Morgunblaðið - 11.02.1972, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÍDIÐ, FÖSTUiDAGUR 11. FEBRÚAR 1972
Oiígefand! hsf, Árvafaic R:éyí«jawfk
Rr.amlcvæmdastjóri Harafdur Sveinsson,
Rtetjdiar Mattihías Johannossen,
Eýjólifur Konráð Jórisson.
Aðstoðarritstijórf atyrmir Gunnarsson.
Ritstjómarfultoö! Þiorbjöm Guðmundsson-
Fréttastjórl Björn Jóhannsson,
Augtýsing'a&tjöri Árnl Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsia Aða'lstraeti 6, sfmi 10-100.
AugiJýsingair Aðalstrastí ©, efmi 22-4-SO.
Áskriftargja-fd 225,00 kr á imániuði mnaniands
I laiusasölu 15,00 ikr eintokið.
LAGAFRUMVARP UM
ÚTFÆRSLU LANDHELGINNAR
Baldur Hermannsson
FÓLK og VÍSINDI
BALDUR Hermannsson, höfundur
þessa þáttar, stundar nú nám við
Stokkhólmsháskóla, en hafði áður
Iokið cand. mag. prófi í stærðfræði-
legri eðlisfræði við háskólann í Berg-
en — Hann mun skrifa fyrir blaðið
vísindagreinar við alþýðuhæfi I
þætti, sem nefnist IÓI.K OG VlS-
INDI. — Fer fyrsta grein hans hér
á eftir:
Frásögn Nýja testamentisins af upp-
runa Jesú Krists hefur ávallt verið
ásteitingarsteinn fræðimanna. Einkum
hafa afskipti Heilags anda af þessu
máli verið umdeild. Líffræðingar fall-
ast heldur ekki á að um meyjarfæð-
ingu hafi verið að ræða, en benda á að
í slíkum tilvikum fæðist nákvæm eftir-
líking móðurinnar. Hún fæðir sem sagt
af sér sinn eigin tvibura. Samkvæmt
læknisfræðilegum heimildum er vitað
um tvær slíkar meyjarfæðingar.
Héraðslæknir einn, sænskur, hefur
nú lagt fram skýringu sína, ærið frum-
lega. Viða um heim, þar sem skortur
er á vatni, er það alsiða að fjöldi fólks
þvoi sér upp úr sama vatninu. I eyði-
merkurlandinu ísrael er fátt um
þrunna, og telur hann líklegt að þessi
háttur hafi verið á hafður á heimili Jós-
efs og Mariu. Hann kveður ennfremur
algengt á öllum tímum, að kvenmanns-
lausir sveinar losi sæði sitt í baðvatn-
ið, og muni hér komin skýringin á upp-
runa Krists, enda hafi aðstaða Jósefs
verið allerfið, sem bjó með unnustu
sinni án þess að mega smerta hana.
Þykist héraðslæknirinn hafa brúað
bilið milli guðfræði og visinda með
þessari kenningu sinni, en sænskir pre-
látar láta sér fátt um finnast.
Taugaspenna og svefnleysi er stöð-
ugt vandamál fjölmargra nútrmamanna,
sérstaklega þeirra sem búa í stórborg-
um. Sífelldur erill, hávaði, öryggisleysi
og áhyggjur raska hinu innra jafnvægi
og geta leitt til langvarandi truflunar
sálarlífsins. Geðlæknar hafa um langt
Skeið verið örlátir á ýmiss konar deyf-
andi lyf við fólk sem á við þess konar
örðugleika að etja, þótt margir telji
að það bæli eingöngu niður sjúkdóms-
einkennin en láti sjálfan sjúkdóminn
óhreyfðan.
Það er alkunna, að fólk, sem þjáist
af þunglyndi á oft erfitt með svefn, og
reynir einatt að ráða bót á þessu með
neyzlu róandi lyf ja á kvöldin.
Þýzkir geðlæknar hafa gert rann-
sóknir, sem benda til þess, að þunglynd
issjúklingum sé andvakan hollari en
lyfin. Létu þeir sjúklingana vaka eina
nótt, og uppgötvuðu þá sér til mikillar
furðu, að þeir sem voru verst haldnir,
virtust hafa gott af vökunni. 1 fáeinum
tilvikum hurfu sjúkdómseinkennin með
öllu, sjálfsmorðslöngun, lystarleysi o.fl.
Ræða nú sérfræðingar mjög þessar
niðurstöður, og hefur meðal annars sú
kenning komið fram, að þunglyndið
dragi úr svefnþörfinni, og andvakan
geri þá sjúklingnum hægara að öðlast
á nýjan leik reglubundna svefnþörf, lag-
færi „svefnklukku“ sjúklingsins, ef
svo mætti að orði komast. Sérfræðing-
arnir leggja þó áherzlu á, að hand-
leiðsla kunnugra sé ráðieg við notkun
þessarar aðferðar, og vara fólk við að
fikta með hana upp á eigin spýtur.
Það væri enginn hægðarleikur að
gera lista yfir 10 mestu vísindamenn
fyrr og síðar, en örugglega yrðu þeir
þar ofarlega á blaði, Newton, Darwin
og Einstein. Newton vann stærstu af-
rek sin i ljósfræði og aflfræði, þeirri
grein visindanna sem lýtur að samspili
krafta og hreyfinga hlutanna, og gerði
grein fyrir hvemig sami kraftur, þyngd
arkrafturinn veldur faili hluta að jörðu
og heldur reikistjörnunum (og jörð
unni) á braut umhverfis sólu.
Flestum kenningum Newtons vax þeg
ar í stað vel tekið, en það verður ekki
sagt um hina tvo. Darwin setti allt á
annan endann með þróunarkenn-
ingunni, sem virðir að vettugi sköpun-
arsögu Biblíunnar og kveður mennina
náskylda öpum, nánar tiltekið eigi
mannkynið og núlifandi apategundir
sömu forfeður. Mörgum 19. aldar
mönnum fannst þetta svívirðing
hin mesta og sætti höfundurinn hörð-
um árásum
Hinum byltingarkenndu hugmyndum
Einsteins um tíma og rúm var ekki bet-
ur tekið og sat hann lengi undir harð-
orðri gagnrýni. Samkvæmt afstæð-
iskenningu hans gerast ýmis furðuleg
fyrirbrigði ef hlutir eru settir á mikla
ferð, klukkur ganga hægar og reglu-
stikur styttast. Það ætti þess vegna að
vera hægt að halda sér ungum með því
að ferðast í hraðfleygu farartæki. Því
verður ekki neitað, að þetta brýtur I
bága við heilbrigða skynsemi en er þó
engu að síður satt. Fjöldi hárnákvæmra
vísindalegra tilrauna hefur verið fram-
kvæmdur sem styrkir eindregið sann-
leiksgildi afstæðiskenningarinnar.
Ein þessara tilrauna, sem nýlega var
gerð við Kaliforníuháskóla, byggir á
svokölluðum óstöðugleika ýmissa frum-
agna efnisheimsins, þ.e.a.s. þessar agn-
ir falla sundur með tímanum samkvæmt
ákveðinni formúlu. Með þvi að mæla
hve margar eru óklofnar af ákveðnum
fjölda má reikna út hvað tímanum líð-
ur — við fáum þannig eins konar frum-
agnaklukku. Með notkun áhalds, sem
kalla mætti frumagnabyssu, mynduðu
vísindamennirnir geisla af ögnum á glf-
urlegri ferð. Þéttleiki geislans var síð-
an mældur á vissum stöðum og mátti
þannig sjá hve mikill hluti agnanna var
óklofinn. Það kom í Ijós, eins og vænzt
hafði verið, að agnirnar klofnuðu
miklu hægar á svo mikilli ferð en í
kyrrstöðu, m.ö.o, frumagnaklukkan
gekk hægar á ferð en í kyrrstöðu.
Einnig hafa verið gerðar til-
raunir með álíka hugvitssamlegar
klukkur um borð í hraðfleygum flug-
vélum og er niðurstaðan sú sama. Ætla
mætti, að hægt væri að nota einfaldari
timamæla eins og vénjuleg armbands-
úr eða vekjaraklukku, en þessi áhöld
eru alltof ónákvæm til að tooma að
nokkru gagni við þau hraðastig sem
tæknilega er kleift að koma þeim á.
Hraði ljóssins er 300.000 km á sekúndu
og þarf hraði tímamælisins að nálgast
þann hraða svo að seinkunar
verði vart
Það eru nú liðin 40 ár síðan Dirac
lagði fram hina hrífandi hugmynd sína
um andefni. Andefni er eins konar speg
ilmynd efnisins og leysist hvort tveggja
upp við árekstur og myndast þá gífur-
leg orka. Dirac hugsaði sér í upphafi
andefnið sem eins konar holu i rúminu
og efnið sem agnir sem sparkað hefði
verið úr holum sínum. Þegar svo raf-
eindin t.d rekst á andrafeind, fellur
hún á ný í holu sína, báðar agnimar
hverfa og leysist þá orka úr læðingi í
mynd gamma-geislunar.
Hugmyndin er óneitanlega bráð-
skemmtileg, en erfitt hefur reynzt að
koma henni á fastan grundvöll. Tilvist
andefnisins og fyrrnefndir eiginleikar
þess við árekstur eru þó fullsannaðir.
Ef holu-hugmyndin hefði við rök að
styðjast ætti að finnast jafnmikið af
efni og andefni í alheimnum, en stjam
Framhald á bls. 14
rormenn stjórnarandstöðu-
^ flokkanna, þeir Jóhann
Hafstein og Gylfi Þ. Gíslason
hafa lagt fram á Alþingi
frumvarp um landgrunn ís-
lands og útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar hinn 1. septem-
ber n.k. Meginefni frum-
varpsins er, að þann dag skuli
fiskveiðilandhelgi íslands
hvergi vera nær grunnlínu
en 50 sjómílur en að öðru
leyti miðast við 400 metra
jafndýpislínu, þar sem hún
liggur utan við 50 mílna
mörkin. Þá er lagt til í frum-
varpinu, að mengunarlögsaga
íslands skuli verða 150 sjó-
mílur frá grunnlínu en þó
hvergi ná lengra en að línu
miðja vega milli íslands og
nærliggjandi landa. Er þetta
ákvæði tekið inn í frumvarp-
íð með hliðsjón af undirbún-
ingi milliríkjasamþykktar
12 Norðaustur-Atlantshafs-
ríkja, en undirritun þessarar
samþykktar stendur fyrir
dyrum.
í frumvarpi þeirra Jóhanns
Hafstein og Gylfa Þ. Gísla-
sonar er því slegið föstu, að
íslenzka landgrunnið nái svo
langt út frá ströndum lands-
íns, sem unnt reynist að nýta
auðæfi þess. Þá eru í frum-
varpinu ákvæði um rétt ís-
lenzka ríkisins yfir land-
grunninu og ennfremur um
vísindalega vemdun fiski-
mlða landgrunnsins. Frum-
varp þetta er lagt fram í
samræmi við ályktun Al-
þingis frá 7. apríl sl. en þá
var sérstakri þingkjörinni
nefnd falið að semja frum-
varp um þetta efni og skyldi
leggja það fyrir yfirstand-
andl þing. Eftir stjórnar-
skiptin sl. sumar kom nefnd
þessi saman til fundar og var
Lúðvík Jósepsson, sjávarút-
vegsráðherra, kjörinn formað
ur hennar. Af einhverjum
ástæðum hefur Lúðvík Jós-
epsson engan áhuga haft á
því að nefndin sinni störfum
störfum sínum samkvæmt
fyrirmælum Alþingis og hafa
ítrekuð tilmæli til hans um
að nefndin hefji störf engan
árangur borið. Formenn
st j órnarandstöðuflokkanna,
þeir Jóhann Hafstein og
Gylfi Þ. Gíslason, sem báru
meginábyrgð á samþykkt Al-
þingis frá 7. apríl sl. hafa því
talið eðlilegt að leggja fram
af sinni hálfu frumvarp í
samræmi við ályktun Alþing-
ls og má nú öllum Ijóst vera,
að hverju var stefnt með
þeirri samþykkt. í fylgi-
skjölum með frumvarpinu
kemur m.a. fram, að verði
stefna núverandi ríkisstjórn-
ar um útfærslu samþykkt,
mun fiskveiðilandhelgi ís-
lands verða 216 þúsund fer-
kílómetrar en verði frum-
varp Jóhanns Hafstein og
Gylfa Þ. Gíslasonar sam-
þykkt verður fiskveiðiland-
helgin hinn 1. september n.k.
243 þúsund ferkílómetrar.
Þetta þýðir, að mikilvæg
fiskimið úti fyrir Vesturlandi,
Vestfjörðum og hluta Norð-
urlands verða innan fisk-
veiðitakmarkanna, ef frum-
varpið verður samþykkt, en
utan þeirra, ef stefna ríkis-
stjórnarinnar verður sam-
þykkt. Má þá búast við, að
erlendi fiskiskipaflotinn
flykkist á þau mið.
í viðtali, sem Morgunblað-
ið birtir við Jóhann Hafstein,
formann Sjálfstæðisflokksins
í dag, segir hann m.a.: „Því
hefur verið haldið fram, að
alþingissBmþykktin frá í
fyrra, væri að einhverju leyti
óljós. Þetta er mikill mis-
skilningur, eins og sjá má á
frumvarpinu, sem samkvæmt
henni hefur verið samið. Því
hefur líka verið haldið fram,
að við sjálfstæðismenn vær-
um með yfirboð nú á þessu
þingi, þegar Gunnar Thor-
oddsen og fleiri þingmenn
fluttu tillögu um, að land-
helgislínan miðaðist við 400
metra jafndýpislínu. En það
mundi þýða, að geysiverð-
mæt fiskimið utan 50 míln-
anna yrðu innan fiskveiðilög-
sögunnar. En þetta er ekki
yfirboð nú, því að fyrirmæli
um þetta felast í alþingis-
samþykktinni frá 7. apríl
1971.“ í lok viðtalsins segir
Jóhann Hafstein:
„Við formenn stjórnarand-
stöðuflokkanna höfum með
flutningi frumvarpsins viljað
sýna, svo að ekki verði um
deilt, hvað fólst í þingsálykt-
unartillögunni, sem Alþingi
samþykkti í fyrra, en þáver-
andi stjómarflokkar, Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur, lögðu fyrir þingið
og samþykkt var og er enn í
gildi.“
Gylfi Þ. Gíslason, formað-
ur Alþýðuflokksins, segir í
viðtali við Morgunblaðið í
dag um þetta frumvarp: „Þá
er frumvarpið ennfremur
grundvallað á þeirri hugsun,
að skýr lagaákvæði eigi að
gilda um stærð landhelginn-
ar. í ályktun, sem Alþingi
gerði, á sl. vori, var gert ráð
fyrir lagasetningu um þetta
atriði. Af einhverjum ástæð-
um hafa stjórnarflokkarnir
ekki haft áhuga á slíkri laga-
setningu og tel ég það mið-
ur farið, Enginn vafi er á
því, að málstaður íslendinga
í þessu lífshagsmunamáli
verður sterkastur með því
móti að byggja á landgrunns-
stefnunni og lagasetningu.
Morgunblaðið fagnar því,
að þetta frumvarp um út-
færslu landhelginnar er fram
komið. Hér er um svo mikil-
vægt mál að ræða, að fyllsta
ástæða er til að útfærsla fisk-
veiðitakmarkanna verði á-
kveðin með lögum. Þá er þýð
ingarmikið að tryggja hags-
muni þeirra, sem byggja á
fiskimiðunum úti fyrir Vest-
urlandi, Vestfjörðum og
Húnaflóa með því að miða
við 400 metra jafndýpislínu
en ekki einvörðungu 50 sjó-
mílur. Er vissulega ástæða
til að vona, að samstaða geti.
tekizt á Alþingi um af-
greiðslu þessa frumvarps.