Morgunblaðið - 12.03.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.03.1972, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1972 Otgefandi hf ÁrvakuC Röy'k'javík FVsrrrkvæmda &tj’óri Ha,ra!dur Svemsiaon. Rittisitjórar Matiihías Johan'nessen, Eyfólifur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri SÍtyrmir Gunnarsson. RitstjómarSull'trúi riorbijönn Guðmundsson Fréttastjóri Bjöm Jólhannsson Auglýsingastjöri Árni Garðar Kristínsson Ritstj'órn og afgreiðsla Aðaistraeti 6, sími 1Ö-100. Augiiýsingar Aðalstraati 6, sfmi 22-4-SO Áskriftargjafd 226,00 kr á 'mómuði irvnanlands t iausasö'lu 15,00 Ikr eintakið 'E’inn af merkustu þáttunum . í hinu mikla umbótastarfi fyrrverandi ríkisstjórnar voru hin nýju viðhorf og vinnu- brögð, sem hún innleiddi í uppbyggingu strjálbýlisins. I fyrsta skipti var hafin gerð sérstakra landshlutaáætlana hér á landi og riðið á vaðið með Vestfjarðaáætlun í sam- göngumálum. Síðan kom at- vinnumálaþáttur Norður- landsáætlunar, þá Austf jarða- áætlun í vegamálum og loks var hafin gerð vegaáætlunar fyrir Norðurland og skyldi framkvæmd hennar hefjast nú á næsta sumri, eins og yfirlýst var af fyrrverandi ríkisstjórn, þótt allt sé nú á huldu um, hvort núverandi ríkisstjórn treystir sér til þess að standa við þau fyrirheit. Þetta mikla umbótastarf var unnið í samráði við sveit- arfélögin og landshlutasam- tök þeirra. Var það í samræmi við þá skoðun sjálfstæðis- manna, að þegar um er að ræða málefni, er snerta jafn mikið, ríkið og sveitarfélögin, verði að líta á þau sem jafn- réttháa aðila. Það var því fullkomlega eðlileg og sjálf- stæð yfirlýsing, sem m.a. þá- verandi fjármálaráðherra, Magnús Jónsson, gaf í sam- bandi við breytta verkefna- skiptingu ríkis- og sveitar- félaga, að ekki væri unnt að koma henni á, nema í fullu samráði við sveitarfélögin, enda yrði endurskoðuninni hagað með þeim hætti, að þau ættu þar formlega aðild að. Því var það, þegar Samband íslenzkra sveitarfélaga tjáði sig reiðubúið til að hefja end- urskoðun á verkefnaskipting- unni, að Magnús Jónsson skipaði menn af hálfu ríkis- ins til þess að fjalla um þau mál. Ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar lét það hins veg- ar verða eitt af sínum fyrstu verkum að setja þessa nefnd frá, — ekki vegna þess, að hún væri út af fyrir sig and- víg nefndum, því að hún hef- ur skipað eitthvað yfir 50 nefndir síðan hún settist að völdum, — heldur vegna þess, að hún taldi, að samtök sveit- arfélaganna hefðu ekkert með það að gera að vera formlegur aðili að endurskoð- un tekjustofnalaganna. í þessu sambandi er nauð- synlegt, að sá misskilningur sé leiðréttur, sem hvað eftir annað hefur komið fram í málgögnum stjórnarsinna, að núverandi ríkisstjórn hafi beitt sér fyrir nýrri verkefna- skiptingu ríkis og sveitar- félaga. Það er að vísu rétt, að ríkisstjórnin hefur tekið yf- ir nokkra málaþætti, sem sveitarfélögin höfðu áður í raun ekkert yfir að segja. En það er ekki þetta, sem við er átt með breyttri verkefna- skiptingu þessara aðila, held- ur hitt, að samtímis því sem ríkið tekur yfir til sín einhver af verkefnum sveitarfélag- anna, fái sveitarfélögin önn- ur í staðinn og þá um leið tekjustofna til þess að standa undir þeim. Þetta er mergur- inn málsins. Og þetta verk verður ekki unnið með við- hlítandi hætti, nema sveitar- félögin eigi formlega aðild að þeirri nefnd, er að hinni breyttu verkefnaskiptingu vinnur. í þessu sambandi hef- ur m.a. verið um það rætt, að sveitarfélögin hafi skyldu- fræðsluna með höndum að öllu leyti, en framhaldsskól- arnir hvíli hins vegar á herð- um ríkisins. Að baki þessu liggur það sjónarmið, að það sé óheppilegt, að þessir aðil- ar báðir skuli rísa undir kostnaðinum við sömu verk- efnih. Það er oftast svo, að ábyrgðin hvílir á sveitar- félögunum og frumkvæðið verður að vera þeirra, en hin.s vegar geta þau ekkert gert, nema samþykki ríkisins og fjárveitingavaldsins komi tii. Þessu verður að breyta og skilja á milli þessara aðila á sem flestum sviðum. Sjálfstæði sveitarfélaganna er einn af hyrningarsteinum hins íslenzka þjóðfélags. Að því ber að vinna, að þetta sjálfstæði þeirra sé tryggt og aukið, — en það verður ekki gert með öðrum hætti en þeim, að þeir sem fara með meirihlutavald á Alþingi og standa að ríkisstjórn hverju sinni, fáist til þess að um- gangast sveitarfélögin sem jafnréttháa aðila sér í þeim sérstöku málum, er sveitar- félögin varða. Málefnum sveitarfélaganna verður ekki skipað með viðhlítandi hætti, nema í fullu samráði við þau, þannig, að þau eigi formlega aðild að öllum þeim ákvörð- unum, sem teknar eru þeirra vegna. Sú ríkisstjórn, sem ekki skilur þetta, getur ekki orðið langlíf í landinu. SJÁLFSTÆÐI SVEITARFÉLAGANNA Reykjavíkurbréf _____Laugardagur 11. marz_ Sigurður Pálma- son látinn Við lát Sigurðar Pálmasonar, kaupmanns á Hvammstanga, leiða menn hugann að því þjóð- nytjastarfi, sem dugmestu menn þessa lands hafa unnið á 20. öld- inni, menn sem breytt hafa ís- landi úr landi örbirgðar i land allsnægta. Sigurður Pálma- son rak verzlun í V-Húnavatns- sýslu í meira en hálfa öld, og hann var svo lánsamur, að ung- ur dugnaðarmaður tók við, er starfskrafta hans þraut og rek- ur enn þróttmikla verzlun á Hvammstanga. Sigurður starfaði lengi og vel fyrir Morgunþlað- ið. Þeir einstaklingar, sem hófu verzlunarrekstur á öndverðrl öldinni, áttu við marghátt- aða erfiðleika að stríða. Fólkið bar í brjósti rótgróna andstöðu gegn erlendu kaupmanna- valdi, sem oft á tíðum færðist yfir á islenzka kaupmenn. Sam vinnufélögin voru að festa ræt- ur og stundum sáust menn ekki fyrir. Þótti þá jafn áríðandi að knésetja kaupmanninn og að bæta verzlunarkjörin. Vest- ur-Húnavatnssýsla er algjört landbúnaðarhérað; þar má segja, að svo til enginn annar atvinnu rekstur hafi verið stundaður. Og samvinnuverzlun hefur bezt þrifizt í landbúnaðarhéruð- um, þess vegna er enn meira þrekvirki að kaupmannsverzl- un skyldi halda þar velli. Þrátt fyrir þann mikla árang- ur, sem samvinnustarfið hefur víða borið, verður hinu ekki neit að, að allt fram á þennan dag hefur tíðum verið leitazt við að leggjá samkeppnisaðilana að velli. Hefur það verið gert í nafni samvinnuhugsjónarinn- ar, þótt auðvitað sé það and- stætt hagsmunutn neytenda — og raunar framleiðenda í sveit- um líka — að verzlun sé einok- uð. Samt sem áður hefur niður- staðan orðið sú, að kaupmanna- verzlanir hafa víðast gefizt upp, en dæmið frá Hvammstanga, þar sem öðlingsmaður mætti erf- iðleikunum ætíð með bros á vör, sýnir, að þar sem þrek er nægi- legt, er unnt að sigra ofureflið eða halda til jafns við það. Og þá er verzlunarkjörum fólksins bezt borgið, þegar samkeppninn ar nýtur. Nám og viirna Á fundi um fíknilyfjaneyzlu var athygli á því vakin, að sá háttur, sem hér á landi er á, að skólafólk vinni hluta ársins, væri til þess fallinn að draga úr lífsleiða ungra manna og forða þeim frá því að lenda á glapstigum. I umræðuþætti í sjónvarpi var að því vikið, að hætta væri nú á því, að stétta- skipting myndaðist á Islandi. Annars vegar yrði stétt mennta- manna og hins vegar þeirra, sem ekki hefðu notið langskólanáms. Þessar umræður eru svo sann arlega þess eðlis, að vert er að ihuga þær náið. Islenzk alþýða hefur fúslega lagt á sig erfiði til að búa sem bezt í haginn fyrir þá æskumenn, sem vilja ganga menntaveginn, og all- ir eru um það sammála, að þjóð- félagið hafi nú efni á því að tryggja að hæfileikar til náms glatist ekki vegna fjár- skorts. Komið hefur verið á fót lánakerfi, sem úthlutar geysi- miklum fjármunum ár hvert, og sótt er á um frekari fjárfram- lög, enda reynslan hvarvetna að ekkert skilar sér betur en fjárveitingar til skólamála. En þær mega ekki stuðla að þrek- leysi eða fyrirlitningu á dagleg- um störfum aiþýðu manna. Sjálfsagt verður það kölluð íhaldssemi eða eitthvað verra, ef á það ér bent, áð takmörk séu fyrir því, hve langt eigi að ganga í styrkveitingum til námsmanna — ef þeirri skoðun er haldið fram, að ekki eigi að styrkja þá meir en svo, að þeim sé nauðsynlegt að stunda at- vinnu hluta úr árinu. Þeim skoð unum hefur raunar verið hreyft af eimuim núverandi þingmanni Alþýðubandalagsins, að til vansa væri, að námsmenn þyrftu að vinna erfiðisvinnu hluta úr ári! Því hefur verið haldið fram, að Island sé eina stéttlausa þjóðfélagið í veröldinni; kannski er það nokkuð mikið sagt, en hitt er víst, að þorri þjóðarinnar vill spyrna gegn því, að stéttaskipting verði hér á landi með svipuðum hætti og víðast er erlendis. Stéttaskipt ing sem byggist á miklum mismuni á menntun þegnanna, er engu betri en sú, sem byggð er á misjafnri fjárhagsafkomu. Stundum er menntasnobbið meira að segja hvimleiðara en þau forréttindi, sem menn kunna að njóta vegna eigna sinna. Námsfólk og atvinnulíf Áreiðanlega er affarasæl- ast, að sá háttur verði áfram á hafður, að skólar standi ekki allt árið, heldur sé langt sumar- frí og þá sé kappkostað að gera öllum kleift að fá störf við sitt hæfi við hinar margvíslegu greinar islenzks atvinnulífs. Sá æskumaður, sem einungis hefur stundað bóklestur, kann að verða talinn menntaður, en hann skortir þó þann þroska, sem við viljum, að allir Islend ingar hafi til að bera. Hann hef- ur ekki þá reynslu af íslenzku þjóðlífi og þar með menningu, sem þátttaka í atvinnulífinu ein veitir honum. Hann hefur ekki þau nánu kynni af dag- legu starfi og striti, sem hverj- um og einum eru nauðsynleg. Eins og áður getur, bryddir á því, að sumir menntamenn telji það utan verksviðs síns að vinna dagleg störf í íslenzku þjóðfélagi. Sem betur fer er þessi hugsunarháttur ekki útbreiddur enn sem komið er. En þó er rétt að gjalda varhug við honum, því að tízkufyrir- bæri eru býsna fljót að grípa um sig, ekki sízt í röðum hinna yngri. Stundum er þvi a"S vísu hald- ið fram, að námsmenn vinni svo mikið, borið saman við aðra þjóðfélagsþegna, að þeim sé ekki of gott að hafa langt frí. Raunar verður því ekki á móti mælt, að nú virðast börn og unglingar eiga að vinna mun lengri vinnudag en hinir full- orðnu, enda ekki örgrannt um, að krakkarnir geri grín að vinnutímastyttingunni, sem vinstri stjórnin allra náðarsam- legast afhenti launþegum, áiy þess að spyrja þá álits. En hvað sem þessu líður er ungmennunum það áreiðanlega fyrir beztu að slæpast ekki í nokkra mánuði á ári hverju, heldur ber að fá þeim viðfangsefni, sem eru við þeirra hæfi, þ.e.a.s. störf í hinu daglega lífi í þjóðfélaginu. „...í hrópandi andstöðu44 Fyrir nokkrum dögum, birtist í Tímanum, viðtal við Halldór Sigurðsson, f jármálaráðherra um skattamál. Þar segir hann m.a. „Framkvæmd skattalaga- ákvæða, m.a. um hlutafjárarð- inn, flýtifyrninguna hjá fyrir tækjum og margt fleira væri I hrópandi andstöðu við málefna- Nú er mikill annatimi i hraðfrystihúsum. Þessi mynd er úr hra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.