Morgunblaðið - 12.03.1972, Page 17

Morgunblaðið - 12.03.1972, Page 17
MORCUNiBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1972 17 GRENJASKYTTIRÍ EÐA VILLIMINKAVEIÐAR um úthlutunarmál listamanna ---------------------------EFTIR JÓN ÚR VÖR 30 ára stríð listamanna — og þó ekki lokið Islendingar hafa lengi haft orð fyrir að vera miklir einstaklings- hyggjumenn. Listamenn eru þar ekki barnanna beztir. Þó tekur út yfir alian þjófabálk með rithöfunda. Þeir skipta sér í þriggja manna klíkur, sem siðan splundrast sitt á hvað. Þess er því varla að vænta, að stjórn völd láti slíka menn segja sér fyrir um það, hver launakjör þeirra eigi að vera, enda væri synd að segja að þeir hafi þar miklu fengið að ráða. En þarf þetta að vera svona, er listafólki þetta eðlilegt? Er sú mann tegund í rauninni svona ólík öðrum, eru þeir í raun og veru svona tóm- látir um eigin hag? Það er nú síð ur en svo. Öllum þessum spurning- um svara ég neitandi. En sínar stop- ulu og fáu tómstundir verða þeir að nota til listaiðkana. Þeir forðast fé- lagsmálastörf í lengstu lög. Allt það agg og nagg og illindi, sem sliku vill fylgja hjá skapheitu og óvenju hörundsáru fólki, á ekki við þá. Fæst ir þeirra nenna heldur að standa í því að ota sínum tota, enda er stolt- ið aðall þeirra flestra. Út í þessa sálma get ég ekki farið hér. En ekki sízt þess vegna verður að ætlast til þess af alþingi og ríkisstjórn, að hlustað sé á það, sem þeir hafa að segja, sem þrátt fyrir allt eru að eyða tíma sinum og kröftum í félags- málaþrefið. Síðustu 10—15 árin hafa að sjálf- sögðu ýmsar skoðanir komið fram meðal listamanana um það, hvemig bezt sé að verja þvi fé, sem tekst að kría út úr ríkissjóði. Hér nefni ég þrjár kenningar: Toppstefnu- menn, sem ég svo kalla, vilja háa styrki handa framúrskarandi mönn- um, þeim á að tryggja viðunandi starfslaun, en láta hina, sem ekki þykja ná máli, bjargast á eigin spýt- ur. Þetta væri eflaust peningalega hagkvæmasta lausnin fyrir hið op- inbera. 1 öðrum hópnum eru meiri jafnaðarmenn. Þeir vilja nema van- kanta af núverandi kerfi, en ekki gera miklar breytingar, veita misháa styrki og láta sem flesta koma til greina. Loks eru það þeir, sem þarna standa mitt á milli. Þeir vilja að núverandi „hærriflokkur" verði stofn að föstum aðalflokki, sá lægri verði nokkurs konar biðflokkur, ennfremur verði veittir lausir styrk- ir fyrir einstök verk, eitt og eitt ár í senn, loks starfsstyrkjakerfi, þar sem greitt yrði árskaup til ákveð- inna verkefna. Stefnu þeirra síðastnefndu aðhyll- ist sá er þetta ritar. Ég hef alllengi reynt að vinna henni fylgi. Satt að segja er ég þó með enn róttækari kenningar: Algjöran aðskilnað rit- höfunda frá hinu almenna úthlutun arkerfi og eflingu þess Rithöfunda- sjóðs, sem þegar er til og fær nú að- altekjur sínar frá bókasöfnunum. 1 hann vil ég að renni og hlutur rit- höfunda úr úthlutunarsjóði og hluti af söluskatti bóka. En til samkomu lags við aðra held ég mig við þá stefnu, sem líklegri er til þess að ná fylgi Alþingis. Mun ég nú gera grein fyrir henni hér. HEIÐURSMENN FYRR OG NÚ Fyrst verða fyrir okkur heiðurs- mennirnir ellefu. Úthlutunamefnd hefur stungið upp á þvi, að þar komi til viðbótar tveir rithöfundar og tveir myndlistarmenn, geri ég ráð fyrir að það verði samþykkt á Al- þingi. Ég tel þó sjálfsagt, að með þessum hætti séu einnig heiðrað ir tveir aldraðir söngvarar, sem varpað 'hafa ljóma á nafn Islands víða um heim. Ég á þar auðvitað við Maríu Markan og Stefán Islandi. Aðaltillaga mín er þó þessi: 1 heið urslaunaflokk flytist allir þeir lista- menn, 70 ára og eldri, sem nú eru í efra launaflokki, ennfremur einn af okkar fjölhæfustu og beztu lista- mönnum, sem árum saman hefur ver- ið smánaður með því að vera í lægra flokki. Mér reiknast til að þetta gætu verið samtals 17 menn til við- bótar þeim 11, sem fyrir eru. Þetta myndi kosta ríkið um það bil þrjár milljónir króna, ef gert er ráð fyrir, að það fé sem þessir menn fengu áður, verði eftir í almenningi úthlut- unarnefndar. Með þessum hætti væru heiðursflokksmenn orðnir 28. Þessum flokki vil ég svo loka al- gjörlega, bæta ekki við nýjum mönn um, láta heiðurslaunanafnbótina hverfa með þeim, sem þá *bæru hana. Ef hún yrði nokkurn tíma tekin upp aftur ættu að fylgja henni full starfs laun. Einhverjum kann nú að þykja það ofrausn að ríkið borgi helztu og elztu listamönnum sínum þrjár millj- ónir á ári í kaupuppbót. Sök sér, myndu menn kannski segja, ef ekki væri bá eftir allur skari hinna Franihald á bls. 21. samning og alla stefnu nýju rik- isstjórnarin nar.“ Þau tvö ákvæði núgildandi skattalaga, sem fjármálaráð- herra telur vera „í hróp- andi andstöðu" við stefnu rikis- stjórnarinnar, eru annars vegar, að nokkur arður af hlutabréfa- eign sé skattfrjáls hjá þeim, sem arðinn fær, og hins vegar það ákvæði, að fyrirtækjum sé auð- veldað að endurnýja tækjabún- að sinn með þeim hætti að mega afskrifa strax kostnað við end- urnýjunina. Þessi tvö ákvæði miða að eflingu atvinnurekstrar í höndum borgaranna. Annars vegar er um það að ræða, að þeir, sem verja fjármunum sín- um beint til þátttöku í atvinnu- rekstri, fái að njóta nokkurs af- raksturs af þvi fé og endur- gjalds fyrir þá áhættu, sem þeir taka, og hins vegar er um að ræða hvata til að koma við fyllstu tækni og mestu afköst um í íslenzkum atvinnuvegum. Sjálfsagt segir fjármálaráð herra það satt, að þetta sé „í hrópandi andstöðu" við stefnu vinstri stjórnarinnar. Hún hef- ur boðað meiri sósíalisma hér á landi en nokkur stjórn önnur hefur gert. Hún stefnir mark- visst að því að færa fjármuni frá atvinnuvegunum og borgur- um landsins til miðstjórnarvalds í Reykjavík. Hún færir einnig fé frá landsbyggðinni til þess- arar sömu yfirstjórnar. Ráð- herrar Framsóknarflokksins hafa látið undan öllum kröfum kommúnista um aukinn sósíal- isma, enda hafa kommúnist- ar það í flimtingum, að Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, sé einstaklega þægilegur við- skiptis og góður við þá! Víða um land hafa að undan- förnu risið upp fyrirtæki, þar Sfrystihúsi Isbjarnarins á Seltjar nai nesi. (Ljósm. Mbi.: Sv. Þorm.) sem borgararnir hafa tek- ið höndum saman um að leysa aðkallandi verkefni á sviði at- vinnulífs. Þeir hafa lagt fram fjármuni til styrktar byggð- arlögum sínum. Því var tal- ið eðlilegt, að þeir fengju að njóta í nokkru afraksturs af þessu framtaki sinu, og í lög voru tekin ákvæði um, að arð- ur af hlutabréfum, allt að 30.000 kr. hjá hverjum einstaklingi, skyldi skattfrjáls. Var þetta ekki sízt gert vegna ákvæðis um skattfrelsi sparif jár. Vinstri stjórnin telur það eitt mesta afrek sitt að ætla nú að afnema þessi ákvæði og þjarma þannig að þeim, sem lagt hafa sig fram um að styrkja at- vinnurekstur í sínum byggðar- lögum. Ef það er rétt, að þessi ákvæði séu í hrópandi and- stöðu við stefnu ríkisstjórnar innar, þá er hitt líka rétt, að hún hyggst hindra framtak á borð við það, sem átt hefur sér stað í mörgum byggðarlögum að undanförnu. Hún hyggst þjarma að atvinnurekstrinum, auðvitað með það fyrir augum að þjóð- nýta sem mest af honum, er stundir líða. Halldóri Sigurðs syni ber því að þakka fyrir að upplýsa, hve mikið hjartans mál ríkisstjórninni er að hindra heil- brigða atvinnuuppbyggingu. * Malta og Island Undanfarna mánuði hafa menn fylgzt með tilraunum vinstri stjórnarinnar á Möltu til að láta múta sér sem ræki- legast. Mintoff, forsætisráðherra þess rikis, þvælist á milli höf- uðborga til þess að bjóða sig og land sitt falt, þeim sem bezt býður. Þótt risið á vinstri stjórninni á íslandi sé ekki hátt, þá leggj- ast ráðherrar okkar þó ekki jafn lágt og skoðanabræður þeirra á Möltu. Síðasta vinstri stjórn á Islandi krafðist mútu- fjár úr sérstökum öryggissjóði Bandaríkjanna og fékk það fé. Hún hlaut slíkt ámæli fyrir þær sakir, að ólíklegt er að nýja vinstri stjórnin leitist við að feta í fótspor þeirrar fyrri. Þvert á móti verður að ætla, að Islend- ingar allir séu um það sammála að gæta heiðurs síns og forðast athafnir á borð við þær, sem vinstri stjórnin á Möltu hefur gert sig seka um. En ekki er úr vegi að vekja á því athygli, að brezk stjórn- arvöld virðast eiga dálítið erfitt með að gera sér grein fyrir Is- lendingseðlinu. Sömu dagana og þeir lýsa sig fúsa til að greiða mikla fjármuni í mútufé til vinstri stjómarinnar á Möltu, segjast þeir ætla að beita okk- ur Islendinga valdi, vegna þess að við höldum fram rétti okkar. Þeir eru bandalagsþjóð okkar og vita sem er, að varnarstöð- in á Keflavíkurflugvelli er mun meira virði fyrir sameiginlegar varnir lýðræðisþjóða en herstöð þeirra á Möltu. En engu að síð ur segjast þeir munu beita okk- ur hefndaraðgerðum, ef réttindi þeirra á Islandsmiðum verða skert, sömu dagana og þeir bjóða Möltubúum fé fyrir það að við- halda flotastöð þar í landi. Hér stangast hvað á annars hom og fer lítið fyrir stjórnvizku Breta. Þess má geta, að fjárhagstjón það, sem Bretar kunna að bíða af útfærslu landhelginnar, er hvergi nærri jafn mikið og það fé, sem þeir bjóða Möltustjóm. Raunar er ástæða til að ætla, að fjárhagstjón þeirra verði hverf- andi lítið, þvl að þeir . hafa styrkt fiskveiðiflota sinn og sjálfsagt væri það hagkvæmara fyrir þá, er fram í sækti, að kaupa fiskinn af okkur en sækja hann hingað með ærinni fyrirhöfn. A.m.k. er óhætt að fullyrða, að aðeins þyrfti brot af því fé, sem Möltustjóm er boðið, til þess að bæta brezkum fiskimönnum það tjón, sem þeir kunna að verða fyrir, þegar dregið verður úr veiðum þeirra hér við land. En Bretar eru stolt þjóð, eins og við Islendingar. Þeir ætla víst ekki að láta neinn bjóða sér birginn. Ef menn vilja leggjast í duftið og bjóðast til að taka við mútum, þá er allt í lagi, en annars skulu menn fá að vita, hvar Davíð keypti ölið! * I ganrni og alvöru Mönnum kann nú að finnast, að nokkuð strákslega sé talað um lífshagsmunamál þjóðarinn- ar og ósanngjarnar séu aðdrótt- animar í garð Breta. En ðllu gamni fylgir nokkur alvara. Stórveldi kunna því oft illa, þegar smáþjóðir þykjast hafa sama rétt og þau. Truman, Bandaríkjaforseti, var ekki gagnrýndur, þegar hann árið 1945 lýsti yfir eignarrétti Bandaríkjanna að hafsbotninum á öllu landgrunni þess stórveld- is. Hann hafði valdið sín meg- in. Sá, sem valdið hefur, virðist og hafa réttinn. Á það hefur verið bent, að með þessari yfir- lýsingu hafi Truman forseti markað þá stefnu, að ekki ein- ungis botninn á landgrunninu yrði eign strandríkja, held- ur einnig hafsvæðið þar yf- ir. En þegar við Islendingar lýs- um yfir rétti okkar í samræmi við þessa stefnu, þá erum við vargar í véum. Bretland er gamalt stórveldi, og sjálfsagt finnst sumum Bret- um súrt í broti að þurfa að sætta sig við, að „kotriki" eins og Island segist fara sínu fram, hvað sem hótunum líði. Kannski yrðu þessar „eftir- stöðvar" nýlendustefnunnar blíðar á manninn, ef við kæm- um knékrjúpandi til þeirra og segðum: Góðu vinir, við viljum viðhalda vináttu og viðskipta samböndum við ykkur, en þið þurfið að múta okkur til þess. En slík samskipti eru andstæð íslendingum. Við íslendingar munum kapp- kosta að halda vináttu okkar 1 við Breta, enda hafa margir Bretar sýnt okkur mikinn vin- áttuvott upp á síðkastið. Slíkt fer ekki framhjá neinum Islend- ingi. Við ætlumst ekki til neins endurgjalds fyrir vináttu okk- ar, einfaldlega vegna þess að okkur er vinátta mikils virði. Við viljum engum skulda neitt og teljum okkur engum skulda neitt. En við munum standa fast á rétti okkar, og Bretar mega vita það, að stjórnarandstæðing- ar á íslandi verða jafn harðir í horn að taka og stjómarsinnar og kannski harðari, ef til þess kæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.