Morgunblaðið - 16.03.1972, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.03.1972, Qupperneq 7
 MORGUNBLAÐIí), FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1972 7 Js __ ___ ___ - DAGBÓK BARMNM.. BANGSIMON og vinir hans Ekki veit ég, hvort hann hefði fundið nokkurt ráð, þegar hann var búinn með allar brauðsneiðamar, en hann var kominn að þeirri næst-síðustu, þegar skrjáf- aði í burknunum og þeir sáu, hvar Jakob og Asninn komu gangandi. „Ekki yrði ég hissa, þótt kæmi haglél á morgun,“ sagði Asninn. „Og hríðar- bylur og þess háttar. Þó áð veðrið sé gott í dag, þá er ómögulegt að treysta neinu. Það er bara í dag og ómögulegt að vita, hvað verður á morgun.“ „Þarna er Bangsímon,“ sagði Jakob. Honum var alveg sama, hvernig veðr- ið var, bara ef hann var úti. „Góðan daginn, Bang- símon.“ „Þarna er Jakob,“ sagði Grinslingurinn. „Hann veit áreiðanlega hvað við eig- um að gera.“ Þeir flýttu sér báðir til hans. „Heyrðu, Jakob.......,“ sagði Bangsímon. „Og Asni,“ bætti Asninn við. „Tígrisdýrið og Kengúru barnið eru uppi í einu grenitrjánna og þau kom- ast ekki niður....“ „Og ég sagði einmitt áð- an,“ sagði Grislingurinn, „að ég vildi óska að Jakob.....“ „Og Asninn....,“ bætti Asninn við. „Að ég vildi óska að þið væmð komnir. Þá mund- um við áreiðanlega finna eitthvert ráð.“ Jakob leit upp og sá Tígrisdýrið og Kengúru- barnið, og svo reyndi hann að láta sér detta eitthvað í hug. „Ég held,“ sagði Grisl- ingurinn, „að það væri ráð, að Asninn stæði við tréð og Bangsímon stæði á bak- inu á Asnanum og ég stæði á öxlunum á Bangsímoni og.....“ „Og bakið á Asnanum mundi brotna og þá mundu allir fara að hlæja.... Ha, ha. Kannski skemmtilegt,“ sagði Asninn, „en ekki sér- lega árangursríkt.“ „Jæja,“ sagði Grislingur- inn niðurlútur, „mér datt bara í hug.....“ „Mundi bakið á þér þá brotna, Asni?“ spurði Bang símon alveg hissa, „Já, það væri einmitt mjög skemmtilegt, Bang- símon. En það er ómögu- legt að segja nokkuð um það fyrr en eftir á.“ „Nú-ú,“ sagði Bangsím- on og svo fóm allir að hugsa aftur. „Nú dettur mér ráð í hug,“ sagði Jakob. „Hlustaðu nú vel á, Grislingur,“ sagði Asninn, „því að nú skaltu heyra, hvað við ætlum að gera.“ „Ég fer úr frakkanum og svo getum við haldið sinn í hvert hornið á honum og svo geta Tígrisdýrið og Kengúrubarnið hoppað nið ur í frakkann. Það verður mjúkt að detta í hann og þau meiða sig ekki.“ „Að ná Tígrisdýrinu nið- ur,“ sagði Asninn, „án þess að nokkur meiði sig .... það er aðalatriðið. Gleymdu því ekki, Grisl- ingur.“ En Grislingurinn hlust- aði ekki á hann, því hann var svo fullur eftirvænt- ingar. Nú mundi hann nefnilega fá tækifæri til að sjá aftur bláu axla- böndin, sem Jakob var með. Hann hafði séð þau einu sinni áður, þegar hann var miklu yngri, og hann hafði orðið svo frá sér numinn af hrifningu, að hann hafði orðið að fara að hátta hálftíma fyrr en venjulega, og síðan hafði hann oft velt því fyrir sér, hvort þau hefðu verið eins blá og falleg og hann minnti að þau hefðu verið FRflMWHLBS Sfl&fl BflRNflNNfl FERDINAND Finnboga saga ramma — Teikningar eftir Ragnar Lár. '!< 49. Ingibjörg spyr dóttur sína, hvort hún vill fara með þessum manni. Hún bað hana ráða. Móðir hennar býr hana út með gull og silfur og marga hina beztu gripi. Finnbogi rær með hana brott. Þá spyr mærin Finnboga, hversu þeir faðir henn- ar hefðu skilið. Hann segir þá sem var. 50. Þá tók mærin að gráta. Finnbogi mælti: „Vertu kát, ekki skal ég níðast á þér. Verður sem má um mína framferð aðra.“ Síðan koma þau til eyjarinnar fram fyrir hellinn, og bar hann á skip fé það, er þar var. Síðan rær hann suður með landi. og þegar hann kemur til hafnar, skortir hann eigi menn til þess, er hann vill. BROTAMÁLMUR Ka-upi allan brotamálm hæ-sta veröi, staðgreiösla. Nóatún 27, smi 2-68-91. VOLKSWAGEN '60 tíl sö'lu, U'ppger&uir b'fM. Upp- iHýsiiinigair í síma 26105 mirNii kl 6—8. INNRÖMMUM myndir og máiv&rk. Ramma- listar frá Þýzkalandi, Hollandi og Kína. Matt gler. Raimnniageröin, Hafnarstræti 17. ÞVOTTAHÚS tiil sölu af sérstökom ástæð- um. Allar vélar, hilll'ur o. fl. Fasteignamiðstöðin Austunsitræti 12. PRJÓNAVÉLAR ti:l sölti, góð kj&r. Fasteignamiðstöðin A usiturstræt i 12. VERZLLHM til leigu eða sölu. Fasteignamiðstöðin AusiUi'Pstræti 12. teÚÐ ÓSKAST tli'l leígu secn fyrst i Reyk jia- vík, Kópavogi e&a Hafriapr1- firði. Uppl í sima 26669. 1 FJARVERU MINNI (óáJkveðið) gegnir Jón G. Niikulásisoin sjúk'ra'sam lag&l ækn ing-uim fyr- «r mig. Öf e igur J. Ófeigis-son. HEITUR OG KALDUR MATUR Smurt brauð, brauðtertur, leiga á dúkum, diskum, hnífa- pörum, glösum og flestu sem tilheyrir veizluhöldum. Veizlustöð Kópavogs sími 41616. NÝKOMiÐ FRÁ KlNA Otsaumaðir borðdúkar, stól- setur og bök, púðaborð og klukkustrengir. Vandaðar vör- ur — mjög lágt verð. Rammagerðin Hafnarstræti 17 Rammagerðin. Austurstræti 3 BlLL ÓSKAST Óska eftir að kaupa Toyofa Crown eða Peugeoit 404 A&rar sambærilegiar tegwtdir kome ©innig tíl greinia. Etóri bílar en árg. 1966 koma eikikíi til gireina. Sími 81279. MEÐEIGENDUR ÓSKAST Vantar meðútgefendur að tímanti um þjóðfél.mát, bó'k menntiir o. fl. Tiliboð sendiist. afgr: Mtol. f. 25/3, me'rktTíima rit 1947, eða ti'l undinritað® Sveinn Kriistinisson Þómfelfi 16 (4. hæð) R. ÞHR ER EITTHURÐ FVRIR RLLR LMYNDAMOT HFJ AÐALSTRÆTI 6 — REVKJAVlK ^PRENTMYNDAGERÐ SlMI 17152J ^AUGLÝSINGATEIKNISTOFA^ SIMI 25810

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.