Morgunblaðið - 12.03.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.1972, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐTÐ, SUNNUDÁ.GUR 12. MARZ 1972 22*0-22* RAUÐARÁRSTÍG 31 14444 ©25555 LEIGUFLUG FLUGKENNSLA FLUGSTÖÐIN HF Símar 11422, 26422. BÍLAIEIGA CAR RENTAL 21190 21188 Bilaleigan TÝR “ SKÚLATÚNI 4SÍMI15808 (10937) Einangrun G6ð plastemangnm hefur hrta- lerðoistaðal 0,028 til 0,030 Kcal/mh. "C, sem er verulega minfM hrtaleiðol, en flest ðnn- ur einangrunarefrvi hafa, þar á meðal gleruW, auk þess sem piasteinangrun tek-jr nálega eng- an raka eða vatn í sig. Vatns- drægni margra annarra einangr- unarefna gerir þau, ef svo ber undir, að mjög lélegri einangrun. Vér hófum fyrstir allra, hér á landi, framleiðslu á einangrun (k plasti (Polystyrene) og fram- teiðum góða vöru með hag- stæðu verði. REYPLAST HF. Armúla 44. — Sími 30978. HUGVEKJA Sr. Þórir Stephensen: FRAMMIFYRIR KRISTI 1 DAG er 4. sunnudagur löstunnar. Aðalguðspjall dagsins er um mettun fimm þúsundanna. Við þekkjum þá sögu vel, um ungmennið, sem kom til Jesú og gaf honum nestið sitt, fimm lítil byggbrauð og tvo smáfiska. Þama mætast tveir menn. Annar er í æsku. Hinn er fullþroska maður, þó ekki aldraður. Það geislar af hon- um góðleik og göfgi, og hamn hrífur alla með íramkomu sinni. Augu hans ein nægja jafnvel til að bræða hjarta hins forherta manns, gera hroka hans að auðmýkt, sjálfsánægju hans að iðrun, eigingimi hans að fómfýsi. Persónuleiki mannsins er svo mikill, að hann hefur áhrif, hvar sem hann fer. Nafn unga mannsins þekkjum við ekki. Hinn er Jesús Kristur. Ungi maðurinn hefur farið langa leið, hann hefur lagt mikið á sig til þess að ná til Krists. Móðir hans hef- ur gefið honum nesti til ferðarinnar, að visu ekki mikið, en það á þó að nægja honum einum, En þegar þeir hittast, Kristur og ungi maðuriun, þá breytist viðhorfið. Það, sem honum fannst áður, að mundi eingöngu vera fyrir hann ein- an, það finnur hann nú, að hann get- ur gefið öðrum hlutdeild í. Kristur hefur þau áhrif á hann, að honum finnst í raun og veru ekki skipta máli, hvort hann nýtur nokkurs af því sjálfur, aðeins ef hann getur orð- ið öðrum að liði. Meðan ungi maðurinn var einn, meðan hann hafði ekki mætt Kristi, þá nægði nestið hans aðeins handa honum einum. En þegar hann hafði kynnzt Kristi, var hann orðinn af- lögufær, fær um að miðla öðrum. Nestið hans hafði þó ekkert breytzt, aðeins hann sjálfur, hans innri mað- ur. Og þetta er það, sem gerist enn í dag. Við það að kynnast Kristi, við það að hrífast af boðskap hans og lífi verður hver einstaklingur adltaf ; : að einhverju leyti nýr maður. Ungi maðurinn í guðspjallinu varð bæði meðvitandi um þörf annarra manna, meðbræðra sinna, fyrir hlutdeild í lífi hans, og eins fann hann, að hann var í raun og veru aflögufær og í þörf fyrir að deila lífinu sínu með þeim. Þess vegna gaf hann Jesú nestið sitt og hjá þvi getur ekki farið, að hann hafi undrazt, hve mikið gat orðið úr því á þennan hátt. Ef hann hefði notað það handa sjálfum sér eingöngu, er útilokað, að svona hefði farið. Þessi ungi maður fylgdist með stór- um hópi fólks, sem fylgdi Jesú eftir langa leið til þess að hlýða á hann og nema af honum. Við erum á þessari sömu leið, þú, lesandi minn, og ég. Við höfum fengið okkar veganesti til ferðar okkar um lífsveginn. Og á sunnudegi, þegar við lesum grein eins og þessa, sem ber heitið hugleiðing eða hugvekja, þá erum við að leita á slóðir Krists, þá erum við á sömu leið og fólkið, sem varð samferða unga manninum yfir í óbyggðirnar austan Genesaretvatnsins. Við finn- um vel, að margt er að. Okkur skort- ir tillitssemi til fólksins, sem við um- göngumst mest, heima og á vinnu- staðnum. Við fínnum, að við erum oft bæði eigingjörn og ráðrik og ekki nærri nógu velviljuð. Við höfum oft gaman af að tala um það, sem miður fer í fari náungans, í stað þess að bera í bætifláka fyrir hann og hjálpa honum til betri vegar. Já, við finn- um, að framkoma okkar er ekki nærri alltaf sem skyldi, ekki nógu sönn og einlæg, já, drengileg. Öllu þessu getur Kristur breytt. Sá, sem leitar af alhug til Krists og legg- ur allt, sem hann á, í hans kærleiks- hendur, verður betri maður gagnvart öðrum, nær betri árangri í eigin lifi og verður þar af leiðandi hamingju- samari maður. Leiðimar til þessa eru ýmsar. Við getum hugleitt, hvað Jesús hefði gert í okkar sporum og reynt að læra af því. Við getum líka beðið hann, og það er að mínum dómi bezta ieiðin. 1 bænunum okkar skulum við leggja allt, sem okkar er, I hans hönd likt og ungi maðurinn gerði forðum. Við skulum segja honum allt, sem með okkur býr og veldur okkur heilabrot- um og erfiðleikum, og við skulum biðja hann að hjálpa okkur og leggja okkur svo öll fram um að fylgja boð- skap hans. Ég er viss um, að árangurinn get- ur orðið undraverður í lífi okkar. Or því litla, sem okkar er, getur Kristur gert ótrúlega hluti, ef við viljum af henda honum það. Þá fyrst verður það mikils virði, hrein og óþrjótandi auðlegð fyrir líf okkar. Við hugsum oft um okkur sjálf sem einstaklinga fyrst og fremst. En frammi fyrir Kristi finnum við, að við erum jafnframt hluti stórrar heildar, hluti af fjölskyldu Guðs. Og sá, sem er hluti af fjölskyldu, hefur skyldum að gegna gagnvart henni. Ef allt er eðlilegt, þykir honum vænt um fjölskyldu sína og gjörir með gleði allt, sem henni er til góðs. Það er þetta, sem Kristur vill láta okkur finna, þegar við stöndum frammi fyrir honum. Mennimir eru allir bræður, allir úr sömu fjölskyldu og þurfa allir á kærleika að halda, kærleika Guðs og kærleika með- bræðra sinna. Og það hugárfar vill Kristur skapa í sál okkar hvers og eins, svo að við leggjum af allt, sem hindrar slik samskipti og leggjum í hans hendur það, sem okkur hefur verið gefið i nesti til vegferðar okk- ar hér, svo að máttur hans móti það til margfaldrar blessunar fyrir mann- lífið í heild. FRIÐRIK SIGURBJÖRNSSON. Úti á viðavangi Maður skyldi aidrei seg.ja aldrei, var einu sinni sagt, og mikið lifandis skelfing er niik ið réttneifni i þessu, þvl að mér fannst einhvem veginn, að nú mætti ég ekki skrifa meira um starana, fyrr en komið væri hanst. En maður skyidi aldrei segja aldrei. Ég heid hann hafi hvíslað þvi að mér í trún aði, hann Jón Arnfinnsson, þegar hann kom hingað nið- ur á blað fyrir mjög skömmu, — að nú væri starinn orpinn, þarna rétt í næsta húsi við sig á Baldursgötunni, ekki þó í Garðshorni, sem þeir byggðu heiðursmemnirnir, Kjartan og Felix, og þar sem Grýta sér um skyrturnar. En allavega þar mjög nærri, —- og svo eins og allir vita, verpa þeír stararnir lika í litlu götunum í Krimglunni í Alþin.gis.húsinu, og starar eru taldir berá.íneð sér flær, þar af óværðinVsem stundum sæk ir á alþingisiménn, þegar þeir láta sér sérstaklega annt um landsmenn í einu formi eða öðru. : ■ . Og svo Sá ég þá aílt í einu grein í dönsku blaði um dag- inn, sem bar yfirskriftina: „Fyrst, þegar stwrinn er floginn, er vorið komið.“ Og þá kwmu mér í hug nokkrar hendingarx Tómasar í kvæð inu Frá liðnu vori, en þær ganga svo: „Og vorið kom í maí, eins og vorin komu forðiim, með vængjaþyt og sólskin og næturkyrrð og angan. Og kvöld eifct niðri á bryggju hún kyssti mig á vangann. Það kvöld gekk lítið hjarfca í fyrsta sinn úr skorðum.“ 1 þessu danska blaði segir Starahópur í tré. Myndin er úr danska blaðimi, sem minnzt er á í greininni, en gæti svo sem alvog verið frá Öðins- torgi eða frá Skerjafirði. ýmislegt skemmtilegt um star ana og raunar byrjar grein- in á því, að segja, að fólk skuli ekki reka upp gleði- hróp yfir að sjá stara á þess- um árstíma og alls ekki blanda Thy og Mors inn i Framhald á bls. 19 með DC-0 L0FTLEIDIR PARPömun bein líno í ÍQf/kfófdttikl asroQ ^Kaupmanndhöín ^Osló ^ Stokkhólmur sunnudaga/ sunnudaga/ mánudaga/ mánudaga/ [oriójudaga/ driÓjudaga/ föstudaga. fimmtudaga og föstudaga. fimmtudaga ^ GldSSOW laugardaga }London laugardaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.