
Þorsteins, þegar fleiri hlusta á
útvarpið, þ.e. á betri „hlust-
unartíma“.
Svo er það önnur saga, en
ekki spillti það, hve góð dag-
skrá kom á eftir, þegar þau
Guðmundur Jónsson og Sigur-
veig Hjaltested sungu nokkur
Passíusálmalög, oig Páll Isólfs-
son spilaði með þeim. Það var
gott að sitja og hlusta og hug-
leiða það, sem séra Þorsteinn
hafði sagt, undir þeim söng og
þeirri músík. Þá „meltist" það
allt svo vel.
Sem sagt, kæri Velvakandi,
okkar þakkir til útvarpsins og
séra Þorsteins.
Anna Guðmundsdóttir".
Já, það er gaman að fá bréf
frá ánægðu fólki, svona í
bland. Velvakandi hlustaði
ekki á þessa föstuhugleiðingu,
en líklega ætti að endurtaka
hana. Að minnsta kosti þætti
Velvakanda fróðlegt að heyra,
hvað það er í erindi gamals
prests, sem unglingar verða
hrifnir af að hlusta á
- _
V ;/ Cjr • HUDSON
1 Hot Panty
lC Zf*. Sokkabuxur í 9 tízku-
'v • litum væntanlegar
næstu daga. Pantanir
óskast endurnýjaðar.
. Á ¥5£ Davíð S. Jónsson
áS' ^,áky lífe & Co. hf.,
' sími 24-333.
nuKin ÞJonuiTA
nvTT JimnnumcR
bein línn í farskrárdeild fyrir fdrpðntanir
os upplýsinsarum fargjölc
^5100
aoaoo
10F1WBIR
Hafnarfjörður
Skrifsloiustúlko óskost
nú þegar hálfan eða allan daginn.
Umsóknir leggist inn á afgr. Morgunblaðsins
fyrir 15. þ.m. merkt: „686“.
Úfsýnarkvöld
í Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 13. febrúar kl. 21.00.
★ FERÐAKYNNING: Ingólfur Guð-
brandsson, forstjóri Útsýnar, leiðbeinir
um ferðaundirbúning og ferðaval.
★ MYNDASÝNING: Ingólfur Guðbrands-
son sýnir litmyndir frá Spáni og Afríku.
★ FERÐABINGÓ: Spilað um 2 stóra vinn-
inga ÚTSÝNARFERÐ TIL COSTA DEL
SOL OG LUNDÚNAFERÐ.
★ SKEMMTIATRIÐI: Hinir vinsælu
Jóhann og Magnús frá Keflavík.
★ DANS TIL KL. 1.00.
Fjölmennið og kynnizt hinum rómuðu ÚTSÝNARFERÐUM
eða rifjið upp skemmtilegar ferðaminningar.
Ötlum heimill aðgangur, en tryggið yður borð í tíma hjá
yfírþjóni.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN.