Morgunblaðið - 18.03.1972, Qupperneq 7
MORGU'NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1972
7
.6v>e
lööwóowe
& ö 2/4 w€)'4 i <5 ö6 w é>4 ö'WS Í^l! 6 ^ ^
DAGBOK
BARMNM..
BANGSIMON
og vinir hans
„Verið tilbúnir,“ kallaði
Jakob til hinna.
Það heyrðist dynkur,
eitthvað rifnaði og allur
hópurinn lá í kös í grasinu.
Jakob, Grislingurinn og
Bangsímon stóðu fyrstir á
fætur og þeir reistu Tígr-
isdýrið upp. Neðstur lá
Asninn.
„Ó, Asni,“ kallaði Jakob,
„finnurðu nokkurs staðar
til?“
Og hann fór að þukla á
Asnanum, bursta af honum
og reisa hann við.
Góð stund leið áður en
Asninn svaraði. Þá sagði
hann: „Er Tígrisdýrið hér
nokkurs staðar?“
Tígrisdýrið var þar og
það langaði mest til að
fara á harðahlaupum af
einskærri gleði.
„Já, það getur verið
ánægt fyrir mér,“ sagði
Asninn.
Fimmti kafli
Kaninka á annríkt og við
fáum að vita, hvað Jakob
gerir á morgnana.
Þetta hlaut að verða
annríkisdagur hjá Kan-
inku. Um leið og hún
vaknaði, fann hún, að á
henni hvíldi mikil ábyrgð,
rétt eins og allt væri und-
ir henni komið. Þessi dag-
ur mundi vera tilvalinn til
að Skipuleggja eitthvað
eða Gera skýrslu og skrifa
undir hana K. Kaninka
eða rannsaka Hvaða álit
hin hefðu á málinu. Þenn-
an morgun bókstaflega átti
að hlaupa eins og fætur
toguðu til Bangsímonar og
segja: „Jæja, þá segi ég
Grislingnum það,“ og
hlaupa svo eins og fætur
toguðu til Grislingsins og
segja „Bangsímon segir ...
en það er líklega betra að
ég tali við Ugluna fyrst.“
Þetta var svona allsherjar-
skipulagningar-dagur og
allir áttu að segja: „Já,
Kaninka“ og „Nei, Kan-
inka,“ og bíða þegjandi,
þangað til hún hafði lok-
ið máli sínu.
Hún fór út og andaði að
sér hlýju vorloftinu og
velti því fyrir sér, hvernig
hún ætti að byrja. Hús
Kengúru var næst og
heima hjá Kengúru var
Kengúrubarnið, sem sagði:
„Já, Kaninka“ og „Nei,
Kaninka,“ betur en nokk-
ur annar í skóginum. En
nú bjó líka annað dýr hjá
þeim, þetta undarlega og
fyrirferðarmikla Tígrisdýr,
dýr, sem alltaf var komið
á undan, þegar átti að vísa
því til vegar og hvergi var
sjáanlegt, þegar maður
loksins kom á staðinn og
ætlaði að segja hreykinn:
„Hér er það.“
„Nei, ég fer ekki til
Kengúru," hugsaði Kan-
inka með sjálfri sér og
sneri upp á veiðihárin í
sólskininu. Og til þess að
vera alveg viss um, að hún
færi ekki þangað, sneri
hún strax til vinstri og
labbaði af stað í þá átt....
FRflMttflbÐS
SrfiErfl
MRttflNttfl
FERDINAND
Finnboga saga ramma — Teikningar eftir Ragnar Lár.
53. „Deyddir þú björninn?“ mælti jarl. Hann kvað
það satt vera. „Með hverjum fórstu norðan?“ mælti
jarl. Finnbogi svarar: „Með álfi afturkembu, mági
yðar.“ Jarl mælti: „Hvar skilduzt þið?“ Finnbogi
segir: „í eyju einni.“ „Hví var hann þar eftir?“ seg-
ir jarl. „Ég vá hann,“ segir Finnbogi.
54. Jarl setti rauðan sem blóð. „Vissir þú eigi, að
engi maður var mér kærri í landinu?“ Finnbogi
svarar: „Nógar voru sakir. Hann vildi deyða mig.
Vil ég bjóða mig til fylgdar í stað Álfs. Enn tók
ég brott úr Sandey Ragnhildi Álfsdóttur.“ Jarl
segir: „Annað hvort ertu fól, eða þú þykist eiga
mikið undir þér. Skaltu nú reyna þig.“
BYGGINGARFÉLAGI ÖSKAST til að byg-gja tvíbýfehös á góðum stað á Sehjanntamesi. Uppl. í sima 30696.
TilL SÖLU Wi'lilys '63. Skoðaður '72, ©tál- bús, kliæd'duir cg ný dekk. — Ope! Rekord '64, má greið®sit með skuldabréfi. Upplýsing®r í ®íma 10751.
FORD CORTINA 1971 til sölu. Glæsilegur b'fH, 4ra . dyre, vél 1600 (76 hestöf'l), ©kimn 10.000 km. Thl sýnis að Hríseteigi 47 utm helg*ne. Símii 36125.
TIL SÖLU fallegt sófasett, 4na sæta sófi, . 2 stólar og skemiM. Eimrnig damskt teak hjórvarúm með áföstum náttbcrðum og dým- uim. Uppl. 13741.
MiATVÆLAIÐJA Húsnæði óskest fyrir veizlu- stöð — þarf ekki að vere f umferðargötu. Tilboð, menkt Metsvein.n 1014, sendist afgr. Morgunblað’sins.
TIL LEIGU góð 3ja herb. rbúð í 1—1 ár. Leigist gjarnam með húsgögm- urn. Tilboð, merkt Reglusemi 1012, semdist Mbl. fyrir 23. marz.
húsdýraAburður Húseigendur — ö>kum bús- dýraá'burði á lóðir, ódýr og góð þjómusta. Upplýsingar f síma 40563.
UNG BANDARlSK STÚLKA óskar eftir 1—4 berbergja íbúð strax, f Reykjevík eðe Keflavík. Reglu’semi heitið. Upplýsimgar ! síma 23622.
FRÍMERKI — FRtMERKI Islenzk frimenki til söfu. Grettisg. 45 A.
HAFNARFJÖRÐUR 2ja herbergja íbúð að Kvl- holti 1 til leigu. Ibúðin er tiJ sýnis í dag frá kl. 13—17. Tilboð óskast.
NÝKOMIÐ FRA KlNA Útsaumaðir borðdúkar, stó'l- setur og bök, púðaborð og klukkustrengir. Vandaðar vör- ur — mjög lágt verð. Rammagerðin Hafnarstræti 17 Rammagerðin. Austurstræti 3
HERBERGI ÓSKAST Reglusöm ung stúl'ka, sem vinnur í skrifstofu i Míðborg- inni, óskar eftir herbergi til leigu eigi síðar en 23. þ. m. Uppl. i sima 11948 mul'li kl. 16—19.
KLUKKUSTRENGUR TAPAÐIST Fyrir sl. helgi tapaðist hálf- saumaður klukkustrengur, k.rosssaumur með dökkrauðu garni. Finnandi vinsamlega hringi í síma 2 36 25. Fundar- laun.
Húsgagnaverzlunin HÚSMUNIR gerjr kunnugt: Plus-áklæði í úrvali, ennfpemur kögur, smúr- ur og leggingar. Húsgagna- verzlunin húsmunir Hverfns- götu 82 (Vitastígsmegim), sími 13655.
t:l sölu Volvo Penta bátavél, 70—80 hestöfl. Gerð M. B. 47, árgerö 1960. Uppl. gefur Jóhann Guðmundsson. Simi 51 Þóns- höfn milln kl. 19—20 á kvöld- in.