Morgunblaðið - 10.02.1972, Blaðsíða 17
MORGUNHLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1972
17
,Þess vegna f er ég heim‘
W. H. Audcn flyzt búferlum til Bretlands
í vor eftir 33ja ára vist í Bandaríkjunum
BREZKA skáldið, W. H. Aud-
en, sem hefur búið I Banda-
ríkjunum, nánar tiltekið í
New York, síðan 1939 og hlaut
bandarískan ríkisborganarétt
fyrir sjö áirum, hefur gert
upp hug sirm: hainn ætlar að
hverfa heiim til Bretlands í
aprfl í vor og setjast að í sín-
um gömlu heimkynnum í há-
skóiaborginni Oxford.
— Ég sný heim til Englands
aðeins og einvörðunigu af því,
að ég er orðinn gamall mað-
ur, saigði hann bandariskum
fréttamönnum.
— Ég vil taka fram, til
að koma í veg fyrir misskiln-
ing, að ég fer ekki vegna þess
að mér falli ekki vistin í
Bandaríkjunum og uni mér
ekki í New York. Væri ég fer-
tuigur, kannski fimmtugur
myndi ég vera um kyrrt. En
þanm 21. febrúar verð óg 65
Hughesmáliö:
ára gamall og almenn skyn-
semi mín býður mér að taka
þestsa ákvörðuin. Ég gerist of
gamaH til að búa einn mína
liðs, mig langar að vera þar
sem ég veit af fólki 1 kringum
mig. Ef ég veiktist til dæmis
gæti svo farið að ég lægi hjálp
arvama dögum saman, áður en
einhver kæmi til mín. f Ox-
ford verð ég í litlu sam-
félagi. Þvi yrði veitt eftirtekt
ef ég birtist ekki á máltíð-
um — sérstaklega af því
að þær eru nú ókeypis! Það
er mestur skaði, að slíkt hið
sama skuli ekki eiga við um
sterka drykki líka!
Auden vék að frægð sinmi
og sagði: — Auðvitað er ég hé
gómagjam eins og hver ann
ar. Það kitlar mig, að kaup-
maðurinn í hverfinu minu bar
bennsl á mig, eftir að grein
um mig, með mynd hafði kom
W. H. Auden
ið í blöðum í New York: —
Ekki hafði ég hugmynd um að
þér væruð eiitthvað, sagði
Irving neitar að svara
spurningum kviðdóms
Farið er að halla á hann
LANGT er í land með að
©II kurl komi til grafar í
Hughesmálinu fræga og
umdeilda. Enn hefur eng-
inn getað sannað að How-
ard Hughes sé á lífi og
enginn hefur getað afsann-
að staðhæfingar Cliffords
Irvings um að hið um-
deilda handrit sé ævisaga
Hughes, skrifuð í samráði
og samvinnu við hann.
Hitt er svo annað að held-
ur er farið að halla á Irv-
ing og margir eru nú
komnir á þá skoðun að hér
sé urn eitt stórkostlegasta
svikamál allra tíma að
ræða.
Frá því að kona Irvings,
Edith viðuirkenndi að það
hefði verið hún, sem lagði inm
og tók út peniingana, sem
McGnaw-Hill hafði talið sig
vera að greiða Hughes fyrir
útgáfuréttinn, hafa þau hjón
verið í New York, þar sem
dómstólar rannsaka nú máiið.
Þá hafa sviissmesk yfirvöld
farið fraim á að þau hjón
verði framiseld, til að hægt
verði að draga þau fyrir rétt
í Sviss fyrir fjársvik og föls-
un. Bamdarísk yfirvöld hafa
þessa beiðni til athugunar.
kaupmaðurinti við mig.
— En þegar á állt er litið
því skyldi ég ekki verja ann-
arri bernsku minni í því landi
sem ég eyddi ánægjuríkri
fyrri æskudögum mínum?
Um borgararétt sinn sagði
hann: — Kanmiski verð ég á-
fram Bandaríkjamaður, nema
því aðeins það verði eitthvað
þras varðandi skattamálin.
— Ég mun sakna margra
héðan. Ég hef eignazt ýmsa
vini. Þótt. undarlegt megi vi-rð
ast hef ég eignazt fleiri vini
úr röðum tónlistarmanna en
rithöfunda. Hins vegar reyni
ég að halda þeim sið mínum
að dvelja á sumrin í bústað
sem ég á í Austurríki, í grennd
við Vínarborg.
Um skáldskap sinn og ann
arra sagði Auden.
— Ég er alltaf með tvennt i
höfðinu — efni ljóðs — stefið
og formið. Formið leitar að
stefinu, stefið lei'tar forms-
ims og þegar þetta
tvennt mætist og renn-
ur saman í eitt þá get ég.ort
ljóð. Mér er sagt — og það
gleður mitt gamla hjarta —
að unga kynslóðin sé tekin að
gefa forminu meiri gaum en
áður. Áhuginn er að vaknia á
ný. Þar sem ég er mikill forms
ins maður þykir mér gott til
þess að vita.
Og hann hélt áfram að tala
um ljóð og sagði:
— Fólk les meira af ljóðum
—- þau henta nútímafólki bet-
ur, ef ég má orða það svo —
heldur en langar roflur. Og ég
gleðst vegna þessa, ég hef jafn
an litið svo á að mönnum
væri beinlínis hollt að losa
ljóð. Skáldskapur minn hefur
ekki tekið neinum stökkbreyt
ingum — en hefur breytzt
gegnum árin. Það er mikil-
vægt að fylgja sínum eigin
aldri. Ég fæ oft hugmyndir,
en vísa þeim frá mér — ég
get ekki ort um þær lengur
sumar hverjar •— þvi miður.
Með aldrimum vitum við
meira um, hver við erum. Og
við verðum ánægðari og örugg
ari með eigin ágæti — á já-
kvæðan hátt. Með aldrimum
gerum við okkur betur grein
fyrir því hvert áhugasvið okk
ar er, hverjar eru óskir okkar
og hvað við viljum ekki. Ég
hef aliltaf vitað hvað ég átti
að gera á hverjum tíma.
Þess vegna fer ég heim.
Rlthandarsérfræðingar eru ckkí á einu máli tim hvort Hughes
hafi skrifað það, sem Irving segir hann hafa skrifað. Vitað er
að um rithönd Hughes er að ræða í nr. 1—4, en 5—8 eru frá
skjöhun í sambandi við bókina umdeildu.
5. VIÐBÓTARGREIN
STJÓRNARSKRÁRINNAR
f gær, miðvikudag, kom
Irvimg fytrir stórkviðdóm í
New York (slíkur kviðdómur
tefcutr ákvörðun um hvort
sakaimál verði höfðað á hend-
ur honum) og þá neitaði
hann að svara spumimgum
dómsins og bar fyrir sig 5.
viðbótargrein bamdarísku
stj órnarskrárinnar, sem heim-
ilar vitni (í þessu tilviki ex
Irving vitni í rammsókn kvið-
dómsiras í málinu) að raeita að
svara spurningum, ef það tel-
ur að vitnisburðurinn kunni
að stofna málstað sánium í
hættu, ef sakamál verði höfð-
að. Með því að raeita að svara
spurtniragu stórkviðdómisins
hefur Irving nær örugglega
kallað yfir sig opinbera máls-
sókn.
Stórkviðdómuriran fór þesis
eiranig á leit við Edith Irvirag
að hún svaraði spumingum,
en hún neitaði því undir laga-
ákvæðinu, sem heimilar eigin-
konu að neita að bera vitni
gegn manni sínum. Talið er að
stórkviðdómurinn ljúki rann-
sókn slnini fyrir vikulok og
skiii áliti sínu til saksóknara
New York-fylkis, sem síðan
tekur endanlega ákvörðun um
framhald málsins.
Þessir síðustu atburðir
veikja mjög stöðu Irvings-
hjónanna og böndin berast æ
sterkar að þeim, sem tveimur
hugmyndaríkum og tauga-
stýrfcum svindlurum, að þvx
er segir í fréttastofufregnum.
EKKI Á SAMA MÁEI
Einis og áður hefur verið
skýrt frá höfðu rithandarsér-
fræðingar lýst því yfir að rit-
höndin, sem var á skjölum,
ávísunum og bréfum, sem
Irving lagði fram til sönnunar
máli sínu við McGraw-Hill,
væri sú sama og rithandar-
sýnishorn af undirskrift Hugh
es undir ýmis skjöl frá fyrri
árum, sem vitað var að hanin
hafði skrifað undir. Þessir sér-
fræðingar voru frá eirau fyrir-
tæki í New York, en nú hafa
tvö önnur fyrirtæki einnig
Irvings-hjónin með böm sín tvö í New York, þar sem yfirvöld
rannsaka málið.
fengið málið til meðferðar og
vitað er að sérfræðingamir
eru ekki ailir á sama máli.
Sumir eru sagðir þess full-
vissir að það hafi verið Hugh-
es sjálfur, sem skrifaði aftan
á ávísaniroar, sem frú Irving
lagði í bankaran, aðrir eru
ekki eiras vissir. Engiran rit-
handarsérfræðingur hefur enn
lýst því yfir að hér sé um
fölsun að ræða.
VELTIST UM AF HLÁTRI?
Það hefur nú einnig komið
fram að það var ranghermt
hjá fréttamönnum að forráða-
menn svissneska bamkans, sem
frú Irving lagði peningana í,
hefðu orðið vitni að því að
hún skrifaði aftan á ávísan-
irnar. Það er því alls ékki úti-
iokað að Hughes hafi sjálfur
skrifað aftan á ávísanirnar og
beðið frú Irving að leggja þær
inn fyrir sig. Það er heldur
ekki útilokað að gráhærður,
eldri maður, sem leigir heila
hæð í hóteli á Bahama-eyjum
og segist heita Howard Hugh-
es, hafi skipulagt þetta allt
samain og veltist nú um af
hlátri.
Hvað peningunum viðvíkur
hafa yfirvöld í Svisa haft upp
á þeiim banka, sem Edith Irv-
ing (Helga R. Hughes) lagði
peningana inn í og fryst þá,
en sagt er að 175 þúsund
vanti og hafa bandarísk skatt-
yfirvöld skipað Irving að sikila
skattaskýrslu sirani fyrir árið
1971 þegar í stað, en frestur
til að skila skattaskýrslu í
Bandaríkjunum er til 15. apríl.
SKATTURINN VILL SITT
Þá hafa skattayfirvöld
einnig fengið lagt lögbann
við því að Irving geti selt
hlutabréf, skuldabréf eða aðr-
ar eignir fyrir reiðufé. Þetta
þýðir það, að Irving getur
ekki farið úr landi eða gert
nokkrar fjárhagsráðstafanir.
fyrr en haran hefur gert skatta
yfirvöldum fulla grein fyrir
fjármálum sínum og þar með
eru taldar 650 þúsund dollar-
ar, sem Edith Irving geymir í
svissneskum banka.
Á morgun á að koma fyrir
stórkviðdóminn í New York,
R. Suskind, aðstoðarmaður
Irvings, sem segist hafa ferð-
azt með Irving um Bandarí'kin,
er Irving segist hafa verið a3
hitta Hughes.
Þá hefur danska söngkonan
Framhald á bls. 21.