Morgunblaðið - 03.05.1972, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.05.1972, Blaðsíða 22
«0»r* «11* AM V -íít’{>AG fHTVnn 22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAl 1972 Dóróthea Þórðar- dóttir — Minning Hún var ein af hinum gömlu, sterku stofnum, sem ekki bogn uðu, unz þeir brotnuðu í byln- um stóra. Ein af þeirri hetju- kynslóð, sem gerði íslenzku þjóðinni kleift í fátæikt sinni og fámenni að verða sjálfstætt sam félag traustra þegna. Ein þeirra sem fyrst gerði kröfur til sjálfr ar sin, en síðan til annarra. Hún lézt á sjúkrahúsinu á Akureyri 23. þ.m. tæplega níræð og hélt líkarns- og sálarkröftum furðu- lega vel næstum þvi til hinztu stundar. t Elskulegi eiginmaður minn, Karl Oddsson, frá Súgandafirði, Bergþórugötu 25, lézt að heimili sinu að morgni 2. maí. Jóhanna Jónsdóttir. t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Marsibil Kristmunsdóttir, andaðist að Hrafnistu 1. maí sl. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Hallgrímur Guðmundsson, Óskar Hallgrímsson, Rakel VídaJín, Kristín Hallgrímsdóttir, Hilmar Vilhjálmsson og barnabörn. Dóróthea Þóiðardóttir fæddist 6. maí 1882 i Syðra-Garðshomi í Svarfaðardal. Foreldrar henn ar voru Guðrún Björnsdóttir bónda þar, sem var annálaður dugnaðarmaður og Þórður Jóns- son, siðar bóndi á Steindyrum og Skáldalæk, „vaskur maður, árrisull og áhugasamur og svo t Móðir okkar, Pálína Andrésdóttir, lézt á Elliheimilinu Grund þann 28. april. Þóra Stefánsdóttir, Áslaug Stefánsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma JÓHANNA ÞURlÐUR ODDSDÓTTIR, Melaheiði 15, andaðist aðfaranótt 2. maí. Böm, tengdabörn og bamaböm. t Faðir okkar, ÞORGRlMUR ÓLAFSSON, fyrrverandi kaupmaður, lézt í Borgarsjúkrahúsinu 30. aprll. Ingibjörg Þorgrímsdóttir, ólafur Þorgrímsson, Inga Þorgrímsdóttir, Sigurður Þorgrímsson. t Móðir okkar, SIGRlÐUR SOFFlA ÞÓRARINSDÓTTIR, frá Valþjófsstað, Skaftahlíð 10, lézt I Landspítalanum 1. maí. Erna og Ragnheiður Aradætur. Bálför eiginmanns míns, JÓHANNESAR skálds úr Kötlum, verður gerð frá Fossvogskaupellu, föstudaginn 5. maí kl. 3 e.h. Hróðný Eirtarsdóttir. þrifinn og hirðusaimur, að bragð var að.“ Barn að aldri fluttist Dóróthea imeð foreldrum sirrum að Stein- dyrum og ó!st þar upp, elzt 10 systkina. Ung var hún opinber- lega heitbundin vænuan manni, Sveini Jónssyni frá Þverá i Skíðadal, en hann dó á bezta aldri, fáum dögum áður en þau ætluðu að ganga í hjónaband. Bar hún hring hans alla ævi. Við lát Guðrúnar móður sinn- ar 1906 fór Dóróthea til föður sins og stóð fyrir búi með hon- um eitt ár og gekk raunar yngstu systkinum sínum i móð- ur stað. Áttu þau löngum hjá henni annað athvarf, eftir að hún stofnaði sitt eiigið heimili. Hinn 2. april 1907 giftist Dór- óthea Árna Jónssyni frá Sök'ku, elzta syni Elinar Árnadóttur og fyrra manns hennar, Jóns Gunn laugssonar bónda þar og há- karlaskipstjóra. Voru þau fyrst skamman tima á Söikku, þá um eins árs skeið á Þóroddsstöðum í Ólafsfirði, en fóru að búa á Þverá i Urðasókn 1910 og stóð svo til 1924, er Árni dó, og hafði lengi verið heilsuveill. Þeim varð auðið fjögurra bama: Lov- isa húsfreyja á Akureyri, gift Daníel Guðjónssyni, Jón Magnús verksmiðjustjióri á Ak- ureyri, dáinn 1962, átti Dagmar Sveinsdóttur, EMn húsfreyja á ísafirði, gift Guðbjarna Þor- valdssyni og Sigurveig hús- freyja á Akureyri, gift Jóni Oddssyni. Alls eru afkomendur Dórótheu orð.úr 41. Eftir lát Árna manns síns bjó Dóróthea enn á Þverá með börn um slnum um sex ára skeið, og má nærri geta, hve auðvelt það hefur verið á þeim tíma ekkju með fjögur börn. Hún unni manni sinum heitt og tregaði hann sárt, en helztu ráð, er hún hlaut 1 vam' æðum sínum, eftir lát hans, voru þau, að sundra skyldi heimilinu og láta bömin frá sér fara, en það sagðist hún aldrei gera, meðan t Eiginkona mín, Þuríður Guðbjartsdóttir, Karfavogi 11, lézt aSfaramótt laugardags- ins 29. april í Borgarspitalan- um. Fyrir hönd bama okkar, for- eldra, systkina og tengdafor- eldra, Hafsteinn Kristjánsson. hún gæti á fótunum staðið. Hún var mj'ög viljasterk og alla tið hraust, ól börn sin upp i skil- yrðislausri sannsögli, kenndi þeim að standa við orð sin, vera ábyrg og bregðast aldrei skyld- um sínum i lífinu, — og gera bágstöddum gott. Eftir búskap sinn á Þverá fluttist Dórótlhea til Akureyrar og átti heima hjá börnum sin- um frá 1940 nær óslitið á heimili Sigurveigar dóttur sinnar, þar sem hún naut þeirrar umhyiggju sem bezt mátti verða. Dóróthea naut ekki skólagöngu í æsku fremur en þá var titt um dætur fátækra bænda, og fann hún Framh. á bis. 30 Minning: Esther Júdith Steinsson Hún fæddist 23. j'úní, árið 1898 í Rönne, á Borgundarhólmi. Þar ólst hún upp i stórum systk- inahópi. Flest þeirra eru nú lát- in. Til Islands kom hún árið 1920 ásamt systur sinni Berthu, giÆtri Hirti Sandholt. Sama ár giftist Esther Jóhanni Steinssyni, fyrr- um yfirvélstjóra hjá Eimskip, ágætum dugnaðarmanni. Hann lézt árið 1966. Þau áttu saman 6 syni, er allir eru uppikomnir, flestir búsettir hér i bæ. Eina dóttur eiignuðust þau, en misstu hana aðeins 12 ára gamla, var þeim missir hennar sár alla tíð. Heimili þeirra Esther og Jó- hanns var til fyrirmyndar í allá staði. Betri heimilisföður en Jó hann var ekki hægt að huigsa sér. Um húsfreyjuna er það að segja, að hún var alla tíð höfð- ingi í sínu húsi. Esther var ákaflega kjankmik il kona, og hafði óvanalega létta t Útför Tryggva Ásgrímssonar, bifreiðaviðgerðarmanns, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. maí. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Vandamenn. l'und. Aldrei heyrðist hún kvarta, á hverju sem gekk. Það ber vott um þrek hennar, að öll þau ár, sem eiginmaður hennar var í siglingum landa á milli, m.a. öll stríðsárin, sá hún að heita má ein um sitt stóra heimili, og böm, og hefur það ekki verið auðvelt verk. Eftir að Jóhann féll frá, gerði hún sér far um, að ailt yrði áfram í sömu skorðum ag áður var. Alltaf var höfðingsskaipur- inn samur og jafn, er hún var sótt heim. öllum, sem hana þekktu, gerði hún gott. Þrátt fyirir eigin veikindi, er ágerðust með árunum, lét hún enigan bil- bug á sér finna, alltaf var hún létt og kát. Allir, fjölskylda, vinir, sem aðrir, komu betri af hennar fundi. Ég tel mig betur setta af kynnum mínum við hana, og er þalkklát fyrir þau. Margt mátti af henni læra og alltaf lagði hún gott til mál- anna. Barnabörnunum 23 að tölu þótti afar vænt um hana, enda var hún bairnigóð með af- brigðum. Eins og áður er getið, var Estiher borin og barnfædd í Danmörku, en flestum árum ævi sinnar ejiddi hún á Islandi, og hvergi annars staðar vildi hún frekar vera. Það er gott að minnast slikrar konu. Það sóp- aði af henni, hvar sam hún fór, bæði í sjón og raun. Mætt- um við eiignast fleiri slíkar kon ur. t Innilegt þakklæti fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Elísabetar Helgadóttur, Hringbraut 46. Vilh. Fr. Frímannsson, Klara Helgadóttir, Þorsteinn Helgason. t Móðir okkar GUÐLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR, Kópavogsbraut 83, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. maí n.k. kl. 13,30. Gróa Sigurjónsdóttir og systkini. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, JAKOB THORARENSEN, skáld, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fímmtudaginn 4. mai kl. 13.30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Borghildur Thorarensen, Laufey Jakobsdóttir, Elínborg Sigurðsson, Stefán Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson. t Faðir okkar, Kristján Jónsson, bakarameistari, Akurcyri, lézt laugardagirm 29. apriL Matthea Kristjánsdóttir, Þómnn Eylands, Snorri Kristjánsson. Hennar er sárt saknað. Anna Kristjánsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Otto B. Arnar. Karen Arnar, Eleanor og Gústav Arnar, María og Birgir Arnar, barnabörn. t Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð og hluttekningu við fráfall og útför móður okkar, Sigurbjargar Hjartardóttur, Kleppsmýrarvegi 2. Sérstaikar þakkir sendum við Þórarni Guðnasyni, lækni, og öðru hjúkrunarliði Borgar- spitalans fyrir einstaka hjúkr- un og umönnun. Elisabet Hjördis Haraldsdóttir, Jónína Guðrún Haraldsdóttir, Ifalla Vilborg Haraldsdóttir, Jón Kristinn Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.